Morgunblaðið - 23.03.1968, Side 10

Morgunblaðið - 23.03.1968, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1968 Tók að mér störfin ef enginn annar fékkst og hefi haft mikla ánægju af — Samtal við Kristínu L. Sigurðardóttur sjötuga Kristín L. Sigurðardóttir á heimili sínu. Kristín L. Sigurðardóttir, fyrrv. alþingismaður, er sjötug í dag. Af því tilefni átti blaða- maður Mbl. við hana stutt sam- tal á heimili hennar á Bjarkar- götunni við Hljómskálagarðinn, þar sem hún hefur búið frá því hún og maður hennar, Karl Bjarnason, varaslökkviliðsstjóri byggðu húsið árið 1930. Kristín er fædd og uppalin í Reykjavík. — Faðir minn, Sig- urður Þórólfsson, var þá ráðs- maður hjá baróninum á Hvítár- völlum, sem Barónsstígurinn er kenndur við, og við bjuggum þar sem nú er Stjörnubíó, segir Kristín. Þar dó mamma, þegar ég var aðeins tveggja ára. Þó ég væri ekki eldri en þetta, man ég ennþá þegar við Ingibjörg Viborg, sem seinna giftist Pétri Magnússyni, vorum að leika okk ur og príla upp þessar háu tröpp ur, sem voru á húsinu. Eftir að mamma dó, fór ég til foreldra hennar, aía míns Guðmundar Ól- afssonar og Kristínar Árnadótt- ur, ömmu minnar, sem bjuggu á Vesturgötunni. Hjá þessum gömlu hjónum ólst ég upp í miklu eftirlæti. Mamma hafði ver ið einkabarn þeirra, og svo tóku þau mig að sér. Pabbi fór eftir að mamma dó til Danmerkur, til að mennta sig betur. Hann var í Askov og stofnaði svo skólann á Hvítárbakka með þessu sama lýðháskólasniði sem var í Ask- ov. — Voruð þér í Hvítárbakka- skóla? — Ég fór að vera í sveit á Hvítárbakka á sumrin og svo gekk ég í skólann eftir að ég var komin yfir fermingu. Það var nokkuð góður skóli og ég hefi seinna veitt því athygli hve margir, sem þar byrjuðu nám, urðu seinna góðir menntamenn og áhugasamir um félagsmál. Kennt var í fyrirlestrum, sem var mjög gott og lögð áherzla á að kenna manni að hugsasjálf- stætt og setja fram skoðanir sín- ar. — Þér hafið sjálf fengið mik- inn áhuga á félagsmálum? — Já, ég hafði það nú allt- af. En ég giftist um tvítugt, og fór ekki að vinna að félagsmál- um fyrr en krakkarnir voru orð nir stálpaðir. Hvernig á því stóð? Mér var ýbt út í þetta. enda var ég öllu óvön á þessu sviði. Ég hafði verið í Sjálfstæðis- kvennafélaginu Hvöt frá stofn- un þess og í Húsmæðrafélaginu, og lenti svo í Mæðrastyrksnefnd og Orlofsnefnd kvenna sem full- trúi þessara félaga. Nú, 1945 var aftur byrjað að vinna að hug- myndinni um að reisa Hallveig- arstaði. Hún var um 20 ára göm- ul, en kreppan hafði reynzt of þung í skauti. Þegar aftur var hafizt handa, tók ég að mér rit- arastörf í fjáröflunarnefnd. Bær, ríki og alþýðusamband styrktu þetta rruál og áttu hver sinn full- trúa í nefndinni, einnig Kven- réttindiafélagið _og Kvenfélaga- samlband íslands. Þegar Reykja- víkurbær átti að tilnefna fulltrúa, var ég fengin. Ég var svo formaður frá 1950, eða öll þessi erfiðu ár hjá okkur. Við fengum ekki lóð, það voru málaferli, en að lokum feng um við að byggja við Garða- strætið, að vísu ekki án kvaða á húsinu. Mér var því ekki sárs- aukalaust að þurfa að hætta að vinna að þessum málum. En heils an leyfði það ekki. Ég fékk á- fall fyrir 4 árum og gekk und- ir uppskurð i Danmörku. Sama er að segja um formanns- starf í Landssambandi sjálfstæð- iskvenna. Mér þótti leitt að þurfa að hætta því, en það gleð- ur mig að svo góður formaður fékkst í minn stað. — Hver voru tildrögin að þingsetu yðar? — Hvatarkonur vildu fá konu á þing. Þær komu til mín. Þegar þær sögðu að það kostaði að þær fengju ekki konu á list- ann ef ég tæki þetta ekki að mér, þá stóðst ég ekki mátið. Það var með það eins og svo mörg önnur af þeim störfum, sem ég tókst á hendur, að ég fór í þau þegar ekki fékkst nein önn- ur. Ég lét tilleiðast þó ég findi að ég væri ekki fær um það. — Svo? — Jú, mig skorti menntun. Ég hafði verið í skólanum á Hvítár- bakka, en svo ekki meir. Og ég fann alltaf til þess að mig vant- aði menntun Mér finnst að til setu á alþingi þurfi háskóla- menntun. Ég kveið ósköp fyrir að koma á þing, en þegar þang- að var komið, kunni ég ágæt- lega við mig. Þingmenn voru mér ákaflega vinsamlegir, jafnt úr örðuim flokkum sem mínum. Ég man alltaf þegar ég kom í fyrsta skipti í framlboð, baTa hús móðir og öllu óvön, og lenti strax í áköfum blaðadeilum. Valtýr riA stjóri Morgunblaðsins, stóð þá alltaf með mér. Hann kom og sagði: Nú, er búið að skrifa þarna grein, sem verður að svara Og ég varð að gera það. Sannleikurinn er sá, að ég hefi of mikið vantreyst sjálíri mér, alltaf kviðið fyrir allan daginn ef ég átti að halda ræðu. En svo hefi ég verið miklu betri, þegar á hólminn er komið. Og ég held eða vona að ég hafi ekki orðið mér til mikillar skamm ar. — Beittuð þér yður mest fyr- ir málefnum kvenna á þingi? — Nei, ég skoðaði mig ekki eingöngu fulltrúa kvenna heldur Reykvíkinga allra og var af þeim sökum ekki alltaf sammála öðrum. Bindindismálum lagði ég alltaf lið, og hefi gert það frá barnæsku. En eins og ég sagði yður áðan, þá var ég ung Oig hafði litla reynslu, þegar ég byrjaði á þingi. Það er nú kannski ekki rétt að farið að koma til þingsetu til að öðlast reynzlu í störfum. — Ég fann líka alltaf til þess að ég var ekki nógu góð í öðr- um tungumálum heldur Kristín áfram. En ég hefi oft sótt þing erlendis fyrir þau félög, sem ég hefi starfað fyrir, og það geng- ið furðanlega vel. T.d. sótti ég fyrir Barnaverndamefnd norr- ænt barnaverndarmót og fór um leið á lýðháskólanámskeið í Dan mörku. Þá ferðuðumst við um alla Danmörku og skoðuðum mik inn fjölda af barnaheimilum og af ýmsum gerðum. Það var á- kaflega fróðlegt fyrir mig að kynnast þeim, vegna starfa minna í Barnaverndarnefnd. — Já, þó ég hafi venjulega látið tilleiðast að taka að mér einhver félagsstörf, þegar eng- inn annar fékkst, þá hefi ég haft mikla ánægju af þeim og sakna þess nú, þegar ég er kom- in út úr öllu slíku. En það þýð- ir ekki að deila við dómarann, þegar heilsan fer. — Eruð þér ekki sæmilega hress nú á afmælinu? — Jú, börnin mín ætla að halda upp á afmælið hjá Guð- mundi syni mínum og tengda- dóttur minni á Kópavogsbraut 90. Þau vildu það og þar verð ég. Við óskum því Kristínu til hamingju með afmælið. KRISTÍN L. Sigurðardóttir fyrr verandi alþingismaður er 70 ára í dag. Hún fæddist í Reykjavík 23. marz 1898, dóttir Önnu Guð- mundsdóttur og Sigurðar Þórólfs sonar kennara, síðar skólastjóra á Hvítárbakka. Þegar hún var tveggja ára gömul missti hún móður sína og var þá tekin í fóstur af móðurforeldrum sínum og ólst hún upp hjá þeim við mikið ástríki. Tvítug að aldri giftist hún Karli Bjarnasyni slökkviliðsmanni er síðar varð slökkviliðsstjóri Reykjavíkur og eignuðust þau 3 mannvænleg börn sem eru móður sinni mikils virði, ennfremur á hún 8 barna- börn. Kynni okkar frú Kristlnar hófust er hún var 15 ára gömul og við unnum báðar í sama sjúkra húsi og hefir sá kunningsskap- ur haldist óslitið alla tíð síðan. Þegar Sjálfstæðiskvennafélagið „Hvöt“ var stofnað, 15. febrúar 1937 var hún ein af stofnendum þess og í stjórn þess sem ritari um fjölda ára. Þingmaður Sjálf- stæðisflokksins var hún eittkjör tíma'bil og varamaður annað. Auk þess annaðist hún mjög mörg trúnaðarstörf fyrir Sjálfstæðis- flokkinn árum saman. Eftir hádegi í dag dvelst hún á heimili sonar síns og tengda- dóttur að Kópavogsbraut 90, Kópavogi, og tekur þar á móti vinum og vandamönnum, sem vilja taka í höndina á henni á þessum merku tímamótum æfi hennar. Kristín mín, ég þakka þér öll þín störf fyrir land og þjóð og flyt þér hjartanlegar hamingju- óskir á 70 ára afmæli þinu og bið þér, börnum þínum tengda- börnum allrar guðs blessunar. Kær kveðja María Maack. Bátur til sölu Til sölu er m.b Vísir H.U. 10 sem er IG tonn að stærð. í bátnum er Scania Vabis vél 134 hestöfl. Nánari uplýsingar gefur JÓN STEFÁNSSON, sími 84 Skagaströnd. Sumarbústaður óskast Sumarbústaður á Suðurlandi óskast til leigu á kom- andi sumri. Þeir sem vilja athuga málið, vinsam- legast hringi í síma 42287 eftir hádegi í dag eða á morgun. Enskunám í Englandi Sumamámskciðin á vegum Scanbrit eru vandlega skipulögð. Val heimila, kennslufyrirkomulag, öryggi nemenda: allt er gert til þess að góður og ánægjulegur árangur náist. Hagstætt heildarverð gerir miklu fleirum fært að læra ensku í Englandi en ella. Leitið upplýsinga hjá Sölva Eysteinssyni, Kvist- haga 3, Reykjavík, sími 14029. SKRIFSTOHJSTLLKA ÓSKAST Þekkt fyrirtæki óskar að ráða skrifstofu- stúlku um n.k. mánaðamót. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir n.k. þriðjudag merktar: „Skrifstofustúlka — 8863“. Tilboð óskast í Simca Ariane ’63 í því ástandi sem hún er í eftir árekstur. Til sýnis á bílaverkstæðinu Görðum við Ægissíðu. Tilboð sendist Tryggingamiðstöðinni h.f \ erzlimarstarf Maður óskast til afgreiðslu- og annarra tilfallandi starfa við járnvöru- og málingarverzlun strax. Þarf að vera vanur akstri og hafa góða framkomu. Eiginhandarumsóknir er greini helztu upplýsingar um umsækjanda leggist í póst merktar: „Pósthólf 301“, Reykjavík. HÉR MEÐ ER óskað eftir tilboði í að leika fyrir nýju dönsunum á þjóðhátíð Vest- mannaeyja 1968. Einnig er óskað eftir tilboði í skemmtidagskrá. Jafnframt er óskað eftir tilboði í að leika fyrir gömlu dönsunum. Nánari upplýsingar í síma 1090 Vestmannaeyjum. Tilboð óskast send í pósthólf 228 Vestmannaeyjum fyrir 10. apríl 1968. ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND ÞÓRS.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.