Morgunblaðið - 01.11.1968, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.11.1968, Qupperneq 1
28 SIÐUR Yfirlýsing Johnsons Bandaríkjaforseta r nótt: Loftárúsum ú N-Vietnam hætt Friðarráðstefna í París 6 og Saigonstjórnarinnar JOHNSON forseti tilkynnti í ávarpi til bandarísku þjóð- arinnar í nótt að öilum loftárásum á Norður-Vietnam yrði hœtt frá og með kl. 13 í dag að íslenzkum tíma. Forsetinn kvaðst hafa tekið þessa ákvörðun í samráði við helztu sér- fræðinga sína í hermálum og ríkisstjórnir allra þeirra landa, sem berjast við hlið Bandaríkjamanna í Vietnam í þeirri trú að þessi ráðstöfun gæti stuðlað að friðsamlegri lausn Vietnamdeilunnar. Hanoi-stjórninni hefur verið skýrt frá þessari ákvörðun og samningaviðræður munu hefjast á þessum grundvelli í París 6. nóvember með þátttöku ríkisstjórnar Suður-Viet- nam. Viet Cong verður einnig boðið að taka þátt í þessum viðræðum, en þar með komast tilraunirnar til að binda enda á styrjöldina á nýjan grundvöll. . nóvember Johnson forseti Forsetinn sagði í ræðu sinni, að þess væri að vænta að skjótar, árangursríkar og alvarlegar samningaviðræður gætu hafizt í andrúmslofti, sem hlyti að stuðla að því að áfram miðaði í samkomulags- átt. Johnson sagði, að þegar hefði nokkur framför átt sér stað og ýmislegt benti til þess að Hanoi-stjórnin væri reiðu- búin til viðræðna um áþreif- anleg atriði. En forsetinn sagði að enn væri þörf róiegrar festu og þolin- mæði, og hugrekkis, staðfestu og þrautseigju heima fyrir til jafns við það sem hermenn Banda- ríkjamanna sýndu í Vietnam. Forsetinn flutti ávarp sitt frá Hvíta húsinu. Skömmu áður hélt hann eins og hálfs klukku- tíma fund með helztu ráðunaut- um sínum í öryggismálum, varn armálum og utanríkismálum. Áður en hann hélt ræðu sína skýrði hann frambjóðendunum í forsetakosningunum, Hubert Humphrey varaforseta, Riehard Nixon og George Wallace frá ákvörðun sinni. Einnig skýrði hann þingleiðtogum beggja flokka frá ákvörðuninni i sima. Ezra Pound. T. S. Eliot. ri’iimhnnrlritift o? i Thn U/ooto rrumnanoniio ai i „1116 wasie Land“ eftir Elliol t komið fram með þátttöku Viet Cong Forsetinn hyggst skýra sigur- vegaranum í forsetakosningunum sem fram fara á þriðjudaginn nákvæmlega frá atburðum þeim sem leiddu til ákvarðanarinnar, strax eftir kosningarnar, ef til vill á búgarði sínum í Texas. Flestir stjómmálafréttaritarar hafa spáð algerri stöðvun loft- árása og auknum friðarvonum í kjölfarið. Þeir telja, að ákvörð- unin muni óefað bæta vígstöðu Hubert Humphreys í forsetakosn ingunum, en þar sem hann stend ur enn verr að vígi en Nixon er spumingin sú hvort hún nægi til að tryggja honum sigur. VARAR VI® HÆTTU. f ræðu sinni sagði Johnson að öllum sprengjuárásum á Norð- ur-Vietnam, loftárásum, stór- j skotaárásum og árásum herskipa yrði hætt. Hann tók fram að nokkur áhætta væri samfara á- kvörðuninni og sagði að ef Norð- ur-Vietnamar brytu í bága við skilmála Bandaríkjamanna yrði gripið til gagnráðstafana, t.d. ef vopnlausa svæðið yrði misnot- að, ef ráðizt yrði á borgir eða fylkishöfuðborgir eða ef Norður- Vietnamar neituðu að hefja fljótt alvarlegar viðræður. Það skilyrði var einnig sett að Suður-Viet- namstjórn ætti aðild að viðræð- unum. Ekki er ljóst hvernig þátt töku Viet Cong verður háttað. G/eð/ og léttir BLAÐAMAÐUR Morgunblaðsins Ingvi Hrafn Jónsson, símaði í nótt frá Madison I Wisconsin: Þegar Johnson forseti flutti sína mikilvægu sjónvarpsræðu í nótt , hafði maður á tilfinningunni, að ! hann væri að flytja þjóð sinni mikilvægustu ákvörðunina i stjórnartíð sinni. Hann virtist mjög einlægur, og þó fannst okk- ur allan tímann, að hann væri að ávarpa þjóð sina í síðasta sinn. í ræðu sinni lagði forsetinn á- herzlu á það, að hann hefði í allt sumar eytt verulegum tíma emb- ættisstarfa sinna í að berjast fyrir árangri samningaviðræðna í Viet nam-málinu. En hann varaði samt fólk við of mikilli bjartsýni, því að enn væru ýmsir farartálmar framundan. Strax í gær voru rniklar vanga veltur hér um boðskap forsetans því að fréttastofur höfðu áður birt fregnir um fyrirhugaða sjón varpsræðu Johnsons og að hann mundi e.t.v. skýra frá stöðvun loftárása á N-Vietnam. Þá strax kenndi Iéttis og gleði meðal hinna almennu borgara, því að Viet— nam-stríðið hefur verið sá mar- traðarbaggi, sem þyngst hefur hvílt á bandarisku þjóðinni. Og nú talar fólkið um að þetta hafi verið kraftaverkið sem Humphrey var að bíða eftir, og hann hafði talað um að kæmi 5. nóvember. En hvað um það — trúlegt þykir mér að nú hugsi Bandaríkjamenn hlýlega til frá- farandi forseta, sem svo mikill styrr hefur annars staðið um. Blaðtunenn í Prng bera fram kröfur Prag, 31. október. NTB. Blaðamannasamband Tékkó ) slóvakíu krafðist í dag betra I sambands við yfirvöld og auk ins aðgangs að upplýsingum ' um atburði um leið og þeir | gerast. Blaðamenn hafa ákveð , ið að skipa nefnd til að rann- , saka • „hvíta bók“ sovézkra Framhald á bls. 27 RISASKIP Bantry Bay, írlandi, 29. okt. (AP). STÆRSTA skip heimsins, oliu- flutningaskipið „Universe Ire- land“ kom í dag til Bantry Bay á írlandi með hráolíufarm frá Kuwait. Skip þetta er 312.000 tonn, og smíðað í Japan fyrir Gulf olíufélagið. Á skipinu er 52 manna áhöfn. Njósnamálið í Bonn: Var keypt ásamt fleiri handritum skáldsins með leynd fyrir tíu árum af The New York Public Library Fréttaritari Ceteka neitar sakargiftum KOMIÐ er í ljós, að frum- handriti T. S. EHots að ljóði hans, „The Waste Land“, sem hefur að geyma umfangsmikl ar útgáfubreytingar af hálfu Ezra Pounds, hefur verið haldið leyndu í The New York Public Library í tíu ár. James W. Henderson, yfir- maður rannsóknarstofnan- anna bókasafnsins, skýrði frá því fyrir nokkrum dögum, að handritið, sem margir fræði- menn héldu, að hefði verið eyðilagt samkvæmt ósk Eli- ots, hefði verið keypt ásamt ýmsum öðrum upprunalegum verkum eftir skáldið fyrir 18.000 dollara. Það var frú Thomas F. Conroy, frænka Johns nokk- urs Quinns, sem er látinn, en var lögfræðingur í New York, er komst yfir þessi verk, en á meðal þeirra eru að minnsta kosti 36 kvæði, sem ekki hafa verið gefin út áður. A laugardaginn var gaf frú Conroy ofangreindu bóka- safni persónulegt bréfasafn frænda síns, en hann hafði skrifazt á við marga fræga rithöfunda og listamenn, þar á meðal Eliot og Pound. Frú Conroy vildi, að ofan- greint bókasafn fengi bréfa- safnið, en fór fram á það, að það yrði fyrst notað í sam- bandi við að semja ævisögu Quinns, frænda hennar. — Leyfði hún aðeins, að safnið yrði notað af B. L. Reid, próf essor við Mount College í Massachusetts, unz hann hefði lokið bók sinni „The Man From New York — John Quinn and His Friends", en sú bók kemur út hjá Oxford University Press 7. nóvember. SKÝRIR LEYNDINA Henderson skýrði frá þvi, að bókasafnið hefði ekki til- kynnt um kaupin á handrit- um Eliots 1958, sökum þess, að það hefði orðið til þess, að fræðimenn hefðu þá farið að forvitnast um annað, sem bókmenntalegt gildi hefði og Quinn hefði safnað. „Við vissum, að safn Quinns barst safninu í hendur með ákveðnum skilyrðum“, sagði Framhald á bls. 5 Bonn, 31. október. NTB. Yfirheyrslum yfir aðalfrétta- ritara tékkóslóvakísku frétta- stofunnar Ceteka, dr. Otakar Svercina, sem grunaður er um njósnir, var haldið áfram í dag, en hann heldur fast við það að hann sé saklaus. Hann sagði blaðamönnum að loknum yfir- heyrslum í dag, að vestur-þýzka öryggislögreglan hefði sakað hann um að hafa staðið í nánu sambandi við stjórnmálamenn í Bonn, en sagði að það gætu ekki talizt njósnir heldur liður í blaðamannsstarfi hans. 4 Grunur hefur fallið á Sver- china vegna handtöku Josef Ad amek, starfsmanns austurrísku blaðaþjónustunnar, sem talið er að Svercina hafi ráðið til njósna starfa, þegar hann var fréttarit- ari Ceteka í Vín. Rannsóknin í máli Svercina er liður í umfangs miklum aðgerðum vegna fjölda njósnamála, sem komizt hefur upp um í Vestur-Þýzkalandi að undanförnu og leitt hafa til margra sjálfsmorða. Njósna- hneykslin náðu hámarki þegar upp komst um þjófnað á Side- winder-eldflaug, sem send var i pakkapósti til Moskvu. Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.