Morgunblaðið - 11.02.1968, Page 1
32 SIIMiR 0€ LESeÓK '
Hans Sif á strandstaðnum við Rifstanga. Geri norðanátt með brimi er víst að skipið brotnar. — Sjá frétt á baksíðn, (Ljósm: Ól. K. M.)
VIETNAM:
Árás kommúnista á Khe Sanh her-
stööina getur orðið hvenær sem er
— Sprengjuflugvélar af rússneskri gerö
hafa sézt í Norður-Vietnam
Saigon, 10. febrúar NTB—AP
BANDARÍSKT herlið hefur náð
aftur á sitt vald suðurbakka
Perfume-árinnar, sem rennur í
gegnum borgina Hue, en nú
hafa geisað blóðugir bardagar
í tiu daga í þessari gömlu keis-
araborg, þar sem barizt hefur
verið hús úr húsi.
í hinum hörðu bardögum í
Hue hafa hermenn Norður-Víet
nams verið hraktir til baka
skref fyrir skref og hafa skilið
eftir sig 934 failna. Bandaríkja-
menn höfðu þar til í gær misst
31 mann fallinn og 281 af liði
þeirra hafði særzt .
Talsmaður stjórnarinnar í Suð
ur-Vietnam skýrði frá því, að
Bandaríkjamenn hefðu náð á
sitt vald öllum byggingum á
suðurbakka árinnar en hinum
megin árinnar hefðu hermenn
frá Norður-Vietnam enn borgar
vígið á valdi sinu.
Á svæðinu fyrir sunnan Hue
er önnur herdeild Norður-Víet-
nams að nálgast hina miklu her
stöð Bandaríkjamanna við Da
Nang. Bandarískur herflokkur
varð fyrir árás aðeins 7 km frá
herstöðinmi.
Rússneskar sprengjuflugvélar
við Hanoi
Bandarískir flugmenn hafa
séð að minnsta kosti tvær ef
ekki þrjár sprengjuflugvélar af
rússneskri gerð á flugvelli í
grennd við Hanoi. Skýrði banda
rískur talsmaður frá þessu í
dag. Er hér um að ræða teg-
undina IL-28S, en þessar vélar
geta flogið 1600 km vegarlengd
og borið sprengjumagn allt að
2,7 smál'estum. Hanoi er í 450
km fjarlægð frá hlutlausa belt-
inu.
Bandarísku flugmennirnir
sáu sprengjuflugvélarnar í árás
arferð á flugvöllinn við Plhuc
Yen 28 km fyrir norðvestan
Hanoi á fimmtudag. Banda-
ríska leyniiþjónustan hefur vit-
Framh. á bls. 31
Landsbókasafn
Grænlands
— gereyðilagðist í eldsvoða
Góðvon, Grænlandi,
9. febr. — NTB
MILLJÓNATJÓN varð í
Góðvon á Grænlandi á
föstudag, er eldur kom upp
í byggingu landsbókasafns-
ins grænlenzka. Reyk frá
eldinum lagði yfir allan bæ-
inn og slökkviliðsmenn kom-
ust ekki inn í bygginguna til
að athafna sig fyrr en eftir
nokkrar klukkustundir.
A safninu voru rösklega 40
þúsund bindi og óttazt er að
öll hafi gereyðilagzt. Meðal
merkra bóka voru öll frumhand
rit trúboðans Samuels Klein-
sdhmitdt um grænlenzka mál-
fræði og grænlenzkt ritmál en
hann er af mörgum talinn höf-
undur þess. Sömuleiðis dagbæk
ur hans og ferðalýsingar.
MBL. sneri sér tii Einars Ól.
Sveinssonar, prófessors og for-
stöðumanns Handritastofnunar-
innar og spurðist fyrir um það,
hvort honum væri kunnugt um
að nokkur handrit íslenzk eða
önnur verk, sem snertu Island
hefðu verið ó safninu.
Próf. Einar sagði, að hann
teldi það ólíklegt, en hins veg-'
ar þyrði hann ekki að fullyrða
neitt um það. Hann minnti á að
Íslendingar hefðu alltaf öðru
hverju verið þarna á ferð, með-
al annarra Sigurður Breiðfjörð
á öldinni. sem leið og en hann
hefði ekki klára vitneskju um
að neitt handrita hans hafi ver-
ið á safninu. Próf. Einar taldi
sennilegt, að flest meiri háttar
handrit hefðu smám saman ver-
ið flu-tt til Hafnar ag væru þar
í vörzlu.
Finnbogi Guðmundsson, lands
Framh. á bls. 31