Morgunblaðið - 11.02.1969, Page 19
MORGUN'BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1969.
19
Reykjavíkin, gamalt fiskiskip og Gjöa, skip Amundsens.
Skipamðdel á sýningu
í GÆR var opnuð sýning á skipa
módelum hjá Kristjáni Guð-
mundssyni að Týsgötu 3.
Er hér um að ræða fimm
gömul skipamódel smíðuð eftir
myndum, og hefur Sigurður Þor-
steinsson frá Neðri-Miðvík í
Norður-fsafjarðarsýslu gert þau.
Hann flutti til Reykjavíkur 1945,
- ARSSKYRSLA
Framhald af bls. 10
námu stórframkvæmdir um 20
prs. fjármunamyndarinnar í
heild. Þessar framkvæmdir
munu halda áfram á fyrri hluta
ársins 1969, en lúkning þeirra
síðla sumars mun leiða af sér
verulega minnkun byggingar-
starfsemi. önnur fjárfesting at-
vinnuveganna og íbúðabygging-
ar munu sennilega haldast á
fremur lágu stigi, með tilliti til
hins óvissa útlits á efnahags-
sviðinu. Raunveruleg útgjöld op
inberra aðila munu sennilega
aukast eitthvað, en einkaneyzla
mun minnka enn frekar af völd-
um lækkunar raunverulegra ráð
stöfunartekna. Á þessum for-
sendum eru líkur á litlum vexti
þjóðarframleiðslunnar. Kann því
vaxandi hjöðnunaráhrifa að
gæta í þjóðarbúskapnum, eink-
um á síðari helmingi ársins, eft
Ný mál
Jón Þorsteinsson (A) hefur
lagt fram á Alþingi frv. um
breytingu á vinnulöggjöfinni og
eru meginatriði þess þessi:
1. Frestur til að boða vinnu-
stöðvun er lengdur úr 7 sólar-
hringum í 20 sólarhringa.
2. Sáttasemjara er skylt að
taka vinnudeilu til meðferðar í
síðasta lagi 10 sólarhringum áð-
Ur en vinnustöðvun er ætlað að
koma til framkvæmda.
3. Sáttasemjara er heimilað að
fresta því um allt að 4 sólar-
hringa, að vinnustöðvun hefjist,
ef hann hefur í hyggju að bera
fram miðlunartillögu eða aðrar
sérstakar ástæður eru fyrir
hendi að hans dómi.
4. Sáttasemjara er heimilað að
krefja Efnahagsstofnunina Hag-
stofu íslands og aðrar opinberar
stofnanir skýrslna um ýmiss
konar málefni, er máli kunna að
skipta til lausnar á vinnudeilu.
5. Breytt er reglunum um
þátttöku í atkvæðagreiðslu um
miðlunartillögu til þess að
styrkja aðstöðu sáttasemjarans,
en jafnframt í því skyni að örva
menn til þátttöku í slíkum at-
kvæðagreiðslum og draga úr lík-
unum á því, að almennt þátt-
tökuleysi í atkvæðagreiðslunni
verði miðlunartillögu að falli.
ólafur Jóhannesson (F) og
nokkrir aðrir þingmenn Fram-
sóknarflokksins hafa lagt fram
á Alþingi þingsályktunartillögu
um einkarétt íslands tii land-
grunnsins en stjórnarfrv. um
þetta efni var einnig lagt fram
í gær (sjá frétt á baksíðu).
og hefur verið hér síðan.
A'llt er þetta tómstundavinna,
og hinir mestu kjörgripir, og
allir til sölu.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 1—6 (að undanskildum sunnu
deginum 16/2).
Aðgangur er ókeypis.
ir að stórframkvæmdunum lýk-
ur, en þá mun sennilega hætta
þar störfum um það bil 1 prs.
mannaflans í heild.
Úr innflutningi ætti að draga
mjög verulega á árinu 1969.
Varla verður nokkur innflutn-
ingur skipa og flugvéla. Stjórn
arvöldin búast við, að innflutn-
ingur vegna stórframkvæmd-
anna muni minnka um 25—30
prs. í erlendum gjáldeyri, en
fjármagns til þess innflutnings
er aflað erlendis frá. En af völd
um nýafstaðinnar gengisfelling-
ar og samdráttar í almennri eft-
irspurn ætti annar innflutningur
einnig að dragast verulega sam-
an. Viðskiptajöfnuðurinn gagn-
vart útlöndum ætti því að batna
mjög, ef þær vonir um nokkra
aukningu útflutningsins rætast,
sem bundnar eru við eðlilega
aukningu bolfiskaflans og
nokkra aukningu síldaraflans
frá hinu sérstaka aflaleysi árs-
ins 1968. Samt sem áður eru lík
ur á, að nokkur viðskiptahalli
haldist á árinu 1969, sennilega
á milli 500 og 1000 millj. króna á
hinu nýja gengi, og auk þess
þarf að sjá fyrir háum greiðsl-
um af erlendum lánum. Með þeim
lántökum erlendis sem þegar hef
ur verið séð fyrir, kann þó að
reynast unnt að komast hjá rýrn
un gjaldeyrisstöðunnar á árinu
1969.
Þessi viðhorf valda miklum
vanda við stjórn efnahagsmála.
Þrátt fyrir nýafstaðna gengis-
breytingu er útlit fyrir, að
greiðslujöfnuðurinn út á við
haldi áfram að vera örðugur.
Viðskiptajöfnuðurinn kann að
koma út með halla, enda þótt sá
halli verði miklu minni en hann
var árið 1967 eða 1968. Spá þessi
er háð verulegri óvissu, svo
sem jafnan er um allar áætlan-
ir um fiskafla og afurðaverðlag.
Niðurstaðan gæti orðið hagstæð
ari, en einnig verða menn að
verða við óhagstæðari niður-
stöðu búnir. Þýðingarmikið atr-
iði eru greiðslur vegna er-
lendra lána, en þær hafa orðið
ti'ltölulega mun þungbærari en
áður, þar sem útflutningstekjur
hafa lækkað. Með tilliti til hins
lága gjaldeyrisforða munu veru
legar erlendar lántökúr reynast
nauðsynlegar, jafnvel þótt við-
skiptajöfnuðurinn færist nær
jafnvægi. Meiri háttar breyting
greiðslujafnaðarins til batnaðar
hlýtur því að verða meginatriði
f’efnunnar í efnahagsmálum enda
þótt til þess þurfi að beita að
haldi í peninga málum og fjár-
málum. En þar sem þegar hefur
orðið töluverð hjöðnun í
efnahagslífinu, verður að taka
tillit til áhrifa stjórnar peninga
mála og fjármála á atvinnu-
ástandið. Kann að reynast
nokkurt svigrúm til sveigjan
leika á þessum sviðum, einkum
í peningamálum, að því til-
skyldu að náð verði staðfestu
kaupgjalds og að því marki, sem
greiðslujöfnuðurinn batnar.
Þetta svigrúm hlýtur hins vegar
að vera takmarkað, þar sem
uði h’lýtur að verða mjög þung
hættan á versnandi greiðslujöfn
á metunum.
í þessu efni er það augljós-
lega grundvallaratriði, að hækk
un framleiðslukostnaðar eftir
gengisbreytinguna verði haldið
í algjöru lágmarki. Reynsla
fyrstu tólf mánaðanna eftir geng
isfellinguna í nóvember 1967 hef
ur sýnt ljóslega að áhrif geng
isbreytingar á samkeppnisað-
stöðu atvinnuveganna og kaup-
getu neytenda geta rýrnað ört
af víxlhækkunum verðlags og
kaupgjalds er fýlgja sjálfkrafa
verðlagsuppbótum á kaupgjald
og búvöruverð. Aðlögun raun-
verulegra tekna að hinni óhag-
stæðu aðstöðu út á við er vissu
lega sársaukafull. Það er því
mikilvægt, að fullur og almenn-
ur skilningur allra hlutaðeig-
andi aðila sé vakinn á nauð-
syn slíkrar aðlögunar og á þeirri
staðreynd, að gengisfelling krón
unnar er grundvallaraðgerð til
þess að ná því marki.“
Frá Viðskiptamálaráðuneytinu,
10. febr. 1969).
- ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls. 26
það ómjúk faðimlög, en losaði
um aðra leikmenn á línunni.
Með skipulaginu á varnar-
leiknum vann Hilmar Björnsson
landsliðsþjálíari stóran sigur.
Það eitt úr af fyrir sig að
Jörgen Pedersen skyldi ekki
skora nema eitt mark segir sína
sögu. Og þegar á heildina er lit-
ið er það auðséð, að þetta unga
islenzka lið á framtíðina fyrir
sér. Með sömu samstillingu og
það hefur sýnt í þessari ferð,
spái ég því, að það eigi eftir að
vinna stóra sigra og ná mjög
langt.
Mörkin í landsleiknum skor-
uðu:
ísland: Geir Hallsteinsson 7
(1 úr vítakasti), Jón Hjaltalín
Magnússon 2, Sigurbergur Sig-
steinsson 2 og Ólafur Jónsson 2.
Danmörk: Gravesen 5 (4 úr
vítaköstum), Verner Gaard 2,
Bent Jörgensen 2, Per Svendsen
3, Palle Nielsen 2, Jörgen Ped-
ersen 1, Svendsen 1 og Gert
Andersen 1.
- LITIÐ INN í?
Framliald af bls. 16
nokkurn ramma, en hann er
þannig: Fimmtuadaga verður op-
ið frá kl. 9—11,30 fyrir lö ára og
eldri. Ætlunin er, að þá verði
m.a. ýmiss konar tónlistarkynn-
ingar — og kemur þá diiskótekið
að góðum notum. Mætti t. d.
nefna þjóðlaga-, jazz- og blues-
kynningar og kynningar á klass-
ískri tónlist o.fl. Föstudaga verð
ur opið frá 8-1 fyrir 16 ára og
eldri. Mun þá diskótekið einung-
is starfrækt, en af og til munu
verða kynntar nýjar hljómsveit-
ir. Laugardaga verður opið frá
8-1 fyrir 16 ára og eldri. Þá
munu vinsælar hljómsveitlr
leika fyrir dansi og framframt
verður diskótekið í gangi, þann-
ig að diskótek og nljomisveit
skiptast á. Einnig munu ætíð
vera einhver skemmtiatriði
þessi kvöld. Á sunnudögum verð
ur opið frá 3-6 síðdegis fyrir
unglinga 13-15 ára. Hljómsveit
og diskótek skiptast á. Og um
kvöldið verður svo opið frá 8-1
fyrir 15 ára og eldri. Hljómsveit,
diskótek og skemmtiatriði verða
á sunnudagskvöldum. Önnur
kvöld verður húsið leigt skólum
og félagasamtökum fyrir skemmt
anir og samkomur.
Um fjármiálin er það að segja,
að borgarsjóður hefur lagt fram
fé til breytinga og tækjakaupa.
Verð aðgöngumiða og veitinga
er stillt í hóf, en þó er talið að
húsið geti staðið undir hinum
daglega rekstri og jafnvel greitt
niður tækin“.
Einn ágætasti kunnáttumaður
um málefni unglinga, áhugamál
þeirra og annað, er Andrés Indr-
iðason og er hann í húsnefndinni.
Hefur hann verið tengdur ungl-
ingum og þeirra málefnum um
nokkurra ára skeið sem blaða-
maður, útvarps- og sjónvarps-
maður. Taldi Pétur það mikið
lán, að geta leitað til sliks
manns í sambandi við þessa starf
semi.
Að lokum sagði Pétur Svein-
bjarnanson: „Einkunnarorð húss-
ins eru þau, að ungt fólk sæki
staðinn, að ungt fólk starfi á
staðnum og að ungt fólk skemmti
á staðnum“.
Þá bar að þá Styrmi Gunnars-
son, formann Æskulýðsráðs, og
Steinþór Ingvarsson, fram-
kv.stj. hússins. Báðir höfðu
þeir í mörgu að snúast, en gáfu
sér þó tíma til að segja nokkur
orð. Styrmir kvaðst hafa orðið
mjög undrandi, er hann sá hinn
fjölskrúðuga klæðaburð ungu
stúlknanna, en engar reglur eru
um klæðnað gesta. Steinþór hafði
miklar áhyggjur út af loftræst-
ingunni, sem var afleit, en hann
kvaðst vona að hún yrði endur-
bætt fyrir næstu helgi.
Tókum við nú að búast til
heimferðar. Gengum við út sal-
inn og niður í anddyrið. Þar var
að finna kassa fyrir atkvæða-
seðla í kosningum um nafn á
staðinn. Á atkvæðisseðlinum
eru 20 nöfn, en þó finnst okkur
vanta tvö nöfn, þjóðlieg og að
merkingu nátengd starfseminni:
Villingaholt og Gaulverjabæ.
Hurfum við síðan á brott, ánægð-
ir og kátir. En einhver hefur þó
ekki verið algjörlega ánægður
með staðinn, því að klukkan 2
e.m., e rstarfsfólkið var að taka
til uppi á lofti, braut einhver
stóra og þykka rúðu í anddyrinu.
Ef til vill má segja, að fall
sé fararheill og að þetta
verði eina alvarlega skemmdar-
verkið í húsakynnunum. Það er
a.m.k. von okkar, að reyvískir
unglingar sjái sóma sinn í að
ganga vel og þrifalega um þenn-
an nýja samkomustað.
- GEIMSKIP
Framhald af bls. 3
mestu klaufar, já hreinir
þorskhausar! Hvað er að? er
spurt úr öllum áttum. Það
sem er að, er að við erum
allir svo heimskir að slíkt er
'alls ekki leyfilegt, rumdá í
Titaranum. Það sem að er, er
að flaugin vegur nákvæmlega
níu þúsund sex hundruð og
tuttugu og fimm kíló. Rúm-
mál flaugarinnar er slíkt, að
'jafnmikið rúmmál af vatni
rnundi vega tuttugu og átta
þúsund kíló — en þar af
leiðir að flaugin hlýtur að
■fljóta. Þetta var hárrétt". Og
þessvegna fundu þeir tunglfar
ana heila á húfi. Þeir biðu
hinir rólegustu í kúlunni
■sinni. Þannig var frásögn Jul-
•es Vernes fyrir meira en 100
árum.
Einn af geimförunum þrem
ur, sem fyrstir komust raun-
•verulega til tunglsins, Frank
Borman, hefur að undanförnu
verið í 19 daga ferð til 8
Evrópulanda, ásamt konu
sinni og tveimur sonum. Hann
ikom fyrst til Frakklands, þar
sem hann vakti mikla athygli
'og hitti fyrsta daginn Jean
Jules Verne, sem fyrr er sagt.
- UTAN ÚR HEIMI
Framhald af bls. 14
Rannsóknarnefndin skoðaði
sæg af ljósmyndum og tókst
að útskýra margar þeirra
mynda, sem áður höfðu verið
taldar sanna tilveru fljúgandi
diska. Árið 1957 tók hermað-
ur nokkur ljósmynd af fljúg-
andi diski yfir Forf Belvoir
herstöðinni í Virginíu. Fóru
sérfræðingar nefndarinnar á
staðinn og sýndu tæknifræð-
ingum þar myndina. Sáu
tæknifræðingarnir strax að
„diskurinn“ var raunar reyk-
hringur frá sprengingu, en
þess konar hringir myndast
þegar TNT sprengiefni er not
að til að sprengja blöndu af
dísilolíu, benzíni og hvítum
fosfór. Ljósmyndasérfræðing-
ur frá Raytheon félaginu var
fengin til að rannsaka ljós-
myndir, sem rakari einn í
Ohio hafði tekið í garði sín-
um af fljúgandi diski. Mynd-
irnar voru tvær, og sagði rak-
arinn að tæpar tvær mínútur
hefðu liðið milli töku mynd-
anna. Réðu sérfræðingarnir
það af skugga á myndunum
að rúm klukkustund hefði
liðið milli töku myndanna, og
að rakarinn hefði skýrt rang-
lega frá þvi í hvaða röð þær
voru teknar.
ÓSKÝRANLEGT
Rannsóknarnefndin viður-
kennir að hún geti ekki gef-
ið eðlilegar skýringar á tveim
ur myndaseríum af fljúgandi
diskum. Er önnur tekin í Ore-
gon árið 1950, hin í Kaliforn-
íu fimmtán árum seinna. Það
eru sérstaklega myndirnar frá
Oregon, sem nefndin á erfitt
með að útskýra, en þó segir
í áliti hennar að hugsanlega
geti verið um gabb að ræða.
Ókennilegir fljúgandi hlut-
ir hafa oft komið fram í rat-
sjám, og tók rannsóknarnefnd
in þá hlið til sérstakrar at-
hugunar. Fékk hún sérfræð-
inga frá Stanford stofnuninni
í lið með sér, og gat gefið
eðlilegar skýringar á mörg-
um fyrirbrigðum. Enga skýr-
ingu var þó unnt að finna á
atburði, er gerðist í Colorado
í maí 1967. Þá var farþega-
þota að koma inn til lending-
ar við Colorado Springs, og
va;- fylgzt með ferðum henn-
ar í ratsjám flugvallarins. Sáu
flugvallarstarfsmenn allt í
einu eitthvað á ratsjárskerm-
inum, sem nágaðirf þotuna og
fór fram úr henni. Gat rann-
sóknarnefndin enga skýringu
gefið á þessu.
Sum fyrirbæranna hefur
verið auðvelt að útskýra, eins
og þegar um 30 manns þóttust
hafa séð fljúgandi disk að
næturlagi í Colorado fyrir
réttu ári. Var „diskurinn" bú-
inn ljósum og sýndi furðulega
flugfimi. Einnig þóttust áhorf
endur hafa séð verur um borð
í disknum, og voru þær að
sjálfsögðu ekki jarðneskar. —
Tveimur dögum seinna kom í
Ijós að tveim skólapiltar
höfðu að gamni sínu sent upp
loftbelg fylltan hituðu lofti,
og var kerti um borð í belgn-
um til að hita loftið.
Vísindamennirnir í rann-
sóknarnefndinni segja í álits-
gerð sinni að nóg sé komið
af upplýsingum og gabbi varð
andi fljúgandi diska, sem sann
að hafi verið að eigi ekki við
sök að styðjast. Telur nefndin
því sjálfsagt að hætta við
frekari rannsóknir og fjárveit
ingar til rannsókna. Er það
sameiginlegt álit nefndarinn-
ar að þótt hún hafi rannsakað
sögusagnir um fljúgandi diska
allt að 21 árs gamlar, hafi
ekkert það komið fram, sem
réttlætt geti framhald rann-
sóknanna.
- MINNING
Framhald af hls. 18
aldrei heyrði ég hann hallmæla
neinum og vissi hann ávallt bet-
ur sínar ávirðingar en annarra.
Um árabil bjó hann með syst-
ur sinni ,Jakobínu Thorarensen,
sem reyndist honum góð systir
og bar hann mjög fyrir brjósti
Votta ég henni samúð mína og
fjölskyldu minnar, einnig börn-
um hans og öðrum ástvinum.
Kæri vinur, ÓIi Thor, við and-
látsfregn þína setti okkur hljóða
vini þína. En við vitum hvert
leið þín liggur, á Drottins fund,
og að þú munir eiga góða heim-
von. Þessvegna biðjum vér Guð:
Degi hallar, hjá oss sértu,
hjálp oss vertu,
þegar síðust nálgast nótt.
Guðmundur Ilraundal.