Morgunblaðið - 23.03.1968, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.03.1968, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1968 21 Fjölsvinnsgleði — hinna margvitru ## Hátíð Við litum inn á íþróttahátíð Kennaraskólans fyrir nokkru þar sem hún var haldin á Hálogalandi. Nafn hátíðarinn- ar var „Fjölvinnsgleði", en það er fornt orð og þýðir „Hátíð hirma marvitru". Dag skrá hátíðarinnar var fjöl- breytt og vönduð, en hæst reis, þegar lið kennara keppti við lið stjórnar skólafélags- ins í blaki. Hálogaland var þéttskipað nemendum Kenn- araskólans og hvöttu þeir ó- spart keppendur. Það var mikið fjör í húsinu og skemmtu menn sér hið bezta. Eftir að setning hafði far- ið fram hófst fyrsti liður dag skrárinnar, sem var körfu bolti á milli Menntaskólans á Laugarvatni og Kennaraskóla Islands, en Laugvetningar sig ruðu í þeim lei'k. Þá var fim- leikasýning stúlkna og sýndi hópur stúlkna skemmti- legar æfingar. Hófst þá fyrsta gamanatriði kvöldsins. Var Indriði Gíslason magister, var leynivopn kennara. Hann var aðeins skamma hríð fyrir ut- an völl, því öruggara þótti að hafa hann inni á vellinum. það keppni í knattspyrnu á milli liða antisportista og stúlkna. Báru antisportistar túlipana í barmi til þess að reyna að draga athygli stúlkn- anna frá keppninni og tókst það að nokkru, því antisport istar báru sigur úr býtum. Skýring er þó nokkur á sigri þessum, því að markvörður antisportista var tvígildur á þverveginn og því mjög erf- itt að koma knettinum fram inn liprar stúlkur í spori og sýndu rythmik undir stjórn Þóru Oskarsdóttur, kennara. Var þetta glæsilegur þáttur hátíðarinnar og veil unninn. Handboltakeppni pilta úr VÍ og KÍ lauk með sigri Verzl- unarskólanema. Aftur komu skrautklæddir dansarar inn á gólifið og dönsuðu nokkra erlenda þjóðdansa. Var þá ikomið að síðasta dagskrár atriðinu og mest spennandi, Kennarar, til vinstri, verja snarlega þrátt fyrir fimlegar að- farir nemenda. Dr. Broddi Jóhannesson er viðbúinn á tvísýnu augnabliki í blakkeppninni. Ljósm. Kr. Ben. hjá honum inn í markið. Þjóð dansafllokkur kennaranema dansaði því næst þjóðdansa frá nokkrum löndum og svipt ust þar pilsfaldar í fjörugum dansi. Handboltakeppni stúlkna úr MR og KÍ var mjög spennandi. MR stúlkur höfðu forystu framan af, en KÍ stúlkur voru hvattar ó- spart og höfðu sigur að lok- um. Hlupu þá fram é völl- en það var keppni í blaki á milli liða kennara og nem- enda. Mikill giæ-sibragur var yfir liði kennara, en það hafði mætt á nokkrar æfing- ar undir stjórn Karls Guð- mundssonar, íþróttakennara KÍ. Liðið geystist fram á völlinn undir forystu fyrir- liðans, dr. Brodda Jóhanns- sonar, skólastjóra. Margar fleiri kempur voru í liðinu og má þar nefna Jón Ásgeirs- son, söngkennara og söng- stjóra, en mjög erfiðlega gekk að finna nógu stóra keppnis skyrtu á Jón fyrir leikinn. Séra Ingólfur Guðmundsson var í liði kennara og einnig Óskar Halldórsson cand mag, en hann er gamall fimleika- maður og léttur á fæti. Leyni vopn kennara var ís- lenzkukennarinn, Indriði Gísjason magister og það var hann, sem kom sá og sigraði. Víkur nú aftur að því er kennarar bruna fram völlinn og heilsuðu á báða bóga. Hófst nú leikurinn og gáfu lærifeð- urnir nemendum ekkert eftir í snjallri íþróttamennsku. Mjög merkileg tilþrif sáust í liði kennara, en sum voru all undarleg. Kennarar voru hvattir óspart af nemendum og bar það ríku- legan ávöxt. Jón Ásgeirsson var hvattur með hrópinu: Ta, tí, ta, tí ta,“ og Indriði, ís-_ lenzkukennari, var almennt kallaður „leynivopnið" enda reyndust skot hans eins og búmmerang, því knötturinn 'kom aftur ef skot geigaði, en það var sjaldan. Eftir tvær umferðir í blakinu var um yfirburðasigur að ræða hjá kennurum og ákváðu kenn- arar þá eina umferð enn til þess að sýna nemendum hvern ig þeir ættu að vinna sigur. Tókst það vel og mörðu nem- endur sigur í þriðju lotu, Lauk svo hátíð þessari sem var fjölbreytt og skemmtileg enda var mikið hlegið. Kennaraskólastúlka brýzt í gegn um vörn Verzlunarskól- ans og skorar. KÍ stúlkur sigruðu VÍ stúlkur í handboltan- Þjóðdansaflokkur kennarane ma sýnir dansa. Nemendur hvöttu keppendur óspart og sér í lagi lið kenn ara. Kjósm. Kristinn Benediktsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.