Morgunblaðið - 01.11.1968, Page 28

Morgunblaðið - 01.11.1968, Page 28
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1968 Heimilistrygging er nauðsyn ALMENNAR TRYGGINGAR £ Herskip lýsti upp Málm- ey að nœturþeli Líkur benda til, að verið á ferð Bæ, Skagafirði, 31. okt. SKAGFIRÐINGAR urðu varir við einkennilegar ferðir her- skips út af Skagafirði fyrir nokkru. Stanzaði herskipið þar og beindi sterkum ljóskösturum Stormur d síldarmiðunum Við höfðum samband við síld- arleitarskipið Árna Friðriksson í gær. Jakob Jakobsson, fiski- fræðingur, sagði, að það hefði verið stormur á miðunum síðan á mánudag og ekkert veður til leitar. Þeir hafa margoft farið af stað í leit, en alltaf orðið að snúa aftur vegna veðurs. Þegar við töluðum við Jakob, hélt skip- ið sjó í minni Reyðarfjarðar, en eitthvað af síldarskipunum hélt sig í vari á Breiðamerkurdýpinu. Nokkur íslenzk skip hafa fengið síld að undanförnu við Hrollaugs eyjar, sagði Jakob okkur, en síld inni hefur verið sleppt jafnóðum vegna smæðar. Síldarsjómenn og sildarleitar- menn biða nú átekta þar til veðrinu slotar. þar hafi Rússar til lands. Lýstu herskipsmenn einkum upp Skaga og Málmey. Virtust herskipsmenn hafa sér- stakan áhuga á því að kanna að stæður í Málmey. Þegar herskipið hafði verið þarna góða stund hélt það á- fram ferð sinni vestur á bóginn. Er það mál manna I Skaga- firði, að þarna hafi verið á ferð eitt rússnesku herskipanna, sem þessa daga héldu sig uppi í land steinum annars staðar við fs- land. — Bjöm. Morgunblaðið hafði í gær sam . band við yfirmann varnarliðsins, Frank B. Stone, aðmírál, og spurðist fyrir um það, hvort nokkur bandarísk herskip eða annara þjóða Atlantshafsbanda- lagsins hefðu verið á fyrrgreind um slóðum að undanförnu. Svar aði aðmírállinn því til, að svo hefði ekki verið. Þá spurðist Morgunblaðið fyr- ir um það hjá Pétri Sigurðssyni, forstjóra Landhelgisgæzlunnar, hvort varðskipin hefðu verið þarna að verki. Pétur sagði, að sér væri ekki kunnugt um, að varðskip Landhelgisgæzlunnar hefðu lýst upp Málmey að næt- urþeli. Heildarsíldaraflinn um 75 þúsund lestir — 23 prósent aflans í salt t síldarskýrslu frá Fiskifélagi Islands um yfirlit um síldveiðar norðanlands, austan- og sunnan- lands vikuna 20—26. október eru upplýsingar um aflatök i heild fyrir síðasta ár og það sem af Islenzkt kvöld í finnska sjónvarpinu fslenzk kvölddagskrá verður í finnska sjónvarpinu seint í nóv- ember. Verður dagskránni sjón- varpað á rás 2, en finnska sjón- varpið sendir út á tveim rásum. Á vetrardagskrá finnska sjón varpsins var áætlað að hafa eitt kvöld í viku frá Norðurlöndun- um og verður íslenzka kvöldið það þriðja í röðinni. Pétur Guð finnsson, framkvæmdastjóri ís- lenzka sjónvarpsins tjáði okkur í gær, að íslenzka kvöld- dagskráin fyllti kvölddagskrá finnska sjónvarpsins á rás 2 út- sendingarkvöldið og eina efnið annað en íslenzkt það kvöld verða finnskar fréttir. Pétur, sagði fyrirhugað að kvölddag- skráin yrði í eftirfarandi formi: Dagskráin hefst kl. 7 og lýk- ur laust eftir kl. 9. Lúðrasveit Reykjavíkur mun hefja þáttinn, þá mun Valli víkingur láta ljós sitt skína, myndsjá verður með íslenzku efni, sem er ofar- lega á baugi um þessar mundir. Þá mun gam- anþátturinn Örlagahárið verða sýndur, stóðréttarmynd úr Þver árrétt, Litli Barokk kórinn mun koma fram og sýnd verður kvik- myndin frá Patreksfirði um And rés fiskimann. Síðustu dagskrár liðirnir verða svo þáttur með hljómsveitinni Óríon og Sigrúnu Harðardóttur og kvikmynd, sem íslenzka sjónvarpið lét gera um Surtsey. Finnska sjónvarpið bauð ís- lenzkum sjónvarpsþul til Finn- lands í tiiefni íslenzka kvölds- ins og mun væntanlega ein af íslenzku kvenþulunum fara ut- an. er þessu ári. Heildaraflinn nú er 75,494 Iest- ir, en var á sama tíma í fyrra 303,142 lestir. Hlutfallslega hef- ur þó verið saltað mun meira í ár en í fyrra. Hæstu bátar við Norður- og Austurland eru Örn RE með 2656 lestir, Guðbjörg ÍS Framhald á hls. 27 Tjörnin er nú ísi lögð og athafnasvæði fuglanna hefur brengzt en krakkarnir fara að taka fram skautana og renna sér á gljá- andi svellinu. Ólafur K. Magnússon tók þessa mynd í gær al Tjarnarfuglunum þar sem þeir voru að svamla í vökinni við hitaveiturörið. Hannibal Valdimarsson segir af sér formennsku Alþýðubandalagsins — en landsfundur þess hefst í dag r Karl Guðjónsson ehki Inlltrúi ó landsfund Alþýðubandolagsins SVO sem kunnugt er, eru all- og spurðist fyrir um það miklar víðsjár í sambandi við hvort hann mundi sækja landsfund Alþýðubandalags- landsfundinn. Karl Guðjóns- ius, sem hefst í dag. Hanni- son svaraði á þann veg, að bal Valdimarsson hefur sagt hann væri ekki kjörinn full- áf sér formennsku Alþbl. og trúi á landsfundinn. Af þeim Alþýðubandalagsfélagið á Ak orðum Karls leiðir væntan- ureyri, sem Björn Jónsson lega að hann munj ekki sitja alþm. er meðlimur í hefur landsfundinn og hlýtur það ákveðið að senda enga full- að vekja töluverða athygli og trúa á landsfundinn. 'bendir enn til þeirrar sundr- Mbl. sneri sér í gærkvöldi ungar, sem er í röðum Al- til Karls Guðjónssonar, eins þýðubandalagsmanna um af alþm. Alþýðubandalagsins þessar mundir. HANNIBAL Valdimarsson hefur í dag sagt af sér for- mennsku í Alþýðubandalag- inu. Þetta kemur fram í við- tali við Hannibal, sem birt er á 10. síðu Mbl. í dag og fjallar um viðhorf hans til fram- vindu mála í Alþýðubanda- laginu frá stofnun þess og fram til þessa dags. I viðtalinu segir Hannibal m.a.: Þingfundir í gær STUTTIR fundir voru í báðum deildum Alþingis í gær. í efri deild mælti Emil Jónsson, utan- ríkisróðherra, fyrir frumvarpi um fyrirmæli Sameinuðu þjóð- anna. Var frumvarpinu síðan vísað til 2. umræðu og alisherj- arnefndar. Þá mælti Ólafur Björnsson fyrir nefndaráliti fjár hagsnefndar efri deildar um frumvarp um Happdrættj fyrir ísland. Nefndin var sammála um að mæla með samþykkt frum- varpsins, og var það afgreitt til 3. umræðu. í neðri deild mæltu tveir þing menn fyrir frumvörpum sínum. Hannibal Valdimarsson fyrir frumvarpi um vinnuvernd og Skúli Guðmundsson fyrir frum- vrapi um tekjustofna sveitarfé- laga. Voru frumvörpin afgreidd til 2. umræðu og nefnda. „Ég tel það augljóst, að í stað þess, að ég vildi stefna að frjáls lyndu og víðtæku samstarfi vinstri sinnaðra manna og afla í landinu sé nú stefnt af ráðandi mönnum Alþýðubandalagsins og Sósíalistaflokksins út í þrönga pólitíska einangrun, sem ég vona að engir fylgi þeim út í áðrir en þeir, sem í slíkri liðssveit eiga heima sökum sameiginlegra lífs skoðana. Ég hef tekið ákvörð- un um það að eiga engan hlut að þeim landsfundi Alþýðubanda- lagsins, sem hefst í dag. Ég tel augljóst, að þar verði ekki stofn- aður neinn nýr stjórnmálaflokk- ur, heldur fari þar aðeins fram skírnarathöfn, þar sem skipt verð ur um nafn á Sameiningaflokki alþýðu — Sósíalistaflokknum, vafalaust vegna þess að slíkt heiti á augljóslega ekki vi’ð leng ur. í framhaldi af þessari ákvörð un hef ég í dag sagt af mér for- mennsku í Alþýðubandalaginu." Viðtalið í heild birtist sem fyrr segir á bls. 10 í Mbl. í dag. Endastöðvor Kópavogs- og Hainarfjarðarvagna fluttar Á BORGARRÁðSFUNDI s.l. þriðjudag var tekið fyrir og sam þykkt umsögn lögreglu- og borg aryfirvalda varðandi endastöðv- ar Hafnarfjarðar- og Kópavogs- strætisvagna í Reykjavík. Upp- haf málsins er að skólastjóri Gagnfræðaskólans í Vonar- stræti kvartaði um truflun á kennslu í skólanum frá umrædd- um endastöðvum, sem um lang- an tíma hafa verið í Lækjar- götu. Nú hefur verið ákveðin sú breyting að innan tíðar verði teknar upp nýjar endastöðvar. Hafnarfjarðarvagninn mun aka óbreytta akstursleið um borgina, en endastöðin verður flutt upp á Laufásveginn við Bókhlöðustíg, en Kópavogs- vagnarnir munu aka inn í mið- borgina um Hringbraut, Sóleyj- argötu, Fríkirkjuveg og Lækjar- götu að nýrri endastöð sem nán ar á eftir að ákveða um, en síð- an aftur til Kópavogs um Skúla götu og Snorrabraut. Fjögur félög senda ekki fulltrúa Skv. upplýsingum sem MbL hefur aflað sér munu fjögur Al- þýðubandalagsfélög ekki senda fulltrúa á landsfund Alþbl. sem hefst í dag. Eru það félögin 1 Bolungarvík, Akureyri, Eyja- firði og á Húsavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.