Morgunblaðið - 09.10.1968, Blaðsíða 1
24 SÍÐUR
221. tbl. 55. árg. MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hubert Humphrey ber úbyrgð
ú degi Leifs Eirikssonur
Þess vegna munum við berjast ákaft
gegn kjöri Humphreys, segir forseti
Amerísk-ítalska sögufélagsins
Moskva:
New York, 8. október — AP
AMERÍSK-ÍTALSKA sögu-
félagið hefur hótað því að
valda Hubert Humphrey,
varaforseta, erfiðleikum með
því að „berjast eindregið“
gegn honum í bandarísku
forsetakosninguiium, sökum
þess að hann hafi borið
fram lagafrumvarpið, þar
sem 9. október var gerður að
degi Leifs Eiríkssonar.
„Hversvegna 9. október?“
sagði John Lacorte forseti
félagsins í dag. „Hvers vegna
ekki 12. desember eða 11.
apríl? Hvírs vegna þurfti að
velja dag þremur dögum fyr-
ir Kólumbusardaginn til þess
að heiðra mann, sem rang-
lega er þakkaður fundur
Ameríku?"
Lacorte sagði, að í ágúst
1964, er Humphrey var öld-
ungadeildarþingmaður, þá
hafi hann borið fram frum-
varp, sem hafi, er það var
orðið að lögum, veitt John-
son forseta heimild til þess
að lýsa yfir 9. október sem
Ný réttarhöld yfir
menntamönnum
— Pavel Litvinov á meðal ákœrðu
degi Leifs Eiríkssonar. „Þing
Bandaríkjamanna af ítölskum
stofni getur ekki gengið fram
Moskvu, 8. október NTB
Tveir þekktir menntamenn í
Moskvu koma fyrir rétt á morg-
un, miðvikudag, ákærðir fyrir
að hafa staðið fyrir ólöglegum
mótmælaaðgerðum gegn hernámi
Sóvétríkjanna í Tékkóslóvakíu.
Skýrði opinber sovézkur tals-
maður frá þessu í dag. Þeir, sem
ákærðir eru, eru dr. Pavel Lit-
vinov, sem er barnabarn Mixims
Litvinovs, utanríkisráðherra Stal
ins og frú Larissa Daniel, eigin-
kona rithöfundarins Jili Daniels,
sem nú er í fangelsi. Auk þess-
ara tveggja eru þrír ungir menn
að auki ákærðir í þessu sama
máli, en það er háskólastúdent-
inn Vadim Delone, verkamaður-
inn Vladimir Dremljuga og list-
gagnrýnandinn Konstantin Bab
itskij.
Samkvæmt óopinberum heim
Fylgishrun kommúnista
í finnsku sveitastjórnarkosningunum
Stytta Leifs heppna á Skóla-
vörðuhæð. Verður Leifur
heppni Eiríksson til þess að
fella Hubert Humphrey í for-
setakosningunum?
Helsingfors, 8. október (NTB)
•fc Sveitastjómarkosningar fóru
fram í Finnlandi á sunnudag og
mánudag. Ekki er lokið talningu
utankjörstaðaatkvæða, en þó er
ljóst, að stjórnarflokkarnir fjór-
ir hafa tapað mjög miklu fylgi,
en hægri-flokkarnir unnið á.
ár Mestur er sigur Smábænda-
flokksins undir forustu Veikko
Vennamo. Hlaut flokkurinn nú
7,4% atkvæða, en við sveita-
stjórnarkosningarnar í október
1964 aðeins 1,5%.
★ Fylgið hrundi af kommúnist
um í kosningunum, þvi þeir
hlutu að þessu sinni aðeins
17,2%, en fengu í kosningunum
1964 24,2%. Er talið, að innrásin
í Tékkóslóvakíu hafi átt mikinn
þátt í tapi kommúnista.
Samkvæmt þeim tölum, er
fyrir liggja nú, er hlutfallstala
flokkanna sem hér segir. í svig-
um eru tölurnar frá 1964:
A. Stjórnarflokkar:
Sósíaldemókratar 24,2% (25,3%)
Kommúnistar 17,2% (24,6%)
Miðflokkurinn 19,4% (20,6%)
Vinstri sósíalistar 1,8% ( 2,9%)
Framhald á bls. 23
ildum eru þessi fimm manns
ákærð samkvæmt 190. gr. hegn
ingarlaganna, sem fjallar um
ærumeiðingar gagnvart sovésba
ríkinu og um brot á almanna-
friði og reglu.
Mótmælaaðgerðirnar, sem fólk
ið er ákært fyrir að hafa staðið
að, fóru fram rétt fyrir utan
Kreml á Rauða torginu fimm
dögum eftir innrásina í Tékkó-
slóvakíu. Hin fimm ákærðu hafa
verið í fangelsi frá því að mót-
mælaaðgerðirnar áttu sér stað.
í janúar sl. skoraði Litvinov
og frú Daniel á almenningsálit-
ið í heiminum, að beina athygli
sinni að málsókn gegn fjórum
sovézkum menntamönnum. Tveir
aðalákærðu í það sinn voru Al-
exander Ginsburg og Juli Gal-
anskov, sem voru dæmdir í 5 og
7 ára fangelsi fyrir andróðurs-
starfsemi gegn Sovétríkjunum.
ríkjunum.
Frú Daniel er 38 ára gömul.
Maður hennar var dæmdur í feb
rúar 1966 ásamt bókmenntagagn
rýnandanum Andrej Sinajavski
fyrir andróðurstarfsemi og áróð
ur gegn Sovétríkjunum.
Litvinov er 29 ára gamall,
ókvæntur og búsettuir í Moskvu.
Sá orðrómur gengur, að hann hafi
misst stöðu sína sem fyrirlesari
í eðlisfræði, eftir að hann mót
Framhald á bls. 23
Wilson og lan Smith ræðast við
— Síðasta tilraun til að ná samkomu-
lagi um Rhodesíu
London og Salisbury,
8. okt. — (AP)
HAROLD Wilson, forsætis-
ráðherra Bretlands, og Ian
Smith, forsætisráðherra
Rhodesíu, koma saman til
fundar á morgun, miðvikud.,
um borð í brezka herskipinu
„Fearless“, sem liggur í höfn-
inni í Gibraltar. Er þetta ann
Island fordæmir alla valdbeitingu í
samskiptum ríkja
Nauðsyn að setja nýjar alþjóðareglur
um nýtingu fiskistofna — Rœða Hannesar
Kjartanssonar sendiherra á 23.
Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
HANNES Kjartansson, sendi-
herra íslands hjá SameinuSu
þjóðunum flutti ræðu í gær
á Allsherjarþingi samtak-
anna. í ræðu sinni ræddi
sendiherran m.a. um Tékkó-
slóvakíu, bann við útbreiðslu
á kjarnorkuvopnum, Viet-
nam, deilurnar fyrir botni
Miðjarðarhafsins, borgara-
styrjöldina í Nigeríu, o. fl.
mál. Sagði hann m.a. í ræðu
sinni, að ríkisstjórn íslands
fordæmdi alla valdbeitingu í
samskiptum þjóða. Þá ræddi
hann um nýtingu á auðævum
hafsins og sagði. að þörf væri
á mjög aukinni alþjóðlegri
samvinnu á þeim vettvangi.
í upphafi ræðu sinnar óskaði
Hannes Kjartansson hinum ný-
kjörna forseta allsherjarþings-
ins, dr. E. Arenales Catalán, til
hamingju með kjörið og þakkaði
forseta síðasta þings, Manescu,
utanríkisráðherra Rúmeníu, fyr
ir störf hans í forsetasæti á 22.
Allsherjarþinginu. Síðan sagði
hann:
„Liðið ár hefur verið ár mót-
sagnanna í alþjóðamáluVn, ár
vona, en einnig vonbrigða. Gjörð
samnings um bann við út-
breiðslu kjarnorkuvopna og upp
Framhald á bls. 5
ar fundur forsætisráðherr-
anna frá því Smith lýsti ein-
hliða yfir sjálfstæði Rhodesíu
11. nóvember 1965.
Talið er að þessar viðræður
forsætisráðherranna verði
síðasta tilraunin til að ná
samkomulagi milli stjórná
landanna í þriggja ára deilu
þeirra um stjórnarfar í Rhod-
esíu. Fer stjórn Smiths þar
með völd í umboði 220 þús-
Framhald á bls. 23
Kosygin 1
Finnlandi
Hannes Kjartansson
Helsingfors, 8. okt. (AP—NTB)
ALEXEI Kosygin, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna kom í dag
til Hangö í Finnlandi í boði Uhro
Kekkonens forseta. Ræðast leið-
togarnir tveir við á morgun, og
verður gefin út tilkynning um
þiðræðurnar að þeim loknum. Ekk
ert hefur hinsvegar verið látið
uppi um tilgang heimsóknarinn-
ar.
Kosygin kom til Hangö með
sovézkum tundurspilli, en þang-
að var Kekkonen kominn með
finnskum ísbrjót. Áður en Kekk-
onen fór frá Helsingfors var til-
kynnt að hann ætlaði með ís-
brjótnum til veiða. Koma þeir
Kekkonen og Kosygin til Hels-
ingfors á morgun, miðvikudag.