Morgunblaðið - 23.03.1968, Qupperneq 28
ALMENNAR TRYGGINGAR P
rÓSTHÚSSTRÆTH SlMI 17700
wcttttttlrlftfrife
LAUGARDAGUR 23. MARZ 1968
P®rjpi«MöMí&
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐ3A
AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA
SÍMI 10*100
Gunnsr Thoroddsen í f ram-
boði til forsetakjörs
99
Kosningabaráttan er hafin
segir hann í samtali við IVIbl.
í YFIRLÝSINGU, sem Morg-
unblaðinu barst í gær frá
Gunnari Thoroddsen, sendi-
herra í Kaupmannahöfn,
skýrir hann frá því að hann
hafi að fengnum áskorunum
á 3. þúsund kjósenda úr öll-
um stjórnmálaflokkum, stétt-
um og héruðum, ákveðið að
verða í framboði til forseta-
kjörs, en sem kunnugt er
eiga forsetakosningarnar að
fara fram sunnudaginn 30.
júní í sumar.
Yfirlýsing Gunnars Thor-
oddsens er svohljóðandi:
„Á þriðja þúsund kjósend-
66
Veski með 30
þús. ki. stoliðj
STOLIÐ var um 30 þúsund
krónum úr jakka eins af I
starfsmönnum Brunabótafé-
Iags Islands í fyrradag. Hafði
maðurinn brugðið sér út úr
skrifstofu sinni, en skilið jakk
an eftir á stólnum.
Á meðan hann var í burtu
hafa einhverjir pörupiltar
stolið veskinu úr jakkanum,
en eigandinn varð þó ekki
var við þjófnaðinn fyrr en
að loknum vinnudegi. í vesk
inu voru baeði íslenzkar,
norskar og danskar krónur
og nokkuð af peningum í
enskri mynt. Málið er í rann
sókn, en lögreglan biður þá,
sem verða varir við unglinga
með óvenjumikla fjármuni
á milli handanna að gera sér
'iðvart.
Dr. Gunnar Thoroddsen,
sendiherra.
ur hafa sent mér skriflega
áskorun um að verða í fram-
boði við kosningu forseta ís-
lands á sumri komanda.
Þessar áskoranir eru frá
fólki úr öllum héruðum, stétt
um og stjórnmálaflokkum.
Að fengnum þessum áskor
unum hefi ég ákveðið að
verða í framboði til forseta-
kjörs“.
Mbl. sneri sér í tilefni yfir-
lýsingar þessarar til Gunnars
Thoroddsens og lagði fyrir hann
nokkrar spurningar. Fara þær
hér á eftir ásamt svörum hans.
Við spurðum fyrst, hvenær
Hann kæmi heim og svaraði
hann: „Ég kem heim á sunnu-
dag til viðræðna við vini og
stuðningsmenn um undirbúning
og tilhögun kosningabaráttunn-
ar“.
Næst spurðum við: „Hvenær
mundÞðu telja að kosningabar-
áttan hefjist fyrir alvöru?“
Gunnar Thoroddsen svaraði:
„Hún er hafin. Ég hefði óskað,
að kosningabaráttan tæki
skemmri tíma en nær 3% mán-
uð. Ætlunin var að tilkynna
framboð síðar til þess að kosn-
ingabaráttan yrði ekki óeðlilega
löng, en þegar Kristján Eldjárn
tilkynnti 18. marz, að hann ætl-
aði að bjóða sig fram, var kosn-
ingabaráttan þar með hafin“.
„Og hverjar telurðu sigur-
líkur þínar?“
Framlhald á bls. 27
Skutur Hildar HE 380 hverfur í djúpið fimmtudagsmorguninu
kl. 10.27. Skömmu síðar blés upp gúmbátur yfir staðnum, síðasta
kveðja sökkvandi skips — Ljósm. Mbl. Reynir Þór Friðþjófsson.
Áhöfnin af Hildi
komin til Reykjavíkur
SKIPBROTSMENN á Hildi RE
380, er sökk tæpar 26 sjómílur
út af Gerpi í fyrradag, komu til
Reykjavíkur í gærkvöldi með
flugvél Flugfélags íslands. Þeir
komu frá Egilsstöðum, þar sem
þeir gistu í fyrrinótt.
Blaðamaður Mbl. reyndi að ná
tali af skipbrotsmönnunum, en
þer vildu ekkert segja fremur
en áður. Sjópróf hafa enn ekki
farið fram og sagði Magnús Ein-
arsson, skipstjóri, að hann bygg-
ist ekki við að þau yrðu fyrr en
eftir helgi. Að öðru leyti taldi
hann allt, sem máli skipti, hafa
komið fram í Mbl. í gær.
(Sjlá fleiri myndir á -bls. 27)
200 fjár fórust í snjdfldðum í Mýrdal
— Björgunarstarf unnið í foráttuverði
Litla-Hvammi og Vik
22. marz:
í MORGUN féll snjóflóð á
fjárhús á Lækjarbakka í
Reynishverfi og færði þau úr
stað um 200 til 250 metra.
Orfirisey með
3.500 tn. af loinu
— Er aflahæst á loðnuvertíðinni
VÉLSKIPIÐ Örfirisey RE 14
mun vera aflahæst á loðnuver-
Fór með hend-
inn í spilið
Selfossi, 22. marz.
ÞEGAR vélbáturinn Þorlákur
frá Þorlákshöfn var að draga inn
netin í morgun klukkan sjö um
9 sjómílur út af Þorlákshöfn,
lenti einn háseta, Halldór Gests
son frá Vinaminni í Hruna-
mannahreppi, með aðra höndina
í spilinu og snerist með því heil
an hring. Slaáaðist hann allmik-
ið á hendinni, en var þó ekki
talinn brotinn og þykir það mik
il mildi.
Var Halldór fluttur hingað á
sjúkrahúsið og var líðan hans
eftir atvikum í kvöld. — Tómas.
tiðinni. í gær var skipið búið að
fá um 3.500 tonn frá því loðnu-
veiðar hófust. s
Morgunblaðið spalláði stutt-
lega í gær við skipstjórann á
Örfirisey, Kristbjörn Árnason.
Hann sagði, að Örfirisey hefði
að undanförnu landað í Reykja-
vík, í gær 274 tonnum en 312
tonnum í fyrradag. Kvað hann
veiðisvæðið nú vera út af
Reykjanesi, en áður við Ingólfs-
höfða. Á meðan þar var veitt
landáði skipið í Vestmannaeyj-
um, en á Austfjörðum verkfalls-
dagana.
Kristbjörn sagði, að Örfirisey
hefði nú þegar aflað meira af
loðnu, en alla vertíðina í fyrra.
Örfirisey fer strax á veiðar
aftur og veður batjiar, en ógæft-
ir hafa mjög hamlað sjósókn
undanfarið.
í húsunum voru 150 fjár og
í sambyggðri 500 hesta hlöðu
um 300 heyhestar. Tuttugu og
sjö ær höfðu fundizt lifandi
síðdegis í gær en um 70 dauð
ar. Menn af bæjum í Reynis-
hverfi unnu að því í gær að
Ieita fjárins, sem vantaði, en
litlar líknr eru taldar á að
fleira sé lifandi. Foráttuveð-
ur var á þessum slóðum í
gær og urðu menn af næstu
bæjum að skríða að húsunum
til að grafa þar eftir fénu.
Á Lækjarbakka býr Gísli
Skaftason og var hann á leið
í húsin er snjóflóðið féll.
Vegna rafmagnsbilunar var
hann seinna á ferð en fyrir-
hugað var og mun það hafa
orðið honum til lífs. Snjóflóð
ið tekur yfir fjögurra hekt-
Týndi pening-
um ú götu
ÞAÐ bar við í Kópavogi í gær,
að kona var á gangi skammt
frá lögreglustöðinni, að veski
hennar sviptist upp í veðrinu
og úr því fauk allmikil peninga-
upphæð.
Nokkuð af peningunum fannst
aftur, en töluverða upphæð vant
aði. Eru menn, sem finna pen-
inga nálægt lögreglustöðinni í
Kópavogi, góðfúslega beðnir að
koma þeim til lögreglunnar þar.
ara svæði. Síðar í gær féll
snjóflóð í fjárhús á Presthús
um í Reynishverfi og fórust
þar 80 fjár.
Fréttaritari Mbl. í Litla-
Hvammi ræddi við húsmóður-
ina á Lækjarbakka, Kristínu
Ólafsdóttur, og fórust henni orð
á þessa leið:
— Hér, eins og um allan Mýr
dal. hefur verið látlaus bylur
síðan í gærmorgun með hvass-
viðri og ofanburði. í nótt fór
ratfmagnið hér og einnig á Reyni
sem er næsti bær. Er ratfmagns-
laust enn og urðum við fyrir þá
sök að handmjólka beljurnar í
morgun. Var Gísli bóndi því
seinn fyrir til gegninga í fjár-
húsin, en þau standa um 200
metra frá bænum.
Fór Gísli þangað á tíunda
tímanum í morgun og er hann
var kominn miðja leið, virtist
honum sem húsin hefðd rofið, en
Framhald á bls. 17
Mjólkurskortur vegna
ófærðar á Suðuriandi
VIÐSKIPTAVINIR mjólkurbúð-
arinnar í Mjólkurstöðinni, er
komu til að verzla þar í gær
um kl. 16,30 fóru bónleiðir til
búðar. Þar var öll mjólk upp-
seld. Einn viðskiptavinurinn
sætti sig þó ekki við þetta og
gekk inn í port Mjólkurstöðvar-
innar, hitti þar einn starfsmann
og spurðist fyrir um það hvort
hann gæti ekki selt honum
mjólk. Starfsmaðurinn kvað eng
in vandkvæði í því, en gat hins
vegar ekki svarað því, hvers
vegna ekki fékkst mjólk í verzl
uninni, sem staðsett er í sama
húsi. Gaf maðurinn það svar, að
ekki hefði verið beðið um meira
mjólkurmagn fyrir umrædda
verzlun.
Mbl. sneri sér til Odds Helga-
sonar hjá Mjólkursamsölunni og
spurðist fyrir um þetta mál.
Oddur sagði skýringu þessa fyr-
irbæris vera þá, að vegna ófærð-
ar á Suðurlandi og erffðra sam-
gangna m.a. við sveitirnar undir
Eyjafjöllum héfði ekki borizt
nægileg mjólk til borgarinnar.
Mjólkin, sem maðurinn sá í
Mjólkurstöðinni var ætluð verzl
ununum í dag, en verið er að
reyna að dreifa mjólkinni niður
á daga. Einnig sagði Oddur að
umrædd mjólkurbúð nyti ekki
forgangs í mjólkurskorti. Hún
fengi sama magn og aðrar verzl-
anir með tilliti til íbúafjölda
hverfisins, sem hún er í. Þann-
ig kvað hann samsöluna reyna
áð dreifa mjólkinni sem viðast
um borgina, þetta værí eina leið
in til þess að sem flestir fengju
mjólk og að hverfi yrðu ekki út
undan.