Morgunblaðið - 09.10.1968, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 09.10.1968, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 196« 3 Húsmóðir lærir að slökkva olíueld. (Ljósm. Heimir iStígsson) Brunatjón á Keflavíkurflugvelli aöeins 50 þúsund krónur í fyrra — Eldvarnarvika á Keflavíkurflugvelli HIN árlega eldvarnavika á Keflavikurflugvelli stendur yfir um þessar mundir. Slökkvilið flugvallarins, undir stjórn Sveins Eiríkssonar, slökkviliðsstj óra, gengst fyrir viðtækri upplýsinga starfsami, þar sem áherzla er lögð á, að koma í veg fyrir elds- voða. Slökkviðlið flugvallarins hefir komið upp víðsvegar á flugvall- arsvæðinu sýningum á slökkvi- tækjum, ásamt upplýsingaspjöld um, með viðeigandi aðvörunar- orðum. Miðaldarúst í Alftafirði f Álftaveri hefur komið í ljós á mel nokkrum, sem blásið hef- uir af, rúúst af bæ, sem Þórður Steinunn R. Thordarson. Tómasson, er hefur athugað þess ar rústir, telur vera frá miðöld- um. Hafi hann líklega lagzt í eyði í Kötluhlaupinu árið 1320. Athugaði Þórður þessar rústir lauslega í sumar og seint í sept- ember gróf hann rúmlega meter niður með grjótvegg í þeim. Virð ist bærinn vera veggjafullur af sandi. Hefur þarna verið ríkmann- lega búið og bærinn stór, að sögn Þórðar. Þar marbar fyrir 3 langhúsum og er eitt þeirra 13x47 m að stærð ‘líklega skáli. Þá liggur hús þvent á þessi, sem er 9x2.60 að stærð, og gæti verið útieldhús. Og e.t.v. er þar hús til norðurs, að því er Þórð- ur telur. Enn einn grunnur er þar, sem snýr frá austri til vest urs og gæti verið bænahús. Fann Þórður þar stein með manna- verkum. Ekki hefur verið graf- ið að gagni í rústir þessar, en þær hljóta a.m.k. að vera merki leg heimild um húsaskipan á þessu svæði. Brunaeftirlitsmenn heimsækja alla vinnustaði og almenna sam- komustaði á flugvellinum og kenna starfsmönnum meðferð sí#íkvitækja og fræða þá um eldhættu. Einn þáttur í þessu víðtæka upplýsingastarfi og fræðslu um brunavarnir, er að heimsækja öll heimili á flugvellinum, ræða við húsmæður og athuga frágang á rafmagns- og hitunartækjum. Leiðir sú athugun oft í ljós, að víða er pottur brotinn í þessum efnum. Sem dæmi má nefna, að brunaeftirlitsmaður varð að taka úr umferð rafknúinn dósa- hníf í einu eldhúsi flugvallarins, þar sem af honum gat stafað íkveikjuhætta. Er þetta nefnt sem dæmi um að jafnvel ein- földustu heimilistæki geta vald- ið eldsvoða, sé ekki allur útbún- aður í fullkomnu lagi. Sérstaklega athyglisverður er sá þáttur í herferð gegn eld- hættu sem slökkviliðið rekur í barna- og gagnfræðaskólum flugvallarins. Er þeirri starfsemi skipt í ákveðna flokka. 1. Brunaeftirlitsmaður flytur erindi um þýðingu brunavarna í hverjum bekk skólans og sýnir meðferð ýmissa slökkvitækja. 2. Efnt er til samkeppni milli barnanna, að teikna auglýsinga- spjald, með efni sem varar við eldhættu. Verðlaun eru veitt í hverjum aldursflokki. 3. Einn nemandi í hverjum bekk er kjörinn „brunavörður" og hlýtur sérstakt .einkennis- merki. 4. Bæklingum um eldhættu og brunavarnir, er dreift meðal nemenda og áróðursmyndir fyr- ir brunavörnum eru sýndar í sjónvarpinu. 5. Nemendum yngri bekkj- anna, er falið að framkvæma eldhættuskoðun á heimilum sín- um í samræmi við hvað þau hafa lært' um þetta efni í skól- anum og gefa síðan brunaeftir- litsmanni skýrslu. Sá nemandi sem gerir beztu skýrsluna, verð- ur gerður að „heiðursfélaga“ í slökkviliði flugvallarins. Brunavarnir á Keflavíkurflug- velli hafa verið mjög til fyrir- myndar, enda hefir slökkvilið flugvallarins hlotið margvísleg- ar heiðursviðurkenningar fyrir störf sín á undanförnum árum. Tíðindamaður Mbl. sem ræddi við Svein Eiríksson slökkviliðs- stjóra um þessi mál, spurði hvort öll þessi fyrirhöfn svaraði kostnaði. Sveinn taldi, að aldrei væri of mikið gert af þvi að fræða almenning um eldhættu, enda væri eldhætta á heimilum manna algengari heldur en fólk almennt gerði 'sér grein fyrir. Nefndi hann sem dæmi um al- genga eldhættu á heimilum: Loklaus ílát, sem ekki væru eldtraust, væru notuð til að safna í rusli, svo sem plastföt- ur, pappírspokar o.s.frv. Teng- ing á raftækjum væri ekki rof- in eftir notkun. Millistykki væru notuð til að tengja mörk raftækni á eina rafdós og raf- kerfið því ofhlaðið. Framleng- ingarsnúrur vseru lagðar undir gólfteppi, en slit á einangrun gæti ollið skammhlaupi. Fóllk gerði sér ekki grein fyrir undan- komuleið ef til dæmis eldur kviknaði í forstofu ,eða stiga- gangi. Brunatjón af eldsvoða á Kefla víkurflugvelli á síðastliðnu ári nam aðeins tæpum 50 þúsund krónum. Taldi Sveinn, að hversu smávægilegt þetta brunatjón hefði orðið, væri að þakka stöð- ugu eftirliti slökkviliðsins á vinnustöðum svo og þeim áróðri fyrir brunavörnum, sem rekin er árlega á eldvarnaviku slökkvi liðsins. — BÞ. Arve Tellefsen Norskur liðluleikari með Sinfóníuhljómsveitinni STAKSTEIMAR Brezhnev- kenningin Bandaríska blaðið „New Tork Times“, birti fyrir nokkru for- ustugrein um afstöðu Sovétríkj- anna til annarra kommúnistaríkja og segir þar m.a.: „Nýjasta til- raun Kremlverja til þess að rétt læta innrásina í Tékkóslóvakíu er enn ein vísbending um að Stalínisminn er á uppleið á ný í Moskvu. Fyrri tilraunin til að halda fram að innrásin hafi ver- ið gerð samkvæmt beiðni áhrifa- m'ikUla aðila í ríkisstjórn og kommúnistaflokki Tékkóslóvakíu hefur verið hætt. í þess stað heldur Pravda nú frammi nýrrl kenningu, sem kenna verður við Hrezhnev, þótt sama afstaða hafi einkennt ruddalega kúgun Ung- verja 1956. Kjarni þessarar kenn ingar er sá, að kommúnistaríki búi hvorkí við sjálfstæði né yfir ráð yfir landi sínu, að Sovét-, ríkjunum sé hvenær sem er heim ilt að senda hersveitisr inn í önn ur kommúnistaríki til þess að hafa eftirlit með stjómum þeirra. Pravda víðurkennir með þessum hætti að þessi kenning sé and- stæð öllum grundvallarreglum alþjóðarétti, svo ekki sé talað um stofnskrá Sameinuðu Þjóðanna. Þetta felst í gagnrýni á þá, sem hafa „afstæða, stéttlausa afstöðu til spurningarinnar um sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt þjóða.** t Pravda vill að þetta fólk skilji að orð þýða það sem Moskva segir að þau þýði, ekki það sem orðahækur allra tungumála segja að þau þýði“. Aukið kalt stríð „Rök og lög koma Brezhnev- kenningunni ekki við. Veröldin hefur verið aðvöruð um það, að varðveita heimsveldi sitt, hvað sem líður óskum fólksins í lepp- ríkjum þeirra. Moskva segir okk ur, að Tékkóslóvakar, Pólverjar A-Þjóðverjar og aðrar þjóðir kommúnistanna, sem að nafninu til búa við sjálfstæði, hafi jafu lítinn rétt til að ráða málum sínum sjálfir og fólkið í Ukra- ínu, Uzbekistar, Armeníu, Georg íu og aðrir þegnar Sovétrikj- anna. Það er sovézkt hervald, sem gerir Sovétríkjunum kleift að gefa út slíka dagskipan og framfylgja henni. Sú staðreynd, Steinunn Thordarson látin, 102 ára gömul Látin er ein elzta kona lands- ins frú Steinunn R. Thordarson, 102 ára gömul, fædd 20. júlí 1866 á Gemlufalli við Dýrafjörð. Frú Steinunn var fyrri hluta æf innar á Vestfjörðum. Giftist þar manni sínum Finni Thordarson, sem þá vann við Gramsverzlun á Þingeyri, en síðar hjá Pétri rrhorsteinsson í Bíldudal, unz hiann keypti fyrirtæki Þorsteins Thorsteinssons kaupmanna á ísa firði. Á öllum þessum stöðum rak frú Steinunn R. Thordarson stórt rausnarheimili, en á fsa- firði byggði maður hennar eitt stærsta og glæsilegasta hús, sem þá var tiil á Vestfjörðum, til íbúð ar og verzlunar. Árið 1927 fluttu þau hjónin til Reykjavíkur og missti Steinunn mann sinn fá- um vikum seinna. Þau áttu fjög ur börn og fósturdóttur. AÐRIR tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar fslands á þessu starfsári verða nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30 í Háskólabíói. Stjórnandi er Sverre Bruland, en einleikari landi hans Arve Tellefsen. Tell- efsen er þegar í hópi fremstu fiðluleikara á Norðurlöndum og þykir lofa miklu um framtíðina. Hann hefur unnið til verðlauna, sem kennd eru við Ástríði prins- essu og auk þess Harriet Cohen verðlaunin. Mestu skipta samt hinar frábæru móttökur, sem leikur hans fær í tónleikasöl- um stórborganna. Hér mun Arve Tellefsen leifca fiðlukonsert Sibeliusar. Sibelius var sjálfur fiðluleik- ari og kenndi fiðluleik og tón- fræði fyrstu árin við Tónlistar- háskólann í Helsingi. Konsertinn ©r í eðlj sínu af sama toga og fyrstu sinfóníur Sibeliusar, laus við allar yfirborðs leikbrellur. Önnur verk á efnisskránni eru „Rómverski karnevalinn“ for- leikur takmarkalausrar lifsgleði eftir Berlioz og Sinfónia nr. 2 eftir Dutilleux. Dutilleux er með þekktari tónskáldum Frakklands. Hann semur verk sín af sams- konar litagleði og t. d. Roussel og reynir að halda tryggð við aldagamla tónlistarhefð lands síns án þess að leiða hjá sér nokkurt nýnæmi samtímaskáld- skapar. Sinfónían er samin tfyrir stóra hljómsveit og aðra minni, sem DutiHeux kallar „lítinn konsert“ og er verkið því að ytra búnaði áþekkt „concerto grosso“. Hún er samin í minn- ingu Sergei og Natalie Kousse- vitzky fyrir tæpum 10 árum. að Sovétríkin reiði sig svo mjög á herveldi sitt og sýna algjöra fyrirlitningu á lögum og rétti, vekur upp ótta um það, að ein- hverntima renni upp sá dagur að Moskva komist að þe’irri nið- urstöðu að sjálfstæði rikja, sem búa ekki við kommúniskt stjóra arfar, sé einnig túlkað of af- stætt og ekki sé nægilegt tillit tekið til stéttarsjónarmiða. Af- léiðingin hlýtur að vera sú, að kalda stríðið vex á ný, tilraunir til að stöðva vopnakapphlaupið bíða hnekk og þær hættur, sem þessari jörðu aukast mjög.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.