Morgunblaðið - 07.05.1968, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÖJUDAGUR 7. MAÍ 196«
Víkingar áttu skil-
ið annað stigið
Frúm og Víkingur Iéku fjórða
leik Reykjavíkurmótsins á
sunnudaginn og fór Fram með
sigur af hólmi 4:3. Sannarlega
var það heppni að þakka því
Víkingar höfðu náð forystu sem
átti að nægja til sigurs en leik-
reynsla Framara færði þeim sig-
urinn.
Leikurinn var framan af m.jög
tilbreytingaríkur, hratt leikið og
á köflum vel leikinn.
Þegar 9 mínutur voru af leik
skoruðu Framarar. Grétar mið-
herji fékk sendingu af hægri
kanti og leit út fyrir að hann
mundi misnota sendinguna — en
í mark.ið fór knötturinn þrátt
fyrir allt.
Á 18 mínútu jöfnuðu Víkingar,
Hafliði Pétursson miðherji • lék
laglega í gegnum Framvörnina
og skoraði af vítateig með fall-
egu skoti.
Eftir 6 mínútur náðu Víking-
ar forystu í leiknum. Hafliði
var þar aftur að verki eftir að
Anton Björnsson miðvörður
Fram hafði misst sendingu yfir
sig og skorað var af vítateig.
Víkingar juku forystuna í
3:1 eftir 35 mínútur og var þar
að verki Bjarni Gunnarsson, sem
lék laglega í gegn á miðjunni og
skoraði með fallegu skoti af
vítateig.
En Adam var ekki lengi í
Paradís. Á síðustu átta mínút-
um hálfleiksins náðu Framarar
ekki einungis að jafna leikinn
heldur einnig forystu. Þeir skor
uðu þrjú mörk á átta mínútum.
Á 37 mínútu var skorað úr horn
spyrnu. Á 40. mínútu skoraði
Helgi Númason og á 43. mínútu
skoraði Grétar Sigurðsson sigur-
mark Fram.
Framarar voru afar heppn-
ir með að hljóta bæði stigin í
þessum leik. Framliðið lék eng-
anveginn sannfærandi, en naut
meiri leikreynslu og hún færði
liðinu sigurinn.
Víkingar þurfa engu að kvíða
í framtíðnni,' haldi svo fram sem
nú stefnir. Þeir réðu lögum og
lofum á vallarmiðju lengst af í
leiknum og áttu Magnús og Jón
Ólafsson mestan þáttinn þar í.
Framh. á bls. 27 I
Sigurvegarar í flokki 18 ára og yngri. Frá vinstri: Kristinn, Árni Þór, Sigurbjarni, Arnar,
Guðni Þór, Hannes og Gísli.
SKÍÐAMÓT ÁRMANNS
INNANFÉLAGSMÓT skíðadeild
ar Glímufélagsins Ármanns var
haldið í Jósepsdal 1. maí sl.
Keppni fór fram í Suðurgili
og var skíðafæri og veður eins
gotf og bezt verður á kosið.
Keppt var í svigi karla,
kvenna, unglinga og barna-
flokka.
Islenzku judómennirnir stóðu í
Norðurlandameisturunum
Síðastliðinn vetur hefur Judo
verið töluvert á dagskrá í skrif-
um blaða og sjónvarpi, en lítið
hefur þó verið að frétta af
keppnum íslenzkra Judomanna
fram að þessu. Síðastliðið sumar,
var stofnað hér sjálfstætt í-
þróttafélag, sem eingöngu legg-
ur stund á Judo og heitir það
Judofélag Reykjavíkur. Það sótti
strax um inngöngu í Í.B.R. og
Í.S.Í., en vegna nokkurra forms-
atriða hefur endanleg innganga
þess dregizt nokkuð en ekki er
annað vitað en því verði kippt
í lag innan skamms. Takmark
Judoféiags Reykjavíkur er að
vinna að því að koma á sam-
vinnu allra, sem leggja stund á
Judo hér á landi, með það fyrir
augum að gerast fullgildur aðili
að Judosambandi Evrópu.
í janúar sl. barst Judofélagi
Reykjavíkur bréf frá Judosam-
bandi Danmerkur og boð um að
taká þátt í Judomeistaramóti
Norðurlanda, sem fram skyldi
fara í Kaupmannahöfn 27. og
28. apríl. Þar sem ísland er enn
ekki orðinn aðili að neinum al-
þjóða Judosamböndum, var þetta
sérstök vinsemd af hálfu danska
sambandsins, og einstakt tæki-
færi fyfir íslenzka Judomenn að
komast í stórmót meðal alþjóð-
legra Judokeppnismanna. Þetta
var tækifæri, sem ekki mátti láta
ónotað þar sem það myndi opna
dyrnar fyrir frekari samvinnu
á alþjóða vettvangi. Judofélag
Reykjavíkur sendi því bréfið á-
fram til Judodeildar Ármanns og
bauð þeim samvinnu um að und-
irbúa þátttöku í mótinu. En
Judodeild Ármanns lýsti því yf-
ir, að þeir hefðu ekki áhuga á
málinu. Stjórn Judofélags
Reykjavíkur ákvað því að senda
tvo þátttakendur, Sigurð H. Jó-
hannesson til keppni í léttmilli-
vigt og Sigurjón Kristjánsson í
millivigt. Fóru þeir utan 25.
apríl.
Keppni hófst kl. 10 f.h. 27.
apríl og fór þá fram sveita-
keppni, fimm frá hverju landi.
Þessa keppni unnu Danir, en
Finnar urðu í öðru sæti. Einn-
ig fór fram undankeppni í opn-
um flokki. Skilyrði til þátttöku
í sveitakeppni er 5 keppendur
frá hverju landi. Við tilkynntum
ekki þátttöku í opna flokkinum.
Sunnudaginn 28- apríl fór svo
fram flokka keppni, Svíar sigr-
uðu í léttvigt eftir mjög skemmti
lega keppni.
í léttmillivigt vann Sigurður
H. Jóhannsson norska keppand
ann, en tapaði svo fyrir þeim
danska og finnska. Danir og
Finnar unnu alla sína leiki og
kepptu til úrslita. Skildu þeir
jafnir eftir mjög harða keppni,
en Finnanum var dæmdur sigur.
Sigurjón Kristjánsson keppti í
millivigt og glímdi fyrst við
Norðmann og vann eftir ágæta
og snarpa keRpni. Þar næst
keppti hann við Finna, sem var
einn bezti Judomaður mótsins,
og vakti það undrun viðstaddra
að þrívegis losaði Sigurjón sig
úr fastatökum, en svo fór þó,
að Finninn vann, og keppti til
úrslita við landa sinn, sem var
að lokum dæmdur sigur. Sigur-
jón keppti einnig við Dana og
tapaði naumlega á stigum, en sá
komst í undanúrslit. Þar tapaði
Daninn fyrir Finnanum. Létt-
þungavigt unnu Svíar og Finn-
ar þungavigt. í opna flokknum
var mjög hörð keppni milli Dana
og Finna, og sigraði Daninn eft-
ir að hafa beitt mjög skemmti-
lega svokölluðum fórnarbrögð-
um, sem komu Finnanum jafnan
úr jafnvægi.
í heild fór mót þetta mjög
vel fram og var Dönum til sóma.
„Standardinn“ í Judo á Norð-
urlöndum er orðinn hár, einkum
voru harðar og skemmtilegar
glímur í léttari flokkunum, en
allir keppendur voru vel þjálf-
aðir og ýmsir þeirra þrautreynd-
ir í mörgum alþjóðamótum.
Stjórnarfundur Judosambands
Norðurlanda var haldinn annan
mótsdaginn. Sat Sigurður H. Jó-
hannesson fundinn skv. sérstöku
boði sambandsins. Gerði hann
grein fyrir gangi judomála á ís-
landi. Ákveðið var að halda
næsta meistaramót í Svíþjóð 1970
og að ísland skuli boðin þátt-
taka. Auðvitað var þess vænzt,
að ísland yrði þá orðin form-
legur aðili að Judosambandi
Norðurlanda.
Telpnafl. 12 ára og yngri:
samanl. tími
1. Margrét Ásgeirsdóttir 5(1.6 sek
2. Sigurbj. Þórmundsd. 54.4 sek
3. Guðrún Harðard. 5(6.4 sek
Ásgeir Eyjólfsson og voru braut
ir hans að vanda mjög skemmti
legar.
Stúlknafl. 13—14 ára:
samanl. tími
1. Áslaug Sigurðard. 129.5 sek
Kvennaflokkur:
samanl. tími
1. Hrafnh. Helgadóttir 97.5 sek
2. Guðrún Björnsdóttir 113.0 sek
3. Jóna Bjarnadóttir 164.8 sek
Drengir 12 ára og yngri:
samanl. tími
1. Hannes Ríkharðsson 52.9 sek
2. Árni Þór Árnason 59.2 sek
3. Kristinn Þorsteinsson 60.2 sek
Drengir 13—14 ára:
samanl. tími
1. Magnús Árnason 9'8.2 sek
2. Eyjóifur Bragason 139.4 sek
Drengir 15—16 ára:
samanl. tími
1. Þorv. Þorsteinsson 96.3 sek
2. Einar Guðbjartsson 111.8 sek
Karlaflokkur:
samanl. tími
1. Arnór Guðbjartsson 112.4 sek
2. Bjarni Einarsson 114.3 sek
3. Georg Guðjónsson 118.9 sek
Fleiri keppendur luku ekki
keppni, en skráðir voru til leiks
-<Íf33. Brautarlagningar annaðist
Valur vann
KR 2:1
VALUR vann KR í gær með 2:1
í hálfleik var staðan 1:0 KR í
vil.
Molar
AUSTURRÍKI og Rúmenar
(atvinnumannalið) skildu
, jöfn í knattspyrnulandsleik -
' Linz 1. maí.
I lið 1 mark.
Skoraði hvtfrt
I PÓLLAND og Holland skildu /
jöfn í knattspymulandsleik í ’
Varsjá 1. mai. Hvorugu liðinu j
tókst að skora mark.
1 FRAKKAR unnu Austurríkis
1 menn 3—1 í fyrri úrslitaleikn
um í 3. riðli undankeppni OL-
Ileikannna í Mexico. Frakkar
höfðu forystu í hálfleik 1—0.
Síðari leikurinn verður í Vín
| 12. maí. jj
Sigurvegarar í flokki telpna 12 ára og yngri. Guðrún Margrét, Guðbjörn og Sigurbjörg.