Morgunblaðið - 01.02.1969, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAH 1969
Blaðamaður Morgunblaðsins skrifar frá Bandaríkjunum
„Edward Moore Kennedy
þeir síðustu veria fyrstir'
:-S£>-2S
••
lÍTSALA - ÚTSALA
Útsalan er byrjuð. — 20—50°]o afsláttur
SÓLVEIG
Laugavegi 69 — Hafnarstræti 15.
Madison Wisconsin 27. jan.
ÞEGAR flokksþing Demó-
krata 1960 lauk og John F.
Kennedy hafði verið útnefnd
ur forsetaefni færði hann öll-
um nánustu fylgismönnum sin
um Iitla gjöf að launum.
Yngsta bróður sínum gaf hann
.sígarettuhylki úr silfri sem
bar áletrunina „Edward More
Kennedy — þeir síðustu verða
fyrstir." John F. Kennedy
í kosningaleiðangri.
sagði oft um þennan bróður
sinn að hann væri bezti stjórn
málamaðurinn í fjölskyldunni.
Margir hafa síðan velt því
fyrir sér, hvort foretinn hafi
ekki átt við að sú stund
myndi renna upp er Edward
flyttist búferlum til 1600 Penn
sylvania sem forseti Banda-
ríkajnna.
„ÞAÐ LÁ VIÐ ..."
Þegar Robert Kennedy var
myrtur sl. vor beindust þeg-
ar í stað augu allra að Ed-
ward, eða Teddy, eins og hann
er oftast kallaður í blöðum,
sjónvarpi og öðrum frétta-
stofnunum. Samkvæmt æva-
gamalli hefð Kennedyættar-
innar var það nú skylda hans
að taka upp merkið. Hann var
þá 36 ára að aldri. Svo ung-
ur maður hefur aldrei gegnt
forsetaembættinu hingað til
að minnsta kosti. Þegar Demó
kratar þinguðu í Chicagó sl.
sumar hófu nokkrir dyggir
Kennedymenn atkvæðasmölun
fyrir sinn mann. Þetta gekk
svo langt að Eugene McCart-
hy, sá furðulegi maður, bauðst
til að draga sig í hlé, ef
Teddy gæfi kost á sér. Stóri
pabbi, James Daly borgar-
stjóri Chicagó, hét stuðningi
sínum ef ungi maðurinn á-
kvæði sig strax. Ungi maður
inn var ekki alveg ósnortinn
af öllu þessu tilstandi og var
í stöðugu símasambandi við
menn sína. Hann vildi fá að
vita, hvort hér væri á ferð-
inni raunveruleg hreyfing. Það
reyndist ekki og allir vita
hvað Demókratar fengu í jóla
gjöf. Daginn eftir tók Ed-
ward á móti móður sinni sem
var að koma frá Evrópu og
sagði þá við hana, „Mamma,
það lá við að þú fengir enn
einn frambjóðanda."
MIKILVÆGT SKREF.
Rose Kennedy á enga son
í Hvíta Húsinu um þessar
mundir, en flestir eru nú þeirr
ar skoðunar að ævintýrið sé
ekki enn úti. Fyrir nokkr-
um vikum rufu allar sjónvarp
og útvarpsstöðvar hér í landi
dagskrár sínar til að skýra
frá því, að Edward Kennedy
hefði verið kjörinn aðstoðar-
leiðtogi Demókrata í Öldunga
deildinni með því að sigra
Suðurríkjamanninn Russel
Long með 31 atkvæði gegn
27. Þetta var fyrsti raunveru
legi sigur Teddys. Næstu
daga kepptust allar inn-
lendar og erlendar frétta-
stofurnar svo og stjórnmála-
fréttaritarar, sem eitthvað
mega sín, við að túlka þenn-
an sigur Kennedys. Öllum bar
þeim þó saman um að hér
hefði hann stigið mikilvægt
skref á brautinni til Hvíta
hússins. Ekki voru þó allir
sammála um mikilvægi sigurs
ins. Að vísu er það rétt, að
Kennedy er nú kominn inn í
innsta valdahring flokksins,
en störf hans í þinginu eru
mjög bindandi og hann kem-
ur ekki til með að hafa mörg
tækifæri til að ferðast um
landið til að halda ræður og
láta fólkið sjá sig. Slíkt hef-
ur hingað til verið talið hvað
mikilvægast fyrir þá, sem láta
sig dreyma Um æðsta embætti
landsins.
HANN HLÓ.
Sumum kann kannski að
finnast það heldur snemmt að
fara að kíkja í kristalskúl-
una áður en núverandi for-
seti ef almennilega búinn að
koma sér fyrir í Hvíta hús-
inu. Aðrir benda á, að Ed-
ward sé ekki nema 36 ára
að aldri og að þar að auki
eigi hann engan erfðarétt til
forsetaembættisins. Enn aðrir
segjast alveg vera búnir að
fá nóg af Kennedyum og
þeim harmleik, er þeir hafa
leikið aðalhlutverkin í und-
anfarin ár. Hvað sem öllu
þessu viðvíkur, þá held ég að
við verðum að reikna með að
innst í hugskoti Kennedys sé
lítill áttaviti, sem stöðugt vísi
í áttina til hins svo mjög sér
stæða bústaðar. En hvað seg-
ir svo maðurinn, sem orsakar
allar þessar vangaveltur. Eft-
ir að hann hafði verið lýstur
sigurvegari vísaði hann á bug
á fundi með fréttamönnum öll
um staðhæfingum og orðrómi
um að þetta væri persónuleg
ur sigur hans eða áfangi.
Hann sagðist líta á þetta sem
merki um að starfsbræður sín
ir í öldungadeildinni vildu
framsæknari og róttækari for
ystu innan deildarinnar á kom
andi þingi. Sagan segir að af
blaðamannafundinum loknum
hafi Kennedy haldið til skrif
stofu sinnar og horft á kvöld
fréttirnar í sjónvarpinu, þar
sem ýmsir þjóðkunnir menn
létu í ljós álit sitt á sigri
hans. Meðal þeirra var Russ-
el Long, sem meðal annars
ráðlagði Nixon forseta að
gæta sín vel á hinupi unga
keppinauti. Þá á Kennedy að
hafa hlegið hógværlega.
Edward Kennedy á uppleið.
SfMAREIKNINGUR UPP Á
3 MILLJÓNIR.
Edward Kennedy er yngsti
leiðtogi Öldungadeildarinn-
ar í sögu Bandaríkjanna og
öðlast nú í fyrsta skipti þau
völd og áhrif, sem ’ löngum
hafa verið tengd nafni fjöl-
skyldu hans. Það var skarp-
skyggni hans sem stjórnmála
manns er réði úrslitum um á-
kvörðunina og að nú væri
Edward Kennedy ásamt eiginkonu og syni.
rétti tíminn til að láta til
skarar skríða. Það þurfti hug-
rekki til að leggja til atlögu
við einn valdamesta mann
Öldungadeildarinnar, en hefir
sem formaður fjármálanenfdar
deildarinnar verið óvæginn
við þá starfsbræður sína, sem
staðið hafa gegn honum. Hug
rekki hefur þó aldrei skort
meðal Kennedyanna og þar
var Edward enginn undan-
tekning. Kennedyvélin fræga
var sett í gang og sagt er að
símareikningurinn einn hafi
hljóðað upp á 3 milljónir ísl.
kr., er yfir lauk. Edmond
Muskie hafði áður verið bú-
inn að hugleiða að sækjast
eftir embættinu sjálfur, en
hann þorði ekki að hætta á
ósigur og lýsti stuðningi við
Kennedy. Muskie hafði líka
aðra ákvÖrðun í huga, að fara
í kynningarferðalag innan-
lands og utan til að sýna sig
og sjá aðra, með 1972 í huga,
og það hefði hann ekki get-
að gert sem þingleiðtogi. Mus
kie er talinn líklegasti keppi
nautur Kennedys 1972 þ.e.a.
s. ef....?
Það þarf enginn að efast
um að hér vann Kennedy
mikinn persónulegan sigur
Það er líka eins víst að hann
mun ekki láta 'hér við sitja
á framabrautinni. Möguleik-
ar hans til forsetaembættisins
hafa stóraukizt, því að þau
völd, sem hann nú hefir, gera
honum kleift að taka ákvarð-
anir og framkvæma hluti, er
hann hefði aldrei getað sem
venjulegur öldungadeildar-
þingmaður. Hann hefur aðeins
átt sæti þar í 6 ár og er
nr. 23 hvað aldurstiga snert-
ir. Hér er líka annað athygl-
Framhald á bls. 17