Morgunblaðið - 07.06.1968, Blaðsíða 1
32 SÍÐIiR
116. tbl. 55. árg. FÖSTUDAGUR 7. JUNÍ 1968 _______________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
„VID SKUTUM HANN - VID SKUTUM HANN
— Kona eftirlýst vegna morðs-
ins á Robert Kennedy, sem
lézt í gærmorgun
— Rorgarstjorinn í Los Angetðs
segir kommúnismann bera
ábyrgð á morðinu
— Líkur taldar fyrir því að
Edward Kennedy geti orðið
varaforsetaefni demokrata
— IJtför Roberts Kennedys gerð
í Washington á laugardag
Los Angeles, 6. júní. — (AP-NTB)
0 Robert Francis Kennedy öldungadeildarþingmaður frá
New York andaðist í nótt sem leið í sjúkrahúsi í Los Ange-
les af skotsárum, sem hann hlaut aðfaranótt miðvikudags.
Komst hann aldrei til meðvitundar þœr 25 klukkustundir,
sem hann lifði eftir að tvær byssukúlur hæfðu hann, önn-
ur í hálsinn, hin í höfuðið.
9 Tilræðismaðurinn, sem skaut Kennedy, og særði fimm
aðrt^ hefur verið í yfirheyrslu í dag, en ekkert viljað um
morðið tala. Hefjast réttarhöld í máli hans í fyrramálið,
föstudag.
0 Lík Kennedys var í kvöld flutt flugleiðis frá Los Ange-
les til New York, þar sem það liggur á viðhafnarbörum í
kirkju heilags Patreks á morgun. A laugardag verður sung-
in sálumessa yfir Kennedy þar í kirkjunni, en síðan verður
líkið flutt til Washington, og jarðsett í Arlington kirkju-
garðinuni, skammt frá gröf bróður hans, Johns F. Kennedys
fyrrum forseta.
tfh Lögreglan í Los Angeles hefur nú lýst eftir ungri konu,
sem hún telur að hafi verið á einn eða annan hátt viðrið-
in morðið. Hefur vitni borið að ung kona hafi komið hlaup-
andi út úr Ambassador hótelinu skömmu eftir að Kennedy
Kista Roberts Kennedys flutt um borð í einkaflugvél Bandarikjaforseta á flugvellinum í Los
Angeles. Maðurinn næst flug vélinni, handan kistunnar, er E dward Kennedy, bróðir hins
látna.
var skotinn þar, og hrópað: „Við skutum hann, við skutum
hann.“ Aðspurð hver hefði verið skotinn, svaraði konan:
„Við skutum Kennedy öldungadeildarþingmann."
0 Borgarstjórinn í Los Angeles, Samuel Yorty, hefur lýst
því yfir að kommúnisminn beri ábyrgð á því að Kennedy
var myrtur. Segir hann að Sirhan Sirhan, sá er handtekinn
var fyrir morðið, hafi verið kommúnisti, eins og glöggt komi
fram í dagbók hans. í málgögnum sovézkra kommúnista er
þó annað uppi á teningnum. Segir í fréttum frá Moskvu í
dag og sovézk blöð hafi notað morðið á Kennedy til áróðurs
gegn bandarísku þjóðfélagi, sem þau nefna þjóðfélag ofbeld-
is og ógna. Þar er morðingjans aðeins lítillega getið. Þess
ber einnig að geta í þessu sambandi að í gær sagði Izvestia,
málgagn Sovétstjórnarinnar, um atburðinn: „Tilræðið við
Robert Kennedy er afleiðing af krabbameinsæxlinu, sem et-
ur sig æ dýpra inn í samfélag heimsvaldasinna.“
Fullyrðingar Yortys borgar-
stjóra komu fram á fundi, sem
hann hélt með fréttamönnum í
Los Angeles í dag. Sagði hann
þar að kommúnisminn væri að
reyna að skapa sundrungu meðal
bandarísku þjóðarinnar.
„Á þvi leikur enginn vafi,“
sagði hann, „a'ð Sirhan Sirhan,
sem sakaður er um morðið, er
hliðhollur kommúnistum." Að-
spurður hvort hann hefði nokkr-
ar sannanir fyrir þessari stað-
hæfingu, svaraði Yorty því til að
„eina sönnunin sem við höfum
er það sem hann sjálfur skrif-
aði um samúð sína með komm-
únistum, með Rússum, með Kín-
verjum.“
í gær skýrði Yorty borgar-
stjóri fréttamönnum frá dagbók,
sem fundizt hafði heima hjá Sir-
han, en í bók þessa hafði Sir-
han meðal annars skrifað að
nauðsynlegt væri að myrða
Kennedy fyrir 5. júní. >að var í
þessa sömu dagbók, sem hann
hafði ritað álit sitt á kommún-
isma, Rússum og Kínverjum.
Nú viðurkenndi Yorty í dag að
Thomas Lynoh, dómsmálaráð-
herra Kaliforníu, hefði gagnrýnt
sig fyrir að hafa birt upplýsing-
ar úr dagbókinni. Óttast dóms-
málaráðherrann að birtingin geti
haft áhrif á réttarhöldin í máli
Sirhans.
Saksóknarinn í Kaliforníu,
Evelle J. Younger, tók undir
Framh. á bls. 12
Líf Frakka að komast
í eðlilegt horf á ný
París, 6. júní. AP.
í FRAKKLANDI er líf manna nú
aftur að komast í eðilegt horf
eftir nær þriggja vikna verkfall,
sem náð hefur til milljóna manna
og lamað allar samgöngur og at-
vinnulíf. Járnbrautarferðir voru
að komast í venjulegt horf i dag,
bæði á styttri og lengri leiðum.
Hjá neðanjarðarbrautunum í Par
ís voru ferðir orðnar að verulegu
leyti eðlilegar um hádegið á öll-
uð strætisvögnum voru aðems
hundrað ókomnir í gang. Aðeins
leigubilarnir voru kyrrir sem áð-
ur en búizt er við fundi með
leigubílstjórum á morgun, föstu-
dag. Póstur var ekki borinn út í
dag, en í pósthúsunum var byrj-
að að sundurgreina póstinn, sem
liggur þar í gifurlegum haugum.
Víðsvegar um landið þyrptust
m:nn til vinnu, hundruðum þús
unda saman. Aðeins á stöku
Kennedyf jölskyldan við brott förina frá Los Angeles í gær. E dward Kennedy heldur utan um
Ethel mágkonu sína, ekkju Roberts. Stúlkan í köflóttu káp unni er Kathleen, 16 ára dóttir
Ethel og Roberts.
um leiðum nema einni, en búizt
var við, að þar yrði ráðin á bót
með kvöldinu. Af sextán hundr-
stað voru smærri verkfallshópar
sem enn reyndu að halda bylt-
Framh. á bls. 21
4
I