Morgunblaðið - 11.02.1968, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1968
Jón Eyjólfsson kaup
maður — Kveðja
Frá vinstri: Stefán Thors, Guðrún Pétursdóttir og einn
úr bófaflokknum í alvarlegum þönkum.
DÁINN, horfinn, harmafregn,
kæri mágur minn. Mér fannst
svo hljótt og tómlegt í kring-
um mig þegar systir mín til-
kynnti mér andlátsfregn þína.
Að vísu máttum við öll búast
þessa vegna langvarandi sjúk-
leika þíns, en alltaf er þó lífs-
vonin á meðan hjartað slær. Þig
kæri mágur, kveð ég í anda og
þakka þér allt á liðnum árum.
Bið þér velfarnaðar á landi lif-
enda, þar sem sólin gengur
aldrei til viðar, þar sem Jesús
Krists réttlætis sólin skín, þar
færð þú að syngja Guði sælan
lofsöng með hans útvöldu, og
t
Hjartkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Sveinlaug Þorsteinsdóttir
Fjölnisveg 6,
andaðist 3. febr. Jarðarförin
hefur farið fram. Þökkum
auðsýnda samúð.
Börn, tengdaböm og bama-
böm.
t
Eiginmaður minn og faðir
okkar,
Jón Eldon,
lézt 6. þ. m. Jarðarförin hef-
ur farið fram.
Lilja Jónsdóttir og böm.
t
Móðir okkar
Magnúsína Eyjólfsdóttir
andaðist í Landakotsspítala
sl. föstudag.
Valgerður Óskarsdóttir,
Hulda Óskarsdóttir,
Jón Einarsson.
t
Elsku litla dóttir okkar
Jónína Magnúsdóttir
andáðist að barnahéimilinu
Skálatúni 9. febrúar.
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Magnús Kristinsson.
t
Þorbjörg Stefánsdóttir
Húsey, Hróarstungu
andáðist föstudaginn 10. febr.
í sjúkrahúsinu á Selfossi.
Stefanný Níelsdóttir,
Ámi Halldórsson,
Sesselja Níelsdóttir,
Skjöldur Eiríksson,
Soffía Níelsdóttir,
Grímur Jósafatsson,
Jón Níelsson.
Ragnheiður Brynjólfsd.
þá eru allar líkamsþjáningar
horfnar. Með þessum fátæklegu
línum vil ég flytja þér mnilegt
þakklæti fyrir allar stundir,
sem ég dvaldi á heimili þínu
og systur minnar. Ég minnist
indælla stunda, þegar bróðir
minn spilaði á orgel og þið sung
uð saman í borðstofunni á Hof-
stöðum. Gamli bærinn varð þá
að dýrðlegri höll og andrúms-
loftið fylltist af himneskum
unaði. Ég minnist margra helgi
dga í Stykkishólmi, er ég var
í kirkju og þú söngst þar. f öll
30 árin, sem systir mín og þú
voruð í Stykkishólmi, varstu for
söngvari í kirkjunni og það
man ég, að ekki var haldin
skemmtisamkoma í Hólmanum
nema fá Jón Eyjólfsson til að
syngja og var þá jafnan Hjálm-
ur bróðir minn fenginn til að
leika undir á hljóðfærL
Við hjónin minnumst einnig
með gleði og þakklæti margra
indælla stunda í húsi ykkar í
Reykjavík; þar var okkur jafn
an tekið af ástúð og fórnarlund.
Allt var velkomið. sem þið gát-
uð látið okkur í té og seint mun
gleýmast okkur, glaða og djarf
lega viðmót þitt, kæri mágur
t
Móðir okkar
Ingibjörg Bjarnadóttir
sem andaðist á sjúkrahúsi
Akureyrar 5. febrúar, verður
ja.'ðsungin frá Akureyrar-
kirkju þriðjudaginn 13. febr.
kl. 1.30 e.h. Blóm vinsamlega
afþökkuð.
Lilja Jónsdóttir,
Stefán Reykjalín.
t
Móðir mín, tengdamóðir og
frænka
Helga Steingrímsdóttir
Njálsgötu 4
verður jarðsungin frá Nes-
kirkju mánud. 12. febr. kl.
13.30.
Friðbjörg Sigurðardóttir,
Jón Jónsson,
Helga Jóhannesdóttir
og aðrir aðstandendur.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð vi'ð andlát og jarðar-
för móður minnar
Valgerðar Gísladóttur.
Sigríður Amadóttir,
böm og tengdaböm.
t
Hjartans þakkir fyrir auð-
sýndan vinarhug og hluttekn-
ingu vegna andláts og útfar-
ar konu minnar, móður og
tengdamóður
Hólmfríðar Sigurðardóttur
Álfheimum 13.
Sérstakar þakkir færum við
læknum og starfsfólki á
sjúkrahúsinu Sólheimum,
sem líknaði henni og hjúkr-
aði í veikindum hennar.
Leifur Grímsson,
börn og tengdaböm.
minn, og óskiptur kærleikur
systur minnar. Ýms atvik og
liðnar stundir rifjast upp í huga
mínum á þessari kveðjustund.
Einu sinni fyrir nokkrum árum
fórum við hjónin og þið hjón-
in skemmtiferð til Þingvalla,
áður en heilsa þín bilaðL Við
komum við á Selfossi og heim
sóttum bróður minn þar. Hann
sagði: „Þið þurfið endilega að
sjá nýju kirkjuna hérna“. Var
því tekið með fögnuði. Við
skoðuðum kirkjuna og var ég
mjög hrifin af stórum fallegum
Biblíumyndum, málverkum
sem prýða veggi kirkjunnar.
Jón mágur minn var fljótt horf
inn á loftið, þar sem hljóðfærið
var, og svo vel vildi til að for-
söngvarinn sat þar, Hafði hann
fc'erið að æfa söngkórinn. Á
einu augabragði ómaði kirkjan
af fögrum hljóðfæraslætti og
söng. Þá söngst þú, mágur
minn fallega sálminn: „Þú sæla
heimsins svalalind" af tilfinn-
ingu og list. En þetta var í síð-
asta sinn. sem við heyrðum Jón
syngja. Svona erum við öll háð
breytingum lífsins og sorgum.
En endurminningin lifir og er
ódauðleg eins og lífið sjálft.
Jesús sagði: „Hver sem trúir á
mig mun lifa þótt hann deyji“.
Við trúum þessum orðum og í
anda þeirra sendum við hjónin,
þér elsku systir innilegar sam-
úðarkveðjur og ástvinunum
mörgu.
Biðjum Guð algóðan að
blessa hann. sem kallaður er
burtu, og leiða hann í frið og
fögnuð himinsíns og gefa ykk-
ur öllum styrk í sorginni og
huggun í voninni um sæla end-
urfundi á landinu eilífa, þar
sem öllum líkamlegum þjáning
um er lokið, en ljós kærleikans
skín.
24. janúar 198.
Margrét Konráðsdóttir.
- HERRANOTT
Framh. af bls. 19
leyfi til þess að fara á æfirtg-
ar og við njótum mikililar lip-
urðar í því sambandi.
—• Hvar hefur aðallega ver
ið æft?
— Það hefur verið æft
mest í Tjarnarbæ og á saL
Undirbúningur að Herranótt-
inn.i hófst í raun og veru í
fyrravor, strax eftir að leik-
nefnd hafði verið valin.
— Hver valdi verkéfnið?
— Verkefnið var valið í
samráði við Sverri Hólmars-
son og hann bauðst til að
þýða það fyrir lítinn pening,
síðan tóiku Atli og Böðvar vel
í þetta og þá þorðum við að
leggja út í fyrirtækið, en
Herranótt hefur aldrei fyrr
tekið fyrir söngleik.
— Hverjir leika aðalhlut-
formaður leiknefndar, í einu
hlutverkinu.
verkin?
—• Fyrst skal frægan telja
Macheat flagara, leikinn af
Guðmundi Einarssyni.
— Ég vil hafa það kaptein
og glæsimenni, skýtur Guð-
mundur inn L
— Stúlkurnar, setm slást
um ást hans, Polly og Lucy,
eru leiknar af Aðal'björgu
Jakobsdóttur og Sigríði Egils-
dóttur.
— Þú meinar þær, sem
setja vissa vessa úr skorðum,
dettur upp úr GuðmundL
— Svika’hrapparnir Pea-
chum og Lockit eru í höndum
Hilmars Hanssonar og Gríms
Þórs Valdimarssonar. Konu
Peachums leikur Sjöfn Magn-
úsdóttir og Diana Trapse, sem
leiðir Macheat í hendur svika-
hrappana er leikin af Guð-
rúnu Pétursdóttur. Leiktjöld
gerði Ingólfur Margeirsson.
Búninga teiknaði Una Oollins,
en Rósa Þorsteinsdóttir saum
aði búninga ásamt skólastúlk
um. 5 manna hljómsveit er
skipuð skólasveinum.
Það eru allir komnir á svið
ið og í sínar stöður, æfing er
að hefjast.
Erlingur: — Við förum yfir
lokaatriðið, lokadansinn og
takið nú mjög vel eftir. Allir
á sinn stað.
Atli: — Ekkert skvaldur,
krakikar.
Erlingur: — Þið eruð hér,
gott. Hvar er róninn? Já, rétt
þú verður hér — þarna er
dama sem vantar herra.........
dara rara dam dam da..........
dansar hann aftur á bak —
allir tilbúnir, nú byrjurn við,
tjaldið frá og upp með fjörið.
Á. J.
- STJORNUSPAIN
12. FEBRÚAR
Hrúturinn 21. marz — 20. apríl.
f dag eru líkur til að þér græðist talsvert
fé, en þú skalt vera forsjáll og leggja hluta
af því i vöxtu. Sinntu starfi þínu af alúð.
Nautið 21. apríl — 21. maí.
Láttu ekkert og engan skyggja á þitt góða
skap. Þú skalt láta ástvini þína finna,
hvernig þér er innanbrjóists.
Tvíburarnir 22. maí — 21. júnl.
Gott tækifæri býðst í dag. Láttu ekki happ
úr hendi sleppa. Kauptu ekki of miki'ð til
heimilsins.
Krabbinn 22. jnúí — 23. júlí.
Kauptu þér ný og vönduð föt í dag og
ýmsa skemmtilega smáhluti til heimiiisins.
Útlit fyrir hugnæmt kvöld.
Ljónið 24. júlí — 23. ágúst .
Fylgdu eftir hugmyndum þínum. Vertu
bjartsýnn og hikaðu ekki við að gera áætl-
anir. Færðu fjölskyldunni gjafir.
Jómfrúin 24. ágúst — 23. sept.
Árangurinn verður undragóður, ef þú
leggur þig fram. Brjóttu vandamálin til
mergjar. Byrjaðu á nýju verkL
Vogin 24. sept. — 23. okt.
Farðu eftir hugboði þínu um lausn á
áleitnum vanda. Þú færð ýmsar hugmyndir,
sem kunna að virðast fáránlegar, en munu
reynast snjallar síðar meir. Vertu hógvær
í tali, mógaðu ekki nákominn ættingja.
Drekinn 23. okt. — 22. nóv.
Góður dagur til allra athafna. Vertu ekki
alltaf viss um, að þú einn hafir rétt fyrir
þér. Skemmtu þér í kvöld og leyfðu þínum
nánustu að taka þátt í því.
Bogmaðurinn 23. nóv. — 21. des.
Bjóddu til þín mörgum gestum og veittu
þeim af rausn. Gleymdu ekki gömlum vin-
um, sem mundu þiggja að taka þátt í gleð-
inni.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Sýndu náunga þínum hlýhug, ef þér virð-
ist hann eiga í sálarstríði. Taktu lífinu með
ró, sýndu að þú getur verið samvinnuþýður,
þegar á reynir. Hvíldu þig vel í kvöld.
Vatnsberinn 20. janúar — 19. febrúar.
Tilraunir þínar eru góðra gjalda verðar og
þú munt upskera ríkulega. Leggðu fyrir.
Greiddu aðkallandi lausaskuldir.
Fiskarnir 20. febrúar — 20. marz.
Hagstætt að gera hverskonar áætlanir 1
dag. Notaðu kvöldið til upbyggilegra hug-
leiðinga.