Morgunblaðið - 20.01.1968, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 196«
f
l
Annast um skattframtöl að venju. Tími eftir sam- komulagi. Friðrik Sigurbjörnss., lögf. Harrastöðum v/Baugsveg. Sími 16941 og 10100.
Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. HEMLASTILLING H.F. Súðavogi 14 . Sími 30135.
Skattaframtöl Sigfinnur Sigurðsson, hag- fræðingur, Malhaga 15. — Sími 21826 eftir kl. 18.
Skattaframtöl Komið strax, því tíminn er naumur. Fyrirgreiðsluskrif stofan, Austurstræti 14, sími 16223. Þorleifur Guð- mundsson, heima 12469.
Útsala í Hrannar- búðunum Skipholt 70 S: 83277. Hafnarstr. 3 S: 11260. Grensásv. 48. S: 36999.
Keflavík — skattaframtöl Aðstoða einstaklinga við skattaframtöl Þórður Kristjánsson, Suðurgötu 27 - Sími 2441.
Bólstrun — sími 12331 Klæðum og gerum við bólstruð húsgögn. Sækjum, sendum, sími 12331.
Tökum að okkur klæðningar. Gefum upp verð áður en verk er hafið. Úrval áklæða. Húsgv. Hús- munir Hverfisgötu 82, sími 13655.
Aðstoða við skattframtöl byggingarskýrslur og fl. Verð kr. 450—750. Innifal- ið kærur og bréfaskipti síðar ef með þarf. Sig S. Wium, sími 40988.
Iðnaðarpláss óskast. Uppl. í síma 34766.
Willy’s ’46 til sölu. Uppl. í síma 52468.
Mótatimur til sölu, óhreinsað. Sími 82787.
Til leigu 4ra herb. íbúð í Miðbæn- xim. Tilb. með uppl. um fjöl skyldustærð sendist Mbl. fyrir 22. þ. m. merkt: „íbúð 5221“.
Keflavík Einbýlishús til leigu. Uppl. í slma 1128.
Til sölu 50 ný þorskanet á teinum, netahringir og netasteinar. Einnig ný nylonloðnunót, tækifærisverð. Uppl. í síma 50246.
Messur á morgun
Ólafskirkja hin eldri. 1 þessari 75 ára gömlu kirkju er forn
prédikunarstóll úr Fróðárkirkju, sem enn sést á ártalið 1710.
(Ljósm.: Guðm. Ágústsson)
Dómkirkjan
Messa kl. 11. — Séra Óskar J.
Þorláksson.
Garðasókn
Barnasamkoma í skólasalnum
kl. 10.30. — Séra Bragi Frið-
riksson.
Kálfatjarnarkirkja
Guðsþjónusta kl. 2. — Séra
Bragi Friðriksson-
Neskirkja
Barnasamkoma kl. 10.30. Guðs
þjónusta kl. 2. — Séra Frank M.
Halldórsson.
Hallgrímskirkja
Barnasamkoma kl. 10. Systir
Unnur Halldórsdóttir.
Messa kl. 11. Jón Auðuns
Dómprófastur, setur séra Ragn-
ar Fjalar Lárusson inn í emb-
ætti. — Sóknarnefndin.
Laugarneskirkja
Messa kl. 2. Barnaguðsþjón-
usta kl. 10. — Séra Garðar
Svavarsson.
Langholtsprestakall
Barnasamkoma kl. 10.30. —
Séra Árelíus Níelsson. Guðsþjón
usta kl. 2. — Séra Sigurður
Haukur Guðjónsson.
Fríkirkjan
Barnasamkoma kl. 10.30. —
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 5.
— Séra Þorsteinn Björnsson.
Grindavíkurkirkja
Messa kl. 2. — Séra Jón Árni
Sigurðsson.
Útskálakirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 1.30. —
Séra Guðmundur Guðmunds-
son.
Grensásperestakail
Bamasamkoma í Breiðagerðis
skóla kl. 10.30. Messa kl. 2. —
Séra Felix Ólafsson.
Reynivallaprestakall
Messa að Reynivöllum kl. 2.
— Séra Kristján Bjarnason.
Kristskirkja í Landakoti
Lágmessa kl. 8.30 árdegis. Há-
messa kl. 10 árdegis. Lágmessa
kl. 2 síðdegis.
Fíladelfía, Keflavík
Guðsþjónusta kl. 4.30. — Har-
aldur Guðjónsson.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta ki. 10. Ólafur
Ólafsson, kristniboði, predikar.
— Heimilispresturinn.
Oddi
Messa kl. 2. Barnamessa að
Heillu kl. 11. — Séra Stefán
Lárusson.
Fíladelfía, Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 8. — Viktor
Greisen trúboði prédikar.
Hátei: kirkja
Barnasamkoma kl. 10.30. —
Séra Jón Þorvarðsson. Messa
kl. 2. — Séra Arngrímur Jóns-
son.
Hafnarfjarðarkirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30.
— Séra Garðar Þorsteinsson.
Árbæjarsókn
Barnamessa í barnaskólanum
við Hlaðbæ kl. 11. Séra Bjami
Sigurðsson.
Lágafellssókn
Barnamessa að Lágafelii kl. 2.
Séra Bjarni Sigurðsson.
Bústaðaprestakall
Barnasamkoma í Réttarholts-
skóla kl. 10.30. Guðsþjónusta kl.
2. — Séra Ólafur Skúlason.
Aðventkirkjan
Guðsþjónusta kl. 5. — Júlíus
Guðmundsson.
Stokkseyrarkirkja
Messa kl. 2. — Séra Magnús
Guðjónsson.
Eyrarbakkakirkja
Sunnudagaskóli kl. 10.30. —
Séra Magnús Guðjónsson.
Keflavíkurkirkja. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Séra Björn Jóns
son.
Ytri-Njarðvík. Messa í Stapa
kl. 2. Aðalsafnaðarfundur eftir
messu. Þar fer fram kosning
sóknarnefndar í hinni nýju Ytri
Njarðvíkursókn. — Séra Björn
Ásprestakall. Messa í Laugarás
bíó kl. 1,30. Safnaðarfundur eft
ir guðsþjónustuna. Barnasam-
koma kl. 11. Séra Grimur Gríms
son.
Kópavogskirkja
Messa kl. 2. Barnasamkoma
kl. 20.30. — Séra Gunnar Árna-
son.
I
Akranesferðir Þ. Þ. Þ.
Frá Akranesi mánudaga, þriðju-
daga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 8, miðvikudaga og föstudaga
kl. 12, sunnudaga kl. 4.15.
Frá Reykjavík ki. 6 alla daga
nema laugardaga kl. 2 og sunnu-
daga kl. 9.
Hf. Eimskipafélag íslands
Föstudagur 19. janúar
Bakkafoss fer frá Færeyjum í
dag 19. 1. til Reykjavíkur. Brúar-
foss fór frá Akureyri 12. 1. til Cam
bridge, Norfolk og New York. —
Dettifoss íer væntanlega frá Klai-
peda á morgun 20. 1. til Turku,
Kotka og Reykjavíkur. Fjallfoss
fór frá Reykjavík 8. 1. til Norfolk
og New York. Goðafoss fer frá
Reykjavík á hádegi í dag 19. 1. til
Keflavíkur. Gullfoss fer frá Leith
1 dag 19. 1. til Thorshavn og
Reykjavíkur. Lagarfoss fór frá
Walkom 18. 1. til Ventspils, Gdyn-
ia, Álaborgar, Ósló og Reykjavík-
ur. Mánafoss fór frá Raufarhöfn
15. 1. til Avonmouth, London og
Hull. Reykjafoss kom til Akur-
eyrar í morgun 19. 1. frá Gdynia.
Selfoss fer frá Reykjavík I kvöld
19. 1. til Austfjarðahafna. Skóga-
íoss fer frá Hamborg í dag 19. 1.
til Reykjavíkur. Tungufoss fer frá
Kristiansand í dag 19. 1. til Moss,
Gautaborgar og Kaupmannahafnar.
Askja fór frá Avonmauth 18. 1. til
Antwerpen, London og HulL
Skipaútgerð ríkisins
Esja fer frá Reykjavik kl. 13.00
i dag vestur um land 1 hringferð.
Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum
kl. 21.00 í kvöld til Reykjavíkur.
Herðubreið er á Austurlandshöfn-
um á norðurleið. Baldur fór til
Snæfellsness- og Breiðafjarðar-
hafna í gærkvöldi.
Loftleiðir hf.
Leifur Eiríksson er væntanleg-
ur frá New York kl. 0830. Heldur
áfram til Luxemborgar kl. 0930.
Er væntanlegur til baka frá Lux-
emborg kl. 0100. Heldur áfram til
New York kl. 0200. Eirikur rauði
fer til Óslóar, Gautaborgar og
Kaupmannahafnar kl. 0930. Þor-
finnur Karlsefni er væntanlegur
frá Helsingfors, Kaupmannahöfn
og Ósló kl. 0030.
Vísukorn
Maðurinn er alltaf einn
Valt er gerist gengi mér
gleymast sérhver kynni.
Maður er því oftast hér
einn i veröldinni.
Rósberg G. SnædaL
Ó, að orðin af munni mínum
yrðu þér þóknanleg og hugsanir
hjarta míns kæmu fram fyrir
auglit þitt, þú Drottinn, hellubjarg
mitt og frelsari. (Sálm., 19,15).
í DAG er laugardagur 20. janúar
og er það 20. dagur ársins 1968.
Eftir lifa 346 dagar. Bræðramessa.
Fabianus og Sebastianus. Árdegis-
háflæði kl. 8.28.
Upplýsingar um læknaþjónustu i
borginni eru gefnar í sima 18888,
símsvara Læknafélags Reykjavík-
ur.
Slysavarðstofan í Heilsuverndar-
stöðinni. Opln ailan sólarhringinn
— aðeins móttaka slasaðra —
sími: 2-12-30.
Læknavarðstofan. Opin frá kl. 5
síðdegis til 8 að morgni. Auk þessa
alia helgidaga. — Sími 2-12-30.
Neyðarvaktin iSWarar aðeins á
virkum dögum frá kl. 8 tii kl. 5,
sími 1-15-10 og iaugard. kl. 8—1.
KvöIdvarzL í lyfjabúðum
í Reykjavik
vikuna 20. jan. til 27. jan. er i
Ingólfs Apóteki og Laugarnes-
apóteki.
Næturlæknir i Hafnarfirði
Helgarvarzla laugard. til mánu-
dagsm. 20.—22./1. er Bragi Guð-
mundsson, sími 50523, aðfaranótt
23. jan. er Kristján Jóhannesson,
sími 50056.
Næturlæknir í Keflavík
19/1 Arnbjörn Ólafsson.
20/1 og 21/1 Guðjón Klemenzson.
22/1 og 23/1 Kjartan Ólafsson.
24/1 og 25/1 Arnbjörn Ólafsson.
Keflavíkurapótek er opið virka
daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—2
og sunnudaga frá ki. 1—3.
Framvegis verður tekið á móti
þeim, sem gefa vilja blóð i Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.,
þriðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9—11 f.h. Sérstök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtímans.
Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík-
ur á skrifstofutíma er 18-222. Næt-
ur- og helgidagavarzla, 18-230.
Skolphreinsun hjá borginni. —
Kvöid- og næturvakt, símar
8-16-17
A.A.-samtökin
Fundir eru sem hér segir: í fé-
lagsheimilinu Tjarnargötu 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21.
Langholtsdeild, í Safnaðarheimili
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð lífsins svarar í síma 10-000.
1*1 Gimli 59681227 — Frl. m/skm.
Hlfómsveitin Classic
HLJÓMSVEITIN CLASSIC er skipuð 5 ungum mönnum og hefur
Ieikið fyrir dansi í Breiðfirðingabúð, Félagsheimili Kópavogs,
Glaumbæ, Félagsheimilinu Leikskálum og víðar. Þeir félagarnir
á myndinni eru: Guðmundur Sigurðsson, bassi, Gunnar Húbner,
trommur, Hörður Friðþjófsson, sólógítar, Guðni Sigurðsson, orgel,
Magnús Ölafsson, rýthmagítar.
K.S.S.
Fundur verður í kvöld, laugar-
dag 20. jan., kl. 8.30 í húsi KFUM
við Amtmannsstíg. Allt skólafólk
velkomið. — Kristileg skólasam-
tök.
Spakmœli dagsins
Vér fæðumst sem frumrit, en
deyjum sem afrit. — Enskt.
4>----—------------------------
Minningarsp j öl^
Minningarspjöld Hallgríms-
kirkju fást á eftirtöldum stöðum:
í bókabúð Braga Brynjólfssonar, I
blómaverzluninni Eden í Domus
Medica og hjá frú Halldóru
Minningarkort Styrktarsjóðs
vistmanna Hrafnistu DAS eru seld
á eftirtöldum ctöðum í Reykjavík,
Kópavogi og Hafnarfirði:
sá NÆST bezti
Dómarinn: „Þú ert ákær'ður fyrir að hafa stolið samskota-
hylkinu, sem hékk við kirkjudyrnar, þegar þú gekkst út“.
Þjófurinn: „Kallar dómarinn þetta þjófnað? Eg hélt þetta væri
sett þarna handa mér, bláfátækum, því að á hylkinu stóð: „Handa
fátækum" “.