Morgunblaðið - 06.10.1968, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1968
Heimifisiðnaðarfélag íslands
eínir til námskeiða í listvefnaði fyrir vefnaðar-,
teikni- og handavinnukennara.
Einnig verða námskeið fyrir aðra áhugasama í
TÓVINNU, spnna og JIJRTALITUN.
Upplýsingar gefnar í verzluninni.
ÍSLENZKUR HEMILISIÐNAÐUR
Laufásvegi, sími 15500.
Stórútsala á pottaplöntum
Þúsundir pottaplantna úr stærsta gróðurhúsi borgarinnar seldar með miklum
afslætti. Þar á meðal kaktusamir frá Landbúnaðarsýningunni.
ATHUGIÐ: Allar pottaplöntumar eiga að seljast því framundan er stærsti
jólamarkaður til þessa.
Kaupið ódýrustu og jafnframt fallegustu híbýlaprýðina.
Kaupið blómin í gróðurhúsi.
ÚTSÖLUNNI LÝKUR Á SUNNUDAGSKVÖLD.
GROÐURHUSIÐ
I
Nýr glæsilcgur borðstofuskápur úr teak og eik (Lengd 175 cm. Verð kr. 11.400.
Höfum fengið nýtt gLæsilegt úrval af borðstofusettum (teak og eik).
Lítið inn og kynnið yður okkar
hagstæða verð og greiðsluskilmála.
KJÖRGA RÐI SÍMI, 18580-16975
SKEIFU STÍLL, SKEIFU GÆÐI, SKEIFU SkÍLMÁLAR.
„fluslnn Edens“ í
AUSTURBÆJARBÍÓ er um
þessar mundir að hefja sýning-
ar á stórmyndinni „Austan Ed-
ens“, sem gerð er efitir einni
frægustu sögu ameríska Nóbels
skáldsins John Steinbecks og þótt
einnig ein bezta mynd, sem Jam-
es Dean lék í á sínum tíma.
Mynd þessi var sýnd í Aust-
urbæjarbíó árið 1957 við ágæta
aðsókn og vinsældir enda hafði
hún farið sigurför um heiminn
vegna stórbrotins efnis og á-
gæts leiks. Þegar myndin var
sýnd hér í það sinn, var hún
ekki með íslenzkum skýringar-
textum, enda tíðkuðust þeir ekki
þá, en nú hafa verið settir text-
ar til skýringar. Má gera ráð
fyrir, að þeir hinir mörgu sem
sáu myndina sér til ánægju 1957
fagni nú, er þeir fá tækifæri til
að sjá hana aftur, og aðrir noti
einnig tækifærið til að kynnast
þessu verki Steinbecks í leik-
fluslurbæjarbíói
meðferð, sem er því á allan hátt
til sóma.
Yrkisefni Steinbecks í þessu
verki er hin forna saga Bibií-
unnar um Abel og Kaim, færð I
nútímabúning gróðaára Banda-
ríkjanna í fyrri heimsatyrjöld,
áður en þau urðu sjálf stríðsað-
i'li og er þau dragast út í hild-
arleikinn. Carl Traskie (Kain)
finnst, að hann njóti ekki ást-
ríkis föður síns, eins og Aron
bróðir hans, og tilraunir hans
til að gera föður sinum til geðs,
snúast til hins verra. Hann hygg
ur því á hefmdir, sem bitna bæði
á bróður hans og föður.
Ekki er rétt að rekja sögu-
þráðinn frekar, en aðalhlutverk
in eru í höndum eftirfarandi
leikara: James Dean leikur Cal
Trask, Richard Davalos leikur
Aron bróður hans, en föðurinn,
Adam, leikur Raymond Massey,
og loks er Abra, unnusta Arons,
'leikin af Julie Harris.
Er hér um úrvalsleikara að
ræða, en af hinum yngri var
James D ean frægastur. Hann
náði heimsfrægð þegar um tví-
tugt og var leikur hans í þess-
ari mynd talinn hámarkið á feríi
hans. Dean varð ekki langlífur,
því að hann beið bana í bil-
slysi skömmu efitir að hann lauk
leik í „Risanum" þá aðeins 24
ára — árið 1955.
Getum tekið
nokkur eldhús og fataskápa til afgreiðslu strax.
INNRÉTTINGAR H/F.,
Suðurlandsbraut 12 — Sími 81670.
Bilvélavirkjar
Óskum að ráða tvo bifvélavirkja og einn bílaraf-
virkja til starfa á bifreiðaverkstæði okkar 1 Straums-
vík frá 1. jan. 1969. Starfið mun hefjast með 2ja mán.
starfsþjálfun erlendis hjá framleiðendum tækja okkar.
Ensku- eða þýzkukunnátta nauðsynleg. Nánari upp-
lýsingar hj-á starfsmannastjóra.
Skriflegar umsóknir sendist til fslenzka Álfélagsins,
eigi síðar en 15. október 1968.
ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ
PósthóW 244, Hafnarfirði.
Skírteini
afhent í dag
kl. 4—6 í Lindarbæ (uppi).
alletískólí
atrínar
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS