Morgunblaðið - 01.11.1968, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.11.1968, Blaðsíða 3
MORGU'NBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1968 3 Ingvar Ágústsson við kranann. Rétt hægra megin við manninn til vinstri á myndinni sviðn' aði jörðin og sjá má loftlausa hjólbarða kranans. Framhald á bls. 7 LU Samtal v/ð Helga Gestsson, félaga hans og rafmagns- öryggiseftir- litsmann — Ég gæti trúað því að tilfinningin væri eitthvað í líkingu við að vera aflífaður í rafmagnsstól. Ég hef einu sinni séð slíkt atriði á kvik- imynd ©g eflaust er það eitt- hvað svipað — sagði Helgi Gestsson er við heimsóttum hann í Landsspítalann í gær, en þar lá hann eftir raflost sem hann fékk í fyrradag, er bómuvír á krana slóst í há- spennuvír. — Þetta mun ekki hafa staðið nema í nokkrar sek- úndur. Hemlarnir frusu fastir og kraninn rann að raflín- unni. Ég gerði mér grein fyr- ir þvi, sem var að gerast og hljóp út, en þegar vírinn kom aðeins í annan háspennu- strenginn hélt ég mér væri Helgi Gestsson á sjúkrahúsinu í gær. Hjá honum situr móðir hans, Elsa Guðmundsdóttir. Ljósm. Ól. K. M. 'óhætt og ætlaði aftur í kran- ann. Þá fékk ég lostið. Ég fann fyrir straumnum töluvert áður en ég greip í handfangið. Við lostið bogn- aði ég í keng og datt á jörð- ina. Ég man að ég kallaði til Ingvars Ágústssonar, sem vann þarna með mér og bað hann um að draga mig frá kassanum. Það fór undarleg- 'ur fiðringur um mig allan og ég get ekki ímyndað mér að það líkist neinu öðru en því að vera settur í rafmangs- stólinn. Ég var á leðurkloss- um og brenndist á iljum, svo að flytja verður til hú'ð og 'græða við fæturna. — Þegar Ingvar dró mig frá fékk hann einnig raflost. Það er skrítið ,en ég er sann- færður um að ófeigum verð- ur ekki í hel komið. Það er skrítið hvað menn sleppa oft. Móðir Helga, Elsa Guð- mundsdóttir, er var í heim- sókn hjá syni sínum í sjúkra- húsinu greip nú fram í og sagði — Þetta er heldur ekki í fyrsta skipti, sem þú hefur lent í hættu. Fyrir nokkrum árum, er þú vannst á Vellin- um straukst málmkrókur rétt við 'höfuðið, svo að þú fannst þytinn af honum. Þessu tali eyðir Helgi. — Hann er augsýnilega hlédræg ur og vil'l ekkert láta tala um sig að ráði. Eftir kynni okkar af honum virtist hann aðeins kappkosta að komast sem fyrst á fætur, svo að hann gæti farið að vinna fyr- ir konu og fimm ungum börn um. Þá hittum við Ingvar Ágústsson að máli, þar sem hann var að vinna á svæði Þungavinnuvéla — á slys- stað. Kraninn stóð í námunda við slysstaðinn. Honum hafði 'aðeins verið snúið við. Hjól- barðar voru sprungnir, en að öðru leyti sagðist Ingvar halda að kraninn væri í lagi. Ingvar sagði: — 1 fyrstu vissi ég vart hvað var að gerast. Ég fann skyndilega að ég festist við jörðina. Ég reyndi að koma mér úr sporunum, en fiðring- ur fór um mig allan og þó ■sérstaklega fæturna. í raun- inni veit ég ekki hvað gerð- ist. Ég man að ég dró Helga frá krananum, en hann lá í um Iþað bil eins r/ieters fjar- lægð frá honum l hnipri. I fyrstu hélt ég að ég hafi 'hrokkið aftur á bak og í hring og jörðin virtist titra. Síðan heyri ég hvernig hver hjól- barðinn á fætur öðrum sprakk og hvinur heyrist, þeg •ar loftið lak út. Ég sljóvgað- ist svo, að ég man ekki hvort Helgi fór úr krananum og í hann aftur og persónulega held ég að hann hafi blátt áfram dottið út úr honum. — Rafveitumenn voru að vinna hér rétt hjá og komu þeir strax, hringdu niður í Elliðaárstöð, en hvað þeir voru að gera veit ég ekki, lík- legast að biðja um að straum urinn jrrði rofinn. Þá var ég svo máttfarinn að ég gat ékki staðið upp. Ég hef unnið við þetta allt frá því er ég var 13 ára og oft hef ég fengið raflost, en þetta á engan sinn TAKIÐ VEL EFTIR. OPIÐ TIL KL. 4 Á MORGUN LAUGARDAG. HLJÓMAR OG SHADIE OWENS AFGREIÐA E. H. Á KJÓLAR FRÁ LEE CECIL, LONDON ★ hettukápur m/LOÐKRAGA ★ KÁPUR ÚR TWEED ★ STAKAR BUXUR ÚR TWEED ALLAR FÓÐRAÐAR Á BUXNADRAGTIR M/STUTTJAKKA ★ PEYSUR í ÚRVALI <§>KARNABÆR TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS — SÍMI — 12330. HVAÐA VÖRUR ERU TEKNAR UPP í DAG ??! ★ FÖT Á DRENGI í ÚRVALI ★ FÖT Á HERRA ★ BUXUR ÚR TWEED EFNUM, ALLAR FÓÐRAÐAR ic STUTTJAKKAR I MIKLU ÚRVALI ★ STAKIR JAKKAR NÝ SNIÐ. DOMUDEILD HERRADEILD STAKSTEINAR Húsnæðismál og velferðarríki Sl. miðvikudagskvöld sýndi sjónvarpið kvikmynd, sem sögð er byggð á sannsögulegum at- burðum í Bretlandi og sýndi hlutskipti ungra hjóna, sem lentu í húsnæðiserfiðleikum. Mynd þessi var mjög áhrifamikil og sýndi fram á ógnarlegt ástand í húsnæðismálum í Bretlandi. Raunar má fullyrða, að það sé ekki verra þar en víðast hvar annars staðar í stórborgum. Það er vissulega gagnlegt fyrir ís- lendinga að kynnast með þess- um hætti vandamálum fólksins í stórborgunum. Vafalaust hafa margir þeir, sem hafa verið óspar ir á gagnrýni á ástand húsnæðis- mála hér á landi varpað önd- inni léttar og fagnað því að búa á landi eins og Islandi, þar sem vandamál eins og þau sem mynd in sýndi þekkjast varla. Það er einnig fróðlegt fyrir íslendinga að sjá hvernig lífið í stórborg- unum raunverulega er og kom- ast að raun um, að stórborgim- ar hafa ýmsar aðrar hliðar en þær sem snúa að íslenzkum ferðamanni, sem þangað kemur, oftast í verzlunarerindum. Fá- mennið hér á landi hefur sína galla, en það hefur einnig sína kosti eins og sjá mátti í um- talaðri kvikmynd. En þessi kvik mynd leiddi einnig hugann að öðru. Hvar er „velferðin?" Þessi kvikmynd gaf nefnilega fyllilega í skyn, að hjálparkerfi velferðarrikisins hefði annars vegar stuðlað að því að eyði- leggja hjónaband þeirra ungu hjóna, sem myndin fjallaði um og einnig valdið stórskaða á per- sónu og skapgerð unga fólksins ekki sízt konunnar. Vafalaust er þessi kvikmynd töluvert ýkt mynd af þeim raunverulegu at- burðum, sem hún átti að sýna, en engu að síður vaknar sú spurning, hvort velferðarstarf- semi í nútimaþjóðfélagi verði raunverulega til þess að skapa „vandræða“fólk úr ungu fólki, sem aðeins hefur lent í erfið- leikum eins og svo margir aðrir á lífsleiðinni. Er velferðarríkið og „hjálpar“starfsemi þess að- eins hjartalaust færiband, sem smátt og smátt eyðileggur fórn- ardýr sín — þau sem kerfið átti að bjarga? Þetta er að vísu ekki raunhæf spurning fyrir okkur á þessu landi. Félagslegt starf er smátt og smátt að taka á sig nú- tímalegt snið og fámennið gerir það að verkum, að betur er hægt að sinna hverjum og einum sem aðstoðar leitar. Samt sem áður er þarna augljós hætta, sem hafa verður í huga og varast. En fyr- ir stórþjóðirnar með hið gífur- lega mannhaf hlýtur þetta að vera hrennandi spurning og hætt er við, að þegar málið er skoðað ofan í kjölinn sé ekki allt sem skyldi í velferðarríki nútímans. Húsnæðisvandamál hérlendis Húsnæðisskortur í þeirri mynd„ sem við kynntumst í fyrr nefndri kvikmynd er svo til óþekktur hérlendis nú. En gleym um því ekki að það eru ekki ýkja mörg ár síðan fólk bjó í hröggum í stórhópum og enn býr fólk í Höfðáborg og öðru hús- næði, sem ekki getur talizt íbúð- arhæft skv. þeim kröfum, sem gerðar eru hér á landi nú. Vanda málið er þó orðið svo takmark- að, að okkur hættir til að gleyma því. Látum hina átakan- legu kvikmynd, sem sjónvarpið sýndi verða til þess að minna okkur á, að enn eru óleyst verk- efni í þessum efnum á okkar landi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.