Morgunblaðið - 03.01.1968, Page 23

Morgunblaðið - 03.01.1968, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1<9®8 23 Mynd þessi var tekin fyrir þremur mánuðum af Clive Haupt og konu hans eftir brauðkaup þeirra. Haupt lézt úr heilablæðingu í gærmorgun og var hjarta hans grætt í hjartveikan tannlækni, sem talinn hafði verið dauðvona. — Með nýtt hjarta Vona, að ekki líöi á löngu, unz ég sný aftur til Grikklands - sagði Konstantin konungur í áramótaboðskap sínum Framh. af bls. 1 Þreimur dögum seinna var gerð önnur tilraun til að flytja manns hjarta milli líkama, í það skiptið í New York. Var grætt hjarta í rúmiega hálfs mánaðar gamlan dreng, en drengurinn andaðist 614 klukkustund eftir aðgerðina. Dr. Blaiiberg befur verið hjart- veikur um langt skeið, og hætti tannlæknastörfum af þeim sök- um fyrir ári. Hann var fl'uttur í Graote Söhuur-sjúkrahúsið fyr- ir þremur vikum og hefur legið þar síðan. Skömmu eftir aðgerð- ina á Washkansky fór dr. Blai- berg þess á leit, að grætt yrði í hann nýtt hjarta. Bftir lát Washkanskiys innti dr. Barnard hann eftir því hvort han-n vildi ekki draga ósk sína til baka, en því neitaði dr. Blaiberg. Hann kVaðst ekki hafa neinu að tapa, því hjarta hans gæti stöðivazt hvenær sem væri. Var dr. Blai- berg þá búinn undir aðgerðina, og hafa læknar 'við sjúkrahúsið verið viðbúnir því að hefja upp- skurðinn með stuttum fyrirvara frá því fyrir belgi. Dr. Bernard var á ferð í Bandaríkjunum í síð- ustu viku, en 'hélt heim til Höfðaborgar um helgina. f gær, mánudag, var CUve Haupt stad'dur á baðströndinni við Fisk Hoek, rétt við Höfða- horg. Var hann þar með eigin- konu sinni, sem hann kvæntist fyrir þremur mánuðum. Skyndi- lega fékk hann heila'blóðfall og var fluttur meðvitundarlaus í nærliggjandi sjúkrabús. Þar var lítið unnt að gera fyrir Haupt, og þá ákveðið að senda hann til Victoria-sjiikra'hússins í út- hverfi Höfðaborgar, þar sem að- stæð-ur voru betri til að bjarga lífi hans. Læknar þar sáu fljót- lega að Haupt gæti ekki lifað nema örfáar klukkustundir, þótt 'hann væri hraustlega byggður. Hringdu þeir því til Groote — Mao Framh. af bls. 1 forystumenn kínverska flokksins. Með Mao voru þeir Lin Paio, landvarnarráðherra, Chou En- lai, forsætisráðherra, Li Fu-Cbun, varaforseti og Kang Sheng, einn af forystumönnum framkvæmda- nefndar flokksins. Þar voru einnig þeir Chi Pen-Yu og Yao Wen Youan, sem báðir eru með- limir miðstjórnar menningarbylt ingarnefndarinnar. Það vakti hinsvegar athygli, að eiginkona Maos, Chiang Ching var ekki meðal viðstaddra — en hún hefur ekki komið fram opinber- lega nú í nokkurn tíma. Helztu dagblöð í Peking birtu í gær, nýjánsdag, stórar myndir af Mao formanni og skýrðu jafn- framt frá þem markmiðum helzt- um, sem Kínverjar mundu keppa að á næsta ári, en þau eru; að auka fræðlslu í kenningum Maos og laga þær að sem flestum þátt- um lífsins; að halda áfram gagn- rýni og hreinsun innan flokksins, að endurreisa flokksstofnanir; að efla einingu alþýðu og hers og halda áfram byltingunni, auka framleiðsluna og efla varnir landsins. SChuur-sjúkrahússins og létu lækna þar vita, eftrr að hafa ráðgazt við eiginkonu og ætt- ingja Hauptis, að 'hjarta Haupts stæði Blaiberg til boða. Clive Haupt var fluttur da'uð- vona í Groote Schuur-sjúkrahús- ið á mánudagskvöld, og þar lézt hann klukkan hálf ellefu í morg- un að staðartíma. Hál'fri klulkku- stund síðar hófst hjartaflutning- urinn, og stóð aðgerðin í fimm k'lukkustundir. Að benni lok- inni tilkynntu læknarnir að að- gerðin hefði tekizt vel. Eftir aðgerðina á Washkansky í desemberbyrjun sagði dr. Barn- ard að mesti hættutiminn hæf- ist tveimur dögum eftir upp- skurðinn, og stæði í 13 daga. Taka því væntanlega margir undir orð mágs Waishkanskys heitins, sem sagði við fréttamenn í dag: „Guð gefi að það takist að þessu sinni. Við verðum að bíða í 18 daga og sjá. Ég bið þess að það ta'kist". — Bandaríkjastjórn Framh. af bls. 1 atvinnu og lifibrauð af ferða- mönnum. Hin mikilvægasta af fyrr- greindum ráðstöfunum er sú, að takmarka fjárfestingu erlendis. Verður algerlega tekið fyrir fjár- festingu í Vestur-Evrópu og Suð- ur-Afríku en fjárfesting í Ástra- líu, Kanada og Bretlandi minnk- úð svo, að hún nemi eigi meiru en sem svarar 65% af fjárfesting- unni árið 1965—66. Þykir einsýnt, að a.m.k. de Gaulle, Frakklandsforseti verði glaður við þessar fregnir, því að hann hefur margsinnis krafizt þess, að dregið verði úr fjár- festingu Bandaríkjamanna í Evr- ópu með einhverjum hætti. Hins- vegar eru ýmsar aðrar þjóðir lítt hrifnar, m.a. sagði talsmaður stjórnar Japans, að þessar ráð- stafanir BandaríkjastVirnar gætu haft alvarleg áhrif á efnahags- lífið þar í landi. Johnson, forseti, sem skýrði frá þessu á fundi með frétta- mönnum í San Antonio í Texas, skoraði á Bandaríkjamenn að taka vel þeim tilmælum stjórn- arinnar að draga úr ferðalögum erlendis. Sagði hann, að nauðsyn- legt væri að menn forðuðust öll ónaúðsynleg ferðalög til þess að spara gjaldeyri. Sett yrðu lög til að auðvelda þetta og ýmsar ráðstafanir gerðar til þess að gera Bandaríkjamönnum eftir- sóknarverðara að verja orlofum sínum heima. Hann sagði, að Bandaríkjamenn eyddu tveimur milljörðum dollara meira er- lendis en erlendir ferðamenn í Bandaríkjunum og úr þeim halla yrði að bæta. Yrði skipuð nefnd til þess að kanna, hvernig hægt væri a'ð auka ferðamannastraum- inn til Bandaríkjanna og skyldi hún skila áliti innan 45 daga. Fjármálaráðherra Bandaríkj- anna, Henry H. Fowler, lét að því liggja við blaðamenn á fundi í Washington í gær, að dygðu ekki tilmæli forsetans um minni ferðalög, yrði ef til vill gripið til þess að leggja sérstakan ferða- skatt á bandaríska ferðamenn, Róm, 2. janúar. NTB-AP. Konstantín Grikklandskon- ungur mælti á gamlársdag með einingu þjóðar sinnar í áramótaboðskap, sem hann flutti til grísku þjóðarinnar og kvaðst vona, að ekki liði á löngu, unz hann sneri til föð- urlands síns að nýju. Lýsti hann því yfir, að hann hefði til þessa og myndi einnig framvegis helga líf sitt grísku þjóðinni. Flutti kon- ungurinn áramótaávarp sitt, sem hann flytur árvisst, að þessu sinni úr hústað gríska sendiherrans í Róm, þar sem hann hefur dvalizt síðan 14. desember sl. — Við Grikkir metum lýð- ræði og frelsi meira en sjálft líf okkar, sagði konungur. Nýtt ár er nýhyrjað. Við skul um horfa fram til þess með von og skilning í anda, sem mótast af þjóðlegri einingu. Megi von okkar rætast, þann- ig að við getum öll húið sam- an í Grikklandi hamingju- sömu og blómlegu. Á nýúársdag voru Konstantm sem færu utan og takmarka þann gjaldeyri, sem þeir mættu hafa með sér. Sagði Fowler, að þjóð- in yrði a'ð gera sér grein fyrir því, að hin miklu ferðalög hefðu verið Bandaríkjunum til fjár- hagslegs skaða og stjórnin mundi gera allt, sem hún gæti til þess að bæta úr núverandi ástandi. Johnson, forseti, skýrði blaða- mönnum einnig frá því, að hann hefði beðið fjármálaráðuneytlð að athuga möguleikana á því að sett yrfSu lög, sem skylduðu bandarísk fyrirtæki erlendis til þess að flytja hagnað sinn til Bandaríkjanna. Forsetinn sagði, að hann reiknaði með því, að tak mörkun fjárfestingar erlendis mundi spara Bandaríkjunum allt að 50 milljarða króna ísl. og tak- mörkun lánveitinga mundi spara allt að 25 milljörðum ísl. kr. Taldi hann, að ráðstafanirnar í heild gætu orðið til mikils gagns. Þá sagði forsetinn, að rá’ðstaf- anir yrðu gerðar til þess að draga úr neyzlu bandarískra hermanna og embættismanna erlendis. Verður lögð öll áherzla á að draga úr kostnaði við herstöðvar og sendiráðin erlendis. Bandarískir bankamenn eru ekki ýkja hrifnir af ráðstöfunum stjórnarinnar og telja margir óheppilegt að grípa til beinna hafta. William F. Butler, vara- forseti Chase Manhattan bank- ans, sem er annar stærsti banki ríkisins, sagði, að slíkar ráð- stafanir gætu ef til vill geffð góða raun í stuttan tíma, en yrði þeim haldið áfram til lengdar, mundi árangurinn verða nei- kvæður, er fram í sækti. Og í janúarbréfi — mánaðarriti um efnahagsmál — National City Bank of New York, sem er hinn þriðji stærsti banki Bandaríkj- anna, segir, að höft og hömlur séu ekki hið rétta ráð og muni ekki auka trú manna á dollarn- um. Hinsvegar hafa samtök bankaeigenda sent forsetanum símskeyti þar sem segir, að þrátt fyrir efasemdir um ágæti þess- ara ráðstafana, muni þeir, eins og áður fyrr, hafa fulla sam- vinnu við ríkisstjórnina til þess að draga úr peningaflóðinu úr landinu. konungur og Anna María drottn- ing viðstödd sérstaka nýjárs- messu í 'hinni litlu grískkaþólsku kirkju í Róma'borg. Leonidas Papagos hirðsiða- meiistari konungis kom aftur til Rórnar frá Grikklandi í dag, eft- ir að hafa d'valizt nokkra daga í Grikklandi. Hélt hann þegar til viðræðna við konung í gríska sendiráðimu í Róm. Papagos vildi ekkert segja varðandi áfiorm konungs um að snúa aftur til Grikklands, en Papagos flýði ásamt konunginum tiil Rómar eftir hina misiheippnuðu bylt- yngartilraun 18. desember. Hið eina, sem hann sagði var: — Ég neita því ákveðið, að kon- ungurinn muni snúa til Aþenu í dag. Sýnilegt er að, gríska kon- ungsfjölskyldan hyggst dveljast að minnsta kosti nokkra daga enn í Róm, því að Ingiríður Danadrottning, móðir Önnu Maríu Grikklandisdrottningar, á að koma til Rómar morgun í stutta heimsókn til dóttur sinn- ar og fjölskyldu hennar. Ávarp konungs ritskoðað. Áramó'talboðskapuT Konstan- tins konungs birtist í grískum blöðum í dag, en í ritskoðuðu og styttu formi. Felld hafði ver- ið niður m.a. setningin: „Við Grikkir metum lýðræði og frelsi meira en líf okkar.“ Hins vegar voru umimæli konungs umt að hann vonaði, að 'hann myndi snúa bráðlega aftur ti'l Grikk- lands ekki felld niður. Áður hafðu blaðaútgefendur skýrt frá því, að ávarp konungs myndi birt í heiild, en þegaT það var kannað með því að bera ávarp konungs við það, sem blöðin birtu, kom í ljós, að m.a. framan greind orð höfðu verið felld nið- ur. 284 látnir lausir. Alls hafa verið l'átnir lausir 284 póli'tískir fangar til þessa, samkvæmt náðun þeirri í sam- bandi við jólin, sem lýst var yfir af George Papadopoulos, forsæt- isráðherra, fyrra laugardag. Skýrði dómsmáilaráðuneytið í Aþenu frá þessu á laugardaginn var. Á meðal þeirra, sem látnir voru lausir, voru tveir fyrrver- andi forsætisráðherrar, þeir George Papandreou leiðtogi Mið- flokkasam'bandsins og Panayotis Kanellopoulos leiðtogi fhalds- manna. í tilkynningu dómsmála- ráðuneytisins segir, að haldið sé áfram að vinna að lausn annarra pólitískra fanga. Náðun þessi nær ekki til griska tónská’ldsins Mi'kis Theo- dorakis, sem hefur verið hand- tekinn og ákærður fyrir að hafa tekið þátt í samsæri, sem miðaði að því að steypa ríkisstjórn- inni. Stylianos Patakos varafor- sætisráðherra skýrði frá þvi á laugardag, að 23 em'bættismönn- um innanríkisráð'uneytisins hefði verið vikið úr starfi. Sagði Patakos, að stjórnin hefði — Páfi biður Framh. af bls. 1 friði í Vietnam. Hann sagði að enn v æri hugsanlegt að koma á friði, en margar hindranir væru lagðar á friðarleiðina. Lauk hann ávarpi sínu með orðunuim: „Enn í dag biðjutm við styrjaldaraðil- ana að koma á sönnu og varan- legu vopnahléi í borgrstyrjöld- inni, sem er svo alvarleg og misk I unnarlaus.“ stigið þetta skref í því skyni, að fjarlægja „óæskileg öfl“ úr stjórnsýslunni. Patakos, sem einnig er innanríkisráðherra, sagði, að fimm áf emhættismönn unum hefði verið vikið úr starfi sökum þess að þeir hefðu ekki verið holilir stjórninni, en hinir 18 hefðu gert sig seka um aga- brot í starfi. Aukin starfsetmi kommúnisita? Hinn bannaði kommúnista- flokkur Grikklands hyggst koma á fót þéttriðnu neti „sellustarf- semi“ um gjörvallt Grrkkland. Skýrði málgagn ítalska komm- únistafilokksins, Unita, frá þessu í dag. Kom þetta fram í yfirlýs- ingu, sem birt var varðandi við- ræður sendinefndar gríska kommúnistaflokksins og nefnd- ar frá kommúnistaflokki Ítalíu. Var þar sagt, að ítalskir komm- únistar hefðu heitið hinum grísku félögum sínum að aðstoða þá á hvern þann hátt, sem þeir gætu. Viðræður þessar fóru fram í síðustu viku. í sendinefnd gríska kommúnistaílokksins voru m.a. Panayotis Maivromatis, sem er í stjórnmálanefnd flokks- ins og Achileas Petritis, sem sæti á í miðstjórn filokksins, að því er sagði í Unita. Blaðið hafði áður skýrt frá því, að við- ræður stæðu fyrir dyrum, en ekki var skýrt frá því, hvar þær hefðu farið fram. — Stefnubreyting Framh. af bls. 1 yfirlýsinguna gaf og hún hafi verið lesin í Hanoi út- varpinu. Talsmaðurinn, Carl Bartch, vildi ekkert segja nánar um þessa yfirlýsingu eða um það hvort Bandaríkjastjórn teldi, að hún væri mikilsvert skref í frið- arátt. Hins vegar er haft eftir góðum heimildum í Washington, að orðalag yfirlýsingarinnar hafi vakið bjartsýni í stjórnarbúðum þar. Er búizt við, að ljóst verði eftir nokkra daga, hvað raun- verulega kom fram í þessari yf- irlýsingu. Haft er fyrir satt, að sam- kvæmt þýðingu á yfirlýsingunni segi, að þegar Bandaríkjamenn hafi skilyrðislaust hætt loftárás um og öðrum hernaðaraðgerð- um gegn Norður-Víetnam muni ríkið reiðubúið til samræðna við Bandaríkin um þau mál, er rík- in varði. Það sem Bandaríkja- stjórn telur sig nú þurfa að vita er, hvort Hanoi stjórnin lítur svo á að samningaviðræður geti hafizt fljótlega, hvort líklegt sé, að árangur verði af þeim við- ræðum og hvort N-Víetnam- stjórn vill fallast á að senda ekki liðsstyrk til Suður-Víet- nam meðan viðræðurnar fari fram, ennfremur hvort Hanoi stjórnin heldur fast við fyrri kröfu sína um, að þjóðfrelsis- hreyfingin í Suður-Víetnam verði viðurkennd sem hinn eini löglegi fulltrúi Suður-Víetnam. Utanríkisráðherra Suður-Víet- nam, dr. Tran Van Do, sem staddur er í Túnis, sagði þar í kvöld, að væri fregnin, sem hann hefði heyrt frá Hanoi rétt, væri hér sennilega um meiri háttar stefnubreytingu Harioi- stjórnarinnar að ræða. En eftir væri að kanna málið betur. Dr. Do sagði ennfremur, að Suður- Víetnamstjórn hefði ekki í hyggju að eyðileggja þjóðfrelsis hreyfinguna enda þótt hún hefði háð stríð samkvæmt skipunum frá Hanoi. Þjóðfrelsishreyfingin væri hins vegar ekki fulltrúi þjóðarinnar í Suður-Víetnam og því aðeins væri hægt að semja um að binda enda á styrjöldina, að stjórnir Suður- og Norður- Víetnam ættu þar hlut að máli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.