Morgunblaðið - 01.11.1968, Page 19
MORGU'NBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1968
19
MINNING:
Sigriður Guðný Jóns-
dóttir frá Áiftanesi
Takið eitúr
Seljum í dag og næstu daga á hagstæðu verði
rennilásakjóla, sloppa og fleira.
Klæðagerðin Elísa,
Skipholti 5.
Sigríður var ftedd á Álftanesi
á Mýrum 31.5 1885, dóttir hjón-
anna Mörtu Níelsdóttur Eyjólfs
sonar bónda að Grímsstöðum í
sömu sveit og Jóns bónda Odds-
sonar á Álftanesi. Ólst Sigríður
upp hjá foreldrum sínum, þar
til faðir hennir andaðist árið
1895, að hún var tekin í fóstur
af frænku sinni Ingibjörgu
Magnúsdóttur og manni hennar
Júlíusi lækni Halldórssyni að
Klömbrum í Húnavatnssýslu.
Dvaldist hún hjá þeim hjónum
til 15 ára aldurs, að hún sneri
aftur suður á Mýrar til móður
sinnar og stjúpa, Haraldar
Bjarnasonar að Álftanesi. Dvel-
ur hún þar að mestu til 1915,
að hún ræðst til frænda síns
Haraldar prófessors Níelssonar,
sem þá var orðinn ekkjumaður
og stóð uppi með fimm börn ung
að aldri. Sigríður var ráðskona
hjá honum um þriggja ára skeið,
eða þar til hann giftist Aðal-
björgu Sigurðardóttur 1918.
Reyndist Sigríður frænda sínum
og börnum hans frábærlega vel
á þessum erfiðu tímum og það
svo, að alla tíð síðan hefur ver-
ið einstaklega kært með henni
og börnum og barnabörnum séra
Haraldar. Yngstu börnin hænd-
ust eðlilega mest að frænku
sinni og mátti segja að hún
gengi yngstu dótturinni Guð-
rúnu alveg í móður stað. Árið
1918 hefur Sigríður nám í yfir-
setufræðum og lauk prófi í þeim
1919. Ekki stundaði hún þó ljós-
móðurstörf að neinu ráði heldur |
gerðist nokkrum árum síðar ráðs
kona hjá frænda sínum Jóni |
Dungal að Bæ í Hrútafirði. Var
hún hjá honum allt til 1925 og I
kunni vel að meta Hrútfirðinga
og þeir hana. Hélt hún ávallt
kunningsskap við vini sína
nyrðra og heimsótti þá oft.
Nú heldur Sigríður enn að
Álftanesi og starfar á því heim-
ili allt til ársins 1951. Það var á
þessu tímabili, að ég átti því
láni að fagna að heimsækja
frændfólk mitt á Mýrunum og á
margar ljúfar minningar frá
dvöl minni á Álftanesi. Á sumr-
um var þar ávallt stór hópur
barna, bæði af frændaliði hús-
ráðenda, svo og önnur börn
vandalaus, sem þar hafði verið
komið fyrir, því það var talinn
hollur skóli börnum að dvelja
þar á bæ, enda munu margir
minnast dvalar sinnar þar með
þakklæti og hrærðum huga og
búa enn að því veganesti, er
þeir höfðu með sér þaðan. Gest-
risni var annáluð á Álftanesi og
húsráðendur stórveitulir að forn
um sið. — Sigríður Guðný
dvaldi oft langdvölum á heimili
foreldra minna og annaðist heim
fli þeirra, er þau dvöldu erlend-
is.
Skiiaði hún ávallt heimilis-
fólki öllu heilu og hressu í hend
ur húsráðenda og var samband
þeirra frænkna, m óður minnar
og hennar svo náið sem systur
væru. Féll þar aldrei skuggi á
meðan báðar lifðu.
Sigríður var kona vel í með-
allagi há, fríð sýnum og hin
föngulegasta.
Hún var mjög skemmtileg í
viðræðum, en mesta yndi hennar
var kveðskapur og var hún
mjög vel heima í þeim efnum,
enda hagmælt sjálf og heitin eft-
ir langömmu sinni, Guðnýju
skáldkonu á Klömbrum.
Síðustu æviár sín dvaldi Sig-
ríður í Reykjavík og starfaði
þar á ýmsum heimilum og var
undravert þrek hennar til
starfa, því bæði var að hún var
66 ára, er hún flutti í bæinn
og heilsan þá þegar tekin að
bila, en áfram var starfað með-
an kraftar entust. Lengst átti
hún heimili í Reykjavík hjá syst
ur sinni Soffíu og manni hennar
Ara Thorlacius endurskoðanda.
Taldi hún sig seint fá full-
þakkað þá frábæru alúð og um-
hyggju sem þau hjón sýndu
henni fyrr og síðar. Hún um-
gekkst einnig mikið systkini sín
önnur, börn þeirra og barna-
börn, því hún var ættrækin í
bezta lagi og lét sér einkar
annt um allt sitt skyldulið og
því um hana. Hún var alla tíð
ógift og barnlaus, en mörg móð-
ir gæti verið hreykin af þeirri
umhyggju, sem Sigríður Guðný
sýndi annarra börnum, svo sem
fyrr er getið.
Að lokum þraut heilsuna al-
veg, svo hún dvaldist á elli-
heimilum allra síðustu árin, fyrst
á Sólvangi, síðan á Hrafnistu,
en andaðist að Landakotsspítala
23. október.
Sigríður hafði öðlast þá vissu,
að jarðvist okkar væri aðeins
áfangi á langri þroskaleið, og
hún hugsaði til þess með fögn-
uði, að mega taka til við ný
störf að líkamsdauða loknum, þar
sem allir hennar góðu hæfileik-
ar nytu sín á ný, en fúnir fætur
yrðu ekki lengur til trafala. Ró
leg og æðrulaus bjó hún sig und
ir þá ferð, sátt við Guð og menn,
enda þess fullviss, að sín biðu
vinir í varpa.
Það var siður á Álftanesi að
láta Ijós loga í glugga, ef von
var á gesti. Því er það nú, þegar
frænka mín stefnir til ljóssins
hæða, að ég óska henni góðrar
heimkomu og heilla í nýjum
störfum.
— Blessuð sé minning þín —
Leifur Sveinsson.
G.RENSÁSVEGI 22 - 24
SIIM0280-322S2
Gólfdúkur — plast- vinyl og línólíum.
Postulíns-veggflísar — stærðir 7t4xl5, 11x11 og 15x15.
Amerískar gólfflísar — Godd Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar — DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur.
Málningarvörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og SIipp-
fél. Rvíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi.
Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóður — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.
Bachtónleikar
Bachtónleikar í Laugarneskirkju sunnudaginn 3. nóv.
kl. 5 síðdegis.
Aðgöngumiðar hjá Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar og við innganginn.
Nemi í matreiðslu
Duglegur og reglusamur piltur getur komizt að sem
nemi í matreiðslu nú þegar.
Upplýsingar gefur yfirmatsveinn í dag milli kl. 5—7.
HÓTEL HOLT.
Akranes
Til sölu glæsilegt einbýlishús ásamt bílskúr á bezta
stað í bænum.
Höfum kaupendur að tveimur 3ja herbergja íbúðum.
FASTEIGNASALAN á Akranesi s.f.
sími 2244.
A J. Þorláksson & Norðmann hf.
Einbýlishús í Arnarnesi
er til sölu. Selst annaðhvort uppsteypt og múrað utan
eða tilbúið fyrir innréttingu. Kjallari er xmdir öllu
húsinu. Tveir bílskúrar. Hagkvæmir greiðsluskihnálar.
Fyrirgreiðsluskrifstofan
Fasteigna- og verðbréfasala
Austurstræti 14 sími 16223.
Þorleifur Guðmundsson heima 12469.
Vetrarsteypan
verður jafngóð,
ef þér notið
SIKA
frostvara í steypuna.
Þolir allt niður
í -- 10 C.
enda eru þau falleg og vönduð.
Breiddin er 365 cm. Engin samskeyti á miðju gólfi er gerir teppin
mun fallegri og endingarbetri.
Teppaleggjum, frá eigin lager, með stuttum fyrirvara og veitum
góða greiðsluskilmála.
Grensásvegi 3
Simi 83430