Morgunblaðið - 23.03.1968, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.03.1968, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1968 7 Wata kusiva anata suki mazu 66 99 Hún kom frá landi sólar- uppkomunnar, — Japan — beint hingað í snjóinn. Hún sagði okkur frá því þegar við hittum hana á förnum vegi á Loftleiðahóteiinu í fyrradag þar sem bún dansar á kvöldin að hún væri samt ekki óvön snjón um. Heima í Japan væri líka snjór, og að hún ætti meira að segja skiði. Til að kynna þá, sem hér er talað um verðum vð að segja frá ætt hennar og uppruna, eins og íslendinga er siður. „Já það hvilir enginn leyndardóm- ur yfir aldri rnínurn," segir hin svarthærða og undurfallega At- sumi Taki, í byrjun viðtals okkar. „Ég er 23 ára gömul, og er fædd í borginni Nagoya, sem er rétt fyrir sunnan Tokyo. AMMA, er eitt þeirra orða, sem er sameiginlegt í ís- lenzku og japönsfcu. Mynd þessi er fengin úr bókinni „Japanalia", sem höfundur þessanar smágreinar, eignað- ist árið 1941, vegnn áhuga síns á japönsloum málum. á Eyjunni Honshu, en það er stæsta eyja Japans. Ég held ég megi segja, að ég sé Japani í húð og hár, m.a. óhætt að fullyrða, að ég tel að keisarafjölskyldan, sé brað- nauðsynlegt sameiganartákn hinnar japönsku þjóðar.Mika- dóinn, Hirohító, sonur sólarinn- ar, og krónprinsinn, Aktika, eru nauðsynleg tákn einingar hinnar japönsku þjóðar Rétt er það, ég stunda mynd- listarnám í París, og hingað og víða annað, kem ég til að vinna mér inn peninga með danssýningu til þess ég geti haldið áfram námi.“ Rétt ofan við okkur á veggn um hangir íslenzkt abstraktmál ver, svo að við spyrjum Atsumi Taki, hvort hún máli á líkan máta? Svarið kom fljótt og var nei- kvætt. „Nei, sjáðu, ég mála ekki svona, heldur ekki beint eftir náttúrunni. Ef ég mála tré, ef ég mála blóm eða brúðu, þá mála ég hana upp á japönsku, sem gæti þýtt, að ég sæi þessa fyrirmynd í gegnum mín eigin þj óðargleraugu. Sjálfsagt mála málarar hverr ar þjóðar svolítið sér á parti, og ég myndi telja, að japansk- ir málarar væru engum öðrum líkir. Japanskt málverk er fín legt jafnvel ofurfínlegt oftast notum við vatnsliti, en í Paris hef ég haldið mér að olíulitum mestmegnis. Því miður tók ég engin málverk mín með mér. Hélt satt að segja, að enginn hefði áhuga á þeim hérlendis. Máski kem ég aftur með alla striganna og held hér sýningu. Ja, hver veit? Þú spyrð hvað nafnið mitt þýði? Seinna nafnið Taki, merk ir fljót, sem komið er frá fjðll- um, sem sagt stórfljót, En fyrra nafnið: Atsumi, sem hér hefur í blöðum ranglega verið nefnt Atsuma, þýðir í raun og veru friður og kyrrð.“ „Þú heitir semsagt á íslenzku Friðarfljótið. Eða svo við blöndum japönsku svolítið inn i þetta: Fljót hins mikla friðar Aannars langar mig til að segja þér. frá einu.. Ég kann eina setningu á japönsku, ég veit, að það er ekki mikið, en ætla samt að vita, hvort þú skilur mig. Setninginn er svona: „Wata kusiva anata suki mazu.“ “ „Já,“ svarar þessi svarthærða japanska fegurðardís með síða hárið,‘ — ég skil setninguna mæta vel, en veizt þú sjálfur, hvað hún þýðir?" „Já, ég held nú það, svara ég. Hún þýðir: „Ég elska þig." Að lokum þetta. Atsumi Taki dansar i Víkingasalnum á Hót- el Loftleiðum til næstu mánaða móta, og ekki er að efa, að mörgum fýsið að kynnast þess- ari perlu frá Austurlöndum, sem hingað er komin i snjóinn. — FR. S. A FÖRNUM VEGI Kona með 1 barn óskar eftir að komast trl aðstoðar í mötuneyti eða einhverri annarri viíinu. Uppl. 1 sima 82078. Tilvalin fermingargjöf er pífublússa eða loðbúfa úr ekta skinni. Sími 30138, Kleppsvegi 68, 3. hæð t. v. Keflavík Húsnæði 3ja—4ra herb. íbúð til leigu. Tilb. sendist afgr. Mbl. í Keflavík fyrir 28. marz, merkt: „Reglusemi 890“. Til leigu húsnæði, hentugt fyrir verkstæði, sauma- stofa eða þvíumlíkt. — Uppl. í síma 33919 í dag ■ og á morgun. Keflavík Góð 3ja berb. fbúð til leigu. Uppl. í sima 1924. Austin Gipsy Diesel til sölu. Yfirbyggður, lengdur um 20 cm, ti'lv. fyrir iðnaðarm. Uppl. í síma 41941 eftir hádegi á laugardag og sunnudag. Netasteinar Ibúð til sölu Netasteinar til sölu. — Steyptir í fyrrasumar. Sómar 50994 og 50803. Efri hæðin að Bergstaða- stræti 30 B er til sölu. — Verð 600 þús. Útb. 300 þús. Uppl. á staðnum. Volvo P-144 árg. 1967—68 Herbergi til leigu óskast, staðgreiðsla, skipti á Cortinu ’67 koma til greina. Uppl. í símia 30401. fná 1. apríl n. k. Reglu- semi áskilin. Uppl. að Lönguthlíð 7, kjallara. Söluturn óskast Skúr til leigu nú þegar eða síð- ar í vor. Til'boð merkt: „Söluturn 5772“ sendist afgr. Mbl. fyrir 1. apríl naestkomandi. í nágrenni bæjarins ósk- ast til led'gu eða kaups. Simi 52342. 2 STÚLKUR GETA FENGIÐ VINNU STRAX. BORGARÞVOTTAHÚSIÐ Borgartúni 3. Minnistexti sunnudagaskóla- barna: Þakkið Drottni, þvi að hann er góður. því að miskunn rans varir að eilífu. — Sálm. 136,1. Sunnudagaskólar Sunnudagaskólar KFUM og K í Reykjavík og Hafnarfirði hefjast í húsum félaganna kl. 10.30. Öll börn eru hjartanlega velkomin. Hjáipræðisherinn Sunnudagaskóli kl. 2 e. h. — öll böm velkomin. Heimatrúboðið Sunnudagaskólinn kL 10.30. — öll böm hjartanlega velkomin. Sunnudagaskólinn, Mjóuhlíð 16, kl. 10,30. — Öll börn hjartanlega velkomin. Fíiadelfía Sunnudagaskólar hefjast kl. 10.30 að Hátúni 2 og Herjólfs- götu 8. Öll örn velkomin. Sunnudagaskóli kristniboðsf'-laganna í Skip- holti 70 hefst kl. 10.30. — Öll börn velkomin. Akranesferðir Þ. Þ. Þ. Frá Akranesi mánudaga, þriðju- daga, fimmtudaga og laugardaga kl. 8, miðvikudaga og föstudaga ki. 12, sunnudaga kl. 4.15. Frá Reykjavík ki. 6 alla daga nema laugardaga kl. 2 og sunnu- daga kl. 9. Eimskipafélag Islands. Bakkafoss fór frá Patreksfirði 22 marz til Bíldudals, Þingeyrar, Flat- eyrar, ísafjarðar, Hvammstanga og Sauðárkróks. Brúarfoss kom til Norfolk 21. marz frá Cambridge fer þaðan til NY og Rvíkur. Detti- foss fór frá Kotka 19. marz til Reyðarfjarðar, Akureyrar ogRvík ur. Fjallfoss fór frá Norfolk 15. marz til Rvíkur. Goðafoss fór frý Hamborg 21. marz til Rvíkur. Gull- foss fór frá Thorshavn 22 marj til Khafnar. Lagarfoss fer væntan- lega frá Gautaborg í dag til Fær- eyja og Rvíkur. Mánafoss fór frá Rvík 20. marz til Seyðisfjarðar, London, Hull og Leith. Reykja- foss fór frá Rvík 22. marz til Hafnarfjarðar. Selfoss fór frá Rvík 22. marz til Patreksfjarðar, Þingeyrar, Súgandafjarðar og ísa- fjarðar. Skógafoss fór frá Hafnar- firði 22. marz til Rvíkur. Tungu- foss fór frá Akranesi 22. marz til Stykkishólms, Grundafjarðar og Hafnarfj.arðar. Askja fór frá Leith 21. marz til Reykjavíkur. Hafskip h.f. Langá er á Akranesi. Laxá er í Reykjavík. Rangá er í Reykjavík. Selá er i Reykjavík. Skipaútgerð ríkisins. Esja er á Vesturlandshöfnum á norðurleið. Herjólfur er í Reykja- vík. Blikur fer frá Reykjavik í dag austur um land til Seyðisfjarð- ar. Herðubreið er á Austurlands- höfnum á norðurleið. Baldur fer til Snæfellsness— og Breiðafj arðar- hafna á mánudag. Loftleiðir h.f. Þorfinnur karlsefni er væntanlegur frá London og Glasgow kl. 0030, í nótt. Bjami Herjólfsson ervænt- anlegur frá Luxemborg kl. 0100, í nótt. Heldur áfram til NY kl. 0200. Leifur Eiríksson er væntanlegur frá NY kl. 0830, í fyrramálið. Heldur áfram til Luxemborgar kl. 0930. Snorri Sturluson fer til Óslóar, Gautaborgar og Kaupmannahafnar kl. 0930, í fyrramálið. Skipadeild SÍS. Arnarfell losar á Húnaflóahöfnum. Jökulfell lestar á Austfjörðum. DIs- arfell fer væntanlega 25. þ.m. frá Rotterdam til íslands. Litlafell er við olíuflutninga á Austfjörðum. Helgafell losar áEyjafjarðarhöfn- um. Stapafell losar á Vestfjörðum. Mælifell fór 21. þ.m. frá Gufunesi til Rotterdam. Lúðrasveitin Svanur Laugardaginn 23. marz heldur Lúðrasveitin Svanur tónleika í Austurbæjarbíó fyrir styrktarfélaga og aðra velunnara sveitarinn- ar og hef jast þeir kl. 2. Efnisskráin verður mjög fjölbreytt og má þar m.a. nefna verk eftir Grieg, Suppé, Theodorakis, Lennan og McCartney o. fl. Lúðrasveitin Svanur er skipuð 28 áhugahljóðfæraleikurum sem allir hafa æft með sveitinni undanfarin ár og sumir í áraraðir. Stjórnandi er Jón Sigurðsson, 1. trompetleikari Sinfóníuhljóm- sveitar Islands og er þetta 3. starfsár hans með lúðrasveitinni. Atvinna Ungur maður óskast á sveitaheimili til vors. Aðalstarf hirðing og tamning hrossa. Upplýsingar gefur Ráðningarstofa landbúnaðarins, sími 19200. Óskum eftir að ráða skrifstofustúlku eða mann nú þegar. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist okkur fyrir 1. apríl n.k. Sparisjóður Kópavogs. Iðnaðarskrifstofuhíisnæði Til leigu um 150 ferm. húsnæði v/Laugaveg, hentugt fyrir léttan og þrifalegan iðnað, eða skrif- stofur. Tilboð sendist í pósthólf 434. Ekki svíkur Bjössi! Annar hluti sjálfsævi- sögu Sigurbjöms Þor- kelssonar í Vísi er kom inn út, hin sanna, en síðbúna jólabók, sem auðvitað er jafnframt kjörin til fermingar- gjafa. Bókin gleður alla eins og Vísiskaffið gerði forðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.