Morgunblaðið - 03.01.1968, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 03.01.1968, Qupperneq 16
16 MORGUNBL-A ÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1968 Stálu 300 punda peningaskáp fannst óopnaður ÞRJÚ hundruð punda peninga- skáp var stolið úr Olíuverzlun BP í Bráðarey aðfaranótt síðastl. sunnudags, en í honum voru m.a. tíu þúsund krónur í pen- ingum, ávísanir og ýmis skjöl. Lögreglan í Borgarnesi fékk Reykjavíkurlögregluna í lið með sér og voru allir bílar sem komu úr Hvalfirði á sunnudagsmorgun, stöðvaðir við vegamótin til Þing valla, og leitað í þeim. Peningaskápurinn fannst fljót lega, en ekki í neinni bifreið, heldur liggjandi á jörðinni skammt fyrir ofan Borgarnes. Hann hafði ekki verið opnaður og þjófarnir því ekki haft nema erfiðið. Skápurinn var fluttur á sinn rétta stað, en leitinni að þjófunum er haldið áfram. Leit- að er að sérstakri bifreið sem talið er að komin sé til Reykja- víkur. Skip losuð úr Suezskuriinum? Kairo, Tel Aviv, 2. jan. AP—NTB. • STJÓRN Egyptalands hefur ákveðið að ryðja Súezskurð og hleypa þaðan fimmtán erlendum 200 farast í flóðum 50.000 heimilislausir Rio de Janeiro, 2. janúar NTB. • TALIÐ er víst, að um tvö hundruð manns, a.m.k. hafi farizt og um 50.000 manns misst heimili sín af völdum flóða í Sjúkraflutningar á snjóbíl — BÓNDINN Sigurjón Guðmunds- son á Eiríksstöðum, snerist — Áramótin Framh. af bls. 24 helzt líkzt venjulegri helgi. At- hyglisvert er, að óvenjufátt fólk fylgdist með því niður vi'ð höfn, þegar skipin þeyttu flautur sín- ar á miðnætti, og skutu upp flug eldum. Um 50 manns leituðu tii Slysa varðstofunnar á gamlárskvöld og nýársnótt, samkvæmt upplýsing- um Tryggva Þorsteinssonar, yfir- læknis. Voru þessi áramót með hinum friðsælari, og í fæstum tilfellum um alvarleg slys að ræða. Þó þurfti að gera að nokkrum brunasárum á höndum af völdum kínverja, svo og þurfti að gera að áverka á auga eftir sprengjublys. Dansleikirnir í höfuðborginni um áramótin fóru yfirleitt mjög vel fram og án stórtíðinda. Engar fregnir hafa borizt um meiriháttar óhöpp, eða slys utan af landsbyggðinni, en í flestum kaupstöðum og þorpum voru brennur og glatt á hjalla. - HEIÐARVEGIR Framhald af bls. 13 Sunnanlands var í gær sæmi- leg færð um Suðurlandsundir- lendið og um Þrengslin. En farið að verða illfært undir kvöldið um Hvalfjörð og Borgarfjöi'ð. Snæfellsnesið var fært. Þar var þó skafrenningur og í Staðar- sveit hafði flætt yfir veginn. Stórir bílar komust um Dala- sýslu í gær. Vegir á Vestfjörðum eru al- veg lokaðir og á Austfjörðum voru margir vegir tepptir í gær. Aðeins hægt að komast um Hér- að og til Suðurfjarða. Var alveg hætt við að reyna að opna veg- inn yfir Fjarðarhefði, en unnið að því að ryðja Oddsskarð, en ekki ljóst hvernig það mundi takast. — Sjúkraflutningur Framhald af bls. 2. Vegalengdin sem fara þurfti er yfirleitt farin á tveim og hálf um tíma, en vegna slæmrar færðar og óveðurs tók sjúkra- flutningurinn ellefu klukkustund ir. Það var sjúkrabíllinn á Húsa- vík sem notaður var til ferðar- innar en hann er með drifi á öll um hjólum, og búinn fullkomn- um tækjum. Sjúklingurinn var nokkuð hress þegar hingað kom, og meiðslin reyndust ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu. — FréttaritarL ökla og gekk úr liði á gamlárs- kvöld, er hann var að gefa fé sínu. Var þegar kallað í snjóbíl frá Egilsstöðum, sem náði í Sig- urjón, en hér er um 100 km leið frá Egilsstöðum. Ferðin gekk greiðlega þrátt fyrir óhagstæð snjóalög á Jök- uldal og tók ferðin ekki nema 6 klukkustundir og 30 mínútur. Farið var með sjúklinginn í Sjúkraskýlið á Egilsstöðum og liggur hann þar. Er líðan hans góð eftir atvikum. — HA. Itabuna og nágrenni i Brasilíu sl. viku. Er talið, að efnalegt tjón af völdum flóðanna nemi að minnsta kosti þúsund milljón- um króna ísl. Á þessum slóðum eru ein mestu kakaóræktarsvæði Brasiliu. Það er áin Cachoeira, sem flóði yfir bakka sína, fyrir nokrum dögum og náði flóðið, að sögn, allt upp að neonljósaskilt- utm verzlana í borgunuam Itabuna og Belmonte, þar sem ástandið varð verst. Skrásett tala heim- ilislausra var í gær orðin 30.000 en fjöldi manna var enn óskré- settur og var búizt við, að minnst fimmtíu þúsund manns í þrjátíu bæjum og héruðuim hefði misst heimili sín. Geysileg úr- koma hefur verið á þessum slóð- um, en undir helgina virtist held ur lát á henni og var búizt við, að ftóðið mundi senn sjatna. Flugvélar og þyrlur hafa flutt björgunarm'enn, hjúkrunargögn og vistir til flóðasvæðanna og þess hefur verið farið á leit við Bandaríkjastjórn, að hún veiti aðstoð við björgunarstarfið. Erfitt er að fá fregnir frá ftóðasvæðunum, þar sem fjöldi bæja og borga hefur einangrazt. Castro boðar benzín- skömmtun og sparnað — á 9 ára afmœli byltingarinnar Havana, 2. jan. AP—NTB. KÚBUBÚAR héldu í dag hátíð- legt níu ára afmæli byltingar Castros og hélt hann sjálfur aðal- ræðuna á byltingartorginu í Havana, þar sem samankomnir vor um 250.000 manns. Þar skor- aði hann mjög á landsbúa að sýna sparnað og dugnað og boð- aði skömmtun á henzíni og olíu til einstaklinga og strangt eftirlit með notkun á eldsneyti til opin- berra þarfa. Sagði Castro, að hættulega mikið væri gengið á eldsneytisbirgðir landsins. Sovétstjórnin sagði hann að hefði gert sitt til þess að létta erfiðleika Kúbubúa en allt benti til þess, að möguleikar Rússa til að fuilnægja eMsneytisþörf Kúbubúa væru takmarkaðir. Vegna gjaldeyrisörðugleika væri því nauðsynlegt að innleiða skömmtun. Fljótlega eftir að Castro hafði haldið ræðu sína höfðu hermenn tekið sér stöðu við allar benzínútsölur og til- kynntu hverjum, sem kaupa vildi, að til þyrfti sérstaka pappíra frá stjórnarvöldunum. Þá boðaði Castro nýtt form á herskyldu fyrir konur. Venju'lega hefur þessa dags verið minnzt með miklum her- sýningum í Havana, en að þessu sinni var engin hersýning, — vegna hins slæma ástands i efna hagsmálunum. Þess í stað mynduðu 50.000 skólanemendur með bækur sínar og landbúnað- arverkamenn með uppskeru- sveðjur sínar, kjarna hátíðaskrúð göngunnar. Óhogstæður vöruskiptajöfnuður HAGSTOFA fslands hefur birt bráðabirgðatölur um verðmæti útflutnings og innflutnings í nóvembermánuði 1967. Vöru- skiptajöfnuðurinn í nóvember varð óhagstæður um 411.712 þús. krónur. Útflutningur nam 440. 405 þús. krónum en innflutning- ur nam 852.117 þús. krónum. Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu 11 mánuði ársins var óhagstæð- ur um 2.804.364 þúsund, en var á sama tíma í fyrra óhagstæður um 1.008.122 þúsund krónur. Nú var útflutt fyrir 3.765.090 þúsund krónur og innflutt fyrir 6.569.436 þúsund krónur. Á þess um tíma hefur verið flutt inn af skipum og flugvélum fyrir 812. 190 þúsund krónur. Innflutningur og útflutningur er reiknaður á eidra gengi til nóvemberloka 1967, en frá og með desemberbyrjun verða töl- ur utanríkisverzlunar miðaðar við nýtt gengi íslenzkrar krónu, er kom til framkvæmda mánu- daginn 27. nóvember 1967. — Skip og flugvélar hafa verið teknar á skýrslu tvisvar á ári, innflutningur fyrri helmings árs með júnítölum og innflutningur síðari helmings með desember- tölum, en vegna gengisbreyting arinnar eru skip og flugvélar innfluttar á tímabilinu júlí— nóvember 1967 taldar með inn- flutningi nóvembermánaðar, svo að eigi blandist saman innflutn- ingur á eldra gengi og nýju gengi. Ekki hefur enn verið tekinn á skýrslu neinn innflutningur vegna byggingar álbræðslu í, Straumsvító skipum, sem stöðvuðust í skurð- inum vegna styrjaldarinnar júní sl. Haf t er eftir góðum heimildum í stjórnarbúðum Israels, að stjórnin muni fallast á að þetta verði gert, svo fremi eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóð- anna fylgist með starfinu og veiti fsraelsstjórn allar umbeðnar upplýsingar. Hinsvegar höfðu Egyptar áður lýst því yfir, að þeir mundu ekki leita samþykk- is ísraelsstjórnar áður en skurð- urinn yrði ruddur — en fsraels- stjóm hafði fyrir sitt Ieyti sagt, að hún liti á hverskonar starf- semi Egypta í skurðinum sem brot á vopnahléssamkomulaginu. ísraelsstjórn er sögð hafa séð, að ekki væri heppilegt málstað hennar að lenda í deilum við Egyptalandsstjórn út af skipun- um í Súezskurði. Engu að síður setur hún sín skilyrði, — sem fyrr voru nefnd og einnig að svo verði séð um, að Egyptar aðhaf- izt ekkert annað í skurðinum en að losa skipin. Á nýjársdag létu ísraelsmenn lausa um 500 egypzka stríðs- fanga, sem teknir voru í júní styrjöldinni, þeirra á meðal tvo háttsetta herforingja. Rauði krossinn sá um flu*ndng fang- anna heim. Þá eru enn eftir um 5000 egypzkir stríðsfangar f ísrael en Egyptar hafa í fórum sínum aðeins um 20 ísraelsmenn. Til vopnaviðskipta kom á mánudagsmorgun milli ísraels- manna og Jórdana og kennir hvor aðilinn hinum upptökin. Nokkrar manneskjur munu hafa beðið bana í skothríðinni. Sir Luurence Olivier bezti sviðsleikurinn London, 2. jan. AP. „THE London Evening Stand- ard“ hefur sæmt Sir Laurence Olivier og leikkonuna Lilu Kedrovu, sem er af rússnesk- um ættum og fædd í Rúss- landi, nafngiftinni „beztu sviðsleikarar Bretlands á ár- inu 1967“, — Sir Laurence fyrir leik sinn í Dauðadansin- um, eftir Strindberg og Ked- rovu fyrir leik sinn í Kirsu- oerjagarðinum eftir Tsjekov. Bezta nýja leikrit ársins var kjörið „A Day in the Life of Joe Egg“ eftir Peter Nichols. Og bezti söngleikurinn var kjörinn „Sweet Charity" inn- fluttur frá Broadway og með Juliet Prowse í aðalhlutverki. T Dýnamittúbum stolið Höfðu ekki fundizt í gær EITTHVERT magn af dýnamiti mun hafa horfið úr sprengiefna- geymslunni á Rjúpnahæð, og hafði það ekki fundizt seinni hluta dags í gær. Rannsóknarlögreglan telur, að brotizt hafði verið inn í geymsl- una aðfaranótt laugardagsins sl. eða á laugardagsmorgun. Sprengi efnageymsla þessi er í eigu nokkurra verktaka *hér í borg- inni, og telja þeir ljóst að eitt- bvað 'hafi horfið af dýnamittúb- um, en ekki er vitað nákvæm- lega um hve mikið magn er að ræða. Rannsókn máls þessa heldur áfram. — Dr. Páll ísólfsson Framh. af bls. 24 ur lagt fram alla sína lista- mannssál, alla sína alúð. Hann er heimamaður við borð hinnar hæstu tónlistar, en sál og líf hefir hann gefið hér í 27 ár engu síður, er hann lék hið minnsta lag. Maöur kemur í manns stað, eins og ár kemur af ári, og eftir að dr. Páll komst ekki að orgelinu lengur til að leika á það, böfum vér notið organ- istaþjónustu, sem vakið hefir mikla gleði og vér höfum alla ástæðu til að vera þakklát fyrir, enda nemandi dr. Páls, sem gegnt hefir starfi hans hér síðustu mánuðina. En það má ég mœla fyrir munn okk- ar prestanna, söngfóilksins sem margt hefir unnið með honum mjög lengi, sóknar- nefndarinnar og þess fjölda kirkjugesta og útvarpshlust- er.da, sem hafa notið hans, fyrir þeirra allra munn má ég mæla, að með miklum sökn- uði sjáum við dr. Páli á bak, og með þakklæti, sem er sam- boðið söknuðinum. Svo margar minningar eigum vér um hans voldugu list, svo margar minningar um þær stundir, er hann fyllti Dóm- kirkjuna með dýrðlegu tóna- hafi, svo að hún varð helgi- démur þrunginn af lífi, til- beiðslu og trú. Oss er það öll- um ljóst, hve opnar leiðir lágu Páli ísóilfssyni snemma ævinnar að æðstu setrum hljómlistar úti í hinum stóra heimi. Það hefir verið fágæt gæfa, að fá að eiga hann hér, mann sem hefir verið svo auðmjúkur og stór í sinni list, að ekkert var svo einfalt, ékkert var svo smátt að hann legði ekki við það alla þá al- úð, sem hárri list er samboð- in. Af öillu því sem ég man um hann á þessum vegamót- um, finnst mér þetta vera stærst. Vér erum ríkari eftir þau 27 ár, sem hann hefir starfað í Dómkirkjunni. Ég bið yður öll um það, sem ég veit yður ljúft, að rísa úr sætum. Vér gjörucm það í þakkar- og virðingarskyni. Vér send- um honum, vér hér, og þér hlustendur um land allt, vér sendum honum vermandi hugsun og bæn, — og ekki honum einum, heldur einnig ágætri eiginkonu hans, frú Sigrúnu Eiríksdóttur, sem hefir verið honum dýrmætur förunautur, fráhær kona. Guð blessi ykkur bæði, heimili ykkar og ástvini“. — Þungfært Framh. af bls. 24 kvöldi höfðu henni ekki borizt neinar kvartanir að ráði. Veg- hefiar voru sendir um borgina til að reyna að greiða fyrir bíl- nm, en sérstaklega þungfært var í Hraunbæ og Höfðahverfi. 1 nágrenni borgarinnar var færð yfirleitt sæmileg . — Eldur Framh. af bls. 24 stund. Slökkviliðsstjóri sagði, að bunaboðarnir væru aftur orðnir virkir, en hinsvegar hefðu orð- ið skemmdir á töflunni af vatni og eldi, og því væri varlegt að treysta þeim. Vildi hann þvi benda mönnum á að nota frek- ar síma ef því yrði við komið, og einnig bærust tilkynningar oft- ast fljótt og vel ef talstöðvabíl- ar væru beðni aðstoðar, t.d. leigu bilar .sendiferðabíla eða einka- bílar með talstöðvum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.