Morgunblaðið - 06.10.1968, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.10.1968, Blaðsíða 14
ím 14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 19«8 það stöðugt eftir því sem á kvöldið leið. — Nú verður þú að segja okkur einhverjar fréttir, með- an feimnin er að fara af strák- unum, sagði Þórður, — þeir eiga yfirleitt ekki því láni að fagna að hafa kvenmann með hér í kofanum heila nótt og vita ekki almennilega hvernig þeir eiga að bregðast við. Við settumst við langborð eftir kofanum endilöngum og tókum upp nestið. Tal snerist í fyrstu aðallega um endur- bæturnar á kofanum og kaffi- tilbúning. bóndi með hrossin góðu og sár- fætta tíkina. Á Hermanni sást ekki. Hann kastaði sér sam- stundis út af og svaf af unz fjallakóngurinn ræsti mann- skapinn á áttunda tímanum. Þá hafði hann sótt vatn o.g sett upp. Þegar ég kom út til að gá til veðurs og teygja úr stirðum limum var loftið úrsvalt, þok- an grúfði sig niður í hlíðar og til Rjúpnafells sást ekki. Það var ekki sérlega árennilegt að halda af stað út í rigningar- sudda og þoku. Eftir morgunsnarl var lagt á hestana í skyndi og síðan riðið af stað. Ég minntist þess þá að barni hafði mér jafnan fund- izt samalmennska mjög dul- rætt hugtak í framkvæmd. Venjulega reið maður klukku- tímum saman án þess að sjá neina skepnu, sneri svo við og reið sömu leið til baka og áður en við var litið breiddi úr sér fyrir framan mann lagðprúð jarmandi hjörð. Það var hrollur í hestunum eftir innistöðuna og þeir brokk uðu létt án þess þyrfti að hvetja þá. Leiðin lá fram Gafl- fellsheiði, yfir holt, móa og flóa. Allt gekk slysalaust utan þess, að reiðskjóti Jóa á Saur- um hafði einkar mikið lag á því að velja sér blautar keldur til að festa sig í og sökk hvað eftir annað upp í kvið. Við áðum nokkrum sinnum á leiðinni, rigningunni hafði létt en þoka og hráslagi grúfði sig yfir. Þeir yrðu ekki öfunds- verðir sem færu norðanmegin og yfir Glerárskógafjall. Þeg- ar fjallkóngur skipti liði íhlíð um Rjúpnafells var þokan svo þétt að ekki sá upp á brúnina. Leitarsvæði markaðist af G'ler- árskógafjalli að vestan og Hrafnadalsfjalli að austan. Ég fékk það hlutverk að smala svæðið frá rótum Rjúpnafölls í vesturátt að Fáskrúð, en vest- ar tók við Þórður fjallkóngur Framh. á hls. 22 I leit með Laxdælingum inn, enn aðrir voru væntanleg- ir síðar. Er á daginn leið kóln- aði og um það bil er við lögð- um af stað var komið norðan hvassviðri og kuldinn beit illskulega í nefbroddinn, þegar riðið var á móti vindinum klukkutímum saman. Þórður fjallkóngur á Goddastöðum hafði sér til liðs tvo spræka sonu sína og hundinn Kobba, sem er ættaður af Seltjarnar- nesi. Ég hafði fært honum þennan hund fyrir sjö árum, þegar hugsjónaríkur þáverandi sveitarstjóri á Seltjarnarnesi tók þá stefnu að áður en hugs- anlegt væri að ráðast í að mal- bika nokkra götuspotta eða stofna kvenfélag, væri nauð- synlegt að útrýma hundum. Kobbi hefur staðið sig með mikilli prýði. Hann kom stofu- hundur, vanur gælum, vestur og með góðri leiðsögn Þórðar varð hann fljótlega einhver bezti fjárhundur í Laxárdal. Bændur vanmeta ekki röska og vitra smalahunda, enda ljóst, að með þeim Þórði og Kobba voru miklir kærleikar. Ekki varð það merkt að feimni angraði piltana, og gengu samræður vel með til- heyrandi kjamsi, smjatti og hressilegum ropum. Meðfram veggjum hreiðruð- um við síðan um okkur, sumir í svefnpokum aðrir með átoreið ur yfir sér. Þórður leit til hest- anna áður en gengið var til náða. Þeir voru ókyrrir og öðru hverju hrökk ég upp við stampið og gauraganginn í þeim. Um tvöleytið heyrðist há- reysti úti fyrir. Þar voru komn ir þrír gangnamenn frá Leið- ólfsstöðum. Birgir, bryti hjá Loftleiðum, hafði komið frá New York um hádegisbil og brunaði samstundis vest- ur í Dali. Hann hefur oft farið áður í göngur á Ljárskóga- fjall. Þarna var Pétur á Leið- ólfsstöðum og Bragi nokkur úr Reykjavík. Þeir höfðu verið svo óheppnir áð missa reiðings hestana frá sér skammt fyrir framan Ljárskógasel ogþar sem á einn þeirra var bundið allt nesti þeirra, í blautu og þurru, gerði Hermann bóndi sér lítið fyrir, sló í hrossið, kallaði á tíkina og lagði af stað út í náttmyrkrið og norðangjóstur- inn til að leita þeirra. Um fimm-leytið heyrðust á ný háreysti og nú sýnu meiri, öskur og drunur. Þar var kom- inn Hermann Leiðólfsstaða- SUMUM þótti það bera vott um bjartsýni hjá Hjalta bónda á Hróðnýjarstöðum að senda blaðakonu úr Reykjavík í leit á Ljárskógafjall sem fullgild- an gangnamann. Þó svo ég hefði verið liðtæk uppi á hrossi fyrir svo sem áratug var ekki þar með sagt, að enn væri töggur í mér til smala- mennsku, þegar komið er rak- leitt frá rafmagnsritvélinni og erlendu fréttunum. Við^ riðum fram eftir á sunnudag, tókum rekstur í Ljárskógum, en honum var sleppt, þégar kom fram fyrir Þverá. Nokkrir leitarmanna höfðu lagt af stað fyrr um dag Tveir unglingspiltar úr Reykja vík voru og með í förinni, þeir Bjössi á Hróðnýjarstöðum og Einar í HjarðarholtL Þegar við vorum laus við reksturinn var sprett úr spori fram Ljárskógafjall og riðið liðugt næstu klukkutímana. Fyrst var eftir ruðning- um að fara, en þegar kom fram fyrir Ljárskógaseþ þar sem fæddur er Jóhannes skáld úr Kötlum, tóku við torfærur, eggjagrjót og ófærur. Hryssan mín Fluga, fótaði sig fimlega á grjótinu og virtist ekki hafa mikið fyrir að skokka yfir stórgrýti eða um kargaþýfi og blés ekki úr nös. þessi skoðun breyttist veru- lega eftir því sem á göngurnar leið og sá ég að þarna myndi meðfædd hlédrægni Dala- meyja hafa ráðið mestu. Myrkur var skollið á þegar við náðum fram í gangnakof- ann. Hann var reistur fyrir all mörgum árum, en það var ekki fyrr en í vor, að gengið var frá einangrun í hann, enda hafa gangnamenn oft átt þar nöturlega vist í kulda Og trekki. Undir svefnstofu er hesthúsið. Ég skreiddist af baki stirð og aum í öllum skrokknum, fingurnir frosnir og tærnar tilfinningalausar og baslaði við að spretta af og teymdi Flugu inn í hesthúsið. Áður var oft erfitt verk að gæta hrossanna yfir . nóttina, þar sem engin girðing var og kom oft og einatt fyrir, að leit- armenn misstu þá frá sér um nóttina. Inni í kofanum höfðu þeir Jói á Saurum og Jonni á Sauð- húsum kveikt á gasi og olíu- lukt og var því orðið hlýtt og notalegt, þegar við komum. Hins vegar höfðu þeir ekki treyst sér út aftur til að sækja vatn í kaffi. Það varð brátt Meðan áfram var riðið og kuldinn næddi í gegnum þrjár peysur og úlpu væna, föður- land og nokkur pör af vettling um var ekki laust við að sú hugsun hvarflaði að mér, að þetta flan gæti aldrei orðið til fagnaðar, hvað þá til gagns. Auðvitað hefði mér nægt að fara í Gillastaðarétt á þriðju- daginn og hefði ekki átt að sperrast við göngurnar sjálfar. Samfylgdarmennirnir virtust bera hag minn og líðan mjög fyrir brjósti og inntu mig öðru hverju eftir því hvort þeir ættu ekki að ljá mér fleiri flík ur og sögðu mér jafnframt, hvar þeir geystust áfram ber- höfðaðir í næðingnum, að þetta væri í fyrsta skipti í manna- minnum, að kvenmaður hefði treyst sér í fyrstu göngur á Ljárskógafjall.Þá hætti mér að lítast á blikuna, mér var kunn ugt um aðskiljanlegar kven- hetjur í Laxárdal og þótti nú sýnt, að leit á Ljárskógafjalli væri ekki á annarra færi en fílelfdra og hraustra drengja. Þarflaust er að taka fram að uppvíst, að einhverjir gestir höfðu verið á ferð nokkru áð- ur og sýnilega hitað sér stein- olíu í staðinn fyrir kaffi og tóku nú við samræmdar aðgerð ir til að sjóða steinolíuna úr könnunni. Þeðar það hafði tek- izt var hitað kaffi og batnaði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.