Morgunblaðið - 22.02.1969, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1969.
húsum vikaskilding, sagði hún,
en það er allt í lagi meðan þið
segið: „Fáið ykkur einn lítinn
á minn kostnað. Er það ekki rétt
hjá mér. Copper? Og hún laum-
aði peningum í hönd mannsins.
— Það er ekki nema satt, sagði
hann og brosti breitt og deplaði
til þeirra augum á víxl, áður
en hann lokaði á eftir sér.
Joy athugaði samlokuna, harm
aði, að engin mayonnes skyldi
vera með henni og hel'lti í boll-
ana.
Lísa hjálpaði Joy til að klæða
sig, eftir að hafa léð henni næl-
_ vii sendum 1
GLÓÐARST. GRÍSAKÓTELETTUR
GRILLAÐA KJÚKIJNGA
ROAST BEEF
GIjÓÐARSTEIKT LAMB
HAM BORGARA
DIÚPSTEIKTAN FISK
suðurlandsbraut H sími 38550
onsokka, varalit og vasaklút,
fylgt henni til dyra og tók svo
að vanda að taka til í öllu rusl
inu.
Klukkan var enn ekki nema
rúmlega sjö og þau áttu ekki að
leggja af stað fyrr en k'lukkan
tíu næsta morgun, svo að þá
yrði nógur tími til að ganga
frá dótinu sínu, en til þess að
drepa tímann, fór Lísa að taka til
einkennisbúninginn sinn og ann
að, sem hún þurfti, og fékk sér
síðan bað í ró og næði. Hún
s'kildi eftir hurðina i hálfa gátt
til þess að geta heyrt ef síminn
hringdi.
En klukkan hálfníu fann hún
með sér, að þessi framkoma henn
ar var ekki nema hlægileg.
Blað, sem hún hafði fengið um
38
morguninn hafði inni að halda
auglýsingar frá leikhúsum og
kvikmyndahúsum. Hún ákvað að
fara og sjá franska mynd, sem
hún hafði misst af í London. Og
hún átti að byrja stundarfjórð-
ungi yfir níu.
Hún var rétt í þann veginn
að rífa auglýsinguna úr blaðinu,
þegar síminn tók að hamast.
Rödd — sem var Blakes —
sagði: — Halló, Joy!
— Nei, það er ég, Lísa Brown
sagði Lísa.
— Nú sagði hann. Ætli
hún komi bráðlega inn aftur, eða
fór hún eitthvað langt?
— Hún ætlar að verða úti í
kvöld, að því er ég bezt veit,
sagði Lísa og reyndi að halda
málrómnum kæruleysislegum.
Hún yrði að halda honum í sím-
anum — hann mátti ekki hringja
af. . — hún kynni að vera niðri
í barnum og ég skal grennslast
eftir því og láta þig vita, ef
þú kærir þig um. ... En hann
greip fram í fyrir henni.
— Nei, það gerir ekkert til.
En segðu henni bara, að við
förum klukkan ellefu. Og sjáðu
um, að þið verðið báðar tilbún
ar á þeim tíma.
— Sjálfsagt, herra. Röddin
var flöt og vesældarleg.
Hún ætlaði að fara að leggja
frá sér símann, þegar hann
sagði og í allt öðrum rómi en
áður: — Vel á minnzt: krakkinn
TAUSCHER
SOKKAR - SOKKABUXUR
TAUSCHER—
kvensokkabuxur hafa
kvensokkabuxur hafa á skömm-
um tíma lagt undir sig markaðinn, enda
viðurkennd gæðavara.
Þær fást nú í 3 gerðum:
20 denier,
30 denier,
120 denier.
TAUSCIIER framleiðir einnig 3 gerðir
af bamasokkabuxum.
T A U S C H E lt-sokkar hafa verið og
eru vinsælasta sokkategundin.
Vöruvöndun og vörugæði eru ein-
kunnarorð TAUSCHER-verksmiðjanna.
Snið, áferð og litir við allra hæfi.
I
Úrval af TAUSCHER sokkabuxum og s okkum fást í flestum vefnaðar- og snyrti-
vöruverzlunum um land allt.
UMBOÐSMENN
Ágúsf Ármann hf. — Sími 22100
okkar þarna er í bezta gengi.
Ég var að koma úr sjúkrahús-
inu. Foreldrarnir hafa nú
ákveðið að bæta nafninu á flug
vélinni í nafnið hans — vesl-
ings litla skinnið! Það verður
erfitt fyrir hann að lifa það af
sér, þegar hann kemur í skóla.
Svo varð þögn og hann var
sjálfsagt að bíða eftir því, að
hún segði eitthvað, en hún sagði
ekki neitt og þá bætti hann við,
blíðlega: — Jæja, góða nóttLísa!
— Vertu sæll sagði hún og
lagði frá sér símann í döpru
skapi.
Hún sat stundarkorn og starði
út í herbergið, og fannst hún
einmana og yfirgefin og harm-
, ÁLFTAMÝRI 7
fLOMAHUSIÐ
simi 83070
Munið blómin á konudaginn
23. febrúar.
aði það, hve ósjálfbjarga hún
væri, en þá kom upp í henni
gamla gremjan. Maðurinn var
alveg ómögulegur og gjörsamlega
óþolandi. Hversvegna hafði hann
verið að slá henni sjálfri gull-
hamra, þarna í írak og nú dró
hann enga dul á það, að mann
mat hann einskis. Og hvað var
hann að vilja í sjúkrahúsið og
vitja um þennan flóttamanna-
krakka, úr því hann hafði bann
að öllum hinum að nefna hann
á nafn?
Nei, hann var harðstjóri og ó-
útreiknanlegur, já, víst hafði hún
andstyggð á honum, svo að það
gekk brjálæði næst. Hún gat
ekki hugsað um neitt annað.
Þetta dugði ekki. Það varð að
hætta.
Hún greip handtöskuna sína
og peysuna og snifsið af dag-
blaðinu, og strikaði út um dyrn
ar og skellti í lás á eftir sér.
Einhver var að nota lyftuna,
svo að hún hljóp niður stig-
ana. En fyrir neðan stigann
Fró Breiðiirðingoiélaginu
Félagsvist og dans í Breiðfirðingabúð laugardaginn
22. febrúar kl. 9.00. — Góð verðlaun.
Félagar fjölmennið.
STJÓRNIN.
22. FEBRÚAR
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Þér skjátlast eitthvað í sambandi við gróðamöguleika Farðu
að engu óðslega
Gerðu ráð fyrir þvermóðsku allra í dag. Veldu þér heldur
Nauðtið 20. apríl — 20. maí
gamla, rótgróna vini til að umgangast, en kunningja.
Tvíburarnir 21. maí — 22. júní
Gerðu þér vonir um góðan árangur þótt þér skeiki eitthvað
í útreikninugm
Krabbinn 21. júní — 22 júlí
Hugsaðu fyrst um sjálfan þig. Þannig lánast þér að hlynna að
öðrum, er stundin rennur upp.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Allt, sem þú hefur yfir að segja, kann að reynast þér þungt
í taumi Þú tekur þetta of nærri þér. Forðastu lyf, nema sér-
staklega ráðlögð.
Meyjan 23. ágúst — 22. september
Allt er dálítið ógreinilegt í dag, óskhyggjan ofarlega í
huga þér
Vogin 23. september — 22. október
Ef þú gefur of miklar upplýsingar, getur einhver velviljaður
gert þér óumræðilega mikinn óleik.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember
Þér hefur gengið vel í starfi. Hyggðu nú að einkamálunum,
og vertu orðvar.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember
eyndu að hafa hlutina dálítið einfalda Vertu ekki að tala
um þá við neinn
Steingeitin 22. desember — 19. janúar
Þú verður að segja satt frá til að forðast misskilning. Það er
til fólk, sem vill snúa öllu sér í hag.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar
Láttu ekki blekkjast fyrir rangar upplýsingar Vertu ekki að
gefa öðrum góð ráð.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz
Farðu þínar leiðir, hvað sem hver segir, og láttu ekki glepjast
til að masa of mikið við náungann.