Morgunblaðið - 20.01.1968, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.01.1968, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1968 19 - DROPINN............. Framhald af bls. 10. stöðum, en leyndin var réttlætt á þeim forsendum, að tilraunin væri of stutt, það þyrfti að halda henni áfram. Svo kom haustið, en ekki var tilrauninni fram haldið, — það vantaði starfsfólk eins og oft vill verða í tilraunamálum okkar, enda ekki að undra, þar sem slíkum mönnum (utan réttar) er ætl- að kaup eftir skala, sem refsar fyrir menntun. Svo leið tíminn fram yfir nýjár, og tókst þá að koma til- rauninni aftur af stað. Nú biðu menn eftir skemmtilegum niður stöðum merkilegrar tilraunar, sem svaraði til um, hvort ís- lenzkar sveitir ættu möguleika á að framleiða hráefni að tals- verðum hluta í fóðurblöndur og spara marga milljónatugi af gjald eyri fyrir innflutt fóður. Svo kom loksins svarið með vorinu. Það var „TRIST“. Einhverjar kýr höfðu veikzt í tilrauninni, og hún því eyðilagzt. Engar nið- urstöður lágu fyrir. Nú vil ég upplýsa, að það má bæta úr þessu núna, ef frum gögnin hafa ekki týnzt. Það má birta niðurstöður frá allmörgum vikum fyrri vetrar, og það má oft jafna út í einstaklinga í til- raun, þar sem sjúkleiki kemur upp, en hvort það er hægt hér, get ég ekki um sagt. Ég bar á sama Búnaðarþingi fram tillögu um rannsóknir á hæfni íslenzkrar feiti til fóðurs, en við flytjum úr landi mörg hundruð tonn af tólg og lýsi, sem notað er til íblöndunar í fóðurblöndur erlendis, allt að 10%, en hvert 10 kg af slíkri fóðurfeiti samsvarar um 30 kg af kornfóðri. Búnaðarmálastjór- inn gerði nánast grín að þessari tillögu, og annarri þar sem ég bað um rannsóknir á áhrifum urea (þvagefnis), sem blandað væri í fóðurblöndur til prótín- gjafar fyrir jórturdýr, en þetta er nú þegar gert í miklu mæli erlendis með ágætum árángri, og er þetta langsamlega ódýrasti prótíngjafinn. Hinum ábyrgu og svipmiklu bændahöfðingjum Búnaðarþings fannst flestum, að vissara væri að taka þessum málum með var- úð, og lögðu ekki til, að slíkar rannsóknir yrðu gerðar Það hleypur enginn „frægðaganni" í gegn um virðulegt Búnaðar- þing 1960—70 með skaðræðis- eld erlendra vísinda. Frá mínu sjónarmiði séð, á íslenskur landbúnaður varla stærra verkefni nú á þessum árum en að stofnsetja hæfilega margar grasmjölsverksmiðjur 1 landinu og gera grasmjöl og feiti að stórum þætti í fóðurblöndum handa nautgripum og sauðfé. fslenzkt grasmjöl er kjarnafóður. Því hefur fram að þessu verið haldið fram, að grasmjöl væri gróffóður og ætti ekki að selj- ast sem kjarnfóður. Þessi skoð- un hefur fengið hljómgrunn hjá mörgum bændum, sem af þeim sökum hafa sett sig gegn not- kun grasmjöls í fóðurblöndur. í þessum efnum vil ég vitna í upphafsorð í kennslubók í fóður fræði við landbúnaðarskólann í Kaupmannahöfn eftir P. Havsko Sörensen, 2. hefti, en þessi bók er kennd hér á Hvanneyri í framhaldsdeild. Þar segir um þetta: ”De vegetabliske foder- midker inddeles i kraftfoder- midler, som er defineret som fodermidler med mindst 65 FE i lOOkg foder, og i grovfoder- midler" Þýtt: Jurtafóðrið er ann ars vegar flokkað í kraftfóður- tegundir, sem eru skilgreindar sem fóður með eigi minna en 65 fóðureiningum í 100 kg fóð- urs, og hins vegar í gróffóður- tegundir.“ f íslenzku grasamjöl- inu eru um 68—70 FE í hverjum lOOkg. Menn geta því samkvæmt þessu selt og keypt grasmjöl hér á landi, ef heiðarlega er framleitt, sem kjarnfóður, og ætti að vera óþarft að hafa fleiri orð þar um. Ég tel líklegt, að við gætum notað með góðum árangri fóður- blöndur handa mjólkurkúm og sauðfé, sem hefðu um 60% gras- mjöl. Fóðurblanda, sem væri 60% grasmjöl 20% maísmjöl 8% tólg eða önnur dýrafeiti 1 % þorskalýsi og 5% fóðursölt, hefði um 98 FE í lOOkg. og í hverri FE væru um 120 g. af meltanlegu prótíni. Slik fóðurblanda mundi nægja mjólkurkúm, sem mjólk uðu 25—27 kg. nyt á dag og minna, en mætti blanda meiri maís við nytjar undir 15 kg. Fræðilega sé ég ekkert, sem ætti að gera þessa blöndu var- hugaverða, ef kýrnar fá eigi minna hey á dag með kjarn- fóðrinu en ca. 5 kg. Það væri fullkomin ástæða til að gera vísindalegar fóðurtilraunir með svona fóðurblöndu, sem gerð væri úr alíslenzku hráefni að þremur fjórðu hlutum. (75%). Það kann að vera, að þetta ís- lenzka kjarnf. þurfi einhverja tollvernd, eins og flest önnur innlend iðnaðarvara, t. d. .30% verðtoll, sem settur yrði á er lendar fóðurblöndur og óbland- að kornfóður, en sú verðhækk- un á kjarnfóðri mundi ekki valda mikilli hækkun á útsöluverði mjólkur og kjöts. Vinningur- inn við hinn mikla gjaldeyris- sparnað mundi vega þar á móti fynr hagsmuni neytenda Að síðustu vil ég benda á þá staðreynd um gildi grasmjöls burði við þá íslenzka búsafurð, sem mest er lagt í sölurnar fyrir kindakjötið, að: a. markaður er rúmur fyrir gras mjöl af þeim gæðum, sem hér er framleitt, og ef gras- mjölsframleiðendur nytu sömu kjara í útflutningsuppbótum og a kindakjötsframleiðendur, þá yrðu þeir á fáum árum allir akandi í kátiljákum, sleikj- andi sólskin Spánar hvern vet ur með skylduliði-sínu: b. sauðkindin er drjúgur vald- andi þess, að landið er fjúka undan okkur, svo að hvert kíló kjöts, heimaétið eða út- flutt, tekur ekki aðeins skatt af gjaldendum, heldur tekur það einnig óbætanlegan skatt af fósturjörðinni ár hvert, sem aðeins fræðimenn og skoðend ur öræfanna sjá og vita um, en grasmjölsframleiðslan bygg ist á ræktun jarðar. Sem sé: kindakjötsframleiðslan veldur jarðarspjöllum en grasmjöls- framleiðslan byggist á jarða- bótum. Hér er mikill munur á, sem öllum hlýtur að vera ljóst, en það mun þó sýna sig, að enn um sinn munu lands- spjöllin eiga formælendur marga, og enn um sinn munu koma fram kröfur um fram- lög úr opinberum sjóðum til að gera sölutilraunir og mark- aðsleit fyrir einhvers konar ”London lamb“ og til að ”að- skilja tog og þel“, svo að rétt- læta megi framvegis hinn mikla þunga sem lagður er á fjölgun sauðfjár og aukningu sauðfjárafurða, hvað sem það kostar. Umræðurnar eru samt nauð- synlegar. Dropinn holar stein- mn. Gunnar Bjarnason. Forstöðumaður eða kona óskast til að annast rekstur mötuneytis, í Hafnar- húsinu. Umsóknir sendist Hafnarskrifstofunni fyr- ir laugardaginn 3. íebrúar 1968. Hafnarstjórinn í Reykjavík. BUÐBURÐARFOLK / í eftirtalin hverfi Laugavegur neðri — Hverfisgata II — Hagamelur — Aðalstræti — Laugarás- vegur. Talið við afgreiðsluna i síma 10100 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA heim með hana, þegar hún mætti úlfinum. Láttu mig hafa gæs- ina“, sagði úifurinn. „Það geri ég ekki," sagði tófan. ,,Ég s'kal nú samt ná í gæsina.“ „Ef þú gerir það, segi ég Toomma frá því og hann mun dæma þig til dauða“. „Hver er Tommi?“ spurði úlfurinn. „Hvað? Veiztu það ekki? Hann var sendur alla leið frá Sfberíu til þess að vera yfirmaður okkar. Ég var áður pipar berlin/g, en nú er ég eigin kona Tomma", „Nei, ég hef aldrei hejrrt hans getið. Gæti ég fengið að sjá hann?“ „Ó, Tommi er svo fljót- ur að reiðast, og ef hon- um geðjast ekki að ein- hverjum, borðar hann þann sama ,upp til agna. En kannski að þú gætir fært ihonum lamb að gjöf og sett það einhvers stað- ar, þar sem Tommi kæmi a-uiga á það. Þú skalt svo fela þig svo að hann sjái þig ekki, annars lendirðu í erfiðleikum.“ Úlfurinn fór til þess að sækja lambið og tófan hljóp heim á leið. Á leið- inni mætti hún birni. „Stanzaðu tófa, og láttu mig hafa gæsina.“ „Þér er eins gott að flýja meðan þú getur, vin ur minn, amnars segi ég Tomma frá þessu, og hann mun dæma þig til dauga.“ „Hver er Tommi?“ ,,Tommi var sendur frá skógum Síberíu til að vera yfirmaður okkar. — Einu sinni var ég pipar- kerling, en núna er ég kona hans.“ „Gæti ég feragið að sjá hann?“ ,„Tommi reiðist mjög fljótt, og ef honum geðj- ast ekki að einhverjum, borðar hann þann sama upp til agna. Að sjélf- sögðu gætirðu fært hon- um uxa að gjöf og sett hann einlhvers staðar þar sem hann sæist auðveld- lega. Þú skalt svo fela þig svo að Tommi sjái þig ekki, annars lendir þú I erfiðleikum“. Björninn fór til þess að ná í uxa og tófan hljóp haim. Úlfurinn kom með lamb, fláði það og fór að bíða eftir tótfunni og Tomma. Fljótlega kom þar að björn, sem dró uxa á eftir sér. „Sæll, herra“. sagði hann. „Blessaður, vinur. Hef- ur þú séð tófu og eigin- mann hennar?" „Nei, 'herra, ég er sjálf- ur að bíða eftir þeim“. „Hvers vegna ferðu ekki og sækir þau?“ spurði björninn. ,Nei, það get ég ekki. Þú ættir heldur að fara“. „Ég er alltotf klunna- legur — ég get alls ekki farið“, sagði björninn. Skyndilega kom héri hlaupandi. Bæði björn- inn og úlfurinn hrópuðu til hans: „Komdu hérna, meist- ari 'héri. Þú ert fljótur að hlaupa — hlauptu nú til tófunnar og segðu henni að björninn og úlf- urinn séu reiðubúnir og búist við henni og eigin- manni hennar til þess að sækja gjafirnar“. Hérinn thljóp eins hratt og hann gat til tófunnar, en á meðan voru björn- inn og úlfurinn að hugsa um hvar þeir ættu að fela sig. Björninn sagði: „Ég get klifrað upp í tré og falið mig þar“. Úlfurinn sagði: „Hvar á ég að fela mig? Ekki get ég klifr- að í trjám. Hjálpaðu mér að fela mig“. Björninn faldi úlfinn í runnum og þakti yfir með þurru lauifi, síðan klifr- aði hann upp í topp á trénu, og þar sat hann nú og svipaðist um eftir tófunni og Tomma. Á meðan kom hérinn til grenis tófunnar. „Björninn og últfurinn sendu mig til þess að segja þér að þeir séu reiðubúnir og búast við þér og eiginmanni þín- um“, sagði hann. ‘,Já, við erum að koma“, sögðu þau og héldu af stað. Björninn sá þau koma og sagði við últfinn: „Þessi Tommi er pínu- Htill, ég skil ekki að hann geti verið yfinmaður okk ar“. Kötturinn byrjaði nú að eta af uxanum og hám- aði kjötið græðgislega í sig. Björninn ságði við úlf- inn: „Hann er lítill, en gráð ugur. Uxinn virðist ekki einu sinni ætla að nægja honum“. Úlfinn langaði líka til þess að sjá Tomma, en þurru lautfin byrgðu allt útsýni. Hann byrjaði að hreytfa þau varlega til. Kötturinn heyrði skrjáf ið, hélt að þetta væri mús og ædidi inn í runn- ann. Rak hann þá fram- löppina beint inn í annað aug.úlfsins. Últfurinn varð otfsa- hræddur og hljóp sem fætur toguðu. Kötturinn varð einnig hræddur og klifraði upp í tré, en það var einmitt sama tréð og björninn hatfði faUð sig í. ,Jæja“, hugsaði björn- inn. „Tommi hefur séð mig það er þá úti um mig“. Ekki gat hann klifrað niður svo að hann stökk niður úr trénu og hljóp sem fætur toguðu. Og tófan hrópaði: „Hlauptu, hlauptu, ann- ars ertu dauðans matur“. Síðan þetta gerðist hafa öll dýr lifað í ótta við köttinn. En kötturinn og tófan höfðu nú nægan matartforða fyrir vetur- inn og lifðu hamingjusöm alla sína ævi. 8MÆLKI Prestur er að tala við fermingarbörn sín um alstaðarnálægð Guðs. Svo fer hann að reyna, hvort þau hafi skilið sig og segir við einn af drengj- unum: „Hvar er Guð, Pétur litli? Er hann t.d. uppi & loftinu heima hjá ykk- ur?“ „Já“, svaraði Pétur hik laust. ,En er hann þá niðri I ,Nei svaraði Pétur á- kjallaranum hjá ykkur?*1 kveðinn. „Nú hvernig stendur á því?“ ,.Ja, það er alveg ó- mögulegt“. „Hvað ertu að segja. drengur? Af hverju get- ur hann ekki verið þar> eins og alls staðar annars staðar?“ spyr prestur hast ur. „Af því að það er eng- inn kjallari undir húsinu okkar“. svaraði Pétur ró- legur. Krakkarnir eru í skemmti ferð. Meðal þeirra eru tvíburar. Geturðu fundið þá?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.