Morgunblaðið - 07.06.1968, Síða 31

Morgunblaðið - 07.06.1968, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDGAUR 7. JÚNl 1»68 31 - SUNDLAUGAR Framh. af bls. 2 atærð, þannig að leika mætti la- knattleik. Sú höll yrði hins veg- ar að vera með leikflöt, er væri a.m.k. helmingi stærri en hand- knattleiksvöllur. - HÚSAVÍK Framh. af bls. 2 með fleiri börnum en tveimur hjá hverjum gjaldanda. Vikið var frá ákvæðum skatt- laga um tapsfrádrætti á milli ára, og um varasjóðstillög fé- laga. Hjá einstaka gjaldenda var takfð tillit til sjúkrakostnaðar, skertrar greiðslugetu vegna slysa og dauðsfalla, og vegna menntunarkostnaðar barna eldri en 16 ára. Einnig var tekið til- lit til sérstaks ferðakostnaðar síldveiðisjómanna vegna at- vinnu sinnar. Útsvör, sem ekki náðu kr. l&OO.— voru felld niður. - BORGARSTJÓRN Framh. af bls. 32 Jón B. H-annibalsson. Innkaupastofium Reykjavíkurborgar Bra-gi Hannesson, Guðmundur J. Guðmundsson, Þorbjörn Guð- mundsson og Bá-rður Daníelsson. Til vara: Magnús L. Sveinsson, Runólfur Pétursson, Jón S. Þor- leifsson og Óskar Hallgrímsson. Lífeyrissjóður Starfs- mannafélags Rvk Birgir ísl. Gunnarsson, Gunn- ar Helgason og Jón S. Þorleifs- Til var-a: Bragi Hannesson, Úlfar Þórðarson og Sigurjón Björnsson. FLskimannasjóður Kjalamess Gunnar Friðriksson, formaður SVFÍ. Þá voru Steinar Berg Bjöms- son og Jónsteinn Haraldsson kjörnir endurskoðendur Spari- sjóðsins Pundið, Alfreð Guð- mundsson kosinn endurskoðandi Styrkarsjóðs sjómanna- og verkamannafélaganna í Reykja- vík og Gísli Ólafsson kosinn í stjórn Sparisjóðs vélstjóra, en Þorkell Sigurðsson og Jón Snæ- björnsson endurskoðendur. i -JÓNAS Framh. af bls. 32 var skipaður útvarpsstjóri. RíJk- isútvarpinu veitti hann forstöðu til ársins 1953. Jónas átti um skeið sæti á A1 þingi, en einnig tók hann virk an þátt í félagsmálum. Hann ! var tvíkvæntur. Fyrri konu sína, i Þorbjörgu Jónsdóttur missti hann árið 1923, en síðari kona j hans, Sigurlaug Margrét Jóns- , dóttir lifir mann sinn. - SKÁKIN Framh. af bls. 32 eina frestaða. 15. Benóný með Yz v. og eina frestaða og 16. Andrés með % v. I kvöld tefla saman Taimanoff — Vasjukoff, Freysteinn — Byrne, Oostjic — Szabo, Jón — Ingi R., Jóhann — Friðrik, Guð- mundur — Benóný, Uhlmann — Andrés og Addison og Bragi. - SKÁLDEN Framhald af bls. 17 líka bráðlega í ljós, hvað þarna er á ferðinni. — Nokkurt leikrit í smíðum? — Nei, ekkert, sem ég get sagt ákveðið um. Ég er alltaf öðru hv-erju að dútla við ein- hver handrit, en hvað úr þeim verður — það er önnur saga. —Hvað hefur þú sent frá þér margar skáldsögur, Agnar? — Þetta verður þriðja skáld- sagan mín. — Og leikritin? — Þau eru sex, sem leikin hafa verið á sviði og svo hef ég sett saman ein sjö útvarpsleik- rit til viðbótar. Útsýnispallur í turni Hallgrímskirkju ALMENNINGI gefst nú kostur á að njóta útsýnisins úr tumi Hallgrímskirkju. Hefur fólkslyfta verið tekin í notkun í turnin- um og útsýnispallur í 40 metra hæð verið gerður, en síðar verð- ur tekinn í notkun útsýnispallur á gólfi klukknaportsins og verð- ur hann í 45 metra hæð. Fyrst um sinn verður útsýnis- pallurinn opinn almenningi á laugardögum og sunnudögum frá Hvergi mun útsýn yfir Reykjavík og nágrenni vera eins góð og úr turni Hallgrímskirkju. (Ljósm. Mbl-: Sveinn Þormóðsson). Litið niður á Leif heppna. kl. 14 til 16, en gefi aðsóknin tilefni til, verður turninn opinn oftar og lengur a.m.k. yfir sum- armánuðina. Aðgangseyrir fyrir fullorðna er kr. 25 og kr. 10 fyrir börn, en af öryggisástæð- um fá börr} aðeins að koma þarna í fylgd með fullorðnum. Eftirlits- maður verður á pallinum til að aðstoða og leiðbeina gastum. í þesisum mánuði verður lokið við smíði klukknaportsins og verður turninn 53,4 m á hæð. Næsti áfangi kirkjubyggingarinn ar er svo eftir hlutiA turnspírunnar og verður reynt að reisa turninn 1 fulla hæð, 70,5 m í sumar. Um síðustu ára- mót voru 23 milljónir króna komnar í byggingu Hallgríms- kirkju, en stefnt er að því að henni verði lokið árið 1974, en þá er 300. ártíð Hallgríms Pét- urssonar. ----~~----- ^ l\lannaskipti hjá Sambandinu — Guðimindur Sveinsson yfir- maður Rotary GUÐMUNDUR Sveinsson, skóla stjóri í Bifröst hefur verið kos- inn umdæmisstjóri Rotary-hreyf ingarinnar á íslandi. Guðmund- ur er yfirmaður Rótary-blúbbs Borgarness. Alls eru nú 288 umdæmisstjór ar í heiminum innan þessara samtaka og eru þeir kjörnir til eins árs í senn. Hlutverk hvers umdæmisstjóra er að heimsækja klúbbana í umdæmi sínu og ræða um félagsstarfið við yfir- menn á hverjum stað. STJÓRN Sambands ísl. sam- vinnufélaga hefur nýlega ákveð- ið eftirfarandi breytingar og mannaskipti meðal framkvæmda stjóra Sambandsins: Við framkvæmdastjórn Sjávar- afurðadeildar tekur Guðjón B. Ólafsson, sem undanfarin ár hef- ir veitt Lund-únaskrifstofu for- stöðu. Við framkvæmdastjórn skrif- stofu S.Í.S. í London tekur Bjarni V. Magnússon, sem áður var framkvæmdastjóri Sjávaraf- urðadeildar. Þá hefir Sverrir H. Magnússon látið af framkvæmdastjórn sölu- félagsins Iceland Products, Inc. í Bandaríkjunum, en við því starfi tekið Othar Hansson, fiskvinnslu- fræðingur. Olympíukeppnin í bridge hafin ÞRIÐJA Olympíukeppnin í bridge hófst í gærkvöldi, en keppnin fer að þessu sinni fram í Frakklandi. tsland tekur þátt i keppninni. 35 sveitir hafa tilkynnt þátt- töku í opna flokknum en 20 sveitir í kvennaflokki. Nokkrar þjóðir senda sveitir til keppni í opna flokknum í fyrsta sinn, m.a. Portugal, Grikkland og Kenya, svo nokkrar séu nefndar. — I kvennaflokki keppa nú í fyrsta sinn sveitir frá Finnlandi, Brazilíu, Póllandi, ísrael og Spáni. Keppnistilhögun er þannig í opna flokknum, að í forkeppni spila allar sveitimar saman 20 spila leiki. Verður því hver sveit að spila 3 leiki á dag. Að for- keppninni lokinni keppa fjórar efstu sveitirnar til úrslita, þann- ig að 2 og 2 sveitir eru dregnar saman og sigurvegararnir keppa síðan um Olympíutitilinn. í kvennaflokki spíla allar sveitirnar saman 40 spila leiki og hlýtur efsta sveitin Olympíu- titilinn. Bridgetímarit erlendis geta sér til um að keppnin í opna flokkn- um komi til með að standa milli sveita frá Bandaríkjunum, Frakklandi, ítalíu, Irlandi, S- Afríku og jafnvel Svíþjóð. Allar sveitirnar í opna flokkn- um hafa æft vel undanfarið og má t.d. nefna að sveitir Banda- ríkjanna og Kanada kepptlu ný- lega og voru spiluð 128 spil. Bandaríska sveitin sigraði með 265 stigum gegn 198. Islenzka bridgesveitin hélt ut- an sl. þriðjudag og var flogið til Bruxelles en þaðan var ferð- inni heitfð til keppnisstaðar í j árnbr autarlest. Þar sem fyrsta umferð keppn- innar fór fram í gærkvöldi voru úrslit ekki kunn er blaðið fór í prentun. íslenzkir irímerkjateiknnrar sýnn Frímerkjaumslög fyrir — á heimssýningu í fyrsta skipti HEIMSSÝNING á frímerkjum verður haldin í Prag í sumar og hefst 22. júní. A þessari sýningu sýna íslenzkir frímerkjateiknar- ar, þeir Halldór Pétursson, teikn ari og Stefán Jónsson, arkitekt, tillöguteikningar að frímerkjum og vinnubrögðin við teikninguna allt frá frumdrögum til fullunn- is merkis. Er þetta í fyrsta skipti, sem íslenzkir frímerkja- teiknarar taka þátt í slíkri heims sýningu. Islenzka deildin á þessari sýn- ingu verður alls 19 fermetrar og skiptist í átta reiti, en auk teikn inga þeirra Halldórs og Stefáns verða sýnd þarna þrjú frímerkja söfn og íslenzkar bækur og tíma rit sem fjalla um frímerki. Verð- ur þetta stærsta sýningardeild, sem ísland hefur átt á heims- sýningu sem þessari. Siglingcaleið enn erfið fyrir Horn SIF — flugvél Landhelgisgæzl- unnar fór í ísfiug í gær og sam kvæmt upplýsingum er fengust úr fluginu er siglingarleið frá Horni að Skaga að sjá mjög erf- ið, þakin ísi 7 til 9/10. Þar eru jakar meira brotnir og jafnvel þynnri en undanfarið. Frá Skagafirði og austur fyrir Langanes virðist siglingaleið greið, en geysimikil breyting hef ur orðið á ísnum við Norðaust- urland. Nær íslaust er nú nær 35 sjómílur norður af Sléttu og svipað af Langanesi. Siglingaleið um Bakkaflóa má einnig telja auða, en vont skyggni var vegna þoku og rigningar. Norðfjarðarflói er íslítill. Nokk ur ís er enn utanvert í Reyðar- firði, en Fáskrúðsfjörður virðist íslítill. Mikið íshrafl hefur rek- ið úr fjörðunum og er á reki milli Skrúðs og Papeyjar allt suður á móts við Hvalnes, en nær víðast hvar ekki nema 4 til 6 sjómílur út. Smá ísröst er 4 til 6 sjómílur und'an Hvalnesi, íshrafl allt að 4 sjómílum und- an Hornafirði og jakahrafl milli Hrollaugseyja og Ingólfshöfða. 104 þús. kr. eyðilögð FRÍMERKJAUMSLÖG að verð- mæti 104 þúsund krónur voru eyðilögð í fsafoldarprentsmiðju í gær undir eftirliti borgarfógeta embættisins. Þarna var um að ræða 2086 svonefnd þyrlupóstsumslög, sem Landssamband íslenzkra frí- merkjasafnara gaf út 10. apríl sl- í fjáröflunarskyni. Flaug þá þyrla Landhelgisgæzlunnar og Slysavarnarfélags fslands með 8100 umslög fyrir Landssamband íslenzkra frímerkjasafnara milli Keflavíkur og Reykjavíkur og var það fyrsta þyrlupóstflug á Islandi. Þegar umslögin voru gefin út skuldbatt Landssamband ís- lenzkra frímerkjasafnara sig til að eyðileggja öll þau umslög, sem óseld yrðu 6. júní og í gær var eyðileggingin svo fram- k”æmd sem fyrr segir. Umslögin eyðilögð. (Ljósm. M læ.: Sv. Þ.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.