Morgunblaðið - 01.11.1968, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1968
27
CALLAS OG ONASSIS UNNU
MÁL GEGN GÖMLUM VINI
London 31. október —AP —
ARISTOTELES Onassis hefur
unnið mál fyrir brezkum dóm
stólum, gegn fyrrverandi vini
sínum Panaghis Vergottis, en
þeir voru að deila um hluta-
bréf í skipafélagi, að verð-
mæti l.í milljón sterlings-
pund. Og það er óperusöng-
konan Maria Callas, sem deil-
ir sigrinum með Onassis.
Þannig var mál með vexti,
að skipafélagið var keypt árið
1964 fyrir 240 þúsund pund
í reiðufé og afganginn með
áfborgunum. Onassis gaf
Maríu 26 hlutabréf og frænda
sínum 24. Hin 50 vorVí eigu
Vergottis. Nokkru eftir kaup-
in sendi Maria Vejgottis 60
þúsund pund.
í réttarhöldunum héldu þau
María og Onassis því fram, að
þessi 60 þúsund pund hefðu
verið borgun fyrir 25 hluta-
bréf sem María átti að fá, en
Vergottis sagði hins vegar, að
þetta hefði verið lán til fé-
lagsins sem ætti að greiðast
með vöxtum. Þau unnu mál-
ið. Vergottis áfrýjaði, tapaði
áfrýjaði aftur, tapaði aftur og
varð að greiða 70 þúsund
pund í málskostnað.
Hvorki María né skipakóng
urinn voru viðstödd síðustu
dómsuppkvaðninguna, hann er
í brúðkaupsferð með Jackie,
en hún í söngferð.
OL-skák-
mótiö
ÍSLENZKA skáksveitin tapaði í
6. umferð, í B-úrslitum á Ol-
skákmótinu í Lugarno. Andstæð-
ingar íslendinga að þessu sinni
voru Austurríkismenn og fengu
landarnir aðeins einn vinning úr
þeirri viðureign. Það var Guð-
mundur Sigurjónsson sem vann
Prameshuber á 2. borði. Annars
fóru leikar þannig að Ingi R.
Jóhannsson tapaði fyrir Duck-
stein, Jón Kristinsson tapaði fyr-
ir Stoppel og Björn Þorsteins-
son tapaði fyrir Niedermeyer og
var þetta fyrsta tap Björns á
mótinu.
Önnur úrslit urðu: Brazilía—
Svíþjóð 3—1 Holland — Mon-
golia 2V2 — 1%. England —
Cuba 2% — Yz (1) Spánn —
Sviss 2 Y2 — 1Y2. Belgía — Skot-
land 2V2 — 1Y2. ísrael — Finn-
land 2Y2 — 1 %.
I sjöundu umferð tefla fslend-
ingarnir við Belgíumenn.
arfirði með 2456 lestir.
Sunnanlands eru hæstu bátar:
Hafrún frá Bolungarvik með 560
lestir, Höfrungur ni. frá Akra-
nesi með 554 lestir og Örn RE
með 339 lestir. Sjá síldveiði-
skýrslu yfir þau skip, sem hafa
fengið 100 lestir eða meira á
'bls. 7.
Norður og Austurland:
Lítið var um að vera á miðun-
um austur af landinu síðastliðna
viku. Það litla sem fékkst af
síld veiddist á svæðinu 70—75
sm. SA af Gerpi. Allmörg skip
héldu á Hjaltlandsmið, því það-
an höfðu borizt fregnir um gó’ð-
an afla.
Tilkynntur vikuafli til Fiski-
félags'ins nam 1.765 lestum. Voru
það 6.612 upps. tunnur, 146 lestir
í frystingu, 542 lestir í bræðslu
og 112 lestir sem landað var er-
lendis.
Heildaraflinn er nú 75.494 lest-
ir og hagnýttur þannig:
1 salt 66.484 tunnur saltaðar á
sjó, 58.684 tunnur uppsaltaðar,
samtals 125.168 tunnur eða 17.011
lestir. í frystingu hafa farið 551
lest, í bræðslu 48.345 lestir og
landað erlendis 9.587 lestum.
Á sama tíma í fyrra var aflinn
þessi: 1 salt 166.059 uppsaltaðar
tunnur, eða 24.245 lestir, í fryst-
ingu 1.007 lestir, í bræðslu 271.
141 lest, til innanlandsneyzlu 15
lestir og erlendis var landað
6.734 lestum. Alls voru þetta
303.142 lestir. Hæsti löndunar-
staður er Siglufjörður me'ð 24.
158 lestir.
Suðurland:
Vikuaflinn við Suðurland var
1.370 lestir og vikusöltun 4.117
tunnur. Heildarsöltun Suður-
landssíldar er nú 11.706 tunnur
og heildaraflinn frá 1. júní 7.767
lestir.
Hæsti löndunarstaður er Kefla
vík með 1888 lestir.
Á sama tíma í fyrra var heild-
araflinn 27.385 lestir.
Bragi Kristjánsson teflir á 3.
borði.
Staðan í B-úrslitaflokki er nú
þessi: Holland 16% vinning,
Austurríki 16 vinninga, England
15 vinninga (1), Sviss 14% vinn
ing, Finnland og Spánn 14 hvor
sveit, fsrael 13%, ísland 11, Sví-
þjóð 10, Cuba 9 (1), Brazilía 9
vinninga,, Mongolía og Belgía
8% hvor sveit og Skotland rek-
ur lestina með 7% vinning.
SIGRUÐU BELGA
Samkvæmt síðustu fréttum frá
Lugano sigruðu islenzku skák-
mennirnir sveit Belga með 3
vinningum gegn 1. Ingi gerði
jafntefli við O’Kelly, Guðmund-
Hr gerði jafntefli við Boey,
Bragi vann Rooze og Jón vann
Comelis.
- SÍLDIN
Framhald af bls. 28
með 2634 lestir og Fífill frá Hafn
- BLAÐAMENN
Framhald af bls. 1
blaðamanna um hernám
Tékkóslóvakíu og krefjast
þess að gerð verði grein fyrir
dreifingu áróðursrita frá her-
námsliði Varsjárbandalagsríkj
anna. Þá er þess farið á leit
að útvarpsstöð Rússa í land-
inu, Útvarpi Vltava, verði lok
að.
Verkamenn hafa gripið til
mótaðgerða vegna dreifingar
pólskra og sovézkra blaða og
flugrita um innrásina. Verka-
menn í Brno hafa endursent
áró'ðursrit til pólsku menning-
armiðstöðvarinnar í Pnag og
vísað á bug því sem haldið er
fram í ritunum. Verkamenn í
Usti nad Labem í Norður-Bæ
heimi hafa sent verkamönn-
um í Czedstochowa í Póllandi,
er hvöttu þá til kappræðna,
harðort svar.
Flotnælingor d
Miðjnrðorhafi
Napoli, 31. október. NTB.
Tilkynnt var í aðalstöðvum Mið
jarðarhafsherstyrks NATO í Na
poli í dag, að haldnar yrðu um-
angsmiklar flotaæfingar á Mið-
jarðarhafi frá og með 5. nóvem-
ber og standa þar í tvær vikur.
50 herskip frá Bretlandi, Frakk-
landi, Grikklandi, ítalíu taka
þátt í æfingunum.
Æingarnar eru haldnar á
sama tíma og Rússar hafa sent
mikinn flota til Miðjarðarhafs-
ins og telur hann nú 60 her-
skipa eða 20 fleiri en eftir styrj-
öld Araba og Israelsmanna í
fyrra, að því er áreiðanlegar
heimildir herma. Fyrir um það
bil 10 dögum sást til ferða 52-
54 sovézkra herskipa og voru
þar á meðal 10-12 kafbátar, eitt
þyrlumóðurskip, tvö beitiskip, 12
orrustuskip, þrír tundurdufla-
slæðarar og 20 hjálparskip.
Æfingarnar miða að því að
auka og reyna samræmingu og
viðbúnað flotadeildanna, sem
taka þátt í þeim. Efling flota-
styrks Rússa á Miðjarðarhafi
hafa valdið vaxandi áhyggjum
og hefur 6. bandaríski flotinn
frestað venjubundnum æfingum
úti fyrir ströndum Sardínu
vegna nærveru fjölda sovézkra
herskipa á þessum slóðum, að
því er segir í fréttum frá eynni,
en bandarískir talsmenn segja
að ástæðan séu slæm veðurskil-
yrði.
Rauði Danny
handtehinn
Frankfurt, 31. október. NTB.
FRANSKI stúdentaleiðtoginn
Daniel Cohn-Bendit (Rauði
Danny), var handtekinn og úr-
skurðaður í þriggja daga gæzlu-
varðhald í dag, fyrir að hafa
tekið þátt í óeirðum við réttar-
höld fjögurra þýzkra unglinga.
Lögreglan varð að kasta táragas
sprengjum inn í réttarsalinn til
að dreifa hópnum sem lét öllum
illum látum á áheyrendabekkj-
unum.
Unglingarnir fjórir voru dæmd
ir í þriggja ára fangelsi fyrir að
hafa kveikt í stóru vöruhúsi í
Frankfurt í apríl síðastliðnum.
Ólætin byrjiíSu fljótlega eftir að
dómurinn hafði verið kveðinn
upp. Dómarinn bað lögreglu-
menn að ryðja salinn og kom þá
til átaka milli þeirra og við-
staddra stúdenta. Bergmálaði
dómhúsið af ópum og blótsyrð-
um bardagaaðilanna.
Rauði Danny var handtekinn
þegar hann var að reyna að tala
við einn verjendanna. Lögreglu-
þjónn sagði honum að það væri
bannað og að hann væri hand-
tekinn til bráðabirgða. Fyrir ein-
um mánuði var hann dæmdur til
átta mánaða skilorðsbundinnar
fangelsisvistar fyrir að hafa tekið
þátt í mótmælaaðgerðum gegn
Leopold Senghor, forseta Sene-
gal. Samkvæmt þeim dómi verð
ur hann fangelsaður ef hann
heldur sig ekki frá mótmælaað-
gerðum næstu þrjú árin.
Egyptoi iaeð
ögranir
— segir Dayan um
átökin við Súez
Amman, Jerúsalem, 29. okt.
AP. NTB.
MOYSE Dayan, varnarmálaráð-
herra tsraels sagði á þingi í dag
að hernaðaraðgerðir Egypta á
vestari bakka Suezskurðarins
stefndu vopnahléssamningnum í
bráðan voða og auknum viðbún-
aði Egypta yrði tafarlaust mætt
af hálfu tsraela. Þingið var að
ræða atburði þá sem urðu við
Suezskurðinn um helgina, en þá
kom til meiri átaka en um
margra vikna skeið. Odd Bull,
eftirlitsmaður S. Þ. á því svæði
hefur lýst yfir þeirri skoðun
sinni, að Egyptar hafi átt upp-
tökin.
I dag skiptust svo Jórdanar og
ísraelar á skotum yfir ána Jór-
dam í sýðri hluta Jórdandalsins.
Stóð skothríðin í hálfa klukku-
stund og svo sem venja er kenn-
ir hvor aðilinn hinum um að
hafa átt upptökin.
- NJÓSNAMÁLIÐ
Framhald af bls. 1
Umbóta krafist.
Yfirmaður vestur-þýzku örygg
isþjónustunnar og ráðuneytis-
stjórnar innanríkisráðuneytisins
og varnarmálaráðuneytisins hafa
haldið sérstakan fund að skipun
Kurt Georg Kiesingers kanzlara
til að ræða möguleika á úrbót-
um í gagnnjósnaþjónustunni.
Komið hafa fram ásakanir um al-
varlegar misfellur í störfum
hinna ýmsu greina öryggisþjón-
ustunnar, og er talin þörf á auk-
inni samræmingu. f skýrslu, sem
lögð verður fram í næstu viku,
verða bornar fram tillögur um,
hvernig auka megi samstarf lög-
reglunnar, öryggisþjónustunnar
og ríkissaksóknaraembættisins til
þess að efla öryggi landsins.
í dag skýrði lögreglan í Bonn
frá því að fundizt hefði lík Ger-
hard Böhms, 61 árs gamals starfs
manns varnarmálaráðuneytisins,
sem saknað hefur verið síðan
hann skrifaði fjölskyldu sinni
bréf fyrir tíu dögum og kvaðst
mundu svipta sig lífi. Líkið
fannst í Rín skammt frá Köln og
segir lögreglan flest benda til
þess að hann hafi framið sjálfs-
morð, en þó sé útilokað að það
standi í sambandi við njósnamál-
ið heldur hafi Böhm fallið þungt
að hann fékk ekki stöðuhækkun.
— Skírnarathöfn
Framhald af bls. 10
ur á íslandi, heldur fari þar
aðeins fram skírnarathöfn, þar
sem skipt verður um nafn á
Sameiningarflokki alþýðu —
Sósíalistaflokknum, vafalaust
vegna þess, að slíkt heiti á aug
ljóslega ekki við lengur. í fram
haldi af þessari ákvörðun hef
ég í dag sagt af mér formennsku
í Alþýðubandalaginu.
— Og hvað er svo framund-
an?
Til sölu
65 tonna fiskiskip í góðu ásigkomulagi.
Lysthafendur leggi nöfn sín inn á afgr. Mbl. fyrir
5. nóv. næstk. merkt: „6718“.
— Þar er komið að máli, sem
enginn einn getur svarað nema
fyrir sjálfan sig persónulega.
Vandamál okkair Björns Jóns-
sonar og stuðningsmanna okk-
ar, er ekki persónulegs eðlis.
Það er vandamál allra vinstrí
sinnaðra manna í landinu, og
•frá mínu sjónarmiði er um
þrjár leiðir að ræða:
1. Hætta afskiptum af stjórn-
málum
2. Leita málefnalegrar sam-
stöðu og samstarfs við aðrar
pólitískar heildir í landinu.
3. Bjóða fram í öllum kjördæm
um við næstu kosningar og
gefa kjósendum þannig kost
á að segja til um, hver hljóm
grunnur er fyrir víðtæku
vinstra samstarfi í nánum
tengslum við málstað verka-
lýðshreyfingarinnar.
En auðvitað bíður það síns
tíma, að teningunum verði kast
að.
Suðurlandssíld
til Kefiovíkur
ALLS eru nú komnar á land í
Keflavík 1009 lestir af síld, sem
hefur að jöfnu farið í söltun og
frystingu. f dag komu aðeins
tveir bátar, Eldey með 54 lestir
og Ingiber Ólafsson með 30 lest-
ir og var það allt saltað. Veð-
ur hefur að undanförnu haml-
að mjög veiðum. 5 línubátar eru
nú byrjaðir veiðar og var afli
þeirra í dag tregur, 5 lestir og
niður í tvær. Óvíst er nú hvort
bátar fari út í nótt" vegna veð-
urs, en hér er nú helvítis garg i
hafinu H.S.J.
3d mynd
Rússar efla
landbúnað
Moskvu, 31. september.
AP-NTB.
LEONID Brezhnev, aðalleiðtogi
sovézka kommúnistaflokksins,
viðurkenndi í dag, að samyrkju-
búskapur í Sovétríkjunum ætti
enn við að striða óleyst vanda-
mál, en sagði að þrátt fyrir það
yrði uppskera svo góð í ár að
hún nálgaðist fyrri met.
Brezhnev gerði grein fyrir
stefnu þeirri sem fylgt hefur
verið í landbúnaðarmálum sfðan
Nikita Krúsjeff var steypt af
stóli í ræðu sem hann hélt á
fundi miðstjórnarinnar og sagði
að mikilvægasta verkefni so-
vézks landbúnaðar á næstu ár-
um væri að auka hveitiuppskeru
um allan helming. í því skyni
yrði framleiðsla tilbúins áburðar
aukin úr 47 milljónum lesta í 95
milljónir lesta á árunum 1969—
72.
t
Móðir mín
Arndís Andrésdóttir
frá Hrafnsey, Samtúnl 20
andaðist í Borgarspítalanum
31. okt.
Magnea Sigurjónsdóttir..
t
Útför,
Helga K. Jónssonar
frá Vatnsenda,
fer fram frá Dómkirkjunni
laugardaginn 2. nóv. kl. 10.30
fyrir hádegi.
Sigmundur R. Helgason
og f jölskylda.