Morgunblaðið - 06.10.1968, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1968
verðartími svo að Jill gekk út í
garðinn þar sem gosbrunnurinn
var. Sólin var enn hátt á lofti,
en þarna var svalt í bogagöng-
unum og hún settist á bekk og
horfði dreymandi á litaskrautið
í gólfinu og hvítklædda garð-
yrkjumanninn sem var að hirða
blómabeðin kring um gosbrunn-
inn. Handan við múrinn mátti
greina fagrar útlínur moskunnar.
Brátt mundi kallarinn fara að
æpa í silfurhornið sitt, og kalla
hina rétttrúuðu til kvöldbæna.
Kona gekk nú inn í garðinn,
og það var kona, sem tekið varð
eftir. Undir s'létta, gullna hár-
inu voru augu, sem voru dökk-
blá eins og lygnupollar. Varirn-
ar voru þykkar og kinnamar
hnöttóttar, en kjálkasvipurinn
bar vott um viljafestu og ósveigj
anleik. Jill dáðist að fögrum vexti
hennar og skreytingarlaust glæsi
legum klæðaburði hennar, en
hún var í grænum kjól og með
einstakan gimstein í hálsfesti.
Hún tálaði við garðyrkjumann-
inn á arabisku og röddin var
óvenju djúp.
En þá kom hún auga á Jill,
sem sat þögul í skugganum. —
Eruð þér ungfrú Chadburn eða
ungfrú James? sagði hún og gekk
til stúlkunnar sem stóð eins og
ósjálfrátt á fætur.
- Ég er Jill Chadburn og
ég held, að þér hljótið að vera
ungfrú Cater.
Ljósa höfuðið hneigði sig ofur
lítið. — I>ér eruð þá vinnukon-
an. Við erum fegin að hafa al-
menni'lega matreiðslukonu með
okkur. Þá verða karlmennirnir
alltaf í betra skapi. Þér skiljið,
að þetta starf verður enginn
barnaleikur, er ekki svo?
— Jú, það er mér ljóst, ung-
frú Cater. — Ég kæri mig koll-
óttan.
— En hvað er um ungfrú
James? Ég heyri sagt, að þið sé-
uð vinstúlkur, eða er það ekki?
Þetta er víst ungfrú James, sem
þarna er að koma?
— Já, stendur heima.
Sandra gekk nú til þeirra, og
fór sýnilega hjá sér, því að hún
kunni ekki enn við safírbláa kaft
aninn sinn og ilskóna. Hún leit
á Enid Cater og þær mældu hvor
aðra með augunum. Ji’ll greip and
ann á lofti en röddin í Söndru
var viðkunnanleg og kurteisleg,
er hún sagði: — Gott kvöld,
ungfrú Cater. Frú Fallowman
sagði mér, að þér væruð hér.
— Ég heyrði að þér hafið ver-
ið að hjálpa henni í dag. Finnst
yður verkið skemmtilegt?
— Það er dálítið sóðalegt, ját-
aði Sandra. — En það er víst
ekkert við því að gera, býst ég
við. En það er talsvert gaman
að finna þessa gömlu hluti og
ákveða, hve gamlir þeir eru.
— Já, þannig hugsa viðvaning
ar venjulega, sagði Enid Cater.
— En við vonum að geta kennt
yður tálsvert með tíð og tíma.
En hafið þið báðar fengið fatn-
að? Ef ekki, getum við fengið
GÓÐAR VÖRUR
GOTT VERÐ
ALLT A GAMLA VERÐINU :
Damask hvítt og mislitt, verð
frá 65,- m.
Silkidamask mislitt, verð frá
101,- m.
Léreft tvíbreitt, verð frá
37,50 m.
Lakaléreft breidd 140 sm og
210 sm frá 66,- m.
Dún- og fiðurhelt léreft, blátt,
breidd 140 sm, 88,- m.
Hvítt flúnel breidd 70 sm og
90 sm frá 30,50 m.
Gluggatjaldaefni, margar gerð
ir, þykk, verð frá 66,- m.
Storisefni breidd 120 sm, 150
sm, 250 sm, frá 109,- m.
Kaki, margir litir, breidd 140
sm, 85,- m.
Nælonblúnda hvít og mislit.
Baðmullarblúnda breið og
mjó.
Bróder-blúnda og milliverk í
miklu úrvali.
TIL FATA :
Vatt, fóðurstrigi, flísilín, vasa-
efni, slitbönd, buxnastrengur,
rennilásar, hörtvinni.
Sérstök athygli skal vakin
á nátttreyjum úr skozkri ull,
sérlega góðum, í hvítum og
bleikum lit, verð frá 303,-.
Póstsendum — sími 16700.
VERZLUN
SIGURBJÖRNS
KÁRASONAR
Njálsgötu 1.
Hárgreiðslustofan
valhöll
minnir yður á að nú er sumarið á enda og tími til
kominn að aðgæta hvort hár yðar er ekki upplitað eftir
sumarsólina. Við eigum háraliti og skol í úrvali og
munum með ánægju hjálpa yður til að finna háralit
og hárgreiðslu við yðar hæfi.
VALHOLL
Laugavegi 25
Sími 22138—14662.
VALHOLL
Kjörgarði
Sími 19216.
Saíún
islenzka gœðavaran
Hinn sérstæði íslenzki vefnaður Salún er nú kominn á
markdðinn vélunninn á Álafossi.
Hentar sérstaklega vel á útskorin húsgögn, eikarhús-
gögn ofl.
Rúmábreiður, dyratjöld og veggklæðningar.
150 cm breitt.
UMBOÐ UM ALLT LAND
ÁLAF0SS
í
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2 SIMI 13404 REYKJAVÍK
hann í Beirut, áður en við leggj-
j um af stað.
Hún útskýrði svo fyrir þeim,
j hvaða hlífðarföt þær þyrftu að
! hafa, svo svefnpoka, húðáburð
og meðöl. Þetta er miklu meira,
! en okkur skyldi geta dottið í
hug, sagði Sandra við Jill seinna
þegar þær gengu inn í matsal-
inn.
— Þig langaði í ævintýri,
minnti Jill hana á. Og nú verð-
ur þér að ósk þinni. Nú þurf-
um við bæði að gæta þess, að
úlfaldarnir bíti okkur ekki, né
heldur flugurnar stingi okkur í
i fæturna, eða eyðimerkurskriðdýr
in ásæki okkur. Við fáum sem
sagt nóg um að hugsa.
— Kannski þarftu að æpa á
hann Graham til að vernda þig,
kelli mín. Eða þennan Davíð
Game. Mér lízt bara ekkert á
hann. Ég hef andstyggð á mönn-
um, sem halda, að þeir séu eitt-
hvað meiri en aðrir.
Þær settust við borðið hjá
Davíð og Hammond. Grannur,
þeldökkur ungur maður kom til
þeirra og var kynntur stúlkunum
sem Rasmid. — Ég er vélamað-
urinn sagði hann. -— Ég sé um
alla vörubílana og jeppana.
Jill stalst til þess að 'líta yfir
að borðinu, sem prófessorinn sat
við. Hún horfði á, þegar epla-
k^kan hennar var borin fyrir
hann og svo borðaði hann hana
með góðri lyst og talaði um leið
við mágkonu sína. Jill var spennt
að vita, hvort honum líkaði mat-
urinn. En þegar þau hittust á
eftir, herti hún upp hugann og
spurði hann um það.
— Þótti hvað gott? át prófess-
orinn eftir henni. — Nú epla-
kakan? Hef ég þá verið að borða
eplaköku? Jú, vitanlega hef ég
það, nú man ég eftir því. Jú,
hún var alveg ágæt, stúlka mín.
Til hamingju með hana. Svo
brosti hann vingjarnlega til
hennar og ge'kk síðan á brott
með konu sinni.
Oliver hló að svipnum á Jill.
— Hafðu engar áhyggjur, sagði
hann við hana. — Prófessornum
þótti kakan ágæt. Annars hefði
hann kvartað. En hann er bara
stundum talsvert utan við sig.
6. OKTÓBER
Hrúturinn 21. marz — 19. april.
Eilífðarmálin eru mjög ofarlega í dag. Reyndu að leggja meiri
krafta í andlegar rannsóknir. Það er djúpt á daglegum málefnum,
og tíminn líður hægt.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
í dag er ekki heppilegt að fást of mikið við heimsmálin. Gerðu
rýmilegar áætlanir, hyggðu að heilsufari þínu og þeirra sem eldri
eru, og hvíldu þig síðan.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
Taktu þátt í sóknarmálum, og vertu síðan einn. Þú skalt ekki
' gera ráð fyrir samúð eða samvinnu, því að allir eru fullir mót-
þróa. í kvöld geturðu orðið þarfur sem sáttasemjari.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Vertu fljótur að sinna skyldustörfum þínum, og vertu svo með
fjölskyldunni. Lítil ástæða er til þess að álíta að þú fáir meðvind
óskum þínum 1 hag. Þú eyðir meiri hluta kvöldsins í að leita ein-
hvers, sem þú hefur tapað, og liggur einhvers staðar uppi við.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Eldra fólk og hefðbundir. málefni tefja daginn, sem annars er
rólegur. Fleiri eiga við svipaðan vanda að stríða. Hugsaðu frekar
en að þrasa.
Meyjan 23. ágúst — 22. sept.
Gerðu skyldu þína í dag. Sinntu trúmálum, en láttu önnur mál
sitja á hakanum. Þarfir aldraðs fólks gerast mikilvægar.
Vogin 23. sept. — 22. okt.
Hvað sem þú kannt að hafa skipulagt, verður að sitja á hakan-
um, vegna þess að ekki fer allt eins og það á að fara. Hjúskapar-
málin virðast eitthvað erfið.
Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv.
Daginn í dag skaltu nota aðallega til að sinna andlegum mál-
efnum. Allt sem þú ætlar að aðhafast, I samkvæmislífinu, eða sem
ekki er nægilega hyggilegt, fellur um sjálft sig. Þú getur hins veg-
ar unnið upp, það, sem þú hefur látið hjá líða að gera.
Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des.
Reyndu að komast hjá allri mannþröng, ef þú getur. Allir
virðast troðast áfram. Farðu snemma í rúmið.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Bíddu með allar stórbreytingar. Sinntu fjölskyldu þinni meir.
Skipuleggu meiri aðhlynningu fyrir foreldra og annað aldrað fólk.
Vatnsberinn 20. jan. — 18. febr.
Það er hægur vandi að taka upp I sig. Taktu tillit til þeirra sem
eru i kringum þig. Fjölskyldumál tefja þig frá öðru.
Fiskarnir 19. febr. — 20. marz.
Farðu til kirkju, en gerðu ráð fyrir að ýms önnur mál tefjist.
Þú græðir lítið á kappræðum í dag. Ef þú gefur höggstað á þér
um of, kann það að valda þér erfiðleikum seinna í dag.