Morgunblaðið - 20.01.1968, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 196«
Samfelldur framhaldsskóli rökrétt
afleiöing af niðurfellingu landspröfs
kennarastéttina. Stökkbreyting-
ar yrðu ekki í skólamálum
nema kennararnir stykkju með.
Síðast fór ræðumaður nokkrum
orðum um málefni háskólans
og taldi nauðsynlegt að stúdent-
ar héldu uppi gagnrýni á
kennsluhætti háskólans. Ef
stúdentar temdu sér rökvíslega
gagnrýni og prófessorar tækju
henni vel taldi hann, að háskól-
inn gæti orðið öðrum til fyrir-
Framhaldsmenntun rœdd á tundi SHÍ
Stúdentafélag Háskóla ís-
lands efndi til almenns um-
ræðufundar í Sigtúni í fyrra-
kvöld um framhaldsmenntun
á íslandi. Framsögumenn
voru þrír: Egill J. Stardal
cand. mag., Jóhann S. Hann-
esson, skólameistari og Þrá-
inn Höskuldsson stud. philol.
Að loknum ræðum framsögu
manna urðu fjörugar umræð-
ur og tóku margir til máls.
Stóð fundurinn frá því kl.
20.30 um kvöldið og fram
yfir miðnætti.
Formaður Stúdentafélags Há-
skóla íslands, Jón Ögmundur
Þormóðsson stud. jur., setti fund
inn og tilnefndi fundarstjóra,
Björn Teitsson stud. mag. og
fundarritara Pétur Pétursson
stud. med.
Egill J. Stardal talaði fyrstur
framsögumanna. Hóf hann mál
sitt með því að vikja að sögu
framhaldsmenntunar á íslandi.
Rakti hann síðan sögu þessara
mála frá siðaskiptum og allt
fram yfir landspróf. Dró ræðu-
maður fram marga þá þætti í
menntunarsögu liðinnar tíðar,
sem miður fóru og rakti einnig
hvernig miðað hefði fram á við
smátt og smátt. 1 lok mál síns
Frá fundi Stúdentafélags Háskóla íslands í Sigtúni.
(Ljósm. Mbl. Kristinn Benediktsson)
Sækið sumaraukann
Frá haustnóttum til vordaga er unnt að
sækja sumaraukann með því að fljúga með
LOFTLEIÐUM vestur til Ameríku eða
suður til Evrópu og halda þaðan, þangað
sem sólin skín allan ársins hring.
Lág vetrarfargjöld og langt skammdegi
freista til ferða allan veturinn, en einkum
er þó heppilegt að sækja sumaraukann með
LOFTLEIÐUM á tímabilum hinna hag-
stæðu vor- og haustfargjalda, 15. marz—
15. maí og 15. september—31. október, en
þá er dvalarkostnaður í sólarlöndum víðast
hvar minni en á öðrum árstímum.
ÞÆGILEGAR HRAÐFERÐIR HEIMAN 0G HEIM
LOFTLEIÐIS LANDA MILLI
L
WTLEIÐIfí
vék Egill að landsprófjnu, sem
hann taldi hafa verið stórt spor
í rétta átt á sínum tíma.
Jóhann S. Hannesson tók það
fram í upphafi ræðu sinnar, að
hann mundi takmarka mál sitt
við landsprófið og afnám þess.
Landsprófjð, sagði hann, að væri
eitt af okkar stóru þjóðfélags-
vandamálum í dag. Margar radd
ir heimtuðu afnám þess, en mik-
ið vantaði á a'ð þær raddjr væru
samhljóða. Tvennt væri það
einkum, sem til greina kæmi
þegar rætt væri um landsprófið.
Annars vegar framkvæmd þess
og hins vegar hvort það úti-
loki of marga frá æðra námi.
Ræðumaður vjtnaði í lögin um
landspróf frá 1946, þar sem tal-
að er um að með lögum þessum
eigi að búa hverjum ejnstakl-
ingi þá aðstöðu til framhalds-
menntunar, sem hugur hans og
hæfileikar standi til og efnahag-
ur og búseta megi þar ekki
valda torfærum. í lýðfrjálsu
landi eigi að gera öllum, sem
þess óska og til þess hafa hæfi-
leika, kost á að njóta fram-
haldsmenntunar. Sagðj Jóhann,
að í lögum þessum værj öll
áherzla lögð á lýðræðislegt jafn-
rétti, en ekki skiptingu í flokka.
Virtist því augljóst, að lands-
prófinu hefði ekki verið ætlað
að velja úr nemendur til fram-
haldsnáms. Afnám landsprófs-
ins væri því í sambandi við
anda gildandj laga um þessj mál.
Þá vék ræðumaður að ályktun
um, sem get'ðar hafa verið um
landsprófið nýlega- Kvað hann
unga Sjálfstæðismenn hafa
gengið einna lengst í því máli að
krefjast afnáms landsprófsins.
En þeir hefðu látið hjá líða að
draga fram rökrétta ályktun af
niðurfellingu landsprófsins.
Yrði landspróf lagt niður mætti
gera ráð fyrir að fengjst ejnn
samfelldur nemendahópur í
framhaldsskólana frá 15—19 ára
aldri. Próf yrðu væntanlega í
mörgum myndum, sem myndu
opna nýjar dyr inn í háskólann.
Tók ræðuma'ður það fram, að
hann væri ekki með þessu að
tala um afturhvarf til þess sem
var, en hann teldi samfelldan
framhaldsskóla rökrétta afleið-
ingu af tillögu ungra Sjálfstæð-
ismanna um afnám landsprófs-
ins.
Höskuldur Þráinsson drap á
það í upphafi máls síns, að með
einhverjum hætti yrði að velja
menn úr til framhaldsnáms.
Kæmu þar til greina ýmsar leið-
ir. Þá vék ræðumaður að
fræðslukerfinu almennt og kvað
þa’ð þröskuld í vegi allrar mennf
unar í landinu, að allt of mikið
væri af steindauðum og stirðn-
uðum kennurum. Kennurum
væri nauðsynlegt að afla sér
viðhaldsmenntunar og mætti
vel hugsa sér það í því formi,
að komið yrði upp endurhæfing-
arstöð fyrir kennara. Við þyrft-
um að fá lifandi menn, hugsandi
menn og starfandi menn inn í
myndar að þessu leyti.
Dr. Halldór Elíasson tók fyrst-
ur til máls, er umræður voru
gefnar frjálsar. Gedði hann at-
hugasemdir við nokkur atriði
í framsöguræðu Jóhanns Hann-
essonar, en taldi tillögur hans
annars mjög athyglisverðar. Þá
taldi hann að kennara vantaði
til að taka við auknum nem-
endafjölda og lagði til að lok-
um, að skólarannsóknir yrðu
fluttar inn í skólana sjálfa.
Ingvar Ásmundsson, mennta-
skólakennari, kvað landsprófið
móta mjög kennslu gagnfræða-
stigsins og breytingar á núver-
andi skipan gætu brugðizt til
beggja vona. Lýsti ræðumaður
ánægju yfir ræðu Jóhanns Hann
essonar og sagði að lokum, að
kennslufyrirkomulagið skipti
ekki alltaf mestu máli, heldur
hitt, hvað gert væri í skólun-
um.
Þórarinn Þórarinsson, fyrr-
verandi skólastjóri, lýsti ánægju
sinni yfir því að Stúdentafélag
Háskóla íslands skyldi taka
þessi mál til umræðu. Mætti
þá vænta þess, að málin yrðu
rædd af meiri rökvísi, en gert
hefði verfð í tímarits- og blaða-
greinum ýmsum. Landsprófið
sagði hann, að verið hefði á sín-
um tíma ein mesta siðbót, sem
samþykkt hefði verið á Al-
þingi. Fram til þess tíma hefði
fjölda nemenda verið bægt frá
framhaldsnáminu, en með lands-
prófinu hefði öllum landshlut-
um verið gert jafnhátt undir
höfði með framhaldsmenntun
unglinga. Þá sagði Þórarinn, að
landspróf hefði á síðari árum
meir höfðað til skilnings og al-
mennrar greindar en í upphafi.
Taldi hann nauðsynlegt, að ungl-
ingar landsins sætu allir við
sama borð hvað snerti framhalds
menntun og niðurfelling lands-
prófs gæti í þessu tilliti verið
spor afturábak.
Vésteinn Ólason stud. mag.
kvað þörf á skynsamlegum um-
ræ’ðum um skólamál, en það
sem nauðsynlegast væri að gera
í skólamálum, væri að breyta
viðhorfum og viðmiðunum.
Breytingar á skólakerfinu ætti
ekki að gera með byltingu, en
grundvöll allra breytinga ætti
að leggja í háskóla og kennara-
skóla. Sagði ræðumaður, að þeir
sem um þessi mál fjalla, þyrftu
að vera á vei'ði gegn hálfkáki
í endurbótum. Víða væri þörf
mikilla endurbóta á námstil-
högun m.a. i Háskóla íslands.
Dr Björn Sigfússon, sagði m.a.,
að við mættum ekki missa lands-
prófið fyrr en við vissum, að það
væri betra, sem við tæki. Taldi
hann rétt að halda landsprófi
enn um tíu ára skeið, þvi að
þeim tíma liðnum yr*ðu orðnar
fastmótaðri þær hugmyndir, sem
nú eru uppi um breyt ngar á
fræðslnkerfinu.
Bjami Krist’ánsson skólastióri
Tækniskólans tók næstur til
F:amhald á b’s.!7.