Morgunblaðið - 07.06.1968, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDGAUR 7. JÚNÍ 198«
Faðir Sihrans í heimabœ sínum:
„Ég ól son minn upp í guðsótta
og góðum siðum“
— Akærður morðingi Kennedys neitar enn að
leysa frá skjóðunni — Arabar hvassyrtir í garð
Gyðinga vegna morðsins
Taiyeb, ísrael, Amman,
Alsír, Tel Aviv, Los Ange-
les, Gautaborg, 6. júní.
AP-NTB.
0 SIRHAN B. Sirhan,
ákærður morðingi Roberts
Kennedys, þegir enn
þunnu hljóði og hefur
neitað að svara öllum
spurningum lögreglunnar.
Hann var leiddur fyrir
rétt á miðvikudagskvöld
og voru þá víðtækar ör-
yggisráðstafanir gerðar.
Leitað var gaumgæfilega
á blaðamönnum og öðrum
sem inngang fengu í bygg-
inguna. Engum utanað-
komandi var leyft að koma
inn í réttarsalinn.
0 í ýmsum Arabalönd-
um hefur verið brugðizt
við hart, síðan tilkynnt
var, að allt benti til að
Sirhan væri Jórdaníumað-
ur að uppruna. Stjórnir
flestra Arabalandanna
hafa harmað atburðinn, en
látið í það skína, að vart
hafi verið við öðru að bú-
ast vegna hliðhollrar
stefnu Bandaríkjanna við
ísrael. Þá er látið að því
liggja, að morðið kunni að
vera samsæri Gyðinga,
skipulagt til þess að koma
óorði á Araba og vekja
reiðiöldu gegn þeim. Fæst-
ir taka þær staðhæfingar
alvarlega.
0 Fréttamenn þyrptust
í dag til þorpsins Taiyeb,
skammt fyrir utan Jerú-
salem, þar sem faðir hins
ákærða, Bishra Sirhan býr.
í fyrstu neitaði faðirinn
að ræða við fréttamenn.
Hann lokaði sig inni í húsi
sínu og hrópaði út um
glugga: „Ég er mjög sorg-
bitinn. Ég ól syni mína
upp í guðsótta og góðum
siðum.“
Áður hafffi honum veriff
sýnd mynd af syni síniun, þeg
ar hann er leiddur í lögreglu-
fylgd út lir Ambassador-gisti-
húsinu í I.os Angeles. Hann
leit á myndina og komst
greinilega í mikla geffshrær-
ingu og stundi upp: „Þetta er
þaff fyrsta sem ég hef séff til
hans síffan ég fór frá Banda-
ríkjunum. Fg skil ekki, hvaff
hefur komiff honum til aff
gera þetta“.
Biishra Sirhan er 52 ára
gamall og býr einn í tveggja
hæða enbýl'ishúsi. Hann á
fimim syni, Sirhan, Sherif,
Ade.1, Munir og Adiullah og
fsedduist aMdr í jórdansika
hluta Jerúsalem-borgar.
Hann fiutti til Bandaríkj-
anna árið 1950 ag kona hans
og fjórir synir komu þangað
sjö ár.um seinna. Árið 1961
Framh. á bls. 21
- KENNEDY
Framhald af bls. 1
gagnrýni Lyneh. Sagði hann að
morðið á Kennedy væri mjög
hörmulegt, en ekki bætti það úr
skák ef þetta frumhlaup borgar-
stjórans yrði til þess að veikja
málssóknina á hendur mannin-
um, sem drýgði þennan voðalega
glæp. Taldi saksóknarinn að eft-
ir birtingu upplýsinga úr dag-
bókinni væri vafasamt að hún
yrði tekin gild sem dómsskjal.
í auglýsingu lögreglunnar í
Los Angeles í dag eftir upplýs-
ingum um konuna, sem á að hafa
hlaupið frá Ambassador hótel-
inu eftir mor'ðið, segir að kon-
an hafi verið milli 23 og 27 ára,
um 1,67 metrar á hæð, klædd
hvítum kjól með svörtum díl-
um. Það var kona ættuð frá
Mexíkó, Sandra Serando, sem
skýrði lögreglunni frá konunni,
og fylgir það sögunni að skömmu
eftir að konan kom út úr hótel-
inu, hafi hún slegizt í för með
karlmanni þar úti fyrir, og þau
haldið á brott.
Slóff byssunnar rakin
Maðurinn, sem handtekinn var
í gær fyrir að skjóta Robert
Kennedy og særa fimm menn
aðra, hefur enn ekkert viljað
um morðið ræða við lögregluna.
Eins og fram kom í fréttum í
gær er hér um að ræða ungan
Araba, Sirhan Bishara Sirhan
að nafni, og komst lögreglan að
nafni hans með því að rekja
slóð morðvopnsins, skammbyssu
með hlaupvídd 22, átta skota.
Albert nokkur Hurt frá Alham
bra í Kaliforníu keypti byssuna
árið 1965 eftir óeirðirnar í Watts-
hverfinu í Los Angeles. Gaf hann
tengdadóttur sinni, frú R. West
lake, sem býr skammt frá San
Francisco, byssuna. Við yfir-
heyrslu í gær kvaðst frúin hafa
gefið byssuna fjölskylduvini, 18
ára pilti, George Erhard
að nafni, sem býr í Pasadena.
George þessi sagði lögreglunni
að hann hefði selt byssuna
„hrokkinhærðum náunga, sem
heitir Joe“, og vann í verzlun í
Pasadena.
Að fengnum þessum upplýsing
um náði lögreglan tali af Joe
Sirhan og gat hann sagt yfir-
völdunum að handtekni maður-
inn væri Sirhan bróðir sinn.
Eftir að lögreglan fékk að vita
nafnið fann hún einnig fingra-
för Sirhans í spjaldskrá.
Shirhan var handtekin strax
eftir morðtilraunina í gær, og
úrskurðaður í fangelsi fyrir
morðtilraun. Eftir lát Kennedys
var áisökuninni breytt í morð og
fimm morðtilraunir. Hefjast rétt
arhöld í máli hans í fyrramálið,
föstudag.
Að undanförnu hefur mikið
verið rætt um það í Bandaríkj-
unum að banna beri eftirlits-
lausa sölu skotvopna þar í landi,
og hafa frumvörp þar að lút-
andi verið til umræðu í þinginu.
Eftir morðið í gær fékk mál
þetta byr undir báða vængi, en
það hefur ekki fengizt tekið fyr
ir í Fulltrúadeild þingsins und-
anfarinn mánuð, þótt Öldungar-
deildin hefði samþykkt laga-
frumvarp um bann við sölu á
skammbyssum snemma í maí.
Frumvarpið var tekið til af-
greiðslu í Fulltrúadeildinni í dag,
og stóðu umræðurnar aðeins í
eina klukkustund. Eftir það var
það samþykkt með handaupp-
réttingu, og greiddu 368 frum-
varpinu atkvæði, en 17 voru á
móti. Verður frumvarpið nú
sent Johnson forseta til staðfest-
ingar.
Þrjár ekkjur
Klukkan 1,28 síðdegis í dag
(kl. 20,28 ísl. tími) lagði einka-
þota Bandaríkjaforseta af stað
frá Los Angeles til New York
með lík Roberts Kennedys. Var
kistan flutt frá sjúkrahúsi misk-
unnsama Samverjans í Los Ang
eles til flugvallarins í líkvagni,
og sátu þau frammi í vagninum
Ethel, ekkja hins látna, og Ed-
ward Kennedy, bróðir hans. Þeg
ar kistan hafði verið sett um
borð í flugvélina, gengu ættingj
ar og vinir um borð, vinir Ro-
berts og stuðningsmenn úr kosn
ingabaráttunni.
Þegar líkvagninn lagði af stað
frá sjúkrahúsinu, var mikill
mannfjöldi saman kominn, og
sömu sögu var að segja á flug-
vellinum. Auk þess hafði fjöldi
fólks safnazt saman meðfram veg
inum til flugvallarins, og vörp-
uðu margir blómum á braut lík
vagnsins. Meðal þeirra, sem
fylgja Kennedy í flugvélinni,
voru auk Ethel, ekkjur tveggja
annarra myrtra leiðtoga, þær
Jacqueline Kennedy og frú Lor-
etta King, ekkja Martins Lut-
hers King. Einnig voru þar þrjú
elztu börn Roberts, og að sjálf-
sögðu Edward bróðir hans.
Hefur lögreglan í New York
gripið til víðtækra varúðarráð-
stafana vegna komu kistu Kenn-
edys til borgarinnar í kvöld, og
herma fregnir að hér sé um að
ræða víðtækustu varúðarráðstaf-
anir, sem þar hafa verið gerðar.
FYRSTA FRÉTTIN
Það var blaðafuliltrúi Kenne-
dys, Franlk Mankiewicz, siem titt-
kynrati lát hans í nótt. Kom hann
fölttr og skelfdur fram til frétta-
manna, sem biðu í sjúkrahúisinu,
og sagði: „Robert Fraracis Kenne-
dy, öldungadeiMarþingmaður,
andaðist klukkan 1.44 í nótt“
(ki. 8.44 ísl. tími).
„Skotið, sem hætfði Kenraedy í
hötfuðið, bak við hægra eyrað,
varð honum að bana“, sagði
Mankiewicz. Gekk það inn í heil
ann. Skurðlæknar urarau að því í
3 kliuitokiustiundÍT og 40 mínútur
að hreinsa kúlu. og beinabrot úr
sárirau, og bjarga lífi þingmanns-
iras, en Kennedy hrakaði sitfelUt.
Pierre Salinger, fyrrum blaða-
fullltrúi Johras F. Kenraedys for-
seta, hefur að undanförnu unnið
að toosnimgabaráttu Roberts
Kennedys. Haran ræddi einnig
við fréttarraenn etftir að Mt
„Bobbys" hatfði verið tiilkynnt.
Skýrði Salinger frá því að líkið
yrði flu'tt í tovöld tiil New York,
og þar yrði það Mtið hvíila á við-
hafnarböruim i St. Patrics dóm-
kirkjunni allan föstudaginn. Á
laugardagsmorgiura er sáLumessa
í New York, en að henni lokinni
verður likið fliutt með járntoraut-
arlest tM Washington, þar sem
það verður gratfið í Arlington-
kirkjugarðinuim, í nárad við grötf
Kennedys heitiras forseta.
Eiginikona Roberts Kenraedys,
Ethel, var hjá manni sáraum er
hann lézt, og þar var einnig Ed-
ward Kenraedy, bróðiir hiras Mtraa,
frú Jacqueline Kennedy, ekkja
Kennedys heitiras forseta og
kaþólskur presbur. Þrjú barna
þeir.ra Robertis og Ethel voru í
raæsta herbergi við flöður siran.
Dauða Kennedys bar að rúm-
uim sólarhring etftir að hann varð
fyrir skotum tilræðisimannsins,
Sirhan Biishara Sirhan, og komist
haran aldrei tiil meðvitundar.
Þótt Kennedy hafi vart verið
hugað líf, kom þó fréttin um Mt
hans möngium á óvart. Satfnaðist
mikiOJl manratfjöidi fyrir framan
sjúkrahúsið, sem kennt er við
hinn miskumrasama Samverja, og
mátti þar sjá raarga hágrátandi,
jafnt karla sem koraur.
ÞJÓÐARSORG
Þegar fréttin um lát Kenraedys
barst til Waishiragtom, fyrirskip-
aði Johrason forseti að fáni
Bandaríkjanna skyldi dreginn í
háltfa stö.rag á öfflum opiraberum
byggingium, á vígvöllum í Víet-
nam, á öllum bandarísfcum skip-
um ag hjá stofnuraum og séradi-
ráðum Baradaríkjanna eriieradis.
Verður þar flaggað í háltfa stöng
þar tffl úttför Kennedys hefur far-
ið fram á laugardag. Enntfremiur
boðaði forsetiran þjóðarsorg í
Baradaríkjunum á sunnudag, dag-
inn eftir úttförina.
„Hörmulegir atburðir hatfa
gerzt, og við höfum misst mik-
ið“, sagði Johrasom forseti. „Ro-
bert F. Kennedy ölduragadei/ldar-
þimgmaður er Mtinn. Rotoert
Kennedy var tátonrænn fyrir
Bandarikin — táknræran fyrir
góðvilja þjóðarinnar, friðaiiþrá
hennar og ósk henraar um bætt
lífskjör ölLum til handa. Meðan
hann var á lífi, hlaut haran ríf-
iegan skerf pensónulegrar sorg-
ar. Samt lét haran aldrei atf trú
sinni á Baradaríkin. Hamn missti
aldnei traust sitt á andlegum
styrkleika þjóðarinmar. Hann
trúði á afkastagetu ungu kyn-
sXóðarimraar, og á rétt þeirrar
eldri til vdrðulegis lítfs. Kona mín
og ég senduim frú Kenmedy og
fjölskyldu hiras Mtna innilegustu
samúðarkveðjur “.
Hubert Huirraphrey varatforseti
sendi Kennedy-fjöllskyldummi
einnig samúðarkveðjur: „Við
höfum misst mikiilmienni“( sagði
vararforsetinm, ag bað þess að
unnt yrði að útrýma hatri þvi,
sem virtist hafa hieltekið ailfllt of
mar.ga í Bandariikjumum.
HLÉ Á KOSNINGABARÁTT-
UNNl
Morðið á Robert Kennedy hef-
ur að sjáltfsögðu mikil áhritf á
væntanlegar forsetalkosning-
ar í Bandaríkjunum í hauist, því
hann var talinn skæðaisti keppi-
nautUT Hraberts Humphreys vara
foraeta uim útnefningu á flokks-
þingi demókrata í ágúst sem for-
setaeíni flokksiras. Strax í gær,
meðan Kennedy M fyrir dauð-
anum, lýstu allir framtojóðendur
til forsetakjöre þvi yfrr, að þeir
hefðu ákveðið að hætta allri
toosningabaráttu uim óákveðinn
tíma og eftir að fréttin um Mt
Kenraedys barst út í nótt, vMdi
engimn þeirra segja neitt um
það hvenær þeir ætluðu að hetfja
baráttuna á ný. Aðspurður um
áhrif láts Kenmedys á kosninga-
baráttuna, svaraði einn af tals-
mönrauim Huimphreyis aðeiras:
„Við teljum ekki aðeiras að það
sé óviðeigandi að velta þessu fyr
ir sér raú. Við álítuim það
hneytoslanlegt“. Huimptorey hatfði
ráðgert fumdahöM víða uon
Banidarikin næstu daga, en hefur
frestað þeim ölluim.
Frambjóðendumir þrír, sem
mest hefur borið á í forkosning-
unum undarafarna mánuði, repú-
blikanarnir P.ichard Nixon, fyrr-
um varaforseti, og Nelson Rocke
feller, ríkisstjóri, og demókrat-
iran McCarthy, öldungadeildar-
þingmaður, lýstu allir yfir
harmi sínum í dag vegna láts
Kennedys, og skoruðu á þjóðina
að stuðla að samlyndi og berj-
ast gegn ofbeldi. Hvetja þeir
þjóðina til að stamda einhuga
saman, bera sorg sína í hljóði,
og tryggja það að málstaður
Kennedys fari ekki í gröfina
með honum.
„í dag hugsum við öll til fjöl-
skyldunnar, fjölskyldu, sem er
þyngri harmi sleginn en nokkur
annar á meðal okkar, sem verð-
ur að bera þessa sorgarbyrði
vegna baráttu fyrir friði, og ósk-
ar um að fá að þjóraa meðtoræðr-
um sínum“, sagði Rockefeller,
ríkisstjóri. „Kennedy-fjölskyld-
an getur veitt þjóð okkar og um-
heiminum þann innblástur, sem
þarf til að brúa bilið, sem getur
brotið niður múra hatursins og
breytt hatri í kærleika, í það afl
sem heimurinn þarfnast mest í
dag“.
FJÖLSKYLDAN
Móðir Roberts Kennedys, firú
Rose Kennedy, frétti ekki um lát
sonar síns fyrr en í morgun. —
Býr frú Kennedy í Hyannis
Port í Massachusetts ásamt
manni sínum, Joseph P. Kenne-
dy, fyrrum sendiherra, sem verið
hefur rúmfastur undanfarin 6J
ár síðan hann fékk hjartaslag.
Með hjónunum býr einnig
frænka frúarinnar, Ann Gargara,
og var frænkunni tilkynnt um
látið í nótt. Áleit hún réttast að
bíða með fréttina þar til hjónin
vöknuðu. Það var frú Kennedy
að sjálfsögðu mikið áfall að
frétta að þriðji af fjórum sonum
hennar hefði látizt á voveiflegan
hátt.
Skömmu eftir að henni voru
sögð þessi hörmulegu tíðindi,
hlýddi frú Rose Kennedy messu
í St. Francis Xavier-kirkjunni í
Hyannis Port, en að messu lok-
inni fór hún flugleiðis til New
York. Þar mun hún ætla að taka
á móti líki sonar síns, sem lagði
af stað frá Los Angeles flug-
leiðis í kvöld.
Mágur Roberts Kennedys,
Sargent Shriver, sendiherra
Bandaríkj anna í París, og kona
hans, Eunice, fréttu látið til Par-
ísar í morgun. Hjá þeim var
stödd frú Joan Kennedy, eigin-
kona Edwards, og héldu þau öll
þrjú flugleiðis til New York í
dag. Áður höfðu þau gert ráð-
stafanir til að fljúga til Los
Angeles til að vera við sjúkra-
beð Roberts.
Eini eftirlifandi sonur Kenne-
dy-hjónanna, Edward Kennedy,
öldungadeildarþingmaður frá
Massachusetts, var sem fyrr seg-
ir við dánarbeð bróður síns í
nótt. Haran er raú 36 ára að aldri,
og hefur sjálfur komizt í kast
við dauðanra. Fyrir fjórum árum
lenti hann í flugslysi og hrygg-
brotnaði. Var um tíma óttazt að
hann yrði bæklaður á eftir, en
læknum tókst að koma í veg fyr-
ir það.
Bandarikjamenn minnast nú
margir orða Johns Kennedys
heitins forseta, rétt áður en
hann var myrtur í Dallas 22. nóv
emtoer 1963. Þá sagði forswtinn
í samtali, er snerist um slysfarir
og óhöpp í fjölskyldu hans. að ef
hann félli frá, tæki Robert við,
og ef Robert félli frá tæki Ed-
ward við sem höfuð ættarinnar.
Sú tillaga hefur víða skotið
upp kollinum eftir lát Roberts
Kennedys að Edvard, eða ..Ted“.
verði varaforsetaefni demókrata-
flokksins við kosningarnar í
haust. Hann hefur nú tíu ára
stjórnmálaireynslu að baki, og
hefiur átt sæti í ölduiragadeild
Bandaríkjaþings frá því 1962.