Morgunblaðið - 11.02.1968, Síða 5
MORGUN'BLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1968
5
,Hálfur hér og hálfur þar'
Rœtt við Geir Jón Helgason, byggingameistara í Kanada
GEIR Jón Helg-ason er fædd-
ur á Skaganum, alinn upp í
Reykjavík, báta- og togara-
sjómaður í mörg ár, lögreglu-
þjónn í Reykjavík, innflytj-
andi tii Kanada, bygginga-
meistari þar og hóteleigandi.
Við hittum Geir Jón á förn-
um vegi, en hann er í heim-
sókn hér núna til þess að
hitta vini og vandamenn. Geir
Jón fór með fjölskyldu sína,
konu og mörg börn, til Kan-
ada 1952 vegna útþrár og
ólgu í blóðinu, svo sem títt
var um víkinga fyrr á öldum.
Munar manninn um eitt ár í
sextiu og fer vel með. Fjöl-
skyldan býr í Vancouver í
Kanada, börnin eru 8 og
barnabörnin 18. Hann hefur
byg&t yfir 100 hús í Kanada,
unnið ýmsa erfiðisvinnu, og
rekur nú hótel, kallað mótel
ytra, svo að ekki hefur blóð
hans ólgað til einskis.
— Þú ert 59 ára og hefur
verið 16 ár úti, hvað vannstu
nú aðallega fram til 43 ára
aldurs?
— Ég var sjómaður frá 14
ára aldri og var þá m.a. á
Leifi heppna skömmiu áður
en hann fórst á Halamiðum
1924. Ég var svo í mörg sum-
ur á síldveiðum og svo fór
ég í Stýrimannaiskólann 1931.
Eftir það var ég stýrimaður
á gömlu Péturseynni, en við
höfðum keypt hana nokkrir
og gerðum út frá Hafnarfirði.
Ég var um tíma skipstjóri, en
fór aftur á togara og var
þá stýrimaður, t.d. á Leikni
þegar hann fórst á Halamið-
um.
— Hvernig vildi það til?
— Það er nú eiginlega óráð
ið ennþá, en það kom óstöðv-
andi leki að skipinu í miklu
ofsaveðri. Togarinn Gylfi
kom og tók skipið í tog og
alla mennina um borð vegna
veðurofsans, en skipið sökk
skömimu seinna á leiðinni til
lands.
—Þetta hefur verið giftu-
samleg björgun, var nokkuð
sérkennilegt sem bar til tíð-
inda í sambandi við þetta
slys?
— Já, það var nú eiginlega
svo. Þannig var, að um borð
í skipinu var ein stór rotta,
sem var gefið fæði dags dag-
lega til þess að hún skemmdi
ekki netin, en það kom ekki
til mála að drepa hana, þvi
að hún hafði verið svo lengi
um borð og var ekkert mann-
fælin. Hún hafðist aUtaf við
undir hvalbaknum. Tveimiur
dögum áður en s'kipið sökk
var ég í brúnni og við vorum
að toga og ég var að dunda
í brúnni. Þá sá ég rottuna
vera komna í fiskikassann og
vera að fá sér biita, en þar
hafði hún ekki sézt áður og
þótti þetta einkennilegt. Ég
spurði hásetana hvort að hún
hefði ekki haft nóg að borða
og hafði svo verið, en þarna
hafði ihún brotið boðorðið.
Þetta var merkisdýr. Nú, þeg
ar togarinn var að sökteva
tveimur dögum seinna, fórum
við strax upp á bátadekk til
þess að gera björgunarbátana
klára fyrir sjósetningu. Togar
inn hallaðist mjög mikið á
bakborða og ijósin voru
slokknuð. Við tókum fyrst til
við stjórnborðsbátinn og þeg-
ar við sviptum netinu ofan af
bátnum, þá var rottan þar
undir og skreið hún strax nið
ut um rifu sem var á hlerun-
um, sem lágu yfir björgunar-
bátnum og ofan í bátinn. Eft-
bátnum, og ofan í bátinn. Eft-
við að losa bátinn, en dekk-
festingarnar á honum voru
mjög ryðgaðar. Þannig á
óskiljanlegan hátt komst rott-
an af og með okkur yfir í
Gylfa.
Geir Jón Helgason,
byggingameistari í Kanada.
— Varstu lengi á togurun-
um eftir að Leiknir sökk?
— Já, ég var í nökkur ár,
en ég hætti þá á sjónum, þeg-
ar kona mín missti tvo bræð-
ur sína með togaranum Ólafi,
sem fórst með allri áhöfn og
þá gerðist ég lögreglumaður í
Reykjavík. En það var erfitt,
ég var í tvö ár að jafna mig
á því að vera í landi, mig lang
aði svo á sjóinn aftur. Ég var
svo í lögreglunni þangað til
1952.
— Hvernig var að starfa í
lögreglunni á þeim árum?
— Það var ágætt að starfa í
lögreglunni, en ég fór ilLa út
úr því, þegar ég lenti í slags-
málunum frægu við Lista-
mannaskálann, þegar við þrír
lögregluþjónar vorum slegnir
niður af óðum bersek, sem
hafði náð í kylfu af einum
lögreglulþjóninum. Ég var
fluttur á spítala og var þar í
nokkrar vikur, en ég hef
aldrei beðið þess bætur.
— Hvað kom þér til að
flytja til Kanada?
— Ja, það er nú ekki gott
að segja til um það, ég veit
eiginlega ekki af hverju ég
fór. Það er kannski einna
helzt, að þessi flækingsnátt-
úra íslendinga hafi ráðið þar
mestu, eins og víkingarnir
sem voru gaignteknir af að
afla sér frama og sjá sig um
í heiminum. Einnig var mikið
talað um það á þessum ár-
um hversu gott væri að búa í
Bandaríkjunum og Kanada,
það væri svo gott og auðvelt
að lifa þar, svo sem eins og
að tína gullepli af gnótt trjáa.
En maður komst nú að raun
um, að þetta var ekki alveg
svona auðvelt og það var
miklu erfiðra að hafa fyrir
lífinu þar heldur en hérna
heima ,að minnsta kosti til
að byrja með, og ég myndi
ekki ráðleggja neinum að yfir
gefa það, sem hann á hér til
þess að flytja utan.
— Var þetta ekki erfitt
ferðalag fyrir ykkur hjónin,
mörg börn og tengdafólk?
— Jú, það var það. Við fór
um með Tröllafossi til New
York og konan mín var með
barni svo að ferðin var sér-
lega erfið fyrir hana, en
Hannes Kjartansson var okk-
ur mjög hjálpsamur þegar við
komum til New York, og
greiddi götu okkar á allan
hátt, svo að við komumst eins
fljótt og auðið var til Kanada,
— Kunnið þið ekki vel við
ykkur nú orðið?
—■ Jú, alveg prýðilega,
fyrst var þetta mjög erfitt og
ég vann alltaf ýmsa erfiðis-
vinnu. Nokkru seinna fór ég
á kvöldskóla ásamit vinnunni
og stundaði smíðanám og
teikningu. Þá vann ég nokk-
uð við húsasmíðar og hóf síð-
an smátt og smátt að byggja
upp á eigin spýtur. Ég er bú-
inn að byggja yfir 100 hús í
Kanada. Jafnhliða því að
byggja hús rek ég hótel, sem
ég byggði 1962, 40 mílur fyr-
ir norðan Vancouver í 7 þús-
und manna bæ, sem heitir
Squamish, en það er indíána-
nafn, og þýðir vindur. í þeim
bæ er einn stærsti skemmiti-
garður í Kanada og heitir
hann Garibaldigiarðurinn. Þar
eru Kanadamenn nú að reyna
að fá vetrarolympíuleikana
haldna 1972, en skíðasvœeði
eru þarna mjög góð, og einn-
ig er þarna laxa- og silungs-
veiði í sjónum og ánum. Við
hjónin eigum 8 börn og 18
barnabörn og allir eru heil-
brigðir og hressir. Tvö af
börnum okkar hafa flutt aft-
ur hingað til íslands, og það
er nú svo að heimahagarnir
toga mikið í mann, enda má
segja að maður sé hálfur þar
og hálfur hér. Satt að segja
vildi ég nú gjarnan flytja
hingað heim aftur, en það er
erfitt að vera að rífa sig upp
aftur og aftur og mörg börn
miín eru gift erlendis. Maður
fór jú út í þetta af hálfgerðri
forvi'tni, en það er oft erfitt
að leiðrétta það eftirá, sem
maður hefur gejrt rangt og
hversu mikið sem ég ferðast,
þá rís ísland alltaf upp úr
bæði hvað snertir náttúru-
fegurð og gæði, fólk og land.
Hafnarf jörður Hafnarfjörður
Enskunámskeið
hefst 15. febrúar. Kennt verður í tveim flokkum. Fyr-
ir byrjendur og fyrir þá sem lengra eru komnir. Lögð
verður áherzla á talkennslu. Nánari upplýsingar í
síma 50342. Ann Dadney Árnason.
Húsbyggjendur
V
Einangrunarglerið frá okkur nýtur vaxandi álits.
Kynnið ykkur verð og gæði.
Bjóðum einnig einfalt gler og glerísetningarefni.
CLERSKÁLINN SF.
HÓLMGARÐUR 34. Reykjavik
Sími 30695.
EIIMAIMGRIJN
Góð plasteinangrun hefur hita
leiðnisstaðal 0.028 til 0.030
Kcal/mh. °C, sem er verulega
minni hitaleiðni, en flest önn-
ur einangrunarefni hafa, þar
á meðal glerull, auk þess sem
plasteinangrun tekur nálega
engan raka eða vatn í sig. —
Vatnsdrægni margra annarra
einangrunarefna gerir þau, ef
svo ber undir, að mjög lélegri
einangrun.
Vér hófum fyrstir allra, hér á
landi, framleiðslu á einangrun
úr plasti (Polystyrene) og
framleiðum góða vöru með
hagstæðu verði.
Reyplast hf.
Ármúla 26 - Sími 30978.
Straii(l;imenn
Árshátíð félagsins verður haldin að Hlégarði, laugar-
daginn 17. feb. hefst kl. 7.30 stundvíslega með borð-
haldi.
Góð skeinmtiatriði.
Miðar seldir í Radíóihúsinu, Hverfisg. 40, sími 13920
fimmtudag kl. 4—6. föstudag 4—7.
Ferð frá gömlu Bifreiðastöð íslands kl. 7.
STJÓRNIN.
Bútasala
og rýmingarsala
A morgun byrjar bútasala og rýmingarsala á alls
konar vefnaðarvöru að Hjarðarhaga 24.
Einstakt tækifæri til hagstæðra innkaupa. Lokað 12.30
—2.00
HRINGVER-lagerinn, Hjarðarhaga 24.
UTSALA
JASMÍN - VITASTÍG 13
ALLAR VÖRUR MEÐ AFSLÆTTI.
MARGT SÉRKENNILEGRA MUNA.
Samkvæmiskjólaefni, töskur, borðbúnaður, ilskór,
styttur, lampar, gólfvasar, útskorin og fílabeinsinn-
lögð borð, handofin rúmteppi, borðdúkar, púðaver,
haindklæði, reykelisker, sverð og hnífaæ, skinn-
trommur og margt fleira.
JASMIN, Vitastíg 13.
Sdmi 11625.
Laugavegi 22.
KJÚKLINGAR
TORNEDOS
KÓTILETTUR
ROASTBEEF
HAMBORGARAR
FR. KARTÖFLUR
MOIIIIHI ROUGE
Sími 13628.
SMURT BRAUÐ
HEITAR SAMLOKUR
og lcaldar í úrvali.
Sendum heim ef óskað er.
FLJÓT AFG REIÐSLA.