Morgunblaðið - 01.11.1968, Page 24
24
MORGU'NBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1»68
— Nei, það gerum við ekki, á-
kvað Graham. — Ykkur hefur ver
ið lofað veizlu og hana skuluð
þið líka fá. Við skulum fara á
Afizh og taka þar borðið okkar.
Oliver veit hvar hann á að leita
okkar, ef hann kemur.
— Já, ef hann kemur. En það
er ekkert gaman að vera þrjú,
efskan. Ég hef vitanlega þig, en
hún Jill verður herralaus.
— Mér er alveg sama um það,
ætlaði Jiil að fara að segja, en
Sandra þaggaði ni’ur í henni. —
Vissulega er þér ekki sama. Það
er engin ástæða til að vera neitt
að fórna sjálfum sér. Hversvegna
bjóðum við ekki honum Davíð að
koma með okkur í staðinn. Hann
getur dansað og venjulega er
hann skemmti'legur.
Tíu mínútum seinna voru þau
á hraðri fer ðinn í borginam
Graham við stýrið, en Sandra sat
við hliðina á honum og Jill aftur
í ásamt jarðfræðingnum. — Ég
gæti ekki hugsað mér neitt, sem
g vifdi heldur, hafði hann sagt, er
hann þá boð þeirra.
f gistihúsinu var amerískur
bar og vestrænn matsalur, sem
Jill gat séð tilsýndar, en Gra-
ham gekk á undan þeim upp í
skrúfustiga, sem var allur gyllt-
ur og skrautlegur. — Við förum
þangað sem erlendir menn sækja
skemmtanir sínar, sagði hann.
þau komu inn um önnur fagur-
'lega skreytt bogagöng, þar sem
tveir þjónar drógu flauels- dyra
tjöld frá og þau gengu inn í
langan sal með allskonar vegg-
tjöldum, en si'lkidúkar voru und
ir loftinu og koparlampar báru
daufa birtu. Miðjan af gólfinu
var auð, eintómar marglitar góff-
hellur en út við veggina voru
legubekkir alsettir koddum, og
borð við hvern legubekk. Hör-
undsdökkir þjónar komu með
stóra bikara af ávaxtadrykkjum
og silfurker með ávöxtum og sæt
indum.
— Þetta er bara til að dunda
við þangað til maturinn kemur,
sagði Graham þeim. m
Sandra hló. Það er engin
furða þó að konurnar í kvenna-
búrinu fitni, sagði hún.
— Hér eru engar kvennabúrs-
konur, sagði Davíð. — Þetta eru
nútíma Arabar og Múhameðs-
menn, sem sennilega eru uppald
ir í Evrópu. Konurnar þeirra
hafa varpað frá sér andlitsdúkn
um fyrir löngu. Og sumar þeirra
eru meira a ð segja farnar að
vinna fyrir sér.
Flestir gestirnir voru karl-
menn — sýrlenzkir, Líbanons-
menn, Tyrkir, Egyptar og Mar-
okkómenn — velbúnir og sumir
þeirra með rauðu kollhúfuna á
svörtu sléttu hárinu. Og þarna
voru meira að segja nokkrar
skrautbúnar stúlkur, en kjólar
þeirra og skartgripir voru í ein-
kennilegu ósamræmi við umhverf
ið. Graham talaði við þjónana á
arabisku og að undanteknum
tveim rosknum mönnum, sem töl-
uðu frönsku, heyrðist þarna ekk
ert annað tungumál. Jill kom sér
þægilega fyrir á silkisætinu og
víssi með sjálfri sér, að í kjóln-
um sínum þoldi hún samanburð
við allar aðrar konur, sem þarna
voru.
Máltíðin tók þrjár klukku-
stundir. Milli réttanna voru löng
hlé, en þetta þótti sjálfsagt, og
þá voru líka skemmtiatriði. Einn
trúður lék ótrúlegustu listir með
marglita hnetti og fjarðrir.
Slöngutemjari settist á mitt gólf
og höggormarnir hlykkjuðu
sig eftir hljóðpípublæstri hans.
Enginn klappaði eða lét á ann-
an hátt velþóknun sína í ljós,
en við lok hvers atriðis, gengu
CRENStóVIGI 22-24
SJMAfi: 30Z80-3226Z
LITAVER
NYTT - NYTT
POSTULÍfíSVEGGFLISAR
Nýir litir — Glœsilegt úrval
UMBOÐ
UM ALLT LAND
M V M ÞINGHOLTSSTRÆTI 2
JEa Jj Æjk ML ■ ■ REYKJAVIK SIM113404
ALAFOSS
GOLFTEPPI
listamennirnir í kring með skál,
sem gestirnir létu peninga falla
í. Það var eins og Davíð sagði:
— Maður verður að vera heldur
betur fær til þess að geta lifað
á Skemmtanastarfsemi hér. Á-
horfendurnir borga ekki meira
en þeim finnst skemmtunin vera
virði.
Loks voru bornir fram ofur-
litlir arabiskir kaffibollar. Með-
an Jill dreypti í sinn bolla, datt
henni í hug, að enn væru hér
samankomin fjögur hjörtu, enda
þótt eitt þeirra væri nýtt í hópn
um. Davíð sat í sætinu, sem Oli-
ver hafði verið ætlað. Hún tók
að velta því fyrir sér, hvað orð-
ið hefði af Oliver. Það var ekki
honum líkt að láta sig vanta,
nema þá af einhverri góðri og
gildri ástæðu, og áreiðanlega
hefði hann haft gaman af svona
kvöldi, eftir allt tilbreytingar-
leysið í eyðimörkinni.
— Getum við nú farið að
dansa? spurði Sandra. Það er þó
væntanlega einhver hljómsveit
hérna?
— Nei, ekki hér, sagði Gra-
ham. — Menn faðma ekki kon-
ur að sér á almannafæri í Ara-
bíu. Það væri ósiðlegt. En við
getum bráðum farið upp í dans-
salinn. Þar er nýtízku hljómsveit
vegna ferðamannanna, og ég er
viss um, að hún kann öll nýj-
ustu lögin.
— Það er dásalegt, elskan.
Við skulum drekka út og fara
svo og reyna það í nokkrar mín-
útur. Mig sárlangar í snún-
ing.
— Fyrst verðum við að sjá að-
alsýninguna hérna, sagði Gra-
ham. — Asia Jashar. Hún er að-
al-skemmtikrafturinn í Iran og
hefur verið fengin hingað með
miklum tilkostnaði. Þarna koma
stúlkurnar.
Sittu kyrr og hvíldu þig, Jill,
sagði Davíð. — Þú átt eftir að
pad er leikur.
með H0IE KREPP rúmfataefninu, sem
ekki þarf að strauja.
H0IE KREPP rúmfataefni fást í helztu
vefnaðarvöruverzlunum um land allt.
hoie
KREPP
EINKAUMBOÐ: MATS WIBE LUND jr.
HRAUNBÆ 34, REYKJAVÍK, SÍMI 81177
r
Þér getið ekki gert betri kaup
'i
4 gerðir, verð frá kr. 1185.— til 1929.— kúlulegur,
loftfylltir hjólbarðar. CAR-FA farangursgrindur í úr-
vali, ódýrar.. ELECTOR strokjárn með hitastilli, kr.
405.00. Málningarvörur. Topplyklasett frá kr. 238.00,
stjörnulyklasett frá kr. 124.00, stakir toppar, stakir
lyklar, sérverkfæri.
VERZLIÐ ÁÐUR EN KRÓNAN LÆKKAR OG
VÖRUR HÆKKA!
Grensásvegi S — Símí 84845