Morgunblaðið - 06.10.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1968
Plastbelgjaverk-
smiðja í Eyjum
Sú eina hérlendis
TVEIR Vestmaimaeyingar, Birg-
ír Guðsteinsson og Rögnvaldur
Bjarnason, hafa nýlega keypt
plastverksmiðjuna Plastver í
Reykjavík og er nú búið að
flytja vélarnar til Vestmanna-
éyja. Plastver hefur framleitt
veiðarfærabelgi og nokkuð af
léikföngum, en verksmiðjan hef-
ur lítið verið starfrækt. Áætlað
er að verksmiðjan taki til starfa
í Eyjum í þessum mánuði og
verði tilbúin með framleiðslu
fyrir komandi vertíð. Lögð verð-
ur áherzla á gerð veiðarfæra-
belgja, en einnig verður unnið
að öðrum verkefnum.
Birgir Guðsteinsson tjáði okk-
ur í gær að belgir af þessari teg-
und hefðu reynzt mjög vel.
Sagði hainn að framléiðsluaðferð-
in byggðist á plastbökun í þar
til gerðum mótum. Sagðist hann
vonast til þess að kostnaður á
þessari tegund veiðarfæra gæti
- BRENNUVARGUR
Framh. af bls. 32
en rúður bílsins reyndust á hinn
bóginn brotnar, þegar slökkvi-
liðsmenn komu að honum.
Rannsóknarlögreglan vinnur nú
að rannsókn málsins. Morgun-
blaðið náði tali af Nirði Snæ-
hólm, rannsóknarlögreglumanni,
um hádegisiblið í gær. Hann
kvaðst ekkert vilja segja um
málið að svo stöddu, enda væri
rannsókn á frumstigi.
lækkað með framleiðslu hérlend-
is, en þetta mun vera eina teg-
und sinnar hér.
Tvo menn þarf til þess að
stjórna vélunum, en einnig þarf
aðstoðarfólk. Birgir sagði að
fylgzt yrði gaumgæfilega með
nýjungum á þessu sviði og tekið
upp það sem henta þætti.
Sýningu
Jóhönnu lýkur
SÝNINGU Jóhönnu Bogadóttur
í Unuhúsi lýkur í kvöld kl. 22.
Aðsókn að sýningunni hefur ver-
ið ágæt og hafa 20 myndir selzt
af 35.
I næstu viku mun Jóhanna
fara með sýningu sína til Vest-
mannaeyja, heimabæjar síns.
SUMARSÝNINGIN í Ásgríms-
safni, sem opnuð var 9. júní sl.
stendur aðeins yfir í 4 daga enn-
þá. Lýkur henni sunnudaginn 13.
októbar. Safnið verður þá lokað
um tíma meðan komið verður
fyrir haustsýningunni. Fyrirhug-
að er þá, að sýna eingöngu
myndir frá Reykjavík.
Sumarsýningin er yfirlitssýn-
Prestskosning
ú Seyðisfirði
PRESTSKOSNING fór fram í
Seyðisfjarðarprestakalli í N-Múla
sýslu sl. sunnudag. Atkvæðin
voru talin á skrifstofu biskups
sl. föstudag. Umsækjandi var
einn, séra Rögnvaldur Finnboga-
son sóknarprestur að Hofi í
Vopnafirði. Á kjörskrá voru 486,
en atkvæði greiddu 294.
Umsækjandinn hlaut 285 at-
kvæði, 9 seðlar voru auðir.
Kosningin var lögmæt.
- KÝR
Framh. af bls. 32
óhætt er að segja, að bæði
menn og málleysingjar á Héraði,
hafa íullan hug á að verjast
minknum, sem yrði þar hinn
mesti vágestur, þar sem fiskur
er í flestum vötnum og fuglalíf
mikið. mundi því lifa þar góðu
lífi. Menn af minkaslóðum telja
þó víst að minkurinn sé kom-
inn að veiðivötnunum í Fella-
hreppi og telja sig hafa séð slóð-
ir eftir hann þar. — Ha.
ing, vatnslitamyndir og olíumál-
verk, sem Ásgrímur Jónsson
málaði á hálfrar aldar tímabili.
Margt erlendra gesta kom í Ás-
grímssafn á þessu sumri.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl. 1.30
til 4.
- ^
HERNÁMSÁRIN „1940-1945 67/68
HVAÐAN ER MYNDIN?
KVIKMYND REYNIS ODDSSONAR
Hér birtist fyrsta mynd af fjórum, sem efnt hefur verið til get-
raunar um og eiga menn að svara því, hvaðan myndin sé. —
Myndirnar eru allar teknar á stríðsárunum hér á íslandi og eru
I úr kvikmynd Reynis Oddssonar um hernámsárin. Verðlaun verða
frímiðar á frumsýningu myndarinnar og að auki 1. verðlaun
, Polaroid myndavél og í 2. verðlaun Kodak Instamatic-mynda-
vél. — Svör eiga að berast Mbl. íyrir mánudaginn 14. október nk.
,
fV,rr -r- ,, -r -r ^
Suntarsýningunni
í Ásgrímssnini nð Ijúkn
—TÉKKÖSLÖVAKÍA
Framhald af bls. X
festar fregnir segja, að Sovétrík
in hafi haft í hyggju að koma
Cernik frá völdum strax eftir
innrásina og skipa í hans stað
Alois Indra, en hann hefur jafn
an verið talinn einn traustasti
stuðningsmaður Sovétstjórnar-
innar.
Stjórnmálafréttaritarar segja,
að mjög sé skeggrætt um það
manna á milli, að á fundunum í
Moskvu hafi sovézku fulltrúar-
nir lagt hart að Dubcek að
segja af sér stöðu flokksritara
og taka við einhverju valfla-
lausu sýndarembætti. Sörrtu
heimildir telja ekki ósennilegt,
að miðstjórn tékkneska komm-
únistaflokksins verði kölluð
saman og fyrir hana lagðar nið
urstöður fundarins í Moskvu
Þá segir AP fréttastofan, að
alls staðar sjáist þess merki í
Tékkóslóvakíu í dag, að borg-
urum landsins hafi brugðið mjög
í brún, er ljóst var að leiðtog-
ar þeirra hefðu orðið að semja
við Sovétmenn um áframhald-
andi dvöl hernámsliðsins. Víða
gæti mikils vonleysis manna á
meðal og mikillar beizkju í garð
Sovétmanna.
Fréttaritarar í Prag eru þeirr
ar skoðunar, að mjög fljótlega
hefjist víðtækar hreinsanir
frjálslyndra endurskoðunarafla
og muni þessar hreinsanir ekki
hvað sízt bitna á- rithöfundum,
menntamönnum og blaðamönn-
um. í orðsendingunni, sem gef-
in var út eftir Moskvufundinn
var sagt að „Tékkóslóvakar
mundu auka baráttuna gegn
fjandsamlegum öflum og gera
nauðsynlegar ráðstafanir til að
tryggja að öll fjölmiðlunartæki
landsins þjónuðu hugsjónum sós
ialismans“. Áður hefur stjórnin
vikið frá yfirmönnum t ékkneska
útvarpsins og sjónvarpsins.
Heimildir í Tékkóslóvakíu segja
að nýlega hafi bók nokkur ver
ið birt í Sovétríkjunum þar sem
listi sé yfir fjölda manna, sem
eru illa séðir hjá Sovétmönnum.
Flestir þeirra eru rithöfundar
og blaðamenn.
Blaðamenn tímaritsins Zivat
Stranyi hafa neitað að vinna
undir stjóm Oldrich Svetska, en
hann var áður ritstjóri flokks-
málgagnsins Rude Pravo og fyrr
verandi meðlimur forsætisráðs-
ins. Svetska átti að hefja störf
hjá Zivat Stranyi, og ákveðið
hafði verið að breyta nafni blaðs
ins. Ritstjórar þess segjast munu
halda útgáfu blaðsins áfram und
ir fyrra nafni, þar til leyfið renn
ur út.
Þá segir í NTB frá frá Vín,
að þrír tékkneskir borgarar
verði leiddir fyrir dómstól og
ákærðir fyrir að hafa myrt búlg
arskan liðþjálfa þann 9. sept-
ember s 1.
Málgagn sovézka hersins birti
í dag vitnanir frá tékkneskum
borgurum, þar sem þeir hylla
innrásina og láta í ljósi þakk-
læti til sovézku hersveitanna:
„Ég þakka ykkur af alhug fyr-
ir að hafa komið til okkar,“ hef
ur blaðamaður eftir konu einni
með tárvot augu.„ Við höfum beð
ið ykkar svo lengi.“.
Öll helztu blöð í Sovétríkjun-
um birtu orðsendingu fundar-
ins en engar athugasemdir eru
gerðar við hana. Aftur á móti
birtir Rauða stjarnan nokkrar
frásagnir um mjög vinsamleg
samskipti sovézkra hermanna og
tékkneskra borgara eftir her-
námið.
Málgagn pólska kommúnista-
flokksins réðst í dag harðlega á
fjölmiðlunartæki í Tékkóslóvak
íu og sakaði þau um að birta
villandi og rangar fréttir í
Tékkóslóvakíu um bróðurlandið
Pólland. Blaðið segir ennfremur
að Tékkóslóvakía hafi nú byrj-
að aðgerðir í lýðræðisátt eftir
miklar tafir sem orðið hafi
vegna stjórnarhátta á Novotny
tímabilinu.
Tékkneska rithöfundasam-
bandið beindi í dag þeim til-
mælum til sovézkra stjórnar-
valda, að þau hættu þegar í stað
gagnrýni og árásum á forseta
þess, Eduard Goldstucker. Seg-
ir að það sé skylda Sovétmanna
að biðjast afsökunar á þessari
óheiðhrlegu gagnrýni, sem hafi
verið liður í baráttu gegn heið-
arlegum tékkneskum rithöfund-
um og tékkneskum bókmennt-
um.
Jóhannes Jósefsson
Jóhnnnes ú
Borg lútinn
HINN þjóðkunni athafnamaður
og íþróttagarpur, Jóhannes
Jósefsson, fyrrum eigandi Hótel
Borgar, lézt í gær, 85 ára gamall.
Jóhannes var fæddur 28. júlí
1883 í Hamarkoti á Oddeyri við
Eyjafjörð, sonur Jósefs Jónsson-
ar og Kristínar Einarsdóttur.
Hann stundaði nám hjá Johann-
esens handelsskole í Björgvin
1905, en stundaði síðan verzlún-
arstörf á Akureyri. Hann dvald-
ist erlendis 1909—27 og sýndi
þá íslenzka glímu og fleira í fjöl
leikahúsum í Evrópu og
Ameríku. Kom eftir það aftur til
landsins, og undirbjó byggingu
Hótel Borgar í Reykjavík, og
varð hótelstjóri 1930, þegar
hótelið hóf rekstur. Hann var
eigandi og forstöðumaður Hótel
Borgar til 1. janúar 1960. Jó-
hannes var stofnandi fyrsta ung-
mennafélags á íslandi, Ung-
mennafélags Akureyrar 1906 og
var fyrsti formaður þess. Hann
vann Grettisbeltið 1907 og tók
þátt í Olympíuleikunum í Lond-
on 1908. Jóhannes var heiðurs-
félagi í UMSÍ og ÍSÍ og stór-
riddari íslenzku fálkaorðunnar
1957.
- GUFUHOLA
Framh. af bls. 32
vinna í verksmiðjunni rúm 1100
tonm til útflutnings og er mestur
hluti þess magns þegar farinn.
Nægur markaður virðist vera
fyrir kisilgúrinn. Allt kapp verð-
ur lagt á að auka, sem mest
framleiðsluna. Hingað til hefur
hún aðallega takmarkazt vegna
gufuþurrkunar hráefnisins. Að
sjálfsögðu hafa forráðamenn
verksmiðjunnar gert sér þennan
annmarka ljósan og verður því
væntanlega reynt eftir megni að
bæta úr því. í sumar var unnið
að gerð geymsluþróar fyrir verk-
smiðjuna og er því verki að
mestu lokið. Búið er að fylla
þróna og er dælingu nú hætt.
Talið er að verksmiðjan hafi pú
þegar nægilegt efni til að vinna
úr á komandi vetri, þó fram-
leiðslugetan aukizt að mun. Stöð-
ugt er unnið að hinum nýja kísil-
vegi. Eftir er þó enn að aka slit-
lagi á langan kafla, eða milli 20
og 30 kílómetra. Getur það verk
að sjálfsögðu tafizt, ef veður
verður óhagstætt. Samkvæmt
samningum eiga verktakar að
skila veginum nú í október. Eftir
þá reynslu, sem fékkst af vegin-
um sl. vetur var talið óumflýj-
anlegt að laga smákafla á honum
vegna snjóahættu. Ekki var ann-
að vitað en að þetta yrði gert á
þessu sumri, en það verk er þó
ekki hafið enn. Verður að vænta
þess að ebki dragist lengur að
í þá framkvæmd verði ráðizt.
— Kristján.