Morgunblaðið - 22.02.1969, Síða 11

Morgunblaðið - 22.02.1969, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1969. 11 - RÆÐA BJARNA Framhald af bls. 1 vinnuástandið í héruðunum og einnig í heild. Væri þess að vænta að góður árangur næðist af störfum þessara nefnda, þar sem samvinna væri mjög góð í þeim. Efnahagsörðugleikarnir yrðu þó ekki leystir með slíkum ráðstöfunum, heldur væri það höfuðnauðsyn að vinna mark- visst að því að gera stórátök til þess að hagnýta allar auðlindir landsins. Við yrðum einnig að gæta þess að einangrast ekki frá þeim stóru viðskiptaheildum sem að væru að skapast í heiminum, og þyrftum að gera okkur ljósa grein fyrir því hvaða þýðingu þessi alþjóðasamtök hefðu fyrir okkur þegar til lengdar léti. Ráðherra sagði, að til þess að þær ráðstafanir sem gerðar hefðu verið næðu tilætluðum árangri yrðu menn að slaka á kröfum sínum um skeið og gera sér grein fyrir því að þeir yrðu að taka á sig hliðstæða skerðingu og atvinnuvegirnir hefðu orðið fyrir. Eigi að síður mundi ísland vera í hópi þeirra landa sem biðu þegn unum einna bezt lífskjör. Hér á eftir fer ræða forsætis- ráðherra og frásögn af umræðum er urðu á Aiþingi um skýrslu hans: Sá höfuðvandi, sem við er að etja í íslenzkum efnahagsmálum er augljós. Það eru þær stað- reyndir, að nú á tveggja ára bili hafa útflutningstekjur af fram- leifSslu landsmanna minnkað á milli 40—50 af hundraði og ef litið er til þess auka kostnaðar, sem fylgir þessari verðmætaöfiun nú, vegna þess, hversu langan veg þarf að fara til áð sækja afl- ann þá. er óhætt að segja, að tekj urnar af sjávarútvegi hafi raun- verulega minnkað mun meira en þeirri tölu nam, er ég áður nefndi, eða allt að yfir 50 af hundraði. Þetta hefur svo aftur leitt til þess, að ekki einungis þau fyrirtæki, sem sjávarútveg stunda og á honum byggjast bein línis og þeir, sem við þessi störf vinna hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum, heldur hefur þetta haft áhrif á allt þjóðlífið. ÞJÓÐARTEKJUR MINNKUÐU UM 17% Á þessu tímabili mun láta nærri, að þjóðartekjur á mann hafi minnkáð um nær 17 af hundraði og séu nú svipaðar í raunverulegum verðmætum og þær voru á árunum 1962—1963. Ef ekki hefði verið að gert, þá mundi þessi tekjurýrnum auð- vitað hafa komið mjög misjafn- lega niður, og gerir það óhjá- kvæmilega að nokkru, en með margháttuðum ráðstöfunum hef- ur verið reynt að dreifa byrgð- unum af þessum skakkaföllum og nú er aðal viðfangsefnið það, að menn kunni, þjóðarheiMin og hver einstakur, að sníða sér stakk eftir vexti, geri sér grein fyrir því, að miða verður kröf- ur við greiðslumöguleikana, sem rýrnáð hafa. Hverjar, sem or- sakir þessarra vandræða eru, þá eru vandræðin staðreyndir, erfið leikar, sem við getum ekki með nokkru skotið okkur undan. Þetta eru, einfaldar og augljósar staðreyndir, en vegna þess. að stjórnarandstæðingar hafa óskað eftir því, að ríkisstjórnin gæfi skýrslu um efnahagsmálin, þá skal ég hér rifja upp nokkur höfuðatriði greinargerðar, sem ég hefi fengið um þau efni frá Efna- hagsstofnuninni nú þessa dagana. FRAMLEIÐSLUMAGN MINNKAÐI UM 15% 1968 Ég get þó ekki lesfð skýrsluna alla, mun aðallega gera grein fyrir og lesa megin þátt hennar, en fara lauslega yfir aðra kafla sem minni þýðingu hafa. t þess- ari skýrslu segir: Afkoma þjóðar búsins á árinu 1968 reyndist mun óhagstæðari en í upphafi voru taMar horfur á. Eftir því, sem leið á árið kom fram æ óhagstæð- ari heildarafkoma af vöMum hins mikla aflabrests á síldveið- um og auknum örðugleikum á út flutningsmörkuðum. Áhrif þess- arra áfalla til kjararýrnunar og samdráttar í eftirspurn og at- hafnalífi breiddust síðan út um allt efnahagslífið. Minnkun fram leiðslu og tekna í útflutnings- greinum, sem áföllin komu bein ast niður á, var að sjálfsög’ðu til- finnanlegust. Framleiðslum'agn sjávarútvegsins minnkaði 1968 um 15 af hundraði, en verðmæti að óbreyttu gengi um nærri 20 af hundraði, en á tveimur síðustu árum, frá 18. júní 1966 hefur framleiðslumagnið minnkað um 33 af hundraði, og útflutnings- verðmætið eða gjaldeyrisver'ð- mætið um það bil 44 af hundr- aði. Breytingin er nálægt því hin sama, enda þótt miðað sé við árið 1965, en hvorugt áranna 1965 og 1966 nam verðmæti fram leiddra sjávarafurða milli 5700 og 5800 millj. kr. á þágildandi gengi, en nam 1968 aðeins um 3200 millj. kr. umreiknað til sama gengis. MEIRA EN HELMINGI MINNI AFLI Fiskaflinn árið 1968 má sam- kvæmt síðustu heimildum áætla um 385 þús. tonn, en það er minna en helmingur aflans hvort áranna 1965 eða 1966, en um 35 af hundraði minnkun frá árinu 1967. Aflabrestur á síldveiðum olli þessari stórfelldu breytingu. Mun sildaraflinn árið 1968 hafa numið um 133 þús. tonnum eða aðeins tæplega þriðjungi síldar- aflans árið áður, en um sjöttungi aflans 1966. Um fjórðungur afl- ans nóðist þó aðeins með því að sækja á Norðursjávarmi'ð og landa honum erlendis. Loðnuafl- inn minnkaði um tæp 20 af hundr aði og varð 78 þús. tonn. Leita þarf aftur til ársins 1960 og til 1958 og áranna þar á undan, til þess að finna dæmi um svo lítinn síldarafla, sem síðasta ár, en öll árin frá 1961 hefur síldaraflinn verið tvöfalt til þrefalt meiri hið minnsta og allt upp í sexfald ur á við aflann 1968. Sömuleiðis nam heildarfiskaflinn 1968 nokk urn veginn sama magni og 1960, 593 þús. tonn eða 1958, þegar hann var 581 þús. tonn. Bolfisk aflinn 1968 var rétt við meðaltal áranna 1961 til 1965 382 þús. tonn en 1968 varð hann 370 þús. tonn eða um ellefu af hundráði meiri en árið áður. Ástæður þessa voru m.a., að vetravertíðin heppnaðist betur en árið áður, en auk þess var mikil aukning á úthaldi með al stórra báta til þorskveiða sl. sumar og haust. Stóð það að sjálfsögðu í sambandi við síld- arleysi'ð á miðunum við landið, en einnig, að því er virðist, við bætt rekstrarskilyrði bátaflotans. Aukið úthald og afli yfir sumar og haustmánuðina var nóg til þess að efla og jafna atvinnu víða um land, en ollu jafnframt sums staðar örðugleikum við mót töku og vinnslu, ekki sízt, þar sem markaðsskilyrði versnuðu um sama leyti. Af hálfu rikis- ins var greitt úr þeim örðugleik- um með fyrirgrei’ðslu til rýmk- unar verðaábyrgða og annars stuðnings við freðfiskframleiðslu og til stuðnings við vissar, illa settar greinar. Ríkisstjórnin gaf og síldveiði bátum, sildarbræðslum og hval- útvegi fyrirheit um stuðning og að vissu marki ábyrgð, til þess að tryggja að framlei'ðslu þess- arra tvísýnu greina sjávarútvegs ins yrði haldið uppi. Verðfall sjávarafurða taldist nema rúm- um fimm af hundraði árið 1968 en 11,6 af hundraði árið áður, metið eftir því magni hinna ýmsu afurða, er til útflutnings féll hvort árið. Það hefur þó talizt mun meira að heildarme'ð- altali, ef ekki hefði komið til mikil magnminnkun síldarafurð- anna, er féllu mest í verði. Verð fall bræðslusíldarafurða, einkum lýsis, óx1 þegar að verulegu marki á órinu 1966. Á siðasta ári féll mjölverð um rúm 12 af hundraði og lýsisverð um 29 af hundraði. Það er meðalverð frá meðalverði fyrri ára. En frá 1965 hefur mjöl ið fallið um 28 af hundraði og lýsið um fullan helming eða 52 af hundraði. Er þá miðað við verð í erlendum gjaldeyri. Mjög tilfinnanlegt verðfali varð einnig á freðfiski. Nam það um 15 af hundra'ði árið 1967, frá meðal- verði ársins á undan. Náði verðið sér lítið eitt upp um ára- mótin 1967 og 1968 og var við það miðað við ákvörðun fiskverðs og stuðning við frystiiðnaðinn í upphafi árs 1968. En er leið á árið varð enn á ný verðfall á frystum fiski, einkum þorskblokkum. Meðal- verð ársins á þorski rendist um 8 af hundraði lægra en áramóta- verð, en á öllum freðfiski um fjögur af hundraði lægra. SAMDRÁTTUR f ÖÐRUM AT- VINNUGREINUM Flestar aðrar sjávarafurðir hafa einnig fallið meira eða minna í verði á síðustu tveimur árum. Aðrar greinar framleiðslu, framkvæmda og þjónustu áttu einnig erfitt uppdráttar, bæði vegna örðugs árferðis og af vöíd um minnkaðrar kaupgetu og um- svifa í atvinnulífinu. Um þetta liggja ekki fyrir eins glöggar heimilir og um sjávarútveginn. Landlbúnaðarframleiðslan mun sennilega hafa staðið í stað eða jafnvel minnkað, a.m.k. ef tekið er tillit til hinnar miklu notkun- ar aðfenginna rekstrarvara af völdum árferðisins. Svipuðu máli gegnir um iðnaðarframleiðslu fyr ir innlendan markað. Bendir flest til þess, að í heild hafi sú framleiðsla staðið í stað á árið 1968 eða jafnvel dregizt saman lítið eitt á árinu áður, enda þótt sumar greinar iðnaðarins hafi tek ið nokkurra auknignu. Árið 1'967 mun hið sama hafa orðið uppi á teningnum. Það voru að sjálfsögðu þær greinar, sem ná- tengdastar eru sjávarútveginum, sem helzt kreppti að þessi ár. Sumar aðrar greinar iðnaðarins, er einkum stunda neyzluvöru- framleiðslu fyrir innlendan mark að áttu hins vegar örðugt upp- dráttar af völdum hækkandi framleiðslukostnaðar árin 1965 og 1966, en bættu aftur á móti aðstöðu sína árið 1967. Fram- leiðslusamdráttur í byggingar- starfsemi og mannvirkjagerð var um 6 af hundraði árið 1'968, þrátt fyrir aukningu stórframkvæmd- anna við Búrfell og Straumsvík, er út af fyrir sig hefði valdið 10 af hundraði aukningu fjármuna myndunar í þessum greinum í heild að öðru óbreyttu. Árið áð- ur var hins vegar framleiðslu- aukning byggingarstarfsemi um það bil 16 af hundraði. Umskipt in frá vexti til samdráttar í þess- ari grein, sem tekið hefur um árabil á móti drjúgum hluta aukningar mannaflans hafa þann ig numið um 16 af hundraði milli þessarra ára. Á sú breyting ásamt minnkun sjávarafla ríkast an þátt í þeirri breytingu at- vinnuiástandsins, sem á er orðin. Auk þess samdráttar í fram- leiðslu, sem hér hefur verið rak- inn er ljóst, að samdráttur hefur orðið í verzlun og þjónustu, ann arri en opinberri. VERÐMÆTI ÞJÓÐARFRAM- LEIÐSLUNNAR HEFUR MINNKAÐ Verðmæti þjóðarframleiðslunn ar 1968 er áætlað 25700 millj. kr. á meðatverðlagi ársins. Áætlað er, að minnkun þjóð- arframleiðslunnar á árinu 1968 í samanburði við 1967 hafi orðið a.m.k. 5 af hundraði. Til viðbótar þessarri minnkun koma áhrif verðfalls útflutningsafurða. Nam það verðfall um 5.5 af hundraði milli meðalverðlags 1967 og 1968 og veldur það ásamt minnk aðri framleiðslu því, að þjóðar- tekjur lækka nálægt 7 af hundr- aði á milli árannna 1967 og 1968. Reiknað á mann hefur minnkun þjóðarframleiðslunar orðið ná- lægt 6,5 af hundraði og lækkun þjóðartekna um rúmlega 8 af hundraði. Skakkaföll þessi komu í kjölfar sams konar áfalla er yfir dundu árið 1967, en á síð- ustu tveim árum til samans er varlega áætlað, að þjóðarfram- leiðsla hafi minnkað um 6,7 af hundraði, þjóðartekjur um rúm 14 af hundraði, þjóðarframleiðsla á mann um 9-10 af hundraði, þjóð artekjur á mann um 17 af hundr aði, Við þennan mikla afturkipp hefur þjóðarframleiðslan komizt á stig, er liggur á milli þess, er hún var árið 1964 og 4965 en þjóðartekjur á milli" þess, er þær voru 1963 og 1964. Að tiltölu við mannfjölda hefur afturkippur- inn orðið enn meiri, bæði þjóð- arframleiðsla og þjóðartekjur á mann 1968 lá á milli þess sem var 1962 og 1963. NÁIÐ SAMBAND ÚTFLUTN- INGSATVINNUVEGA OG ANNARA ATVINNUGREINA Þessi afturkippur sýnir, hversu náið samband er milli útfluttn- ingsatvinnuveganna annars veg- ar og annarra atvinnuvega hins vegar. Hið mikla tekjufall í út- flutningnum leiddi óhjákvæmi- lega til samdráttar í framkvæmd um og framleiðslu fyrir innlend- an markað. Fjárfestingin hér á landi er að miklu leyti kostuð af samtímatekjum framkvæmdaað- ila, auk útlána viðskiptabanka og sparisjóða, er fæst af mestu af spariinnlögum og samtíma- tekjum. Starfsemi atvinnurekstr- ar ræður og að sjálfsögðu mati fyrirtækja á þörf fyrir nýjar fram kvæmdir. Ennfremur ráða út- flutningstekjurnar mestu um al- menna neyzlueftirspurn í land- inu og dregur úr þeirri eftirspurn stig af stigi, þegar tekjur hverrar greinar á fætur annarri minnka. Úr þessum hringrásarverkunum innan hagkerfisins hefur síórum verið dregið á undangengnum örðugleikatímabili með ýmiss konar aðgerðum, sem til hefur verið stofnað af hálfu almenna valdsins. í fyrsta lagi með stór- framkvæmdunum, sem fjár er aflað til erlendis, þá með stuðn- ingi ríkissjóðs , við atvinnu og rrueð niðurgreiðslum, til að halda framleiðslukostnaði niðri, og enn með útlánum fjárfestingar- lánasjóða og banka umfram sam tíma fjárhagsmyndun af tekjum. Meðan áhr.if áfallanna voru að koma fram og talið var fært að halda áfram umfangsmiklum hallarekstri þessarra opinberu aðila var kaupgetunni haldið uppi, þótt slíkt leiddi til gjald- eyriseyðslu umfrarn tekjur. En þessi gjaldeyrisnotkun hefur sem sagt verið forsenda viðhalds inn lendrar framleiðslu og fram- kvæmda í því umfangi, sem ver- ið hefur. SAMDRÁTTUR f FJÁRMUNA- MYNDUN OG EINKANEYZLU Við upphaf ársins 9968 var von azt til þess, að verðmætaráð- stöfunin í heild þyrfti aðeins að dragast saman um 3-4 af hundr- aði, enda var þá búizt við lítils háttar aukningu þjóðarfram- leiðslu, þ.e. 1,7 af hundraði. En sá framleiðsluhnekkir, er þjóðar búið varð fyrir leiddi óhjákvæmi lega til þess, að verðmætaráð- stöfun til endanlegra nota, þ.e.a.s. auk útflutningsvörubirgða minnkaði um meira, eða um rúmlega 6 af hundraði. Munar hér þó ekki nærri eins miklu og á sjálfum framleiðsluhnekkinum frá því, sem ráðgert hafði verið. Dregið mun hafa úr einkaneyzlu á árinu 1968 um allt að 6 af hundr aði. Og enn meir úr fjármuna- myndun eða um 9 af hundraði. Minnkun þessi kom í tiltölulega litlum mæli niður á innfluttum gögnum og gæðum, svo sem með al annars lýsir sér í því, að inn lend byggingarstarfsemi minnk- aði mun minna en fjánmuna- myndunin eða um 6 af hundraði, eins og fyrr segir. Framleiðslan er aftur á móti talin hafa aukizt um 2,7 af hundraði. Er þá miðað við fyrirætlanir fjárlaga og fjárhagsáætlanir sveitarfélaga, sem í aðalatriðum munu hafa orðið að veruleika. Stefndu þess ar fyrirætlanir í aðalatriðum að því að haMa þeirri þjónustu við almenning, sem opinber neyzla felur í sér óskertri, þrátt fyrir vaxandi fólksfjölda. Aukning þessi er þó aðeins milli helmings og þriðjungs þeirrar aukningar, er verið hafði á árinu áður. Þess er að gæta, að samdráttur verð- mætaráðstöfunar árið 1968 kom í kjölfar stórstígra aukninga um árabil. Verðstöðvunararaðgerð- irnar haustið 1966 er stóðu til hausts 1967 höfðu mikil áhrif á þróunina á árinu 1967, annars vegar stuðluðu þessar aðgerðir að því að kama í veg fyrir frek- ari hækkun peningatekna, eftir að vöxtur raunverulegra þjóðar- tekna hafði fyrst stöðvazt og síð an snúizt til lækkunar. Hins veg ar urðu þessar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir, að tekjurýrn un þjóðarbúsins hefði í bili áhrif á afkomu aimennings. Var þetta réttlætanlegt og kleift meðan vonazt var til, að áföllin væru tímabundin. Verðlagsuppbætur á laun hafa tímabundin áhrif í sömu átt. Við þau skilyrði sem ríkt hafa á þriðja ár hafa þessir tveir þættir valdið miklu um að draga úr og tefja fyrir tekju- rýrnun einstaklinga og fyrir- tækja og þar með aðlögun neyzlu og verðmætaráðstöfunar í heild, að lækkuðum raunverulegum tekjum þjóðarinnar, þ.e.a.s. mild að áhrif þeirrar miklu tekjurýrn unar, sem þjóðin hefur orðið fyr ir. AFRAKSTUR GÓÐÆRISINS KOM FRAM í VERÐMÆTUM FRAMLEIÐSLUTÆKJUM. Fjármunamyndun er sá þáttur verðmætaráðstöfunar, sem bygg ir upp afkastagetu þjóðarbúsins. Fjármundamyndun atvinnuveg- anna hefur til og með 4967 vaxið ört og heildarfjármunamyndun- in og haldið á þeim tíma hlut deild ®inni, þ.e.a.s. nærri helm- ingi allrar fjármunamyndunar. Þjóðarauðúr í framleiðslutækj- um, byggingum og öðrum mann- virkjum hefur á síðustu árum aukizt mun örar en magn þjóð- arframleiðslunanr, eða t.d. frá árslokum 1961 til 1966 um 31 af hundraði og fjármunir atvinnu- veganna um 46 af hundraði, þar sem þjóðarframleiðslan jókst milli næstu ára á eftir, 1962 til 4967, einungis um 22 af hundr- aði. Af þessum staðreyndum má draga þær ályktanir, að eðlileg- ur hluti afraksturs góðærisins hafi orðið eftir í varanlegum verðmætum og samdráttur fram- leiðslunnar síðustu tvö árin hafi engan veginn stafað af ónógri af kastagetu atvinnuveganna. Ástæður samdráttarins eru þvert á móti hið mikla brottfall tekna í undirstöðuatvinnuvegun- um og áhrif þess á almenna eftir spurn. En þessi stórfellda tekju- skerðing undirstöðuatvinnuveg- ana ásamt hækkuðum fram- leiðslukostnaði gróf undan rekstr argrundvelli þeirra unz rennt var stoðum undir þá á ný með geng isbreytingunni í nóvember sl. MESTI HLUTI VIÐSKIPTA- HALLANS 1967—’68 VEGNA STÓRFRAMKV ÆMD A. Samfara öllum þessum erfið- leikum og óhjákvæmileg afleið- ing þeirra var sú, að á árinu var óhagstæður við kiptajöfnuð- ur og er hann áætlaður um 2685 millj. kr. miðað við fyrra gengi ársins, í framhaldi af álíka mikl- um viðskiptahalla ársins 1967 er var um 2356 miilj. kr. á meðal- gengi þess árs. Bæði árin stafaði mikill hluti viðskiptahallans af innflutningi til stórframkvæmda og var þeim hluta hains mætt með erlendum lántökum og inn flutningi einkafjármang's. Opinberar lántökur á síðasta ári námu 1.576 millj. kr., innflutt einkafjármagn 825 millj. kr., auk þess námu lántökur einkaa'ðila 226 millj. kr., en á móti þessu koma endurgreiðslur fyrri lána, er á síðasta ári námu 1.630 millj. kr. Lækkun gjaldeyrisstöðu bank- anna nam miðað við gengið, er gilti meginhluta ársins 1968, um 1.560 millj. kr. árið 1967, en um 850 millj. kr. árið 1968 Um sið- ustu árarnót nam nettóstaðan 302 millj. kr. á núgildandi gengi, en til viðbótar því hafa verið tekin stutt gjaldeyrislán hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum og Evrópu- sjóðnum. STEFNT AÐ ÞVÍ AÐ DRAGA ÚR VIÐSKIPTAHALLANUM Með gengisbreytingunni í nóv- ember 1967 var stefnt að því að draga mjög verulega úr viðskipta hallanum út á við, enda þótt óviðráðanlegar ytri orsakir og Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.