Morgunblaðið - 07.06.1968, Side 17

Morgunblaðið - 07.06.1968, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDGAUR 7. JÚNÍ 1968 17 í>EGAR menn eru komnir á ní- ræðisaldurinn, eins og ég, þá er ekki við miklu af þeim að bú- ast, segir Jakob Thorarensen. bví er þó ekki að neita að ég rissa enn ýmislegt niður, en það er ómögulegt að segja nokkuð um það, hvort árangurinn sér einhvern tíma dagsins ]jós. — Er það kannske skáldsaga, sem er í bígerð? — Ætli ég haldi mig ekki við smásöguformið áfram, enda hef ég ekki látið annað frá mér fara, nema auðvitað kvæða- gerðina hér áður fyrr. — Hefur þér aldrei dottið í SKÁLDIN minna á sig með birtingu nýrra verka. Þess í milli er oftast hljótt um þeirra skrif, sem eru þó engu að síður forvitniefni margra. Því fór Morgun- blaðið á stúfana og ræddi við nokkur skáld um skrif þeirra og væntanlegar bækur. Og við spyrjum: Hvað hafast skáldin að? Jakob Thorarensen hug að skrifa langa sögu? — Jú, ekki neita ég því. Ég hef meira að segja skrifað eina langa skáldsögu, en gaf hana eldinum. — Hvað með leikrit? — Ég skrifaði einu sinni leik- rit líka. Það var í kring um 1960, en það hefur aldrei komið út. — Um hvað fjallar það leik- rit? — Það er svona gaman O'g al- vara um sitt af hverju úr líf- inu í Reykjavík. Annars tekur því varla að vera að minnast á þetta. — Hvað eru nú bækurnar þínar orðnar rhargar? — Þær eru 18 eða 20. Fyrsta bókin kom út 1914, rétt áður en heimsstyrjöldin fyrri hófst. Þegar ég varð svo áttræður, fyr ir tæpum tveimur árum, gaf ég út eina kvæðabók og skömmu síðar smásagnasafn, sem er enn min síðasta bók. — En við megum kannske eiga von á einni til? — Maður veit aldrei. En ég rissa svana ýmislegt niður ennþá. Sennilega ný ljóðabók í haust. JÚ, ég er að vinna að hand- riti ljóðabókar, sem mjög senni að fólki þyki það. En þessi nýju ljóð eru samt í ákveðnum tengslum við mín fyrri kvæði, þó ég eigi von á því, að þau þyki nokkurt nýmæli, þegar þar að kemur. — Hvað eru ljóðabækurnar þínar orðnar margar? — Þetta verður sú fjórða. — Nú hefur þú sent frá þér annað en ljóðabækur. — Já, eitt smásagnasafn kom út 1961. Þá skrifaði ég bók um Steingrím Thorsteinsson og verk hans og í fyrra kom út ferðalýsingar mínar frá Fær- eyjum. — Og þýðingar? — Jú, ég hef líka þýtt. Síð- asta bókin, sem ég þýddi, var Klakahöllin eftir Tarje Yesaas. En ég vinn ekki að neinni þýð- ingu núna. — Hvað með smásöguformið? — Ja, það hefur ekkert komið út síðan 1961. — En þú ert ekki orðinn því afhuga, eða hvað? — Það get ég tæpast sagt.. Ég hef skrifað margt í lausu máli, svona handa skúfffunni minni. „Alltaf ný skáldsaga á ferðinni“ ÞAÐ er alltaf ný skáldsaga á ferðinni hjá mér, segir Óskar Aðalsteinn, og nú er ég með Hannes Pétursson lega kemur út með haustinu, segir Hannes Pétursson. — Verður þar um að ræða einhverja breytingu frá fyrri ljóðabókum þínum? — Já, að nokkru býst ég við, í þeim reyni ég að lýsa öllu því, sem ég hef séð, heyrt og reynt í mínu starfi. Ég er bú- inn að ákveða bókarheitið. „Brennið þið vitar“, skal bókin heita og undirtitillinn verður: Úr dagbók vitavarðar. — Ja hérna. — Ég hef gott næði í Galtar- vita, segir Óskar hógvær. Þar er kyrrðin. — Hvar verður ritgerðasafn- ið í röðinni? — Það verður mín fjórtánda bók. — Og svo sögurnar tvær. — Já. Þær koma út, þegar þeirra tími er kominn. — Hefur þér aldrei dottið í hug að setja saman leikrit, Óskar? — Jú, það hefur flögrað í hug mér og reyndar held ég, að ég hafi ágætis efnivið í eitt núna. Það getur svo sem vel verið, að ég geri tiilraun, en við skulum ekki spá neinu þar um. Það er bezt að halda sig við það, sem maður hefur í hönd- unum. Fjölbreyttari ljóð frá Nínu Björk. ÉG hef upp á síðkastið reynt að bæta handritið að ljóðabók minni, sem kemur út í septem- ber, segir Nína Björk Árnadótt- ir. — Það verður þín önnur bók? — Já, — það hefur ein ljóða- bók komið út eftir mig áður. — Verða þessi nýju ljóð þín eitthvað frábrugðin þeim eldri? — Mér finnst þessi ljóðabók ekki vera lík hinni. Þessi skipt- ist í fjóra kafla og ljóðin eru fjölbreyttari. Mér finnst einnig, að ég hafi náð meiri þroska, hvort sem það er rétt hjá mér eða ekki. — Þú hefur ekkert átt við Óskar Aðalsteinn tvær skáldsögur í smíðum — vinn svona nokkurn veginn jafnt að þeim báðum. — Um hvað fjalla þessar sög- ur? — Þær gerast báðar fyrir vestan, eins og reyndar allar mínar sögur. Önnur er um ung- an mann. Það er eiginlega sál- fræðileg skáldsaga — já, ég mundi kalla hana sálfræðilega skáildsögu. Hin er aftur á móti þorps- saga og gerist á mjög aflasælli vertíð. I henni reyni ég að kalla fram þorpið á góðri vertíð, sjálft lífið í þorpinu í öllum sín- um myndum. — Það má segja, að þú hafir ýms járn í eldinum þessa dag- ana. — Ojæja. Það er ekki öll sagan sögð enn. — Nú? — Nei, því svo er þriðja bók- in. Hún kemur reyndar út í haust. Þetta er ritgerðasafn, sem fjallar um líf mitt sem vita vörður. Sumar ritgerðirnar hafa birzt áður, aðrar ekki, en Nína Björk Árnadóttir að vinna mikið að henni samt. — Mættum við fá meira að heyra? — Við skulum segja, að þetta sé samtímasaga með styrjöld í bakgrunni. Hún gerist að mikl- um hluta í Kaupmannahöfn, en persónur flestar eru íslenzkar. — Styðst þessi skáldsaga við sannsögulega atburði? — Ég mundi nú kalla söguna skáldverk — en er það ekki svo, að rithöfundurinn styðst alltaf við eitthvað, sjálfrátt eða ósjálfrátt? — Hvenær megum við eiga von á þessari sögu? — Ég vonast til að ljúka við hana á þessu ári. — Er ekki eitthvað fleira á döfinni? — Ja, fyrst þið eruð við þetta heygarðshornið get ég svo sem stungið því að ykkur, að ýmsar fyrri bóka minna eru nú í þýð- ingum erlendis. — Hvar? — Við skulum segja á Norð- skáldsöguformið, eða hvað? — Nei, ég held ég gæti aldrei skrifað skáldsögu. Hins vegar hef ég sett saman nokkra leik- þætti. — Einþáttunga? — Já, einþáttunga. En þeir hafa aldrei verið leiknir. „Samtímasaga með styrjöld í bakgrunni“. ÞESSARI spurningu er mjög erfitt að svara og fæst orð hafa minnsta ábyrgð, segir Jón Björnsson. Ég hef að vísu verið að und- irbúa og vinna að nýrri skáld- sögu. Hún liggur nú orðið að miklu leyti fyrir, en ég á eftir Jón Björnsson urlöndum og jafnvel í Þýzka- landi. — Hvað með leikritið? — Ekki neita ég því, að sam- tímis þessu langar mig mikið til að eiga við leikritagerð, en ég veit nú ekki, hvort tekur því að minnast á það. — Þú hefur látið eitt leikrit frá þér fara, er ekki svo? — Jú, Valtýr á grænni treyju — það gerði ég eftir sam nefndri skáldsögu minni, sem kom út 1951. Leikritið var svo fyrst sýnt í Þjóðleikhúsinu 1953. — Hvað hefur þú skrifað margar bækur til þessa, Jón? — Þær munu vera orðnar tuttugu talsins. Síðasta bók mín var Jómfrú Þórdís, sem var nóvemberbók Almenna bóka- félagsins 1964. Bók um EUiðaáranar. ÉG er nú að setja saman bók um Elliðaárnar, segir Guð- mundur Daníelsson. Þessa bók set ég saman að beiðni útgef- andans, Guðjóns Ó. Guðjóns- sonar, og það er reiknað með, að hún komi út í haust. — Hvaða form verður á þess- ari bók? — Ja, þarna á að vera allt um árnar, virkjun þeirra, lax- inn, jarðvegsmyndanir, sem sagt allt um árnar. Það er mjög mikið til um Elliðaánnar á prenti og frá ýmsum tímum. Þessum brotum raða ég upp, að fengnu leyfi höfundanna auðvitað, bæti við sjálfur og felli þetta svo allt saman í eina heild. í sumar ætla ég að „stúd- era“ laxinn í ánum svo að bókin nái allt fram að útkomu tímanum. — Eitthvað fleira mun vera á döfinni? — Já, tvær eldri bóka minna, Sandur og Landið handan Guðmundur Daníelsson landsins, koma út í haust í ann arri útgáfu. Sonur minn Sin- fjötli verður gefinn út á dönsku með haustinu. Svo kemur út í haust önnur ný bók frá minni hendi, sem ég nefni: Staðir og stefnumót. Hún skiptist í þrjá megin- þætti. Fyrst eru ferðaþættir frá ýmsum löndum, þá koma nokkr ir þættir, sem eru svona mitt á milli skáldskapar og veruleika, og loks nokkur viðtöl. — En ný skáldsaga? — Ja, ég fór nú út í bókina um Elliðaárnar, vegna þess að ég var ekki kominn út í neitt nýtt viðfangsefni. En eitthvað hlýtur að taka við, þegar hún er búin, þó ekki sé ráðlegt að vera spá inn í framtíðina. — Það kennir ýmsra grasa í því, sem þú hefur látið frá þér fara til þessa. — Jæja. Þetta eru nú orðnar einhvers staðar á milli 20 og 30 bækur og meiriparturinn skáld- sögur. En þar eru líka tvær ljóðabækur, þrjú smásagnasöfn og þrjár viðtalsbækur. —• Og eitt leikrit. — Já, ég hef látið eitt leikrit koma út, en það hefur aldrei verið sett á svið. — Hvað með framháld á leik- ritun? — Það er aldrei að vita. Ég hef að minnsta kosti mjög gam- an af leiklistinni. Þriðja skáldsaga Agnars Þórðarsonar. ÞAÐ er að koma út skáldsaga eftir mig núna, segir Agnar Þórðarson. Hún verður maí-bók Almenna bókafélagsins. Agnar Þórðarson — Er þetta mikil saga? — Hún er upp á tæpar 200 blaðsíður. — Og fjallar um hvað? — Ég vil helzt ekkert um hana tala núna. Það kemur Framh. á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.