Morgunblaðið - 08.01.1969, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.01.1969, Blaðsíða 15
MORGUNBJjAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1969. giftast henni, verður bún und- arleg í framan og stingur af við sólarupprás. Hún flækist til Mexikó, hittir þar mann sem kemst að því hver hún er. Hún fer með honum til New York, þar sem hann hyggst kúga fé út úr eiginmanni henn- ar. Og þarna er það sem mynd- in hættir að vera vinnukonu- róman og stígur niður á við. Konan vill ekki að sonur henn ar komíst að því hvað hún er orðin, í stað þess að vera lík eins og sonurinn hélt, svo hún skýtur fjárkúgarann. Hún er tek- ín föst, neitar að segja hvað liún heitir og gerir ekkert til að verja sig. Rétturinn skipar henni lög- fræðing, og vi'ti menn, það er einmitt sonur hennar, en það vita þau hvorugt. Þetta er fyrsta mál sonarins, svo að faðirinn mætir í réttinum, nú orðinn ríkisstjóri og á von á útnefningu sem for- setaefni þá og þegar. Einnig mæt ir tengdamóðirin. Ryrja nú allir að átta sig á hver er hver og verða allir ósköp vandræðalegir nema illa tengdamóðirin, sem grætur, sennilega til að maður sjái að hún er ekki eins ill og maður hélt. Sonurinn ver kvinn- una af snilli og lítur út fyrir að hann sé að vinna málið, þegar kviðdómur fer út. Nú er vandi á höndum höf- undum kvikmyndahandrrtsins. Ekki getur forsetaaefnið tekið aftur við eiginkonu, sem týnd hefur verið í tuttugu ár og c\S- in illa fair naf ólifnaði, og ekki er heldur hægt að láta hann kasta henni út í yztu myrkur. Þeir leysa málið á einfaldan og snjallan hátt. Hún deyr á með- an kviðdómurinn er frammi. L/eikur í myndinni er afleifur, með tveimur undantekniwgum. Eru það Burgess Meredith sem fjárkúgarinn og Keir Dullea sem sonurinn. Leikur beggja er langt framar því sem algengt er, enda báðir kunnir leikarar. Enginn sem sá Davíð og Lísa hefur gleymt leik Keir Dullea í því hlutverki. Senn má búazt við, að Ross Hunter verði að fá sér aðra leik- konu, þar sem Lana Turner er ekki lengur sérlega sannfærandi sem ung stúlka. Eigi hún sér einJhverja aðdáendur, skal þeim bent á að sjá þessa mynd, því að hún er með þeim seinustu . f þessu tagi. JOIS - MWILLE glerullareinangrunin Fleiri og fleiri nota Johns- Manville glerullareinangrun- ina með álpappírnum, enda eitt bezta einangrunar- efnið og jafnframt það langódýrasta. Þér greiðið álíka fyrir 4” J-M glerull og 2W’ frauð- plasteinangrun og fáið auk þess álpappír með! Jafnvel flugfragt borgar sig. Sendum um land allt — Jón Loftsson hf. Hringbraut 121. - Sími 10600. AÐALUMBOÐ: O. JOHNSON OC KAABER Skyrtan sem er straufrí og framleidd úr 50°Jo kodel og 50°]o bómull, meb Zip- Clean i kraga og liningum sem gerir þvottinn auðveldari. 5 mismunandi ermalengdir. ÖLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM: Laugarásbíó: MADAME X Lana Turner er farin í hund- ana einu sinni enn. Fyrir þá, sem þekkja Ross Hunter og fram- leiðslu hans, þarf ekki að segja neitt meira. Fyrir hina, sem ekki eru þessu fyrirbæri kunnugir, er rétt að lýsa helztu einkennunum. Án undantekninga er um að ræða ríka konu, venjulega gifta góðum manni, sem hún fer að halda framihjá og lendir við það í gílfurlegum vandræðum. Venju- lega er þjóðfélaglsleg úttskúfun af einlhverju tagi erfiðust þessum persónum. Allt skeður í háStigi. Hús eru ótrúlega íburðarmikil, karlmenn ganga helzt ekki í öðrum fötum en smoiking eða rauðum flauelts-innijökkum, til- finningar eru annað hvort ægi- legt ha'tur eða eldiheit ást, menn drekka helzt ekki annað en kampavín á meðan vel gengur, þegar illa gengur nægir ekkert minna en absinth, bílar eru fín- ir ag dýrir, skemmtanir eru svo fínar, að teknar eru myndir nið- ur í gegnum kristallsljósakrónu af dansandi fólki, grátur er sár, bros eru sæt og hlátrar skærir sem klukknahljómur. Ef einhvern er nú farið að gruna, að hér sé um dæmigerðan eldlhúsróman að ræða, kemur mér það ekki á óvart. Og ekki bætir söguþráðurinn úr. Lana Turner giftist frægum og rík- um manni að nafni Clayton Anderson (John Forsythe). Eins og honum og ætt hans er lýst, minnir hann helzt á samsetningu úr Kennedy, Harrimann, Rocke feller, Cabo't og Lodge. Maðurinn er svo mikilvægur, að hann er stöðugt að sendast um allan heim fyrir utanríkis ráðuneytið, til að bjarga málun- um. 9ökum einmanaleika fer frúin að halda við vin hans sem leikinn er af Ricardo Montalban, sem tákn allra „gigoloa". Þegar hún svo ákveður að hætta við elskihugann, tekst ekki betur til en svo, að hann dettur niður stiga og deyr. Hún „flýr af stáðn um, en skilur hálsklút sinn eftir“ eins og komizt er að orði í pró- gramminu. Nú kemur illa tengdamóðirin spilið. Hótar Lönu að hún muni hengd, auk þess sem hún eyðileggi með því framtíð eigin- manns og sonar, nema hún fall- 'ist á að týnast og skipta um nafn. Er látið í veðri vaka að hún hafi drukknað, og greiðir kerlingin henn laun í fjarver- unni. Flækist hún um 9vilssland og Danmörku. Taka karlmenn henni almennt vel. En ef þeir vilja gera eitthvað meira en að sofa hjá henni, svo sem að dura-smooth™ Skyrtublússan sem er straufri og aldrei krumpast og er fram- leidd úr 65°]o dacron poíyester 35°]o bómull Fœst á eftirtöldum stöðum: Reykjavík: Dömudeild London Akureyri: Markaðnum KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.