Morgunblaðið - 07.06.1968, Síða 23

Morgunblaðið - 07.06.1968, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDGAUR 7. JÚNÍ 1968 23 áður öryggi qg áreiðanleiki í öll- um hans verkum. Gísli heitinn var alla tíð starfsamur maður og störfin honum hugljúf, en svo var hugs un hans til hinztu stundar bund in og tengd sjónum, að eftir að hann hætti sjómennsku mátti hann til að fara þó ekki væri nema einn róður á sumri út á grunnmið, oftast af Vatnsleysu strönd, þar sem honum þótti gaman að renna færi á gömlum miðum. Gísli kvæntist eftirlifandi konu sinni, Sigríði Pétursdóttur, ættaðri frá Úlfljótsvatni í Grafningi hinn 23. júlí 1931 Áttu þau heimili að Ásvalla- götu 8 þar til fyrir þremur ár- um að þau fluttu til Hafnar- fjarðar. Sigríður er mikilhæf kona. Var hjónaband þeirra mjög gott og heimilið fagurt. Þau eignuðust eina dóttur, Sig- rúnu Ingibjörgu, sem gift er Gunnlaugi Þorfinnssyni hús- gagnasmíðameistara í Hafnar- firði. Þau Sigrún og Gunnlaug- ur eiga þrjú börn, er voru yndi afa síns og honum til mikillar gleði. Fluttu þau Sigríður og Gísli til Hafnarfjarðar til að geta verið þeim nær. Á heimili Sigríðar og Gísla var alla tíð móðir hennar Guðrún Sveins- dóttir, og naut ástríkis og um- önnunar þeirra. Hún er nú 95 ára gömul og hafði fótavist þar til á s.l. vetri að hún hlaut byltu. Hún liggur nú á Hafnar- fjarðarspítala, þar sem Gísli lá einnig síðustu vikurnar. Ástvinum Gísla vottum við innilega samúð og biðjum Guð að blessa þeim minningarnar um ástríkan eiginmann, föður og afa. Við kveðjum Gísla með þakk- læti í huga og biðjum Guð að launa honum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Erlendur Magnússon. Sigríður Blandon Halling — Minning Þann 8. maí s.l. andaðist í Englandi Sigríður Bl. Halling hj úkrunarkona. Sigríður Árnadóttir Blandon fæddist að Neðri-Lækjardal í Engihlíðarhreppi, A-Húnavatns- sýslu þann 5. maí árið 1917. Hún var elst fimm dætra þeirra hjóna Þorbjargar Jóneyj- ar Grímsdóttur frá Kirkjubóli, Tungusveit í Strandasýslu og Árna Ásgríms Erlendssonar síð- ar Blandon frá Fremstagili í Langadal A-Húnavatnssýslu. Sigríður, ólst upp í glöðum systrahópi, undir handleiðslu ástríkra foreldra. Vafalaust hefur heimilisbrag- ur á æskuheimili hennar mótað skapgerð hennar og lífsviðhorf. í erfð og uppeldi hafði Sigríð- ur hlotið gott veganesti. Hún var góðum gáfum gædd, dreng- lunduð, kærleiksrík og fórnfús. Hún var skemmtilegur hagyrð ingur, þótt ekki hefði hún það í hávegum, slík var hógværð hennar. Sigríður valdi sér hjúkrun að lífsstarfi og lauk fullnaðarprófi frá Hjúkrunarkvennaskóla Is- lands vorið 1945. Að loknu námi starfaði hún við sjúkrahúsið á ísafirði og síð- ar við Kleppsspítalann. Þaðan fór hún til Englands til fram- haldsnáms í hjúkrun geðsjúkra. í Englandi kynntist hún eftir- lifandi manni sínum Charles William Halling hjúkrunar- manni. Ættrækni Sigríðar og ást á ís- landi knúði hana heim aftur og hér i Reykjavík stofnuðu þau heimili sitt og hér ól hún alla syni sína, efnis og greindar drengi. Þá Charles Örn 1953 Árna Þór 1955 og Sigurð Emil 1956. Árið 1957 flutti fjölskyldan búferlum til Englands, en þar gekk Sigríður ætíð sem gestur á grund. Ættjarðarást hennar og þrá til íslands var sterk og einlæg og samband hennar við foreldra sína og systur var svo náið og kærleiksríkt að til sannrar fyr- irmyndar var. Tvisvar kom fjölskyldan hing að í heimsókn og enn var hugs- að til íslandsferðar á þessu sumri. Ekki vildi Sigríður gerast enskur ríkisborgari og snemma hafði hún orð á því við eigin- mann sinn, að hún óskaði eftir að hennar hinnsti hvílustað- ur yrði í íslenzkri mold. Ferðin heim varð með öðrum hætti en fyrirhugað var og verður útför Sigríðar gerð í dag frá Fossvogskapellu. Skarð er nú höggvið í þann fámenna hóp hjúkrunarkvenna sem útskrifuðuist vorið 1945. Á skilnaðarstundu fljúga skyndi- myndir minninga liðins tíma, fyr ir hugskotssjónum okkar skóla systra Sigríðar. Tími skólaáranna, tími starfs og gleði, tími átaka og reynslu. Við hveðjum Sigríði með sökn uði og eftirsjá og þökkum sam- fylgdina. Þungur harmur er nú kveðinn að eftirlifandi eiginmanni henn- ar og sonunum ungu, sem misst hafa umönnun ástríkrar móður, systrum hennar og ekki síst að öldruðum foreldrum. Við vottum þeim öllum okkar innilegustu samúð og biðjum þeim huggunar og styrks. Guð blessi minningu Sigríðar Bl. Halling. Skólasystur. Fjarst í eilífðar útsæ vakir eylendan þín: Nóttlaus voraldar veröld, þar sem víðsýnið skin. Svo kvað Vestur-íslendingur- inn Stephan G. Stephansson, skáldið, sem raunsæi og skyn- samlegt mat var jafnan tiltæk- ara en rómantískar hugleiðing- ar. En þegar hugurinn hvairflar vestan frá Klettafjöllum heim til ættlandsins, bregður á það töfrabirtu. Þar ríkir björt vor- nóttin í allri sinni dýrð, seið- mögnuð, ómótstæðileg. Hin ramma taug, sem til heimahag- anna liggur, er sterk og fjöfcrar hennar tengja æ fastar. Þegar hugurinn hvarflar til mágkonu minnar, Sigríðar B. Halling, og samverustundanna með henni, koma mér áður- greindar ljóðlínur í hug. Hún dvaldi síðasta áratug æfinnar á erlendri grund. Og enda þótt hún nyti þar samvista við eig- inmann sinn og þrjá elskulega syni, sem uxu og döfnuðu eins og bezt varð á kosið, þá var hug- ur hennar alltaf öðrum þræði heima á ættlandinu. Því olli ekki fyrst og fremst mjög sterk og einlæg ást hennar á for- eldrum og skylduliði. Hún bar í brjósti þann metnað og þá ást til fósturjarðarinnar, aðhún gait ekki gerst þegn annars þjóð félags nema sem gestur. Hún bjó yfir andlegu atgervi, sem gerði hana í senn atkvæða- mikla en þó óvenju aðlaðandi og ljúfmannlega. Af eigin ramm- leik hóf hún skólagöngu oglauk hjúkrunarnámi og síðar sérnámi í geðhjúkrun. Að því loknu sinnti hún hjúkrunar störfum, bæði hér heima og erlendis. í þeim störfum naut hún trausts og vinsælda. Ég átti því láni að fagna að koma nokkrum sinnum á heimili þeirra Charles í Englandi. Þar ríkti hinn sanni heimilisfriður og gesti var fagnað svo að ekki gleymist. Á því heimili var hin umburðarlynda og ástríka hús- móðir burðarásinn. Og foreldr- um sínum átti Sigríður tvíveg- is að fagna á heimili sínu er- lendis. Það var henni óblandin gleði að þau nytu yndisstunda hjá henni. Allt frá fyrstu stundu var hún þeirra gleðigjafi, þar bar aldrei hinn minnsta skugga Aðeins nokkrum dögum áð ur en hún andaðist, átti hún sím tal við móður sína, til að upp- örva hana og hughreysta við heimkomu af sjúkrahúsi. Þann- ig er myndin hennar, björt og fögur í vitund þeirra sem þekktu hana bezt. Eftirsjá eig- inmanns og sona, foreldra henn- ar og okkar allra er mikil og sár. Það er erfitt að trúa því að hljómþýða röddin sé brostin, glampi augnanna slökktur, um- úyggjan ekki til styrktar. Þó mundi öllum þakklæti efst í hug, þakklæti fyrir þessa hugljúfu konu rétt eins og við þökkum sólargeislana, sem öðru hverju brjótast fram og verma og lýsa. Dæm svo mildan dauða, drottinn þínu barni, eins og léttu laufi lyfti blær frá hjarni, eins og lítill lækur ljúki sínu hjali, þar sem lygn í leyni liggur marinn svali. M.Jock. Þungbær veikindi voru ekki lögð á Sigríði B. Halling. Mitt í dagsins önn urðu hin afdrifa- ríku umskipti og áður en næsti dagur rann var stundaglasið tæmt. Vordrauminum var lokið, rósin norðan frá heimskauts- baug hneigði höfuðið. Blessuð sé hennar ljúfa minning. Sigurður E. Haraldsson. Hestamenn Hestmannaféiagið Gustur og aðrir hestamenn. Tekið á móti hestum í Laxnesi Mosfelissveit til sumarbeitar laugardag og sunnudag 8.-9. júní kl. 2—7 báða dagana. Guðmundur. Hvergi ódýrara í borginni Gallabuxr á 118 kr. í stærðunum 6—16. Stretchbuxur frá 166 til 219 kr. í stærðunum 3—12. RúllUkragapeysur á 10—14 ára á 70 kr. Drengjaflúnelsskyrtur á 108 kr. í stærðunum 6 til 16. Herraflúnelsskyrtur á 150 kr. í öllum stærðum. Herrasportskyrtur á 130 kr. í öllum stærðum. Barnaúlpur frá 390 til 515 kr. í stærðunum 3—16. Mikið úrval af ódýrum peysum í öllum stærðum. Regnfatnaður fyrir börn og fullorðna. Verzlunin FÍFA, Laugavegi 99 (inngangur frá Snorrabraut). SÓLÓHÚSeÖG Seljum frá verkstæði okkar hin hin vinsælu SÓLÓHÚSGÖGN sterk og stílhrein, í borðkrókinn, kaffistofuna og samkomuhúsið. Mjög hagstætt verð Hringbraut 121 sími 21832. KYNNINGAR- VIKA A DUNICEL BORÐDÚKAR DUNI GJAFAKASSAR DUNETT TOILETTPAPPÍR Dum KERTI SERVIETTUR GLASAMOTTUR SNYRTIPAPPÍR VASAKLÚTAR :1 TPH VÖRUM tUÍÍBl/aldl <■»] v, 'VI'**;?:" "i/íU Austurstræti 17. Umboðsmenn: STRANDBERG H/F., heUdverzlun, Hverfisgötu 76, sími 16462.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.