Morgunblaðið - 23.03.1968, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.03.1968, Blaðsíða 1
28 SSÐUR 59. tbl. 55. árg. LAUGARDAGUR 23. MARZ 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins. ------------------------/--- Velskipið Hildur RE 380 að sökkva út af Gerpi í fyrradag. Á myndinni sést, hvar sjór flæðir inn i skipið, stjórnborðsmegin, en það er orðið sigið og famlágt. Skipbrotsmenn eru í bátnum bak- borðsmegin við skipið, en fremst á myndinni sést á borðstokk Þórs. — Ljósmyndari Mbl. Reynir Þór Friðþjófsson. — Sjá frétt á baksíðu og fleiri myndir á bls. 27. A-þýzkur njósnahring- ur afhjúpaður í Danm. Kaupmannahöfn, 22. marz. NTB. LEYNIÞJÓNUSTUDEILD dönsku ríkislögreglunnar hefur komið upp um austur-þýzkan njósnahring, og austur-þýzkur verkfræðingur, Holm Haase, hef ur verið handtekinn og ákærð- ur fyrir njósnir í þágu Austur- Þýzkalands. Holm Haase hefur játað að hafa stundað njósnir. Danska leyniþjónustan mun hafa fylgzt með Haase. er hann hefur komið í heimsóknir til Danrnerkur á undanförnum tveimur árum. Talið er, að Haase hafi haft það verkefni að koma upp talstöðvaneti í Dan- mörku fyrir austur-þýzitu leyni- þjónustuna. Haase hafði meðferðis radíó- senditæki, sem hann gróf í dýra garðinum í Kaupmannahöfn og faldi í tvö ár. Senditækið var í vatnsheldum plastumbúðum og var sennilega falið til þess að þa’ð gæti komið að notum síðar. Holm Haase hefur einnig ját- að að hafa staðið í sambandi við Svía og Dani, sem heimsótt hafa A-Þýzkaland, eða verið bú- settir þar. Hann mun hafa reynt að fá þá til að stunda njósnir fyrir austur-þýzku leyni þjónustuna, en óvíst er hvort það hefur tekizt. Lærði sænsku Haase var handtekinn á aðal- járnbrautarstöðinni í Kaup- mannahöfn í gær er hann ætlaði heimlei'ðis. Hann hefur skýrt frá því, að leyniþjónusta Austur- Þýzkalands hafi snúið sér til hans 1960, en fram að þeim tima hafi hann verið venjulegur borgari. Hann telur að ástæðan hafi verið hú, að hann hafi af einskærri forvitni ákveðið að læra sænsku, að sögn „Berl- ingske Tidende“. Starfsemi hans í Danmörku hófst fyrir mörgum árum, serrni- lega 1964, og danska leyniþjón- ustan hefur haft á honum gæt- ur í nokkur ár. IMovotny lætur und- an og segir af sér Rússar lofa að forðast íhlutun Prag, 22. marz NTB—AP ANTONIN Novotny, forseti Tékkóslóvakíu, sagði af sér í dag eftir harða baráttu, sem haldið hefur verið uppi gegn honum síðan hann Iét af em bætti aðairitara kommúnista- flokksins í janúar. Afsögn hans er mikill sigur fyrir hinn nýja flokksritara, Alex- ander Dubcek og stuðnings- menn hans, sem vilja taka upp lýðræðislegri stjórnar- hætti. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hafa Rússar heitið því að skipta sér ekki af breyt- ingum þeim sem hinir nýju leið togar tékkneskra jc°mmúnista hyggjast gera í lýðræ'ðislegra horf. Oldrich Cernik varafor- sætisráðherra kom frá Moskvu fyrir tveim dögum og skýrði frá þessu loforði er hann fékk í við- ræðum við sovézka ráðamenn, þeirra á meðal Alexei Kosygin forsætisrá'ðherra, hermir AP. Antonin Novotny baðst lausn- ar í bréfi, sem hann sendi for- seta þjóðþingsins. Að sögn frétta stofunnar Ceteka var lausnar- beiðnin rædd á fundi í forsætis- nefnd flokksins og þar var sagt að Novotny hefði beiðzt lausnar af heilsufarsástæðum. En Cernik varaforsætisráðherra sagði í dag, að forysta flokksins hefði beðið Novotny um að segja af sér og hann hefði orðið við þessari ósk. Stjórnin gegnir störfum forseta unz nýr forseti hefur verið val- inn. Vonlaus barátta Novotny hefur háð vonlausa baráttu fyrir íhaldsstefnu þeirri, sem hann hefur fylgt, síðan í jan úar og einangraðist í forsetahöll inni samtímis því að stuðnings- mönnum hans fækkaði óðum. Novotny, sem var aðalritari flokksins frá 1953 og forseti síð an 1957. Hann er fyrsti leiðtogi kommúnistaríkis, sem hrökklazt hefur frá völdum vegna and- spyrnu blaða, útvarps, sjónvarps og óbreyttra flokksmanna. Á Novotny undanförnum tveimur vikum hafa verið haldnir rúmlega 100 flokksfundir vfðs vegar um land ið, og á öllum þessum fundum hafa komið fram kröfur um að Novotny segi af sér. Það sem sem á hvað drýgst- an þátt í afsögn Novotnys er flótti Jan Sejna, hérshöfðingja, yfirmanns stjórnmáladeildar varnarmálaráðuneytisins, til Bandaríkjanna, en að sögn verka Framhald á bls. 17 Vorð Doyon fyrir drós E1 Fotoh? B'eirút, 22. marz. AP. EL FATAH, sam'tiök ara- I bi'S'kra hryðj’uiverkaimianna, | ibóldu þ'yí fraim í dag að i Mbislhe Dayan, varnanmiála- náðJherra ísraels, hefði ekki I úiaöazt við fornleifagrö<ft, i eins og ísraeilsistjórn hefur i'tiiikynnt ' heldur hefði hann særzt þ’&gar arabískir hryðju- ■ve'iikamenn réðuisit úr laum- (ciátri á lest íeraelsikra hier- iflutningabi'.'reiða sikaiimm frá Tel Avi-v. Hryðju've'rkamenn réðus !með hsr.d'sp;engjuim á bíla I lestir.'a cg bi':ve:ð Dayans . vaf.t ú! af vaginuirn, segir í til'kynningu. sem Ei Faía.i gaif út : Beirú'. Tlvær aðrar (bi'reiðar v-ru eyðilaigðair í rálsinni. McCarfhy mun styðja Kennedy — hljóti hann sjálfur ekki nægan stuðning BANDARÍSKA blaðið Inter- national Herald Tribune, skýrir frá því í frétt frá Washington sl. miðvikudag, að Eugene McCarthy, öldunga deildarþingmaður, friðarsinn- inn, sem býður sig fram sem forsetaefni demókrata gegn Johnson, forseta, hafi lýst því yfir, að hann muni styðja framboð Roberts E. Kenne- dys, öldungadeildarþing- manns, ef hann sjálfur hljóti ekki útnefningu flokksins. Mc Carthy sagði við stú- denta við Howard háskólann í Washington, að hann hafi ekki gert neitt samkomulag við Kennedy, en muni styðja hann komi i ljós við fyrstu atkvæðagreiðslu á flokks- þingi demokrata í Chicago í ágústmánuði, að hann sjálfur hafi ekki möguleika á því að sigra Johnson. MYNDIN var tekin sl. fimmtu Hér sækja brynvarðar sveitir halda því fram, að hryðju- dag eftir að hersveitir Israels sraelsmanna í áttina að þorp- verkamenn Araba hafi haft manna héldu yfir ána Jórdan. inu Krameh, en Israelsmenn þar bækistöðvar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.