Morgunblaðið - 01.11.1968, Page 14

Morgunblaðið - 01.11.1968, Page 14
14 MORGU'NBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1968 Útgefiandi I'ramkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstj ómarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgrei'ðsla Auglý-singar Askriftargjald kr. 130.00 í lausasölu Hf. Árvakur, Rey-kjavík. Haraldur Sveinsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árn-i Garðar Kristinsson, Aðalstræti 6. Sími 10-100. Aða-lstræti 6. Simi 22-4-80. á mánuði innanlands. Kr. 8.00 eintakið. HEFJUM NÝJA FRAMFARASÓKN að kemur æ betur í ljós með hverjum deginum sem líður, hve alvarlega horfir í efnahags- og atvinnu- málum íslendinga. Nú er tal- ið, að útflutningstekjur lands manna á þessu ári verði 42% minni en á árinu 1966 og sjá allir hvílíkt afhroð þjóðin hefur beðið á þessum tveim- ur árum végna verðfalls, afla- brests og söluerfiðleika. Nú er unnið að undirbúningi óhjákvæmilegra efnahagsráð- stafana og má fullvíst telja, að landsmenn taki þeim af skilningi. En jafnvel þótt illa ári nú og þjóðin verði að taka á sig töluverða kjaraskerðingu af þeim sökum mega erfiðleik- arnir þó ekki verða til þess, að landsmenn missi kjarkinn og fyllist svartsýni á eigin hag og framtíð þjóðarinnar. Þvert á móti ber okkur að snúa hinum miklu erfiðleik- um í nýja sókn til aukinna framfara og uppbyggingar í landinu. Við getum margt af þeim erfiðleikum lært, sem nú hafa dunið yfir. í fyrsta lagi leiða þeir í ljós réttmæti þess, að breikka verði grund- völl atvinnulífsins, þannig að þjóðarbúið fari ekki úr skorðum, þótt neikvæðar sveiflur verði í einstökum atvinnugreinum. í öðru lagi undirstrika þeir nauðsyn þess, að þjóðin safni sjóðum í góðæri en eyði ekki öllu því, sem þá aflast á samri stundu. Nú verður að gera ákveðn- ar ráðstafanir til þess að tryggja atvinnuvegunum rekstrargrundvöll á nýjan leik, tryggja næga atvinnu í landinu og bæta stöðu lands- ins út á við. En jafnframt og samhliða ber að hefja nýja stórsókn til uppbyggingar nýrra atvinnugreina og efl- ingar þeirra, sem fyrir eru. Iðnaðarmálaráðherra hefur þegar átt mikilvægar viðræð- ur við forráðamenn Sviss- neska álfélagsins um auknar framkvæmdir í Straumsvík og ýmsar aðrar stóriðjufram- kvæmdir eru í athugun. Þá líður senn að því, að ákvörð- un verði tekin um umsókn um aðild að Fríverzlunar- bandalagi Evrópu og náist samningar við það opnast ís- lenzkum iðnaði tækifæri til nýrrar framfarasóknar og uppbyggingar stórfellds út- flutningsiðnaðar. Nýlega hef- ur verið birt skýrsla nefndar, sem unnið hefur að athugun- um á aukinni fjölbreyttni í framleiðslu fiskafurða og sýnir þessi skýrsla glögglega, að miklir möguleikar eru í þeim efnum. Það er því engin ástæða til óhóflegrar svartsýni, þótt erfiðlega gangi um sinn. Hvarvetna blasa við ný tæki- færi á atvinnusviðinu og þau tækifæri er hægt að nýta, ef viljinn er fyrir hendi. Hver og einn verður að vísu að sætta sig við nokkra kjara- skerðingu um sinn, en þeim mun meiri ástæða er til að takast á við þau verkefni, sem úrlausnar bíða, með djörfung og bjartsýni. Við skulum herða upp hugann og hefjast handa um nýja fram- farasókn og láta stundarerfið- leika engin áhrif hafa á vilja og staðfestu þjóðarinnar í þeim efnum. VANDAÐ LAND- KYNNINGARRIT IT'yrir nokkrum árum hóf * göngu sína tímaritið „Iceland Review, sem gefið er út á ensku og fjallar um ísland, íslenzk málefni og ís- lenzkar framleiðsluvörur. Síð an útgáfa tímaritsins hófst hefur útbreiðsla þess aukizt stöðugt og er það einróma álit allra þeirra, sem með einum eða öðrum hætti starfa að málefnum íslands og ís- lenzkra atvinnuvega á er- lendri grund, að tímarit þetta sé svo vandað að frágangi og efni, að mikill fengur sé að því og útgáfa þess stuðli mjög að aukinni þekkingu á íslandi erlendis og aukinni sölu á ís- lenzkum framleiðsluvörum á erlendri grund. Þar til fyrir tveimur árum áttu útflutningsatvinnuvegir þjóðarinnar í engum erfið- leikum með að selja fram- leiðsluvörur sínar erlendis en síðustu tvö ár hefur sem kunnugt er orðið mikið verð- fall erlendis og töluverðra söluerfiðleika hefur gætt á sumum mörkuðum a.m.k. Þegar þannig árar er þeim mun nauðsynlegra að efla allt sölustarf erlendis og kynningarstarf, því að aukin þekking erlendis á íslandi stuðlar mjög að sölu ís- lenzkra afurða. Einn liður í slíku kynning- ar- og sölustarfi er tvímæla- laust útgáfa svo vandaðs rits sem „Iceland Review” er og þess vegna ber að leggja ríka áherzlu á stóraukna dreifingu þess. í þeim efnum geta bæði utanríkisþjónustan og út- UKYMSm Læknar þurfa námskeið í lyfjagjöfum og lyfjagreiningu — á 10 ára fresti NÝLEGA var haldin alþjóð- leg ráðstefna lækna, lyfja- fræðinga og lyfjasala í Genf í Sviss. Þar var einkum rætt um fyrirkomulag á lyfjagjöf- um og aðferðir lækna við greiningu sjúkdóma og lyfja- gjafir í samræmi við það. Próf. A. G. Gregor frá há- skólanum í Aberdeen sagði á ráðstefnunni, að það væri Vit- að mál að eftir því sem lækn- ar .gerðust eldri yrðu þeir íhaldssamari í lyfjagjöfum. Margir tóku undir mál pró- fessorsins og var ein helzta niðurstaða ráðstefnunnar, að brýna nauðsyn bæri til að skylda hvern lækni til að taka aukanámskeið í lyfja- meðferð og lyfjagjöfum á fimm til tíu ára flesti. Að vísu hefur verið reyn-t að koma þessu á sumsstaðar, en hefur ekki gefið jafn góðan árangur og menn skyldu ætla og var þar að sögn ráðstefn- unar aðallega við læknana sjálfa að sakast, þar sem þeir sýndu málinu hvergi nærri nógan áhuga. Landlæknir Noregs hélt ræðu á ráðstefnunni og vék þá meðal annars að því, að meðal notkunartími hver® ein staks lyfs væri varla lengri en fimm ár. Jafnan er til- kynnt með faignaðarlátum og lúðrablæstri þegar ný lyf og árangursrík eru tekin í notk- un, en á hinn bóginn er öllu hljóðara um það, þegar lyfið fer að gerast úrelt og er tek- ið af lyfjaskrá. Landlæknir- inn sagði, að venjulegur læknir ætti raunar mjög örð- ugt um vik að fylgjast með því hvaða ný lyf kæmu á markaðinn og því hylltust sömu lyfin árum saman, jafn- margir til að halda sér við vel þó að mörg fullkomnari væru þá löngu komin á al- mennan lyfjamarkað. Margir læknar eru svo störfum hlaðn ir, að þeim gefst hvorki tími né aðstaða til að fylgjast ná- ið með nýjum lyfjum o-g þeim framförum, sem hafa orðið í lyfjaframleiðslu á allra síð- ustu árum. Því er ekki heldur að leyna, að tröllatrú ýmissa lækna á ákveðnum lyfjum hefur staðið farsælli og eðli- legri þróun nokkuð fyrir þrif- um. Þar sem læknar verða varkárari í lyfjagjöfum með aldrinum ,ein/s og getið hefur verið, blasir einnig sú hætta við, að lyfjagjafir þeirra verði alltof einhliða. Á ráðstefnunni vakti ræða prófessors Oheymols frá París mikla atihygli, en hann sagði ,að í Frakklandi væri trú á hvers konar lyfjum að verða nokkurskonar þjóðar- sjúkdómur. Meðalfjölskylda í Frakklandi eyðir mestum pen ingum í lyf næst á eftir fæði og fötum. Hann sagði, að mörg lyf sem væru í umferð í Frakklandi væru löngu talin úrhelt og gagnlítil, en gefin eingöngu vegna óihemju lyfja löngunar fólks og til sefjun- ar. Prófessorinn sagði, að al- menningsálitið í mörgum löndum væri að þróast í þá átt, að borgarar teldu það sjálfsagða skyldu 'heilbrigðis- yfirvalda viðkomandi landa að ábyrgjast gott heilsufar borgaranna. Góð heilsa er ekki lengur guðsgjöf, heldur sjálfsöigð krafa í velferðar- ríkjum nútímans. (Þýtt og endursagt) Flugvélarnar voru heldur ófullkomnar á fyrstu dögum farþegaflugsins, eins og sjá má á þess- ari mynd. Þessi vél er af gerðinni de Havilland DH 9, sem DDL hafði í þjónustu sinni 1920. DDL - danska flugfélagið 50 ára DDL — danska flugfélagið, sem er eitt hinna norrænu flugfélaga, er standa að SAS, átti 50 ára af- mæli sl. þriðjudag, en það var stofnað hinn 29. október 1918. Mun það vera elzta flugfélag ver- aldar. Fyrsta áætlunarflugið var flutningssamtökin hver á sínu sviði unnið mikið starf, enda útgáfa tímaritsins bein- línis í þágu þessara aðila. Slík tímarit eru gjarnan gef- in út af opinberum aðilum í öðrum löndum, en hérlendis hafa tveir ungir menn haft frumkvæði um útgáfu þess og er því þeim mun meiri ástæða til að þeir aðilar, sem hagsmuna eiga að gæta, taki höndum saman um aukna útbreiðslu og aukin áhrif þessa vandaða landkynning- arrits. farið á sjóflugvél hinn 7. ágúst 1920 og flugleiðin var Kaup- mannahöfn — Málmey — Warne miinde. Litlu síðar voru svo tekn ar upp samgöngur milli Kaup- mannahafnar og Hamborgar. Flutti flugfélagið alls 83 farþega þetta fyrst ár áætlunarflugsins. Framan af voru flugvélarnar ákaflega ófullkomnar til áætlun- arflugs, enda átti DDL í miklum rekstrarörðugleikum í upphafi. Um innanlandsflug var ekki að ræða fyrstu árin, en tilraunir það hófust árið 1936, er opnað var áætlunarflug til Álaborgar. En ekki hafði DDL þó bolmagn til að ráðast í nein stórvirki á þessu sviði strax. TVeimur árum síðar var flugfélaginu kleift að kaupa tvær vélar af gerðinni Focke Wul'f „Condor“, enda hafði hlutafé í félaginu verið aukið stórlega skömmu áður. Fór starf- semi flugfélagsins nú stórvax- andi erlendis, og m.a var skrif- stofa opnuð í Lundúnuím. En það var fyrst eftir stríðið að hagur DDL fór verulega að vænkast. Skömmu fyrir stríðs- lok tókst tveimur af yfirmönn- um flugfélagsins að komas't úr landi til Bandaríkjanna ,og tókst þeim að verða félaginu út um bæði DC-3 og DC-4 flugvélar svo og lendingarleyfi í Bandaríkjun- um. Á sama tíma fóru einnig fram viðræður skandinavískra flugfélaga um samstarf í áætlun- arflugi, sem lyktaði með því að SAS var stofnað hinn 17./9. árið 1946. Og rúmum hálfum mánuði síðar flug fyrsta DC-4 vélin í nafni SAS á leiðinni Kaup- mannahöfn-New York. Árið 1961 tók þesisi sameiginlega starfsemi flugfélaganna á sig fastara form, og upp frá því fór flugleiðum SAS ört fjölgandi. Á fundi með blaðamönnum, sem efnt var til í tálefni af af- mæli danska flugfélagsins, gat Birgir Þórhallsson, umiboðsmað- ur SAS á íslandi, að ör þróun hefði einnig orðið á innanlands- leiðum í Danmörku. Heifur far- þegum fjölgað á 10 árum úr 1®0 þúsundui i í 650 þúsund.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.