Morgunblaðið - 06.10.1968, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.10.1968, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓiBER 1968 Húsmœður athugið Síldina á kvöldverðarborðið fáið þér hjá okkur. BRAUÐBORG, Njálsgötu 112, símar 18680, 16513. Keflavíh — Snðurnes Tónlistarskóli Keflavíkur er settur þriðjudaginn 7. október kl. 5. SKÓLASTJÓRI. íbúðir til sölu 4ra herbergja íbúðir við Jörvabakka 14 í Breiðholti 98 ferm. með sérþvottahúsi á hæðinni. — í kjallara eru föndurherbergi, sérgeymslur og sameiginlegt rými. íbúðimar eru seldar tilbúnar undir tréverk. Sam- eign frágengin og fullfrágengin lóð. Upplýsingar á byggingarstað virka daga frá kl. 8—6 og í sima 35801 og 30836. MIÐÁS S.F. Skipfafundur Skiptafundur í þrotabúi Þorvaldar Ásgeirssonar heild- sala Kópavogsbraut 89 Kópavogi verður haldinn í dómssal embættisins að Digranesvegi 10 miðvikudag- inn 9. október 1968 kl. 14. Gerð verður grein fyrir eignum búsins og skuldum og tekin ákvörðun um ráðstöfun eigna. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Einbýlishús í Garðahreppi Til sölu er glæsilegt einbýlishús í Garðahreppi. í hús- inu eru 8 — 9 herbergi, öll á einni hæð og bílskúr fyrir 2 bíla. Húsið selst fokhelt með mjög hagstæðum greiðsluskilmálum. Nánari upplýsingar gefur: Birgir ísl. Gunnarsson, hrl. Lækjargötu 6 B. Símar 22120 og 20628. Listdansskóli Þjóðleikhússins Skólinn getur bætt við nokkrum nemendum, þó aðeins á aldrinum 9 til 12 ára og í þá flokka, sem eru á tíma- bilinu kl. 4 til 5 og 5 til 6 síðdegis. Inntökupróf verður þriðjudaginn 8. október kl. 4 síðdegis. HarMarkurÍir IIM MI tJTI RÍISKIRS SVAL4 ýnhí- Zr 'Utikuriir H. Ö. VILHJÁLMSSDN HÁNARGÖTU 12. SÍMI 19669 - DR. ÁSMUNDUR Framhald af bls. 8 vinna að skrifstofustörfum, Guð- mundur lögfræðingur, lézt á bezta aldri fyrir nokkrum ár- um. Þegar litið er yfir ævistarf Dr. Ásmundar, biskups, á þess- um merkilegu tímamótum í ævi hans, þá beinist til hans einlæg- ur hugur þakklætis og virðing ar, ekki sízt frá göm'lum læri- sveinum hans og öllum þeim, sem bera hag og velferð íslenzkrar kristni fyrir brjósti. Sá, sem þetta ritar var í hópi þeirra guðfræ'ðistúdenta sem fögnuðu honum á hafnar- bakkanum í Reykjavík 1928, þeg ar hann var að koma að austan, til þess að taka við starfi sínu við guðfræðideildina. Það var engan veginn vandalaust að setj ast í sæti prófessors Haraldar Níelssonar, hins lærða og áhrifa mikla kennara, en hann ávann sér fljótt virðisgu og traust sem kennari og varð vinur og félagi okkar nemenda sinna. Það sem ekki var síður mikils virði, hann hélt áfram að vera vinur okkar, eftir að við lukum námi, fylgd- ist méð störfum okkar, eftir að við hófum sjá'lfstæð stö,*f víðs- vegar um landið, við mismun andi aðstæður og var alltaf boð inm og búinn að leiðbeina okk- ur. Sjaldan kom ég t.d. svo til Reykjavíkur á-fyrri árum, að ég hitti ekki Dr. Ásmund að máli, eða heimsækti þau hjónin að Laufásvegi 75, og svo mun hafa verið um fleiri lærisveina hans. Hann hafði ánægju af því að heyra frá starfinu og hafði jafn an hvetjandi og uppörvandi orð á vörum. Maður fann, að hann vildi vera samverkamaður okk- ar prestanna. Hann var hinn víðsýni lær- dómsmaður, ákveðinn baráttu- maður til sóknar og varnar fyr ir málefni kirkju og kristin- dóms, en fyrst og síðast var hann hinm einlægi og trúfasti lærisveinn Jesú Krists. Margvíslegur sómi hefur Dr. Ásmundi verið sýndur. Háskól- inn kjöri hann heiðursdoktor í guðfræði og heiðursmeTkjum var hann sæmdur. f nýlega var hann kosinm heiðursfélagi Hins íslenzka Biblíufélags. íslenzka kirkjan stendur í mikilli þakkarskuld við Dr. Ás- mund, biskup, fyfir starf hans á liðnum árum og við vinir hans þökkum honum fyrir trúfasta vináttu um áratugi og árnum honum, konu hans og fjölskyldu allra heilla og blessunar. Óskar J. Þorláksson. f DAG er áttræður einn af merk ismönnum lands vors, séra Ás- mundur Guðmundsson, fyrrver- andi biskup. Hann er alþjóð kunnur fyrir hið mikla starf sem hann hefur innt af hendi á sviði trúmála og skólamála. Mun ekki reynt að gera grein fyrir því öllu hér, að:ins minnt á þann þátt- inn, sem ennþá kemur mörgum Austfirðingi fyrst í hug, þá er séra Ásmundur er nefndur. Á árunum 1918—19 var niður lagður búnaðarskóli sá, er starf- að hafði á Eiðum á Fijótsdals- héraði frá árinu 1©88, en jafn- Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Skipasundi 15, hér í borg, þingl. eign Bjama Bender, fer fram á eigninni sjálfri, miðvikudaginn 9. október 1968, kl. 14.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Sendisveinn óskast hálfan daginn. Olíufélagið Skeljungur M. Til sölu Volvo kranabíll Scania Vabis vörubíll með krana. Upplýsingar á mánudag í síma 52485. Atvinna óskum að ráða: 1. laghentan verkamann vanan byggingarvinnu eða svipuðum störfum. 2. sendisvein, hálfan eða allan daginn. FÁLKINN H.F., sími 18670, Laugavegi 24. BAZAR Ljósmæðrafélags Reykjavíkur verður í Breiðfirðinga- búð — niðri — þriðjudaginn 8. október kl. 2. Mikið af prjónafatnaði — barnaleikföngum — lukku- pokar með happdrættismiðum (góðir vinningar) heimabakaðar kökur og fleira. STJÓRNIN. framt stofnaður þar nýr skóli, Alþýðuskólinn á Eiðum. Var hann settur þann 20. okt. 1919 og he£ur starfað óslitið síðan allt til þessa dags. Fyrsti skólastjóri „Eiðaskóla hins nýja“, eins og Alþýðuskólinn var þá stundum nefndur, var skipaður séra Ás- mundur Guðmundsson, þá prest- ur í Stykkishólmi, Helgafells- prestakalli. Það kom að sjálf- sögðu einkum í hlut hans og konu hans, frú Steinunnar Magnúsdóttur, að marka stefnu Al'þýðuskólans og móta nemend- ur hans fyrstu starfsárin. Ávarpsorð séra Ásmundar við skólasetningu haustið 1919 voru þessi: „Ó Guð vors lands, ó lands vors Guð“. Þessi ávarps- orð urðu síðan einkunnarorð skólans, mörkuðu stefnu hans og settu einkenni sitt á flesta þá nemendur, sem skólann sóttu. Það voru mörg vandamál og miklir erfiðleikar, sem biðu prestsins úr Stykkishólmi og konu hans á Eiðum. Ekki skal sú barátta og það mikla starf leyst sundur og rakið hér. En hitt stendur óhaggað, að með- fæddar gáfur, ásköpuð atorka og samheldni þeirra hjóna, leystu allan vanda á farsælan hátt. Um það bera vitni fjöl- margir nemendur og aðdáendur um Austfirði alla og raunar um landið þvert og endilangt. Það er mikils virði fyrir upp- eldis- og menntastofnun að þar haldi um stjórnvöl sannur mað- ur og einlægur. Það var því mik il gæfa fyrir Eiðaskóla, að séra Ásmundur Guðmundsson valdist til þess hlutverks að veita Al- þýðuskólanum forstöðu. Sú saga, sem hann og samstarfs- menn hans sköpuðu á Eiðum fyr ir tæpum 40 árum, mótaði fjölda einstaklinga og gerði þá að betri mönnum. Enn er skóli settur að Eiðum, ennþá logar giott á kyndlinum. Margt hefur þó breytzt á þessum þrjátíu og níu árum, en einn er samur: „Guð vors lands“. Hann er kjarninn og kjölfestan í skóla starfinu enn i dag og svo mun vonandi verða meðan skólasaga er skráð á Eiðum. Eiðaskóli óskar Ásmundi Guð- mundssyni allra heilla á áttræðis afmælinu, og þeim hjónum báð- um þakkar skólinn starf og tryggð um langan aldur. Friður Guðs sé með ykkur. Þorkell St. Ellertsson, skólastj. Eiðum. Rallettbúningar leikfimibúningar, netbuxur, gamalt verð. Afsláttur fyrir hópa. VerzL Katarína á horni Kringlumýrarbrautar og Hamrahlíðar. Sími 81920. VINNINGAR MERCEDES BENZ 220 ÁRGERÐ VERÐMÆTI KR.: 854.000,00 VERÐ KR.: 100 DREGIÐ 5. NÖVEMBER 1968

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.