Morgunblaðið - 06.10.1968, Side 32
RITSTJORN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA
SÍMI 1D-1DD
SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1968
ferðum í vetur
Kísilvinnslan fœr viðbófarorku úr
holunni, sem er 281 stiga heit
Það var fagur haustmorgun í Reykjavík í gær. Stillilogn og glampandi sólskin. Langur skuggi
telpunnar á hellunum, þar sem hún var á leið yfir Arnarhólstúnið, var þó i allri haustfegurð-
inni vísbending til hennar um að stöðugt væri sólin að lækka sinn gang. (Ljósm. Ól.'K.M.)
Viðbúið að fengin verði innlend skip
til aðstoðar strandsiglingum Ríkisskip
LEIGUS AMNINGUR Skipaút-
gerðarinnar við eigendur Blikurs
er útrunninn, og verður Blikur
því ®kki í strandferðum hér í
vetur.
Morgunblaðið sneri sér til
Gunnars Vagnssomar. sem á sæti
í nefnd þeirri, er falið var að
hafa umsjón með rekstri Skipa-
útgerðarinnar, og spurðist fyrir
um, hvaða skip mundu annast
strandferðir hér við land í vetur.
Gunnar kvað það eitt afráðið, að
skip útgerðarihnar, Esjan, Herðu
breið og Herjólfur, mundu ann-
ast strandferðir.
>ó væri viðbúið að nauðsyn-
legt yrði að fá skip til aðstoðar,
og yrði þá án efa gripið til inn-
lendra skipa, en ekki leitað út
fyrir landsteinana. Vitað væri, að
mokkur skip yrðu verkefnalítil
í vetur, og taldi Gunnar ekki
miklum erfiðleikum bundið að
fá íslenzk skip til strandferða.
Þó væri þetta mál ekki komið
á það stig, að farið væri að ráð-
gera sérstaka leigusamninga við
íslenzka aðila. Þá gat Gunnar
þess, að nú væri ljóst að Esjan
yrði lengur i rekstri en ráðgert
var eða allt til ágústloka næsta
sumar.
Kýr drepur
mink
Egilsstöðum, 4. október.
SÁ atburður gerðist á Krossi í
Fellahreppi nú um helgina, að
þar fannst dauður minkur í básn
um hjá einni kúnni. Var hann
með brotið höfuðið og þykir sýnt
að kýrin hafi unnið á honum.
Þetta er í annað sinn, sem mink-
ur er unnin á Héraði, en í fyrra
skiptið var maður banamaður
minksins.
í Bjarnarflagi, og mældist orka
hennar 7 tonn. Kísiliðjan hefur
fengið orku úr þeirri holti frá því
verksmiðjan tók til starfa. Ekki
reyndist það magn þó nægilegt
fyrir verksmiðjuna er til lengd-
ar lét og var því nauðsynlegt
fyrir hana að fá viðbótargufu.
Úr þessu hefur nú verið bætt og
fær Kísiliðjan nú 7 tonn á
klukkutíma úr nýju holunni. í
sambandi við væntainlegt raf-
orkuver, sem verið er að reisa
í Bjarnarflagi, er gert ráð fyrÍT
að þar þurfi 50 tonn af gufu á
klukkustund. Sýnilegt er því að
bora þarf nokkrar holur til við-
bótar, ef slíkt magn á að fást.
Framleiðsla á kísilgúr gekk
sæmilega í september, en þá voru
unnin 400 t. Alls er búið að full-
Framhald á bls. 2
Myndin er tekin ut um gluggann í herbergi því, sem eldurinn kom upp í, og þar sést hvar
Njörður Snæhólm, rannsókna rlögreglumaður kannar verksummerki. (Ljósm: Ól. K. M.)
UNDANFARNA daga hefur ver-
ið hér norðlæg átt og fremur
kalt í veðri. Um síðustu helgi
gerði vonzku hríðarveður og
setti þá iniður töluvert af snjó.
Ekki spilltist þó færð að ráði á
aðalvegum hér. Hins vegar varð
þungfært með iköflum á Mý-
vatnsfjöllum, en snjónum hefur
nú verið rutt af veginum. f sum-
ar hefur verið unnið við borun
eftir gufu í Bjarnarflagi. Upp-
ruualega var ráðgert að bora þar
að minnsta kosti tvær holur til
viðbótar þeim, gem þar voru
fyrir. Nýlega er lokið við að bora
fyrri holuna, 'sem er 1138 metra
djúp. Úr þessari holu fékkst öfl-
ugt gufugos og er árangur bor-
uinarinnar talinn mjög góður.
Gufuorka holunnar er áætluð
13—15 tonn á klukkustund. Hiti
hefur mælzt 281 stig og er þetta
því heitasta gufuhola, sem bor-
uð hefur verið hér á landi.
Árið 1966 var boruð ein hola
SÍLDIN
HORFIN
ÁGÆTIS veður var á síldar-
miðunum í gær og fyrradag,
en engin veiði hefur verið og
er síldin algjörlega horfin að
minnsta kosti í hili. Veiði-
skipin halda sig öll á miðun-
um ásamt síldarleitarskipinu
Árna Friðrikssyni. Búast sjó-
menn við því að síldin láti
sjá sig innan tíðar aftur.
BRENNUVARGUR Á FERÐ
í BORGINNI?
Tvœr meintar íkveikjur í nótt
— fimmta skipti sem grunur leikur
á íkveikju á skömmum tíma
SLÖKKVILIÐIÐ var tvívegis
kallað út í fyrrinótt vegna elds-
voða, og benda verksummerki til
þess að í báðum tilfellum hafi
verið um íkveikju að ræða. Er
engu líkara en brennuvargur sé !
á ferð í borginni, þvi að þetta er
í fimmta skipti á skömmum tíma,
sem verksummerki á brunastað
benda til þess að um íkveikju
hafi verið að ræða. Má þar nefna,
að eldsvoða í Bjarnarborg á
Hverfisgötu, í verzlunarhúsnæði
SiIIa og Valda að Laugaveg 43
og fyrr í haust í Timburverzlun
Árna Jónssonar.
Fyrra útkallið í fyrrinótt var
kl. 02.25, en lögreglan fékk þá
tilkynningu um eld í verzlunar-
og íbúðarhúsinu að Hverfisgötu
49. Þegar að var komið reyndist
vera töluverður reykur í kjall-
araherbergi, og þegar betur var
að gáð, kom í ljós að logaði í
fatnaði og reiðhjóladekkjum, er
voru í herberginu. Eldurinn var
fljótt slökktur en þegar farið var
að huga að eldsupptökum, sást
að gluggi á herberginu var opinn
og vírnet, sem þar átti að vera
fyrir, hafði verið rifið frá.
Um það bil þremur klukku-
stundum síðar barst svo slökkvi-
liðinu tilkynning um eld í mann-
lausum bíl er stóð á Langholts-
vegi á móts við Bæjarleiðir. Tókst
fljótlega að slökkva eldinn, en
talsverðar skemmdir urðu í bíln-
um. Eigandi hans tjáði slökkvi-
liðsmönnum, að hann hefði skil-
ið bílinn eftir vandlega lokaðan,
Franxhald á Ws. 2
Fjallvegir færir
SAMKVÆMT upplýsingum vega
gerðarinnar er ágæt færð um
allt land og víðasthvar búið að
moka snjóinn, sem kom um dag-
inn, Þó er ennþá víða mikil
hálka á vegum. Snjór er víða
mikill á heiðum og lágleindi og
má þar nefna t. d. Holtavörðu-
heiði, Langadal í Húnavatns-
sýslu, Skagafjörð og Hólsfjöll.
Ef hvessir er hætt við að vegir
á þessum leiðum verði fljótlega
ófærir litlum bílum.
Þeir vegir, sem eru lokaðir
eru: heiðin milli Möðrudals og
Vopnafjarðar og svo Axarfjarð-
arheiðin. Allir fjallvegir aðrir
eru yfirleitt færir.
Á Vestfjörðum eru allir vegir
færir, en þó er varhugaverð færð
fyrir litla bíla á Þingmanna-
heiði.
Blikur ekki í strand-
Heitasta gufuhola
landsins í Bjarnarflagi
Framhald á bls. 2