Morgunblaðið - 01.02.1969, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐTÐ, LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1969
Simi 22-0-22
Raubarárstig 31
iiM11-44-44
mnimin
Hverfisfötu 103.
Simi eftir lokun 31100.
MAGINIÚSAR
skiphoui21 símar 21190
eftirk>Wun»lml 40381
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
Mjög hagstætt leigugjald.
SÍMI 8-23-47
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
350,- kr. daggjald.
3,50 kr. hver kílómetri.
MYNDAMÓT hf.
PRENTMYNDAGERÐ
-AÐALSTR/ETI 6
SÍMI17152
JOHNS - MWILLE
glerullareinangrunin
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareinangrun-
ina með álpappírnum,
enda eitt bezta einangrunar-
efnið og jafnframt það
langódýrasta.
Þér greiðið álíka fyrir 4”
J-M glerull og 2y4” frauð-
plasteinangrun og fáið auk
þess álpappír með!
Jafnvel flugfragt borgar sig.
Sendum um land allt —
JónLoftssonhf.
Hringbraut 121. - Sími 10600.
0 Stólum fjölgax í Norr-
æna húsinu suður í
Vatnsmýri
Ivar Eskeland skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Ónafngreindur „kennari", sem
kvartar yfir að hafa ekki fengið
sæti í Norræna húsinu kvöldið,
sem danska bókmenntakynning
in var haldin, hefur mikið til
síns máls. Okkur urðu m.a. þau
mistök á, að við þorðum ekki
að búast við svo mikilli aðsókn
og áhuga, sem raun varð á. Á
hinn bóginn gátum við ekki vís-
að þeim frá, sem komu kl. 19.30
Við erum nú að festa kaup á
fleiri stólum, þannig að í næsta
skipti getum við boðið bæði kenn
aranum og öðrum sæti.
Ég leyfi mér að nota þetta
tækifæri til að þakka öllum fyrir
mikið umburðarlyndi og enn
meiri áhuga.
Á mistökunum ber ég einn
ábyrgð, en heiðurinn að hve vel
tókst til með bókmenntakynn-
inguna er áheyrandanna einna,
sem líklegast eru þeir beztu í
heimi.
Með kærri kveðju,
Norræna húsið.
Ivar Eskeland“.
0 Hvort hvílir hann eða
keyrir prógrammið?
,.Prívatsportari“ skrifar:
„Kæri Velvakandi
Kalla ég mig ekki fallegu
nafni? Það hæfir líka, því að ég
og kona mín höfum aðeins áhuga
á einni grein iþrótta, þ.e. hinni
elztu, og iðkum hana prívat heima
hjá okkur.
Orsök skrifa minna er sú, að
mig langar til þess að koma á
framfæri aðdáun minni á mál-
fari íþróttamanna í útvarpinu.
Um daginn sagði einn hvað eftir
annað og æ ofan í æ: Hann hvllir
í þetta skipti, hann hvílir núna,
kannski hvílir hann næst o.s. frv.
Ég fór að hugsa um það, hvað
eða hvern maðurinn ætlaði að
hvíla, en þá varð mér ljóst af
samhenginu, að maðurinn ætlaði
að hvílast eða hvíla sig.
Cœði í gólfteppi
ElDLITIPPAGIRUlNv
Grundargerði 8 — Sími 23570.
Reykjuvíkunnót í Rridge
Sveitakeppni meistara- og 1. flokks hefst sunnudag-
inn 2. febrúar kl. 1.30 í Domus Medica.
Fyrirliðar mæti kl. 1.15.
NEFNDIN.
Konur Seltjurnarnesi
Enn geta nokkrar konur bætzt við í leikfimistímana
sem eru á mánudögum og fimmtudögum kl. 8.40 e.h.
Öllum konum heimil þátttaka.
Stjóra Kvenfélagsins Seltjaraar.
Kaupum hreinar og stórar
léreftstuskur
Prentsmiðjan.
122-2»
M0280-32ZB
LITAVER
Kjörverð — kjörverð
Getum enn boðið nælonteppin á
kjörverði
Verð pr. ferm. kr 249.—, 270.—,
339.—, 343,— og 420.—
Sendum um land allt.
Það er ánægjulegt, að slík
gróska skuli vera í móðurmálinu,
að það, sem áður hét að hvíla
sig eða hvilast, skuli nú bland-
ast saman við áhrifssögnina að
hvíla, — hingað til aðallega not-
uð um að hvíla hross á ferða-
lögum.
Annar íþróttagarpur lét svo um
mælt um daginn í útvarpinu, að
nú ætti „að keyra áætlunarpró-
grammið í vetur“. Snilldarlega
að orði komizt, ekki satt?
Prívatsportari".
0 „Kvindelogik“
„Kæri Velvakandi!
Tilefni þess, að ég sendi þér
þessar línur, er bréf húsmóður,
sem birtist í dálkum þínum fyrir
nokkrum dögum. Síðari hluti
bréfsins hefur yfirskriftina „Að
græða á viðbjóði", en umræðu-
efnið er kvikmynd, sem lýsir síð
ustu orrustunni er háð var á
brezkri grund. Hefst sá passus á
þessum orðum: „Ég veit að sum-
ir telja réttlætanlegt að sýna slík
ar myndir vegna þess, að þær
séu til þess gerðar að sýna við-
bjóð styrjalda á raunsæjan hátt.
Mig grunar þó, að þetta sé ekki
rétt. Þeir, sem framleiða slíkar
myndir, eru ekki að reka áróð-
ur gegn styrjöldum, heldur að
græða peninga á viðbjóði"
Röksemdafærsla af þessu tagi
er venjulega kölluð „kvindelog-
ik“ upp á dönsku, og er ekkert
við því að segja þar sem kona
á í hlut. Hitt er annað má, að
téð „kvindelogik", sem blómstrar
svo mjög nú um stundir, fer að
gerast nokkuð þreytandi lestrar-
efni, og í þessu tilviki er hún
alvarlegs eðlis. Afleitt væri það,
ef hún hefði einhver áhrif á stofn
anir þær, sem teenndar eru við
menningu, því að ekki er of hátt
á þeim risið fyrir. Húsmóðir
þessi segist hafa horft allmikið
á Keflavikursjónvarpið og haft
gott af því. Nú vaknar sú spurn-
ing, þegar hún lætur framan-
greind orð falla um kvikmynd,
Sem vissulega sýnir með hlífðar-
lausum hætti viðbjóð styrjald-
ar, hvort henni hafi orðið svo gott
af þessu sem hún lætur.
Ég ætla ekki að íæra frekari
rök fyrir þessu, en undarlegt er
það, hvað mörgum af eldri kyn-
slóðinni virðist fyrirmunað að
skilja hvað snyrtilegar styrjaldar
myndir, eins og t.d. hægt er yænt
anlega að sjá nóg af í Kefla-
víkursjónvarpinu — myndir, sem
jafnvel eru vafðar rómantískum
ljóma, eru óendanlega miklu
meiri viðbjóður en mynd sú, er
frúin gerir að unaræðuefni.
Frúin heldur áfram: „Forráða-
menn sjónvarpsins eru til þess
kjörnir að standa í stöðu sinni
og velja og hafna eins og mennt
uðum mönnum sæmir, en taka
ekki við öllu, sem að þeim er
rétt“. Þetta er skörulega mælt,
eins og sannri íslenzkri húsmóð-
ur sæmir! En er ekki svolítið
ljótt, Velvakandi góður, að gera
þessum blessuðum konum svona
auðvelt fyrir að auglýsa ein-
feldni sína fyrir alþjóð — jafn-
vel þótt sú einfeldni sé allt að
því heilög?
Heimilisfaðir.
P.S.
Ef eitthvert efni er f sjónvarpi,
sem menn vilja ekki horfa á, er
sagt ágætt ráð að skúfa fyrir það“
BIFREID
TIL SÖLU
Á bifreiðaverkstæði lögreglunnar, Síðu-
múla 16, er til sýnis og sölu Chevrolet sendi-
bifreið, árgerð 1959.
Tilboð sendist Skúla Sveinssyni aðalvarð-
stjóra, fyrir 7. febrúar n.k. og gefur hann
nánari upplýsingar.
heldur félagsfund þriðjudaginn 4. febrúar kL 8.80
e. hád. í fundarsal félagsins að Garðastræti 8, 2. hæð.
D a g s k r á :
1. Erindi: Ólafur Tryggvason frá Akureyri.
2. Skyggnilýsingar: Hafsteinn Björnsson miðill.
3. Tónlist.
Aðgöngumiðar fást á skrifstofunni mánudag 3. febrúar
kl. 5—7 e. hád. og þriðjudag kL 5.15 til 6, ef eitthvað
er óselt. Húsrúm takmarkað.
STJÓBNIN.