Morgunblaðið - 11.02.1969, Page 27
MORGÚNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1969.
27
I Jónas Kristjánsson, ritstjóri,|
Setti námskeið Blaðamannafé-
lags Islands í gærkvöldi í \
Menntaskólanum í Hamra-j
hlíð. Þá kynnti ívar H. Jóns-í
son, ritstjóri, fyrirkomulag og;
námsefni og síðan fiutti Vil-'
hjáimur Þ. Gíslason, fyrrver-
andi útvarpsstjóri, fyrri hlutai
fyrirlesturs um blaðaútgáfu á J
Islandi. Námskeiðið stendurl
til aprílloka og eru þátttak-^
endur 30 talsins.
Þessi mynd var tekin
1 blaðamannanámskeiðinu i'
I gærkvöld5 og á fremsta bekk (
I sitja Árni Gunnarsson, frétta-
maður, Vilhjálmur Þ. Gísla-
son, fyrrv. útvarpsstjóri, og'
1 Jónas Kristjánsson, ritstjóri.
Viljo skattírjáls
Sonning-
verðlaun
Mtal. hefur borizt svohljóð-
andi fréttatilkynning frá Rithöf
undasambandi íslands:
Á fundi í stjóm Rithöfunda-
sambands íslands 6. febr. s.l.
var eftirfarandi- á'iyktun ein
róma samþykkt:
Stjóm Rithöfundasambands fs
lands skorar á hið háa Alþingi
að gera ráðstafanir til, að Hall
dór Laxness fái notið Sonning-
verðlaunanna án skattafrádrátt-
ar.
f þessu sambandi er vert að
minnast þess, að hið háa Alþingi
veitir Halldóri Laxness árleg
heiðurslaun, sem verið hafa 100
þúsund krónur að undanförnu.
Væri næsta lítill heiður að því
fyrir íslendinga að láta hann
greiða margfalt hærri fjárhæð til
ríkisins af heiðursfé, sem önn-
ur þjóð sæmir hann fyrir verk
sem varpia ekki síður ljóma á
nafn fsliands en skáldsins sjálfs.
Auknar hafísrann-
sóknir nauösynlegar
HAFÍSRÁÐSTEFNUNNI lauk
sl. laugardag, en hún hefur stað-
ið yfir í Reykjavík undanfarnar
tvær vikur. Nánar verður sagt frá
erindum síðasta fundar ráðstefn-
unnar í blaðinu á morgun. f
greinargerð um Hafísráðstefn-
una, sem Mbl. barst í gær frá
stjómarnefnd Hafísráðstefnunn-
ar segir svo í niðurlagi: „Öllum
er ljóst, að auknar rannsóknir
og aukin þjónusta hefur kostnað
í för með sér, en ráðstefnan tel-
ur vandséð hvernig unnt sé að
verja opinberu fé í sambandi við
hafíshættu skynsamlegar en með
því að efla rannsóknir og þjón-
ustu, sem þær geta leitt til“.
íslandsklukkan
— í Vesturheimi í vor
ÞBGAR sýningum lýkur á
„Fiðlaranum á þakinu“ í Þjóð-
leiklhúsinu í vor mun hópur leik
ara taka sig upp og halda til Vest
urheims með sýningu á íslands-
klukkunni eftir Halldór Laxness.
Er ætlunin að sýna „íslands-
kiukkuna“ í Íslendingabyggðum
vestra og verður þetta í fyrsta
skipti, sem íslenzkur leikflokkur
sýnir í Vesturheimi. Hefur Þjóð-
ræknisfélag íslendinga vestra
sýnt mikinn áhuga á að fá heirn-
sókn frá Þjóðleikhúsinu. Leikétr-
arnir, sem eru mjög margir
verða flestir þeir sömu og á sýn-
ingum á leikritinu í vetur og
fyrra.
NATO GÆTI SÖKKT
MIÐJARÐARHAFSFLOTA RÚSSA
— á örtáum mínútum, segir Healey
varnamálaráðherra Breta í viðtali
Bonn 10. febrúar — NTB
V ARN ARMÁL ARÁÐHERRA
Breta, Denis Healey, heldur því
fram í viðtali við þýzka blaðið
Der Spiegel, að hersveitir NATO
gætu sökkt öllum sovézkum her-
skipum á Miðjarðarhafi á fáein-
um minútum, ef strið brytist út
þar.
Healey segir í viðtalinu, að
sovézki flotinn á Miðjarðarhafi
sé engin teljandi ógnun á meðan
NATO eigi öflugri flugher. Hann
segir, að meginhlutverk herskip-
anna sé ekki annað en fylgjast
með ferðum vestrænna herskipa
og líkir þeim við fótboiltakeppni,
þar sem ákveðinn leikmaður er
settur til að gæta hættulegs and-
stæðings. Healey segir, að Sovét-
ríkin hafi í mesta lagi 20 herskip
á Miðjarðarhafi, önnur séu
birgðaskip.
í viðtalinu lét fréttamaðurinn
þá skoðun í ljós, að sovézki ílot-
Gufuaflsstööin I Námaskarði
og dieselstööin á Akureyri
— teknar í notkun innan skamms
- HÖFUÐSTÖLL
Framhald af bls. 28
ur koma eftir á og það sem
greitt er á sama tíma er oft fyrir
mismunandi löng atvinnuleysis-
tímabil hvers bótaþega. Með
þessu getur upphæð greiðslna
verið mjög breytileg frá einum
mánuði til annars.
Á siðasta efnahagsreikningi
32. desember 1967 er höfuðstóll
sjóðsins 1115.6 milljónir króna
og hefur hann því aukizt á ár-
inu 1968 um það bil 185 milljón
ir króna. Verðbréfaeign sjóðsins
nam við árslok ’67 712.2 mffl-
jónum króna, en fjármunir sjóðs
ins hafa verið lánaðir til ým-
issa atvinnuframkvæmda út um
land. Á árinu 1967 hafði verð-
bréfaeign sjóðsins aukizt um
183.2 milljónir króna.
Úthlutunarnefndir atvinmu-
leysisbóta eru nú um 80 víðs
vegar um land.
Akureyri 10. febrúar.
Aður en langt um líður ætti
Norðurlandi að vera tryggð það
mikil raforka að ekki þurfi að
grípa til rafmagnsskömmtunar
þótt vatnsrennsli minnki í Laxá.
Einhvem næstu daga verður ný
3000 kíólwatta díselstöð á Odd-
eyri reynd og fyrir lok þessa
mánaðar er gert ráð fyrir að
hægt verði að taka í notkun
jarðgufurafstöðina í Námaskarði,
en hún á að geta framleitt 2500
kílóvött.
Báðar þessar stöðvar áttu að
vera kommiar í gang, en vegna
óhappa dróst að svo gæti orðið.
Eins og menn minnast gerðist
það fyrir jól að gufan brauzt út
úr vegg borho'lunnar í Náma-
skarði og kom upp skammt frá
og olli gufugosi. Gekk erfiðlega
eftir það að beizla gufuna í bor-
hoilunni þannig að hægt væri að
fóðra holuna, en nú hefur það
tekizt og er fóðrun lokið, en
frostið undanfarið hefur tafið
fyrir því að hægt væri að ganga
endanlega frá holunni. Allar
vélar eru komnar í rafstöðina
Skipaður
bókoMltrói
STEFÁN JÚLÍUSSON forstöðu-
maður Fræðslumyndasafns ríkis-
ins héfur verið skipaður bóka-
ful'ltrúi frá 15. marz að telja, að
því er segir í fréttatilkynningu
frá menntamálaráðuneytinu.
Jafnframt segir að staða for-
stöðumanns Fræðslumyndasafns
ríkisins hafi verið auglýst laus
til umsóknar með umsóknarfresti
til 7. marz nk.
og lítið verk eftir við að ganga
frá þeim.
Eins og fyrr segir er stöðin
byggð með það fyrir augum að
framleiða 2500 kílówött, en gufu
orkan, sem nú er fyrir hendi er
ekki nægjanleg og er því áform
að að bora aðra holu í sumar,
bæði fyrir rafstöðina og kísil-
iðjuna.
Dieselrafstöðin á Akureyri átti
að fara í gang fyrir jól, en
þá brotnaði í henni stykki og hef
ur verið beðið eftir nýju. Það
er nú komið og verður rafstöð-
in reynd eftir nokkra daga.
Þá mun þess verða skammt að
bíða að gengið verði frá áætl-
unum um stækkun orkuvera við
Laxá.
Sv. P.
FALSAÐI 0G SELDI ÁVÍSANIR
— að upphœð um 80 þúsund krónur
RANNSÓKNARLÖGREGLAN í
Reykjavík handtók í gær 21 árs
konu fyrir ávísanafals. Hafa þeg
ar komið fram í bankaútibúum
fjórar ávísanir, hver að upphæð
7000 krónur, sem kona þessi fals
aði og seldi, en við yfirheyrslur
greindi hún frá tveimur öðrum,
samtals að upphæð 7000 krónur,
sem hún falsaði og seldi í tiltekn
um verzlunum.
Þá kvaðst kona þessi að auki
muna eftir 10-15 öðrum ávísun-
um, sem hún hefur falsað svo
og selt á ýmsum stöðum, og seg-
ir hún meðalupphæð þeirra hafa
verið 3-4000 krónur.
Ávísanaeyðublöðin komst kon-
an yfir, þegar hún fór inn í
mannalausa skrifstofu fyrirtækis
í Reykjaví'k og einnig tókst henni
þá að komast yfir stimpil þessa
fyrirtækis og notaði hún hann á
allar ávísanirnar.
Smygl í tveim skipum
176 FLÖSKUR af áfengi og 25
þúsund sígaret'tur fundust við
tolllei't um borð í Mánafossi sl.
láugardag og sama dag fundust
170 flöskur af áfengi um borð í
togaranum Röðli, sem var að
koma frá útlöndum. Þrír skip-
verjar á Röðli gáfu sig fram sem
eigendur að áfenginu og a.m.k.
einn skipverji af Mánafossi hefur
gefið sig fram sem eiganda vín-
fanga og vindlinga sem þar fund
ust. Var í gær enn verið að leita
í Mánafossi, en búizt við að mál-
ið kæmi til rannsóknarlögregl-
unnar í dag.
ÁTTRÆÐUR maður varð fyrir
bíl á Miklubraut á sunnudaginn.
Hlaut maðurinn slæma byltu og
var fluttur í Slysavarðstofuna og
þaðan í sjúkrahús. Maðurinn var
á leið yfir götuna, þar sem
gangbrautarmerki er, þegar
óhappið varð. *
inn á Miðjarðarhafi væri nógu
sterkur til að koma í veg fyrir
að Vesturveldin gætu gripið til
íhlutunar, til dæmis til stuðnings
ísrael, en Healey kvaðst draga
það mjög í efa. Hann sagði, að
sovézki flotinn væri minni en sá
ítalski og enginn fótur væri fyr-
ir því að hann væri nýtízkulegur
og fullkominn. Aðeins fáein sov-
ézku herskipanna væru nýtízku-
leg, önnur ekki og þau hefðu
enga aðstoð frá fluigvélum.
Jón Siguiðsson ó
Yztafelli lótinn
JÓN Sigurösson bóndi og rithöf-
undur á Yztafelli í Suður-Þing-
eyjarsýslu andaðist í sjúkrahús-
inu á Akureyri í gær.
Jón fæddist á Yztafelli 4. júní
1889 og var bóndj þar frá 1917,
að undans-kildum árunum 1934—
1937 er hann var skólastjóri
Héraðsskólans á Reykjum í
Hrútafirði. Hann lét mikið til
sín taka í félagsmálum, var í
stjórn fjölmargra félaga og á ár-
unum 1923—1933 ferðaðist hann
um landið og flutti fyrirlestra
um samvinnumál. Þá var hann
mikilvirkur rithöfundur og skrif
aði fjölda bóka auk greina í
blöð og tímarit. Jón kvæntist
árið 1918 Sigríðj Helgu Frið-
geirs'dóttur frá Þóroddsstað í
Kinn.
Hólf milljón
ó hólfmiða
MÁNUDAGINN 10. febrúar var
dregið í 2. flokki Happdrættis
Háskóla íslands. Dregnir voru
2000 vinningar að fjárhæð
6,8010,000 krónur.
Hæs'ti vinningurinn, 500,000
krónur, komu á hálfmiða núm-
er 11,598. Tveir miðar voru seld-
ir í umboðinu á Eyrarbakka,
einn á Stokkseyri og sá fjórði á
Siglufirði.
100,000 krónur komu á hálf-
miða númer 2,784. Voru allir
fjórir hálfmiðarnir seldir í um-
bo'ði Helga Sivertsen í Vestur-
veri.