Morgunblaðið - 01.11.1968, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1968
Nýtt afbrigði infldenzu
VÍSINDAMENN fylgjast nú með
útbreiðslu inflúenzu, sem fyrst
varð vart í Hong Kong í sitmar.
Er hér um að ræða nýtt afbrigði
af „Asíu-inflúenzunni“ svo-
nefndu, sem gekk víða um heim
árið 1957.
Eftirfarandi grein um inflú-
enzu birtist nýlega í tímaritinu
„The Economist". Er hún laus-
lega þýdd og endursögð.
Margt nýtt hefur komið fram
varðandi inflúenzu frá því að
Chesterfield lávarður skrifaði
syni sínum í júlí 1767:
Hér ríkir nú pestarfaraldur
nefndur því kurteisa nafni inflú
enza. Honum fylgir vægur hiti,
sem verður varla nokkrum að
bana. Fjarar hann venjulega út
með smávegis slappleika.
Chesterfield lávarður hafði á
réttu að standa. Inflúenza er lát-
laust en algerlega óviðeigandi
nafn á þeim verkjum og kvöl-
um, þeirri vesæld, sem fylgja
sóttkveikjunni. Betri hugmynd
um sóttina gefur franska nafn-
ið la grippe.
Það var einnig rétt hjá Chest-
erfield lávarði, að varla nokkur
deyr úr henni, hvorki þá né nú,
að tveimur faröldrum undan-
teknum. Fjöldi sjúklinga lézt í
faraldrinum 1890—92 í Englandi,
og var svo að sjá sem lands-
menn hefðu glatað ónæmi sínu
vegna þess hve langt hafði liðið
miili faraldra. Og svo var það
alþjóða drepsóttin 1918—19, sem
varð um 25 milljónum manna að
bana, en meðal hinna látnu var
margt ungra manna og kvenna.
Venjulega eru það aðallega aldr
að fólk og ungbörn, sem látast
úr inflúenzu.
Enginn veit af hverju sótt-
kveikjan varð svona skæð 1918.
Það var ekki fyrr en árið 1933
að fyrst tókst að einangra inflú-
enzuveiruna (í Hampstead), og
var hún þá merkt AO. Afbrigði
B var einangrað árið 1940, og
afbrigði C á sjötta tug aldarinn-
ar. Að þvl er faraldra varðar,
hefur A-afbrigðið mesta þýð-
ingu. Það tekur stöðugum breyt-
ingum, og birtist sem undir-af-
brigði eða breytt útgáfa af áður
þekktum afbrigðum ,og kemur
þá ónæmi gagnvart fyrri faröldr
um að engum notum.
Nýjasta veiran fannst í Hong
Kong í júlílok, og var hún í
fyrstu talin það frábrugðin
þekktum afbrigðum, að henni
bæri sérstakt heiti (það er A3).
Nú er hinsvegar Ijóst, að hér er
urn undirafbrigði að ræða af A2,
sem olli „Asíu-inflúenzunni“
1957. Þessi nýja veira hefur
fengið kennitáknið A2/HK/68,
og er það frábrugðin uppruna-
legu A2 veirunni að dr. Pereira,
forstöðumaður alþjóða inflú-
icnzustofnunarinnar (World In-
fluenza Centre) í Mill Hill, hef-
ur spáð faraldri í Bretlandi á
komandi vetri — þótt hann
reikni ekki með jafn víðtækum
faraldri og 1957.
Inflúenzumiðstöðin í Mill Hill
hefur um 20 ára skeið unnið að
því á vegum Alþjóða heilbrigðis
málastofnunarinnar (W.H.O.)
að rannsaka veirur, sem sendar
eru þangað frá 80 löndum, og
fylgjast með nýjum afbrigðum
og breytingum. Upplýsingar
þessar gera stofnuninni kleift að
fylgjast með útbreiðslu veir-
anna um heiminn. A2/HK/68
fannst í Singapore og Bandaríkj
unum (sennilega þangað komin
með heimkomnum hermönnum)
í ágúst, í Japan, Manila, For-
mósu og Bangkok í september,
í Teheran, Bombay, Madras og
Vancouver (eitt tilfelli) í sept-
emberlok, og í Höfðaborg og Jó-
hannesarborg í október. Vart
varð við þrjú tilfelli í London
í september.
Það er mjög mikil hjálp í því
að geta sagt fyrir með nokkurri
vissu um væntanlegan faraldur,
og gefur það heilbrigðisyfirvöld
um, sjúkrahúsum, læknum og
ÞJÓÐA-
KVÖLD
í
KVÖLD
Austurrískir og skozkir
réttir matreiddir af
austurrískum mat-
reiðslumeistara.
Reynið þá strax í kvöld.
KVOLDVERÐUR
Shrimps Coctail
Scottish Broth
Braised Beef and Onions
—0—
Roast Chicken With Bread Sauce
Blueberry Pie, Custard-Pudding
Austurrísk og skozk
hljómlist og söngur.
Doppelte Kraftbrúhe mit
Gemsíése Wúrfeln
—0—
Renntierkeule gebraten Saint-Hubert
Dansað til kl. 1.
Borðpantanir í síma 20221
eftir kl. 4.
Huhn am Roast mit Sauce Tartar
Lammkeule nach Gastronomen Art
—0—
Wienerapfelstrudel mit Vanille Sc.
Caramel Pudding.
Skozka þjóðlaga-
söngkonan
skemmtir.
lyfjaiðnaði tækifæri til nokkurs
undirbúnings. Enn heppilegra
væri þó ef unnt reyndist að
beita bólusetningum til að
stöðva faraldurinn algerlega.
Því miður er það svo, að bólu-
efnið, sem nú er fyrirliggjandi,
er miðað við A2 veiruna, og hef-
ur aðeins takmörkuð áhrif á
Hong Kong 68. Inflúenzumið-
stöðin hefur sent þremur lyfja-
gerðum, Beecham, British Drug
Houses og Crookes, nýju veir-
una, og vonast lyfjagerðirnar til
að geta framleitt bóluefni fyrir
nóvemberlok.
Bólusetningarefnið er ræktað
í eggjum, og fara tugir þúsunda
eggja í framleiðsluna á degi
hverjum. Takmarkasl framleiðsl
an ekki af skorti á eggjum —
eins og stundum hefur verið —
heldur á veiruuppskerunni úr
hverju eggi. Þegar bóluefnið
kemur á markaðinn, er reiknað
með að hver skammtur kosti um
10 shillinga, en 8 shillinga ef um
mikið magn er að ræða.
Þar sem erfitt er að útvega
verulegt magn af bóluefninu, og
það verður dýrt ,er óhugsandi
að bólusetja alla íbúa Bretlands.
Verður því reynt að fara eftir
sömu reglu og 1957, það er að
bólusetja fyrst þá, sem mest
eiga á hættu, aldrað fólk og
ungbörn, og starfsfólk í lykil-
stöðum. Aðrir verða að bíða þar
til nóg verður af bóluefni á mark
aðnum, en þá verður faraldur-
inn væntanlega genginn yfir.
Þarf nokkur að hafa áhyggjur
af fimm daga veikindum, sem
engin eftirköst fylgja undir
venjulegum kringumstæðumP
Inflúenzufaraldurinn 1957 leiddi
til þess að 29 milljónir vinnu-
daga töpuðust, og um 10 milljón-
ir sterlingspunda voru greiddar
í tryggingarbætur. Að þessu
sinni verður faraldurinn varla
svo kostnaðarsamur. En þegar
tekið er tillit til þess að venju-
lega tapast 5 milljónir vinnu-
daga á ári vegna verkfalla, er
sá aukakostnaður, sem stafar af
inflúenzufaraldri ekkert smá-
ræði.
Athugosemd
í EFTIRMÆLUM um Halldór
Jónsson, fyrrum bónda á Arn-
gerðareyri í Nauteyrarhreppi
við Djúp, rituðum af Hávarði
Friðrikssyni frá Hallsstöðum í
sömu sveit og birt voru í Morg-
unblaðinu löngu eftir lát Hall-
dórs, er komist svo óheppilega
að orði, að fjöldi ókunnugra
manna hefir lagt þann skilning
í grein þá, að Halldór heitinn
hafi verið annað hvort dóttur-
eða sonarsonur Jóns Halldórs-
sonar á Laugabóli, afa míns,
þar sem Jón Halldórsson sé
talinn „afi“ Halldórs. Ég bjóst
við að eitthvert barna Halldórs
heitins mundi láta leiðrétta
þessa missögn, eða þá enginn
taka mark á henni. — En nú
hefur það gerzt, áð nokkrir
ókunnugir menn hafa lagt trún-
að á þetta. — Ég held að Hall-
dór sál. þurfi ekki á því að
halda, að vera rang-feðraður.
Foreldrar hans voru Jón og
Guðný og áttu heima vestur á
Dýrafirði og bjuggu þar við
fátækt með barnahóp sinn. En
fátækt verður aldrei talin blett
ur á nokkrum manni eða konu.
Guðný tók sér þá ferð á
hendur með yngsta son sinn,
Halldór, þá 2ja ára gamlan,
innst inn í Isafjarðardjúp, að
Laugabóli. Bað hún Guðrúnu
ömmu mína, sem hún þó
þekkti ekkert og um skyldleika
var heldur ekki að ræða, að
hjálpa sér nú og taka drenginn
sinn í fóstur. Var það auðsótt
mál og þar sem þama var um
stórbýli að ræða, með allt um
40 manns í heimili þá munaði
litlu að fylla einn barnsmunn
í viðbót.
Halldór sál. var rúmlega 2
árum eldri en ég og ólumst við
upp saman, þar til Halldór fór
í Hvanneyrarskólann en ég til
Kaupmannahafnar í verzlunar-
skóla. Halldór vandist því
snemma að taka til hendi,
annað þekktist ekki þar. Þegar
afi minn missti heilsuna, varð
Halldór ráðsmaður hjá ömmu
minni, þar til hún hætti bú-
skap.
Halldór varð mjög laghentur
og verkhagur eins og hann sá
alls staðar fyrir sér á Lauga-
bóli.
Halldór sál var að mörgu
leyti lánsmaður. Hann var
stálhraustur fram á efri ár sín.
Það var líka mikið lán fyrir
hann að komast svo ungur á
eitt af fremstu stórbýlum Vest-
fjarða í bernsku og eignast
síðan óvenjulega góða konu og
með henni fjö'da barna, er öll
hafa reynzt sérlega myndar-
legir og góðir borgarar.
Sig. Þórðarson
frá Laugabóli.
Klassik ensk húsgögn eiu
eitt af því sérstæða hjá
Georg Kofoed.
Lítið inn og sjáið þau,
snertið á þeim .... hver hlutur
geislar af gæðum.
Látið húsgagnasérfræðing
vorn aðstoða yður í vali
og koma fyrir reynsluupp-
stillingu á heimili yðar.
GEORG KOFOED
M0BELETABLISSEMENT AS
Store Kongensgade 27-Telefon158544
Köbenhavn, ..