Morgunblaðið - 01.02.1969, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.02.1969, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIP. LAUGARDAGUR 1. FBBRÚAR 1969 15 Ingibjörg Minning í DAG fer fram frá Gaulverja- bæjarkirkju útför Ingibjargar Jónsdúttur frá Austur-Meðal- holti. Hún var fædd 31. maí 1890 í Austur-Meðalholti. Hún lézt á Elliheimilinu Grund 24. janúar 1969. Ingibjörg var dóttir merkis hjónanna Kristínar Hannesdótt ur frá Tungu og Jóns Magnús- sonar formans frá Bauksstöðum. IÞau hjón eignuðust 10 börn, 5 drengi og 5 stúlkur. Þrjá drengi misstu þau kornunga úr barna- veiki eins og þá var alltítt, er engin ráð voru fundin við þeirri voða veiki. Þessi sári harmur, og mikli missir beigði þau hjón bæði voðalega. Þá í blóma lífs- ins, en braut þau ekki. Bæði var, að þau voru sérlega sam- hent og af sterkum stofni í báð- ar ættir. En umfram allt trúuð. Og fólu guði allt sitt ráð. Upp komust svo tveir bræður Jón og Hannes, og systurnar 5, Kristín móðir mín, Guðlaug, Ingibjörg Kristín og Guðný. í þessum hópi óx svo Ingibjörg og varð hraust byggð atorkumanneskja. Hún var sérstök til orða og verka. Öll verk sýn vann hún af stakri vandvirkni og trúmennsku. Orða forða átti hún svo græskulaus- an, og gamansaman að öllum kom hún til að hlæja og í gott skap er svo bar undir. Hennar aðalsmerki var trú- mennska, fórnfýsi, og umfram allt, góðlyndi. Hennar hugsun var aldrei hvað hana langaði til. Heldur hvað get ég hjálpað þess um eða hinum. Ég sem þessar línur skrifa, tala af eiginreynslu Ég var tekin á heimili Ömmu minnar móður Ingibjargar á fyrsta ári, til að forða mér frá barnaveiki, er þá gekk yfir. En með því þó, að Ingibjörg vildi annast mig, sem var auðsótt. Hún var þá 18 ára stúlka. Hún efndi það er hún lofaði. Með okkur hefur alltaf verið mikill kærleikur æ síðan, sem aldrei féll hinn minnsti skuggi á. Ég veit að ég má tala fyrir öll hennar systkinabörn, og aðra ættingja og vini er hún hafði nokkur kynni af, að hún var ein elskulegasta manneskja er við höfum þekkt. Við brjóst þess arar elskulegu frænku svaf ég, til 8 ára aldurs. Þá kemur enn á heimili Ömmu lítill tveggja ára munaðarlaus drengur Bjarni Bjarnason. Heilsulaus mjög, sem fékk þá bólið mitt hjá Imbu, eins og hún var kölluð. Yfir þetta blessaða barn, sem alltaf var að kalla mamma, breiddi hún alla sína ástúð og umhyggju. Því hann varð fárveikur aftur og aft ur af lungnabólgu. Þær Ingibjörg og amma vöktu nótt eiftir nótt, tjölduðu yfir hann og mynduðu gufu með sjóðandi vatni tímum saman. Einnig voru ótaldar ferðir Hannesar bróður Ingibjargar að sækja lækni, því aftur og aftur fékk þessi litli drengur sömu veikina, sem hann þó með þess- ari einstöku hjúkrun og guðs hjálp, lifði af. Nú er þetta 11 barna faðir og búinn að liggja helsjúkur í langan tíma, á sjúkra húsum utanlands og innan. Get- Jónsdóttir ur hann þessvegna ekki fylgt þessari góðu annari móður sinni til grafar svo mjög sem hann hefði óskað þess. f þriðja sinn kemur inní Meðalholtaheimilið, nú er það dóttir Guðnýjar syst- ur Ingibjargar, sem fer til Am- eríku. Þesei litla stúlka er 2ja ára er hún verður þar eftir og heitir Ásdís Lárusdóttir. Ingi- björg harmaði mjög burtför Guð nýjar því með þeim var ein- stakur systrakærleikur, þess í stað dáir hún litlu stúlkuna hennar. En nú er Hannes bróð- ir Ingibjargar tekinn við búi ömmu. Guðrún kona hans tekur að sér að annast barnið eða öll í sameiningu, sem hún svo sann- arlega gerir af mikilli prýði. Þeg ar svo þessi stúlka er 19 ára, verður hún fyrir þeirri veiki sem þá geisar um landið, og lam- ar fjölda mans, og hún bíður aldrei bætur. Þetta gengur Ingi- björgu voðalega nærri. Hún og allt þetta góða fólk gerir, sem í þeirra valdi stendur til að veita henni hjálp og létta henni lífið. Hún sannarlega þurfti á móðurást að halda og engin móð ir var betri en hún þó hún ætti ekki börnin sjálf. Ingibjörg var alla tíð í Meðalholti hjá bróður sínum og konu hans utan þess hvað hún fór til Reykjavíkur í fiskvinnu, sem sannarlega -var ekki sældarvinna að brjóta á klökuðum körum að vaska fisk. Með Guðrúnu og Ingibjörgu var sérlega gott samband alla tíð. Eftir að Ingibjörg fór að missa heisluna nú fyrir fáum árum reyndist Guðrún henni svo vel sem ég tel til hreinnar fyrir- myndar. Þær máttu vart hvor af annarri sjá. Og nú er það Guð- rúnar hlutskipti að vera á sjúkra húsi eftir bílslys er hún varð fyrir á síðastliðnu hausti og get- ur því heldur ekki fylgt henni til grafar. Nú erum við öll þessi þrjú börn, búin að eiga okkar Framh. á Ms. 16 lominiaue Pire látinn Hann vann mikið starf í þágu flótta- manna eftir styrjöldina og hafði trum- kvœði um byggingu Evrópu-þorpanna Louvain, Belgíu, 30. jan. AP-NTB FAÐIR Dominique Pire, sem fékk friðarverðlaun Nóbels árið 1958 fyrir staxf í þágiu. flóttafólks eftir síðari heims- styrjöldina, lézt í Louvain í dag, 59 ára að aldri. Dominique Pire var fædd- ur í borgrnni Dinant í Belgíu árið 1910. Hann tók stúdents- próf 1927 og gekk skömmu síðar í dóminikanklaustrið La Sarte í bænum Huy. Hann stundaði nám í guðfræði við dóminikaháskólann í Róma- borg árin 1932—34 og var þar vígður presitvígslu. í heims- styrjöldinni síðari tók hann mikinn þátt í belgísku neð- anj arðarthreyfingunni, bæði sem njósnari og eins konar herprestur. Árið 1949 var honum falið að taka að sér stjórn flóttamannabúða, sem regla hans hafði komið á lagg imar og alla tíð síðan vann hann mikið og fórnfúst starf fyrir flóttafólk. Þekktastur varð Pire fyrir að koma upp hinum svoköll- uðu Evrópuþorpum. Ætlun- in með þeim var að rjúfa einangrun flóttamannanna. 1 stað þess a'ð lóta þá búa í fjöl mennum flóttamannabúðum, beitti hann sér fyrir bygg- ingu margra smárra þorpa, þar sem flóttamennimir gátu búið við mun betri og hag- stæðari skilyrði. Fyrsta Ev- rópuþorpið var reist við borg ina Aachen í Þýzkalandi árið 1956. Faðir Pire skipulagði starfsemi ótal flóttamanna- deilda í ýmsum löndum og gekkst fyrir fjársöfnunum til Evrópuþorpa sinna. Myndin er tekin árið 1958, Nóbelsverðlaunanefndar nors Dominique Pire friðarverðla unin. Þegar Pire hlaut Nóbels- verðlaunin 1958 sagði hann: „Fyrir mig eru þetta ekki fynst og fremst verðlaun, heldur hvatning til dáða.“ Hann varði verðlaunaupp- hæðinni til að koma upp „Friðarháskóla" í Belgíu og tók skólinn til starfa 1960. Árið 1967 bauðst Pire til þess að fara, ásamt öðrum friðarverðlaimahöfum til Norður- og Suður-Vietman og til Bandaríkjanna til að reyna að finna grundvöll að frið- samlegri lausn Vietnamstyrj- aldarinnar og í fyrra var hann me'ð þeim fyrstu til að ............................... i þegar Gunnar Jahn, formaður ka stórþingsins afhenti föður vekja athygli á því ógnar- ástandi sem væri að skapast í Nígeríu og Biafra vegna borgarastyr j aldarinnar og hann hvatti Einingarsamtök Afríkuríkja til að beita sér fyrir að friður yrði saminn. Slysavarnadeildin „Vörn## á 8>ingeyri 4® dira Þingeyri, 26. jan. LAUGARDAGINN 1. febrúar minnist Slysavarnadeildin ,Vörn‘ á Þingeyri 40 ára afmælis síns með þorrablóti. Samkvæmt upplýsingum for- manns deildarinnar, séra Stef- áns Eggertssonar, var stofnfund- ur hennar hgldinn 2. febrúar 1929 samkvæmt fundarboði út- gefnu 21. jan. af séra Sigtryggi Guðlaugssyni á Núpi, og var hann frummælandi á fundinum. Stofnendur voru 63. Deildin hlaut nafnið „Vörn“ og var starfssvæði bennar ákveð ið Dýrafjörður milli Sléttaness að sunnan og Kaplaskerja að norðan. Heimili og varnarþing á Þing- eyri. í fyrstu stjórn voru kosnir: Guðmundur J. Sigurðsson for- maður, Steinþór Benjamínsson gjaildkeri og Nathanael Mósesson ritari. Þessir menn hafa lengst af átt sæti í stjórn deiildarinnar: Sigmundur Jónsson formaður frá 1936—’49, Steinþór Benja- mínsson gjaldkeri frá 1929—’49 og Leifur Jóhannesson ritari frá 1937—‘49 og ennfremur núver- andi formaður, séra Stefán Egg- ertsson, en hann var kosinn 1951 og með honum í stjórn eru nú Andrés Jónasson gjaldkeri og Guðmundur Friðgeir Magnússon ritari. Félagar í árslok 1968 voru 159. Starfssvæði deildarinnar er nú innri hluti Þingeyrarhrepps milli Meðaildalsár og Botnsár. Deildin hefur beitt sér fyrir hvers konar umbótum, björgun- ar- og slysavarnamálum og vil ég nefna það helzta: 1) Öryggismál sjófarenda, en það mál hefur alltaf verið ofar- lega á dagskrá. Á aðalfundi 17. des. 1932 er rætt um björgunar- skútu fyrir Vestfirði, og beitti deildin sér fyrir lausn þess máls ásamt öðrum deildum á Vest- fjörðum, er fékkst með smíði „Maríu Júlíu". 2) Aukinni sundkenns'lu og var „Vörn“ ein af þrem aðilum, sem stóðu fyrir byggingu sund- laugar á Þingeyri 1954, sem því miður varð ekki lokið. 3) Björgunarsveit var stofnuð 6. des. 1951 og þá einkum miðað við björgun úr sjávarháska, en á síðari árum varð mönnum ljóst, að nauðsynlegt var að vera viðbúinn að veita björgunarað- stoð jafnt á landi og sjó, og ref- ur deildin því aflað sér alls- góðs útíbúnaðar til þess, þar á meðai tæki tíl fjarskiptaþjón- ustu. 4) Deildin sá um uppsetningu sæluhúss á Dynj andisheiði ásamt S.V.F.S. og annast viðhald á því og útbúnað, ásamt samskonar þjónustu í sæluhúsinu á Hrafns- eyrarheiði. 5) Sjúkraflugvelli var komið upp við Þingeyri fyrir atbeina deildarinnar, en það verk hófst 25. sept. 1957 og lenti Björn Pálsson þar í fyrsta sinni 2. nóv. sama ár. 6) Deildin kom upp öryggis- talstöð á Þingeyri í ársbyrjun 1957, sem seinna var breytt í verstöðvartalstöð og er nú kost- uð af hafnarsjóði Þingeyrar- hrepps, en umsjón þeirrar þjón- ustu hefur formaðurinn, séra Stefán Eggertsson, innt af hendi frá fyrstu tíð endurgjaldslust. 7) Á sl. árj beitti deildin sér fyrir því, að rudd yrði slóð af veginum á Hrafnseyrarheiði inn yfir ihálendið að Glámu til að auðvelda leit að flugvélum, ef nauðsyn kræfi. Á liðnu sumri var mælt fyrir TV2 km kafla af þeirri leið, en þar sem hentug vél fékkst ekki til verksins, var því frestað til næsta árs. Til þessa verks var veitt kr. 20.000.00 af fjallvegafé og von- ir standa til að nokkurt fé fáist úr heimahögum, auk sjálfboða- liðsvinnu. INESBYEN 28. janúar. — í gær ihófst vertíðin í Lófót og er all- margt manna komið þangað í iverið. Vertíðin í fyrra gaf svo mikinn afla, að margir vilja freiista gæfunnar í ár, en hins- vegar er sá hængurinn á, að rnikil óvissa er um það, hvernig takast megi að selja aflann. 1 gær héldu fiskkaupendurnir fund í Svovlvær til þess að gera grein fyrir aðstöðu sinni. Það eru rúmlega 200 aðilar, sem kaupa fiskinn til verkunar i Lófót, og af þeim var rúmur Ihelmingur mættur á fundinum. >Og þeir gerðu ýmsar eftirtektar- verðar ályktanir. Fyrst og fremst þá, að ríkis- stjórnin yrði að kaupa fyrir sæmilegt verð allar þær birgðir af harðfiski, sem enn eru óseld- ar frá síðasta ári. Ýmsir kaup- endur eiga alla sína peninga bundna í þessum birgðum og geta því ekki keypt fisk í vetur nema þeir fái þessa peninga. Stjórnin hefur keypt allmikið af Nígeríuskreið áður, en þó er mikið eftir. — Þá var þess einn- ig krafizt, að ekki yrði verkuð nema 15.000 tonn af þessum fiski, og ennfremur að bannað yrði að leggja net og lóðir á laugardögum, þannig að fis-kur- inn yrði tveggja daga gamall, en það spillir gæðum hans. Formaðurinn biður fyrir beztu þakkir til Þineyringa og ann- arra, sem greitt hafa götu deild- arinnar og þá sérstaklega Lands- símanum og starfsfólki hans ásamt landhelgis’gæzlunni, sem allir hafa verið boðnir og búnir að veita alla þá aðstoð, sem þörf hefur verið á, hvenær, sem til þeirra hefur verið leitað og ósk- ar áframhaldandi góðs sam- starfs. — Nú munu fulltrúar fisk- kaupenda hefja umræður við stjórnina um þessar kröfur, og gefa í skyn, að ef þeim verði ekki fullnægt muni þeir neita að kaupa fiskinn. — ESSKÁ. Systrafélagið fllía vill liðsinna Systrafélagið Alfa i Reykja- vík, sem leitazt hefur við að liðsinna þeim sem eiga í erfið- leiikum, hefur nýlega kosið stjórn. Formaður er frú Fanný Guðmundsdóttir, Drápuhlíð 6, I Reykjavík og gjaldkeri frú Sig- urrós Ólafsdóttir, Nesveg 7. Starf semf félagsins liggur niðri sum- armánuðina júní, júlí og ágúst, nema þegar mjög aðkallandi er, en annan tíma árs liðsinnir það þeim, sem eiga í erfiðleikum. Hefur félagið beðið blaðið um að segja slíkum, að hægt sé að hafa samband og leita upplýs- inga í símum 18475, 36655 og 12011 kl. 11.00—14.00 mánudaga, I miðvikudaga og fimmtudaga. Hulda. Lófót-vertíðin hafin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.