Morgunblaðið - 20.01.1968, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.01.1968, Blaðsíða 18
18 MORGÚTÍBLAÐIÐ, I.AUGARDAGUR 20. JANÚAR 1!)6S Anna Stefánsdóttir Borg — Minning ANNA Stefánsdóttir húsfreyja á Borg í Miikiiaholtshreppi var fædd á Borg 20. janúar 1897. Foreldrar hennar voru Guðný Guðmundsdóttir og Stefán hreppstjóri Guðmundsson 6 Borg. Anna sáluga átti sex hálf- systikini, þrjú þeirra voru börn Stefáns og þau eru: Stefanía bú sett í Ameríku, Halldóra, sem andaðist í blóma hfsins — og Kristín, sem var gift Ólafi Guð- mundssyni fyrrv. bónda á Dröng um á Skógarströnd, en hún and aðist 1966. Hin þrjú hálfsystkini Önnu eru: Guðmundur bifreiða- stjóri á Akranesi, Guðlaug bú- sett í Reykjavík og Helgi sér- leyfiíshafi bifreiða á leiðinni Rvík—Ólafsvík. Anna giftiist eftirlifandi eig- inmanni sínum Ásgrími Þor- grímssyni 17. júní 1916 — og voru samvistir þessara mehkis- t Frænka okkar, Þórdís Anna Thorsteinssen, Sandeidgade 36, Stavanger, andaðist aðfaranótt þriðju- dags 16. þ. m. Jarðarförin fer fram í dag. Aðstandendur. t Faðir okkar, Guðmundur Pálsson frá Vatnsdal, Stokkseyri, anda'ðist í sjúkrahúsinu Sól- vangi, Hafnarfirði, 19. þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar. Sigrún Guðmundsdóttir, Halldór Guðmundsson, Páll Guðmundsson. t Sonur minn og bróðir, Gunnar Tryggvason, lézt þann 18. þessa mánaðar. Tryggvi Jóhannesson, Jóhanna Tryggvadóttir, Sveinbjörn Tryggvason, og aðrir aðstandendur. t Systir mín Guðfinna Petersen (fædd óladóttir) Damyr 21, Friðriksst. Noregi aandaðist miðvikudaginn 17. jan. sl. Helga Óladóttir, Hringbraut 84. t Við þökkum auðsýnda sam úð við andlát og jarðarför Margrétar A. Jónsdóttur Nóatúni 25. Börn, tengdabörn, barnabörn og systkin. hjóna rösk 50 ár, en fimmtugs- afmælisins minntust þau atf mik illi rausn og að viðstöddu fjöl- menn að Borg 17. júní 1966. í tilefni þessa merka áfanga í lífi þassara heiðurshjóna gátfu þau menntastofnun héraðsins að Laugagerði í Eyjahreppi virðu- lega fjárhæð. Þeim Önnu og Ásgrími var sjö barna auðið, sem öll bera þess vott að þau eru komin af góðum foreldnum. Þau eru: Sof- fía búsett í Noregi, gitft Kjall Lundbeng, Stetfán bóndi í Stóru- Þúfu, kvæntur Lautfeyju Stef- ánsdóttur, Ósk búsett á Hvammi í Garði, gift Ásmundi Böðvars- syni stýrim., Ágúst bitfr.stj. í Rvík, kvæntur Guðríði Björns- dóttur, Inga gitft Páli Fáissyni hreppstjóra á Borg, Halldór bóndi á Minni-Borg kvæntur Ingu Guðjónsdóttur — og Karl bifreiðastj. í Rvík, kvæntur Sig- ríði Gústatfsdóttur. Anna fór að kenna veikinda á bezta aldri, eða sumarið 1940 — og sem urðu henni mjög þung bær, þó að vinir hennar, sem sóttum hana heim, yrði þess lít- ið varir, Skapgerð hennar vair þannig, að hún ræddi um veik- indi sín, jafnvel ekki við sína nánustu eða vini. Veikindi henn ar var köLkun í mjöðm, sem ekki virtist unnt að flá bót á. Varð Anna því að dveljast að mestu á heimili sínu og var henni hjálpað til fótvistar til hinztu stundar. Hennair mesta ánægja, á meðan hún gat sinnt því, var að komast á bak hesti sínum og starfa jatfnframt að fé- lagsmálum sveitar sinnar. Á Borg dvaldi jafnan möng ung- rnenni að sumrinu, sem tóku mikla tryggð við þetta rausnar heimili — og komu jafnan ár- lega eftir að þeir voru komnir til fullorðins ára, til að gleðja Önnu og votta henni vináttu sína og tryggð. Mörg ár tók Anna sál. að sér að annast heima vistarskóla sveitarinnar, til dvalar á heimili sitt — ag var þá otft margt um manninn á Borg. Börn þeiirra Önnu og Ásgríms hafa reynzt foreldrum sínum með miklúm ágætum — en að sjáltfsögðu hefk reynt mest. á dugnað og þrek Ingu dóttur þeirra, sem hefir stjórnað heim- t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför systur okkar, fóstur systur og móðursystur Kristínar Sigurðardóttur frá Þorvaldsstöðum í Hvítársíðu, Freyjugötu 7. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarliði við Borgarspítalann í Heilsuvernd arstöðinni og þeim sem heim sóttu hana í sjúkrahúsið. Haildóra Sigurðardóttir, Lingný Sigurðardóttir, Helga Sigurðardóttir, Þórunn S. Endlich, Guðný Sigurðardóttir, Torfi Magnússon, og systraböm. ilinu að Borg, jafnt fyrir for- eldra sína, sem sínu eigin heim- ili, með miklum ágætum. Verð- skuldar hún þakklæti og viirð- ingu allra vandamanna og vina heimilisins á Borg. Kynni mín af Borgarheimilinu ná yfir sextiiu ára tímabil og hefi ég notið mikillar vináttu fró öllu því fólki, sem á þessum sex áratugum hafa gert garðinn frægan. Áivallt hefir verið jafn ánægjulegt að koma að Borg og oft hefir þar verið rnjög gest- kvæmt, enda heimilið rómað fyirir gestrisni við alla, sem sóttu það heilm. Anna andaðist 24. sept. 1967 og var janðsungin atf Árna sókn- arpresti Páissynd að Fáskrúðar- bakka 30. sept. að viðstöddu miklu fjölmenni. Blessuð sé minnirg hennar. Sig Ágústsson. ANNA Stefánsdóttir, húsfreyja að Borg í Miklaholtshreppi, and- aðist að heimili sínu 24. sept. sl. á sjötugasta og fyrsta aldursári, og var jarðsungin frá Fáskrúð- arbakkakirkju 30. sama mánað- ar. Anna fæddist 20. janúar 1897, og því minnist ég hennar í dag, þó nokkuð sé um liðið frá láti hennar. Anna var dóttir Stefáns bónda og hreppstjóra Guðmunds sonar og var Borg því hennar heimili alla tíð. Anna giftist eftirlifandi manni sínum, Ásgrími Þorgríms- syni, 17. júní 1916 og eignuðust þau sjö börn, sem öll eru á lífi. Anna átti við mikla van- heilsu að strí'ða síðustu árin, sem hún bar þó með einstakri hug- prýði, þrátt fyrir oft miklar þján ingar. Það var ekki ætlun mín að rekja ævistarf frá Önnu. Hún var ein þeirra íslenzku kvenna, sem unnið hafa störf sín í kyrr- þey og með þeim myndarbrag sem alkunnugt er, þeim, sem henni kynntust. Ég minnist frú Önnu með mik illi virðingu og þökk. B. Ö. Sendiherra Svía heim frá Aþenu Stokkhólmi, 18. jan. (AP-NTB) SÆNSKA utanríkisráðuneytið gaf í dag út tilkynningu, þar sem segir að „Gösta Brunn- ström, sendiherra, muni ekki snúa aftur til Aþenu á næst- unni.“ Er litið á þessa ákvörð- un sænsku stjórnarinnar sem mótmæli gegn setu herforingja- stjórnarinnar að völdum í Grikklandi. Brunnström sendiherra var kallaður heim til Stokkhólms frá Aþenu hinn 15. desember sL til skrafs og ráðagerða, að því er sagt var, eftir að honum hafði verið afhent orðsending herforingjastjórnarinnar grísku um breytingar á stjórninni. Sví- ar hafa enn ekki viðurkennt móttöku þeirrar orðsendingar, enda talið að með því að viður- kenna móttöku viðurkenni þeir einnig nýju stjórnina. „Aftonbladet" í Stokkhólmi skýrir í kvöld frá ákvörðun stjórnarinnar um að senda Brunnström ekki aftur til Aþenu og telur ákvörðunina „mesta diplómatíska áfall, sem herfor- ingjastjórnin í Aþenu hefur orð- ið fyrir.“ Hjartanlegar þakkir færi ég öllum þeim, sem glöddu mig og sýndu mér hlýhug í tilefni af 75 ára afmæli mínu 6. jan. síðastliðinn. Anna Gísladóttir, Hæðargarði 42, Rvík. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM LÍFIÐ er orðið gleðisnautt, og ég finn, að brátt er öllu lokið. Það, sem gladdi mig fyrrum, hefur misst seiðmagn sitt, og tilveran er ósköp dauf. Hvað hefur eiginlega gerzt með mig? Vera má, að þér séuð nú ekki komhm að endalok- unum — heldur að upphafinu! Þér hafið án efa hag- að lífi yðar óskynsamlega fram að þessu. Þér hafið byggt á sandi, og sandurinn rennur undan yðar. Þetta hefur orðið reynsla margra, einkum karl- manna, sem eru að nálgast sextugsaldurinn. Þeir tefla djarft í nokkur ár og fara fávíslega með lífs- orku sína. Svo átta þeir sig allt í einu, rétt eins og glataði sonurinn. Hann horfðist í augu við svínin, sem hann fóðraði, og sá sjálfan sig. Hann sá græðgi sína, girndir og sjálfelsku. Þá var það, sem hann vaknaði og sagði: „Ég vil taka mig upp og fara til föður míns“. Þér spyrjið, hvað hafi gerzt með yður. Þér hafið séð í sjónhendingu, hvernig þér eruð í raun og veru, og þér fyllist óbeit á því, sem þér sjáið. Þetta er ekki slæmt — heldur gott. Það, sem þér þarfnist, er, að þér gefizt Jesú Kristi á vald. Lífið missir ávallt gildi sitt, þegar því er lifað án Guðs, hvað sem líður eignum eða veraldargengi. Nú getið þér byggt á öruggum grundvelli, á trú á Guði, og þér komizt að rann um, að nú byrjið þér að lifa lífinu, því að þér hafið fundið því tilgang. Jón Áqúst Ólafsson Fæddur 11. feb. 1946 Dáinn 7. jan. 1968 ÞÆR stundir koma yfir okkur, er fjöllin virðast svo há, að eng- in sól muni ná að skína yfir toppana í austri. Fjörðurinn er svo þröngur, að við megnum ekki að draga andann, okkur langar að flýja frá fjöllunum háu, snjónum og myrkrinu. — T.d. þ.ess konar kom mér í hug, Nonni minn, er ég frétti látið þiítit. — Með þessum tilgangs- lausu orðum, því að orð mega sín einskis nú, ætla ég hvorki að draga fram kosti þína né breyzikleik, til þess eru mér í of fersku minni skoðanir þínar á slíkum skrifum, er við minnt- umst á það eittf sinn — alvöruna dulbúna í gríni. Ég vil aðeins þakka forstjóninni fyrir að í þessum brigðula h-látraheimi skyldu leiðir okkar liggja saman í stuttum en góðum kynnum. þakka forsjóninná fyrir að í sitund, sem við áttum, hlátra og grín, meðan sól skein hvað hæst á lofti, og drungi vetrarins var svo fjarri. En „hugur einn það veit, hvað býr hjarta nær“, mun það hafa reynzt nú sem svo of-t áður. — Daginn lengir og á ný mun vora. Þannig munu árin líða áð- ur en við hlæjum á ný saman, en það er bjargföst trúa mín, að við munum hittast á ný á þeim stað, þar sem engar sorgir búa, þar sem við. þurfum ekki að bera kvíðboga fyrir löngum vetri, en alltaf er sól og vor. Mið- að við samverustundir okkar þá, er aðskilnaðurinn nú aðeins augnabilk — erfitt augnablik, sem verður að engu við endur- fundina. „Sú stund kemux aldrei aftur, sem einusinni var“. — en nýjar stundir bíða og nýir hlátr- ar. — Foreldrum og systur votta ég mína dýpstu samúð, þau áttu góðan son og bróður, sem mun taka á móti þeim. Vinnufélagi. Kveðja frá G.G. og Ó.I. Við hlýðum hinzta kalli, hvar sem er, og hvernig sem það skeyti að höndum ber. Að herrans boði er lokað lífsins brauit, og lækning búin hverju mieini og þxaut. í lífsins blóma laukstu þinni för. — Lífið er spurr.ing, — annars fátt um svör. Margur þó lítur meira en annar sér, mannlegur vilji sínar leiðir fer. Með þökk við kveðjum þennan góða dreng, þar mátti jafnan finna hlýjan streng. Systir og vinir semda á þína leið síðustu kveðju, yfir höfin breið. Foreldraást þér fylgir hveJin heið, fölskvalaus bæn og trúin, alla leið: — Þrátt fyrir djúpa sorg ég fögnuð finn, friðarins englar leiða drenginn minn. — Þótt margur horfi nú á hrunda borg, og hjörtun lami þung og iangvinn sorg, er myndin hrein og bjart um horfinn vin, huganum athvarf miinninganna skin. Snæbj. Einarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.