Morgunblaðið - 07.06.1968, Page 2

Morgunblaðið - 07.06.1968, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDGAUR 7. JÚNÍ 1968 Dr. Macapagal og fjölskylda ásamt forseta Islands og dr. Gunnlaugi Þórffarsyni, er var leiffsögru- maffur þeirra í gær. Myndin er tekin á Bessastöðum í gær. — Ljósm. Ól. K. M. Kom til þess að kynna sér al- mannatryggingar HINGAÐ til lands kom í gær- morgun óvæntur gestur, fyrrum forseti Filippseyja og núverandi prófessor viff stærsta háskóla Asíu, sem staðsettur er í Manilla, dr. Diosdado Macapagal. Er hann að kynna sér velferð- arþjóðfélag, er formaður nefndar, er vinnur að því að koma á fót almannatryggingum á Filippseyj- um og hefur ferðazt um öll Norð- urlönd í því skyni. Macapagal heimsótti 1 gær Tryggingarstofnun ríkisins, og fór víða um Reykjavík. >á heim- sótti hann forseta íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, og ræddi við hann um stund. Með honum á þessu ferðalagi eru kona hans, Evangelina, sem er dr. í læknis- fræði og 2 af 4 börnum þeirra hjónci, sonurinn Diosdado og dóttirin Miria Gloria. Dóttirin er hagfræðingur 21 árs, en sonur- inn leggur stund á hagfræði og er 17 ára gamall. Dr. Macapagal er víðförull. Hefur m.a. ferðast um öll ríki Bandaríkjanna og víða um Afr- íku og Asíu. Hann er nú á fyrsta Ný skáldsaga eftir Agnar Þórðarson ALMENNA bókafélagiff sendir í dag frá sér nýja skáldsögu eft- tr Agnar Þórffarson og er það þriðja skáldsaga Agnars. Sagan heitir „Hjartaff í borffi“. í tll- kynningu AB segir um þessa bók: Almenna bókafélagið sendir þessa dagana frá sér nýja skáld- sögu eftir Agnar Þórðarson og nefnist hún „Hjartað í borffi.“ — Þetta er þriðja skáldsaga höf- undarins, en hann hefur á síðari árum einkum lagt stund á leik- ritagerð eins og kunnugt er. Hafa þrjú af leikritum hans verið sýnd í Þjóðleikhúsinu og tvö önnur í Iðnó, og eru þá ótal- in framhaldsleikrit og önnur styttri, sem Ríkisútvarpið hefur flutt og öll hafa afláð höfundin- um vinsælda. „Hjartaff í borffi“ er nútíma- saga úr Reykjavík. Sennilega mundi þó höfundurinn taka þvert fyrir, að hún ætti sér þar sérstakar fyrirmyndir í persón- um eða viðburðum, en bersýni- lega á hún sér allt að einu djúp- sir rætur í íslenzku eftirstríðs- samfélagi. Aðalsöguhetjan er fjár hættuspilari, sem hættir öllu fyr- ir vonina um skjótfenginn gróða, einnig heimili sínu og eigin- konu, — hjartanu, sem hann leggur í borð —, því að á hendi hans er spaðinn, litur gróðans og feigðarinnar. Þannig er líf hans orðið eins konar flótti frá veröld hins starfandi dags og þó að klukkan á barnum slái á sín- um fasta ákvörðunartíma og minni þannig sífelldlega á skyld- urnar, sem hann hefur vanrækt, gáir hann ekki að sér fyrr en um seinan, þegar hann hefur spilað lífshamingjunni úr hönd- um sér. Þá renna honum fyrir sjónir liðnir atburðir, þar sem draumar, minni og hugrenning- ar fléttast saman og vekja hon- um uggvænlegar spurnir. I kvðl sinni leitar hann örlagavaldsins í lífi sínu: Var það kannski gamli maðurinn, faðir hans, glæsimennið og loddarinn, hand hafi portúgalskrar orðu, sem í sögunni verður tákn sjálfsblekk- ingar og lífslygi, eða var svars að leita í fylgsnum hans eigin sálar? „Hjartaff í borffi“ er áhrifa- mikil saga og samin af ríkri hug kvæmni og kunnáttu, en stíllinn knappur, svo að einatt er gefið meira í skyn en sagt er berum orðum. Bókin er rösklega 180 siður í allstóru broti, prentuð og bundin í Prentsmiðju Hafnar- fjarðar, en Kristín Þorkelsdóttir teiknaði kápu og titilsíðu. Verð til félagsmanna er 295 krónur. ferðalagi sínu um Norðurlönd. Hann kvað Filippseyinga vera 35 milljónir og 85% þjóðarinnar væru læsir og skrifandi, en það kvað hann gott meðal Asíuþjóða. 700 þús. gestir í sundlaugunum s.1. ár HÁTT á sjöunda hundrað baff- gesta komu í sunðlaugamar í Reykjavík á sl. ári. Em þaff mun fleiri en víffa á Norffurlönd um enda sækja borgarbúar sund staði sína aff meðaltali 7-8 sinn um á ári en ekki nema 2svar á Norffurlöndunum. Þá hefur borgarráff nýlega sam þykkt aff lána Knattspyrunfélag inu Þrótti 500 þús. til þess aff ljúka framkvæmdum viff malar völl og búningsherbergi og mun Þróttur geta tekiff íþróttasvæffi sitt í Vogunum í notkun í sum- ar. í borgarstjórn urðu nokkrar umræður í gær um íþróttamál borgarinnar vegna tillögu Böðv- ars Péturssonar (K) umað fela íþróttaráði að skipuleggja bygg ingu sundlauga í hverju hverfi borgarinnar og miða við aðal- skipulag Reykjavíkur fram til 1983. Ennfremur að fela íþrótta- ráði að láta fara fram athugun á byggingu vélfrysts skauta- svells sem byggt væri yfir stál- grindarhús. Var þessum tillög- um vísað til íþróttaráðs með 8 atkv. gegn 3. Gísli Halldórsson ræddi við þetta tækifæri aðbúnað til í- þróttaiðkana og benti á að á ár unum 1966-69 hefði verið ákveð ið að verja 58 milljónum króna Landbúnaðar- afurðir hœkka — vegna hækkananna í marz FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnaff arins auglýsti í gærkvöldi hækk un á verði landbúnaffarafurffa, en úrskurffur um þessa hækkun var felldur af yfirnefnd, en hækkunin er vegna þeirrar kaup hækkunnar á tímakaupi verka- fólks í marz síðastliðnum og hækkun áburffarverffs í vor, aff því er Sveinn Tryggvason fram kvæmdastjóri Framleiðsluráffs- ins tjáffi Mbl. Samkvæmt þessum úrskurði mun verð á mjólk í lítrahyrn- um, sem verið hefur kr. 8.90 hækka í kr. 9.15. Rjómi í fjórð- ungshyrnum, sem kostaði kr. 23.85, kostar nú kr 24.25 og smjör hækkar úr kr. 111.60 í 115.75 hvert kg. Þá hækkar 45% ostur, sem kostað hefur kr. 142.40, í kr. 144.65. Súpukjöt, frampartar og síð- ur, sem verið hefur á 82.70 hvert kg., hækkar í kr. 84.75, hryggir sem áður kostuðu 97.65 kosba nú kr. 99.70 og kótelettur, sem kostað hafa kr. 108.90 kosta nú kr. 110.95. Að því er Sveinn tjáði blað- inu í gær hækka aðrar landbún- aðarafurðir að sama síkapi. Að meðaltali er hér um að ræða um 2.5% hækkun á grundvall- arverði til bænda. Er þó hækk- unin heldur meiri á kjötafurð- um, en aftur minni á mjólk. Utsvör og aöstöðu- gjöld á Húsavík til íþróttaframkvæmda, og væri það langhæsta upphæð sem var- ið hefði verið til íþróttamann- virkja í Reykjavík. Væri þarna ekki talið með framlag íþrótta- sjóðs, sem greiða ætti 40% af framkvæmdunum. Þá ræddi hann nokkuð bygg- ingu sundlauga. Hann sagði að auk þriggja sundstaða fyrir al- menning væri nú í notkun tvær skólasundlaugar í Breiðagerðis- og Austurbæjarskóla. Þá væri ákvaðið að hefja byggingu nýrr ar almenningssundlaugar í Breið holti á næsta ári og reisa skóla- sundlaug við Árbæjarskóla- Um Nauthólsvík sagði Gísli, að þar væri í ráði að gera 10 þús. fermetra laug, sem hituð verði upp með heitu vatni, en í Nauthólsvík verður um alla framtíð aðalsjóbaðstaður Reyk- víkinga. Varðandi seinni lið tillögu Böðvars um skautasvell sagði Gísli Halldórsson, að oft hefði verið um það rætt að reisa skautahöll. Hins vegar væru all ir aðilar á einu máli um, að frekar bæri að láta aðrar fram- kvæmdir ganga á undan. Til þess hins vegar að auka áhuga á skautaíþrótt og búa þannig í haginn fyrir byggingu skauta- hallar hefði skautasvellum ver- ið fjölgað i borginni. Sagði Gísli líka, að ekki væri annað skyn- samlegt en að biöillin yrði að fullri Framh. á bls. 31 Brautskráning kandidata ATHÖFN vegna afhendingar prófskírteina til kandídata fer fram í hátíðasal háskólans mánu- daginn 10. júní kl. 2 e.h. Háskólarektor Ármann Snæv- arr ávarpar kandídata, en forset- ar háskóladeilda afhenda próf- skírteini. (Frá Háskóla íslands) SKRÁ yfir álögff útsvör og aff- stöffugjöld í Húsavíkurkaupstaff var lögff fram 31. maá. Álögff útsvör á 559 einstakl- inga nema kr. 11,9 millj. og á 24 félög kr. 0,6 millj. Hæstu útsvör einstaklinga Fundur Gunnars Thor- oddsens í Eyjum f GÆRKVÖLDI fögnuffu Vest- mannaeyingar frú Völu og Gunn ari Thoroddsen á geysi f jölmenn- um fundi í samkomuhúsi staffar- ins. Magnús Magnússon, bæjar- stjóri, setti fundinn og stýrffi honum, en fundarritari var Sveinn Magnússon, lögreglu- þjónn. Fundarstjóri bauð gesti velkomna og þá fyrst og fremst heiðursgestina, frú Völu og Gunnar Thoroddsen. Þá fluttu ávörp Steingrímur Arnar, verkstjóri, séra Þorsteinn Lúter Jónsson, sóknarpnestur, frú Oddný BjörnsdóttÍT, og Páll Þorbjörnsson, skipstjóri. Þá fíiutti Gunnar Thoroddsen ávarp og kom víða við. Máli Gunnars var vel fagnað af fund- argostum. Fundarmenn beindu allmörg- um fyrinspurnum til frambjóð- andans og svaraði hann þeim. bera Gísli Auðunsson læknir, Ingimar Hjálmarsson læknir og Kristbjörn Árnason skipstjóri. Hæst útsvar félaga ber útgerð- arfélagið Barðinn. Hæst aðstöðu- gjald ber Kaupfélag Þingeyinga. Af einstakingum bera hæst út- svar og að&töðugjald samanlagt Sigurður Jónsson lyfsali og Aðal steinn Guðmundsson sérleyfis- hafi. Lagt var á eftir lögbundnum útsvarsskala án frávika. Útsvör fyrra árs, sem greidd voru að fullu fyrir árslok 1967 voru dregin frá tekjum áður en útsvör voru lögð á. Undanþegnar útsvari voru all- ar bætur frá Almannatrygging- um, svo sem elli- og örorkulíf- eyrir, ekkjubætur og örorku- styrkir. Ennfremur sjúkrabætur og sjúkradagpeningar og fjöl- skyldubætur, sem greiddar eru Framh. á bls. 31 Strax og fréttist af láti Kenne dys í gærmorg'un var fáni Bandaríkjanna dreginn í hálfa stöng á sendiráffsbyggingunni viff Laufásveg. Hiff sama var gert á sendiráðsbyggingum Bandáríkjanna um víffa veröld — heima fyrir ríkti þjóffar- sorg. Sálumessa verffur sungi4 í Kristskirku í Landakoti á morgun, laugardag kl. 17 vegna Kennedys-morffsins. — Einnig mun fara fram minn- ingarathöfn um Kennedy í Há- skólakapellunni á sunudag kl. 12 á hádegi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.