Morgunblaðið - 11.02.1969, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1969.
og datt. Drengurinn dustaði af
henni rykið, hjálpaði henni á
bak aftur og útskýrði fyrir henni
hárri raustu, hvað hún hefði gert
skakkt. Það var ánægjulegt að
horfa á þetta.
Lísu varð hugsað til Símonar
og telpunnar með rauða hjólið.
Henni hefði þótt svo gaman að
sjá þau saman. Hún hlakkaði til
þess tíma er hún gæti farið með
hann í heimsóknina til afa norð-
ur í landi. Þá fengi hún tæki-
færi tia að hvíla sig rækilega.
Þau mundu bæði hafa gott af
því. Samt vissi hún það þegar,
að áður en fríinu væri lokið, yrði
hún farin að hlakka til næstu
flugferðar og eins Símon til að
hitta aftur gkólafélagana sína.
Enda var það hvorttveggja fyrir
beztu.
Þegar hún kom aftur heim, var
klukkan ekki nema hálfníu og
hún var búin að öllu, sem hún
þurfti að gera fyrir næsta dag.
Hún óskaði þess að vita eitthvað
meira um þetta flóttamannaflug.
Kannski Benny væri á áhafnar-
skránni. Hún hefði gjarna viljað
tala við hann, en vissi ekki heim
ilisfangið hans fyrir víst. Hún
vissi bara að foreldrar hans ráku
einhverja krá einhversstaðar.
Loksins hringdi hún í stöðina
spurðist fyrir.
Um 'leið spurði hún, hvort
nokkur gæti gefið henni áhafn-
arskrána. Símastúlkan sagði að
þarna væri staddur vélamaður,
sem kynni að vita hverjir ættu
að fara. Hún fékk samband við
hann. Hann sagði að flugstjóri
yrði MeCall, en vissi ekki, hver
hinn flugmaðurinn yrði. Hún
spurði um þjónana og fékk tvö
nðfn sem hún kannaðist ekkert
við, og svo Joy Francis. Auk
sjálfs hans, bætti hann við. Hún
þakkaði honum og hringdi af.
Það var þýðingarlaust að
hringja í Benny héðanaf. En
hversvegna tvær flugfreyjur?
Það var alveg óvenjulegt.
Hvað snerti Blake McCall, þá
mundi hún ekki fá að sjá mikið
til hans. Þetta var engin við-
hafnarferð og þau yrðu að snúa
aftur um hæl í Sidney og fljúga
vélinni tómri til baka og setja
Tokið eítir — tnkið eftir
Hausta tekur í efndhagsflifi þjóðarirmar þess vegna gkal
engu fleygt en allt nýtt.
Við kaiupuim alls konar gerðir húsgaigina og húsmuna
þó þau þuirfi viðgerða-r við, sivo sem búffetsikápa, boirð,
sftóla, kluik'k'ur, speglla, blómasúlur, rok'ka, prjóna og
snældustokka og márgt fl.
FORNVERZLUNIN Laugaivegi 33
__________________bakhúsið, s'imi 10059, heima 22926.
^JVIelrose’s te^
Melföse’s te^
^gleðuryður
kvöldá ogmorgna^
Hvað er betra á morgnana eða á
mæðusömum vinnudegi? Lífgar hugann
og léttir skapið. Og hvað er betra á kvöldin?
Örvar samræður og rænir engan svefni.
Notalegur og hagkvæmur heimilisdrykkur.
Fljótlagað, fæst í þægilegum grisjupokum.
hana til eftirlits, áður en seinni
ferðin samkvæmt samningum yrði
farin.
Hún yrði að reyna eftir mætti
að koma sér saman við Joy
Francis, þar sem þær mundu
áreiðanlega verða að vera sam-
an í herbergi, hvar sem stað-
næmzt yrði.
8. kafli
Lísa var komin snemma á stöð-
ina og fór þegar út í flugvél-
ina ásamt vélamanninum. Henni
hnykkti við þegar hún leit inn í
káetuna, því að öll stóru, þægi-
legu sætin voru horfin en í
þeirra stað komin bakbein og
lítt fóðruð bekkjasæti. Stjórn-
borðsmegin tóku bekkirnir fjóra
í sæti, en þrjá bakborðsmegin.
Skemmtilegu tjöldin, sem áð-
ur höfðu verið fyrir gluggum og
útskotum voru líka horfin og
jafnvel e'ldhúsinu hafði verið
breytt. Hún velti því fyrir sér
til hvers þessir risastóru hita-
brúsar ættu að vera.
28
Áhöfnin tók að tínast um borð.
Annar þjónninn var afskaplega
ungur útlits, en hinn var gamall
og reyndur. Þetta gat verið
heppilegra en ýmislegt, sem hún
hafði áður komizt í kynni við,
hugsaði hún. Hún gat ekki alltaf
búizt við að hafa Benny og Joe
með sér.
Hún var enn að velta því fyr-
ir sér, hvort Joy Francis ætti að
fara þegar hún leit út og sá
hana koma gangandi við hliðina
á McCall flugstjóra.
Flugstjórinn bar farangurinn
hennar, auk síns eingin farang-
urs, en sjá'lf virtist Joy eiga
fullt í fangi með að rogast með
sjúkrakassann. Lísa varð sjálfri
sér sárgröm, er hún fann, að
VIPPU - BÍtSKÚRSHURÐIH
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir. smlðaðar eftir beiðni.
GLUGGAS MIÐJAN
Síðumúja 12 - Sími 38220
VANDERVELL
Vélalegur
De Soto
BMC — Austin Gipsy
Chrysler
Buick
Chevrolet, flestar tegundir
Dodge
Bedford, dísil
Ford, enskur
Ford Taunus
GMC
Bedford, dísil
Thomas Trader
Mercedes-Benz, flestar teg
Gaz ’59
Pobeda
Volkswagen
Skoda 1100—1200
Renault Dauphine
Þ. Jónsson & Co.
Sími 84515 og 84516.
Skeifan 17.
þarna var nokkuð sem hún sjálf
hafði gleymt.
Joy leit sem snöggvast inn í
káetuna og rak upp óp. — Ænei!
Þetta er alveg eins og einhver
andstyggðar langferðabíll. Reyn
ið ekki að segja mér, að þessir
veslingar eigi að sofa á þessum
sætum! Æ, halló, Þú ert Lísa
Brown, er ekki svo?
— Stendur heima.
— Þetta verður hreinasta
skrauthýsi í samanburði við búð
irnar sem sumt þetta fólk hefur
hírzt í, sagði Blake. — Halló,
Brown flugfreyja! Hvernig eruð
þér í pó'lskunni? Vonandi alveg
eins og innfædd eða er það ekki?
Ég hef heyrt, að annað mál
skilji farþegarnir ekki. Þér verð
ið bara að gretta yður, ef þér
skiljið þá ekki. Þetta lítur út
fyrir að ætla að verða skemmti-
leg ferð, eða hitt þó heldur!.
Hann gægðist inn í eldhúsið
og hnyklaði brýnnar til Lísu.
Hann sagði henni, að á Lund-
únaflugvelli kæmi sérstakur mat
ráðsmaður, sem mundi gefa fyrir
mæli um, hvernig flóttamennirn
ir skyldu fæddir. Þær Joe
þyrftu ekki annað en hafa eftir-
'lit með því, hvað kæmi um borð
af birgðum. Hann tók upp tösk-
una sína og var kominn hálfa
leið fram í stjórnklefann, þegar
hann sneri sér við og kom aftur.
— Hvernig líður honum Sím-
oni? spurði hann.
— Ágætlega og tsækkar með
degi hverjum, sagði Lísa.
— Ég hef heyrt að hann Fras
er sé farinn að hafa eitthvað
mikinn áhuga á honum, hélt hann
áfram, lágt. — Það er líka gott
fyrir svona strák að vera á sveita
bæ. Hann gæti komizt í verri
vist. --
Hún roðnaði upp í hársrætur
undir augnatilliti hans og sagði
með ákafa: — Þér virðist hafa
mikinn áhuga á að skipuleggja
skyldleika fólks. En yður skjátl-
ast bara þar, er ég hrædd um.
Hann hló og hristi höfuðið og
gekk burt.
Hún stóð eins og negld, kyrr
á staðnum, ofsareið og gröm, og
reyndi að finna eitthvað mein-
'legra, sem hún hefði getað sagt
við hann. En það var þessi hlát-
ur hans að vandræðum hennar,
sem var gremjulegast. í dyrun-
um kallaði hann aftur til henn-
ar: — Verið kát! Gallinn á yður
er sá, að þér takið sjálfa yður
álltof alvarlega.
Þar eð Joy Francis var svo
miklu eldri í starfi en Lísa, kom
það í hennar hlut að skipa fyr-
ir verkum. Því varð Lísa hissa
þegar Joy sagði: — Er þér sama
þó að þú sjáir um áhöfnina,
þangað til við komum til Napólí?
Ég á við, að þú lætur þjónana
gera öll skítverkin en ég verð
bara að leggja mig. Komst ekki
11. FEBRÚAR
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Ekki er ólíklegt, að þú komizt að einhverju, sem þér hefur
lengi leikið hugur á að fá að vita.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Nú er hver síðastur að athuga fjármálin og koma reiðu á þau.
Tviburarnir, 21. maí — 20. júní
Kannski væri hyggilegra fyrir þig að athuga allar aðstæður í
einhverju áhugamáli, sem þú hefur verið að skipuleggja, áður
en þú aðhefst nokkuð frekar.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí
Kaupin, sem þú ert um það bil að gera þarf að athuga betur
áður en þú lýkur við samningana.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst
Ekki væri úr vegi að láta eitthvað af hendi rakna, áður en þú
festir fé þitt til langs tíma.
Meyjan, 23. ágúst — 22. sept.
Garnalt fólk, sem þú þekkir þarfnast þín nauðsynlega. Þú ætt-
ir líka að athuga, hvernig ættingjarnir hafa það.
Vogin, 23. sept. 22. okt.
Nú hefur blásið svo byrlega fyrir þér um hríð, að þér er alveg
óhætt að slá af með heimtufrekjuna, og bíða átekta.
Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv.
Nú eru freistingarnar á hverju strái, en reyndu að standast
þær, því að þá munu allir verða svo hamingjusamir í kringum
þig-
Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des.
Þú ert ánægður með sjálfan þig, og kannski full ástæða til,
en láttu ekki sjálfstraustið hlaupa neitt með þig, á því hefur
ýmsum orðið hált.
Steingeitin, 22. des. — 19. jan.
Það er að rætast úr öllum þínum málefnum, en aðhald þarftu,
og þvx fyrr, sem þú gerir þér það ljóst, þeim mun betra fyrir alla.
Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr.
Ólíklegt er að þér áskotnist það, sem þú vildir fá frá vissum
aðilum, en vertu samt óhræddur, því að tii er Guð.
Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz
Ef þú heldur, að það sjái ekki aUir þeir, sem máli skiptir að
hafi augun lokuð, hverskonar svikamyllu þú hefur í huga, þá
skjátlast þér.