Morgunblaðið - 04.03.1969, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.03.1969, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1969. 3 — Þjóðminjasaínið Framhald af bls. 28 ur leyfðu. Frumvarp þetta snert- ir hins vegar ekki húsnæðismál safnsins og mælir nefndin sam- hljóða með samþykkt þess. Magnús Kjartansson kvaðst vildi nota þetta tækifærj til að beina þeirri spurningu til mennta málaráðherra, hvað liði að út- vega lóð fyrir nýtt safnhús. Gylfi Þ. Gíslason menntamála- ráðherra sagði að nefndin hefði með áliti sínu vakið athygli á miklu vandamáli. Staðreynd væri hin miklu húsnæðisvanda- má] safnsins, og hún hefði verið rikisstjórninni kunn frá því í sumar. Þá hefði það skeð að hita leiðsla í byiggingunni sprakk og listaverk skemmdust. Eftir það hefði 3 byggingafróðum mönnum verið falið að athuga húsið og hefði þá komið í ljós að það væri mjög gallað þrátt fyrir að byggingin væri ekki gömul. Hús ið hefði verið reist á stríðsárun- um, og ekki nóg til þess vandað. Sérfræðingarnir hefðu reiknað með því að viðgerð á húsinu, sem kæmi að verulegu gagni, mundi kosta um 5 milljónir kr. Hefði á fjárlögum verið veitt 1 millj. kr. til þeirra, og þar með hægt að gera bráðnauðsynlegustu iagfærrngar. Kvaðst ráðherra vona að fjárveitingar til þessara lagfæringa gætu haldið áfram. Nú væri unnið að því að útvega safninu geymsluhúsnæði fyrir listaverk og einnig þyrfti þar að vera aðstaða fyrir pökkun og skoðun listaverka. Væri nú ver- ið að leita að hentugu leiguhús- næði og ákvörðun í þessu máli tekin fljótlega. Um lóðamál nýs safnhúss sagði ráðherra, að ekki væri enn fengin samstaða lista- unanna hvar slíkt hús ætti að reisa. Komið hefði til orða að hafa það í Öskjuhlíðinni, en það svæði sem þar kæmi helzt til greina hefði ekki verið skipulagt tii fulls. Ráðherra sagði að drátt- ur á útvegun lóðar fyrir safnhús kæmi ekki að sök að sinni, með- an svo litlar fjárveitingar væru til byggingar þess. Nota ætti tim ann til að íhuga hvar slíkt hús ætti helzt að vera, þar til naegi- legt fjármagn væri fyrir hendi ti] að ráðast í byggingu. Sigurvin Einarsson spurði um hvort ekki væri ráðlegt að flytja listaverkin burtu úr því húsnæði sem þau væru nú í þar sem þeg- ar hefðu orðið á þeim töluverð- ar skemmdir. Þyrfti að fyrir- byggja að slíkt kæmi fyrir aftur. Gylfi Þ. Gíslason srvaraði að þegar eftir að skemmdirnar urðu í sumar hefði verið gengið þann- ig frá, að slikt gæti ekki komið fyrir aftur. Hján í fangelsi fyrir ávísanafals: Hafa svikið út hátt á 3. hundrað þús. kr. UNG hjón sitja nú í fangelsi fyr- ir ávísanafals. Þau hafa á skömm um tíma falsað og selt ávísanir i samtals að upphæð hátt á þriðja hundrað þúsund krónur. Seint á sl. ári hlaut konan dóm fyrir ávisanafals. Hafði hún þá j selt falsaðar ávísanir, 36 að tölu að upphæð samtals hátt á annað hundrað þúsund krónur. Nýlega var konan svo hand- tekin á nýjan leik og hafði hún þá selt falsaðar ávísanir samtals að upphæð um 130 þúsund krón- ur, ávisanir að upphæð um 70 þýsund krónur seldi hún í bönk- um en afganginn í ýmsum verzl- unum. Við rannsókn sei'nna málsins kom í ljós, að maður var í vit- orði með konunni, og hafði hann lagt á ráðin um fölsun ávísan- anna, og við yfirheyrslu viður- kenndi hann að svo hefði einnig verið í fyrra skiptið. Ekki gátu hjónakornin skilað einni einustu krónu af þessum illa fengna auði. Stýii stolið BROTIZT var inn í 200 tonna bát við Grandagarð nýlega og stýrishjólinu stolið. Rannsónkarlögr'eglan biður þá, sem kynnu að geta gefið upplýs- ingar í mál] þessu, að gefa sig fram. Gólaus meðierð loftriffils L.EIGXJBÍLSTJÓRI einn hringdi í lögregluna á föstudagskvöld og tilkynnti henni, að hann hefði ekið eftir Kleppsvegi, þegar loft- riffiisskot skall skyndilega á hlið arrúðu bílsins. Kom skotið í rúð una i axlarhæð og skildi þar eftir rispu. Ekki hefur tekizt að hafa upp á þeim, sem svo gáleysislega handfjatlaði loftriffilinn í þessu tilfelli, en full ástæða er til að hvetja alla, sem loftriffla hafa undir höndum, til að sýna fyllstu a'ðgæzlu og velja sér önnur skot- svæði en í þéttbýlinu. - RTJSSAR SPÁ Framhald af bls. 28 spá fyrir um aflahorfur sovézka fiskiflotans og auðvelda þannig fiskiðjuverum á Kola-skaga alla áætlanagerð fyrir framtíðina. Dr. Ljamin segir að nútíma veiðitækni og i’ðnvæðing fisk- veiðanna hafi leitt til þess að um of hafi gengið á fiskistofn- ana. „Fyrir heimsstyrjöldina var fiskmagnið í sjónum svo mikið að engum datt í hug að það eyddist", segir hann. ,,En að und anförnu hefur verið gengið svo á stofnana, sérstaklega sildar- stofninn, að það er nánast hætta á að hún hverfi.“ Til dæmis bend ir dr. Liamin á, að síldarárgang- urinn frá 1940 hafi vei’ðst í 20 ár, en árgangurinn frá 1950 var upp urinn eftir 12 ár. Árgang- urinn frá 1959 er orðinn svo fá- gætur, að hann heldur ekki upp véiðunum, og frá 1963 hefur eng inn árangur komið fram, sem gefur vonir um mikla veiði. Af öllu þessu leiðir að búast má við mjög lítilli síldargöngu langt fram eftir næsta áratugn- um. Það er helst að þessi árs árgangur lofi góðu, en hann veið ist í fyrsta lagi 1975. Frá þeim tíma getur aflinn farið vaxandi. Stofnunin í Murmansk hefur samvinnu við sérfræðinga í Noregi, á íslandi, Bretlandi og ví’ðar, og hefur sú samvinna leitt meðal annars til samninga um verndun stofnanna. Má þar til dæmis nefna að bannað er að veiða síld, sem er minni en 25 sentimetrar. ★ Norski vísindamaðurinn Finn Devold sagði um fréttina frá Murmansk: — Við höfum ekki trú á þessu. Það hafa ávallt verið miklar sveiflur í vetrarsíldarstofninum, sem síldin hefur komizt yfir. Að aflinn hafi verið svo lítill sem 1968 er ekki einungis vegna þess, að stofninn hafi verið lítill, held ur hefur síldin og lært að gæta sín á nótunum. ★ Þá leitaði Morgunblaðið álits Jakobs Jakobssonar, fiskifræð- ings á fréttinni frá NTB. Hann sagði: — Þessi spá kemur mér ekki á óvart, því að enginn sterkur ár- gangur hefur bætzt við norska síldarstofninn síðan 1960 til ’61. Á síðastliðnu sumri bjuggust margir við að síld frá árgöngun um ’63 og ’64 myndu bætast við i stofninn, en það hefur ekki orð- ið enn af neinu ráði. Af þessum árgöngum hefur verið veitt gífur legt magn af smásíld við Norður Noreg og norðurströnd Rússlands og tel ég að þessar veiðar hafi verið í svo stórum stíl, að þær hafi haft úrslitaáhrif á það hve lítið hefur hætzt í stofninn 'á siðastliðnu ári og miklu minna en búizt var við. Hér er fyrst og fremst Norðmönnum um að kenna, sem veiddu um þa'ð bil 4/5 hluta af þessu magni, og Rússar 1/5. — Eins og Devold gat um þá fer aflinn ekki eftk síldarmagn- inu i sjónum eingöngu. Ég tel að stofninn sé ennþá svo stór, að undir sérstaklega góðum skil- yrðum, eins og voru í sjónum 1962 og ’66, þegar um var að ræða mjög stórar og auðveiddar torfur, að unnt sé að afla vel, þótt ekki verði um uppgripaafla að ræða. Auðvitað ver'ðum við að gera okkur ljóst, að veiðin eykst ekki verulega á meðan ekki kemur sterkur árgangur í stofninn. — Einkennilegt finnst mér, að Ljamin skuli tala um stofninn í ár. Ég held að hér hljóti að vera um mishermi að ræða, því að síldin er rétt a’ð komast á hrygn ingarstöðvarnar við Noreg nú þessa daga. Enginn veit, hvernig stofninn í ár verður, því að hann klekst ekki út fyrr en í vor. Hins vegar get ég skilið ummæli Ljamins, ef hann hefur sagt, að fyrstu möguleikar á sterkum stofni komi ekki fyrr en 1975, þ.e. þegar árgangurinn, sem nú klekst út, er kominn á það þroska stig, þegar unnt er að veiða hann. Enn veit enginn hins vegar um það hvort árgangurinn verður sterkur. — Mig langar til þess að benda á að líkur eru á því að eitthvað sé að rofa til með íslenzku sildar stofnana. Ég ræð þetta af því að í haust varð vart við þó nokk uð magn af smásíld út af Suð- austurlandi og Faxaflóa, þannig að eftir eitt til tvö ár eru líkur á því að veiði glæðist sunnan- og suðaustanlands. — Þá langar mig til þess a’ð minnast á niðurlag NTB-fréttar innar, þar sem rætt er um samn inga um verndun stofnanna og að ekki mætti veiða síld, sem ekki hefði náð 25 cm lengd. Ég veit ekki um neina slíka samn- inga. Hið eina, sem gert hefur verið í þessu er það að íslend- ingar hafa einhliða bannað skip um sínum að veiða síld, sem ekki nær 25 em. Ég veit hins vegar um að Norðmenn settu bann við smásíldveiðum fyrrihluta árs um tíma. Þetta bann hafði ekkert að segja, því að það gilti á tíma, þegar enginn hafði áhuga á smá- síld og þeir veiddu hana á öðr- um tímum ársins. Rússar hafa hins vegar borið fram tillögu um verndun smásíldar á vettvangi Alþjóða rannsóknarstofnunarinn- ar. Þessar tillögur styrðjum við íslendingar. Þessar tillögur verða teknar fyrir í svokallaðri vinnu- nefnd í apríllok og afgreiddar þaðan þá. Áður en þær hljóta fullgildingu, ef samþykktar verða, á eftir að leggja þær fyrir fund í Fiskveiðanefnd Norðaust- uratlantshafs, sagði Jakob að lokum. ÞETTA RÚM bjóðum vér yður með einstak- lega hagkvœmum kjörum 1000 kr. út og 1000 kr. á mánuði Aðeins örfá rúm til % r">o Simi -22900 Laugaveg 26 STAKSTEIMAR Kvenfélag Sósíalista Fregnir hafa nú borizf af því, að Kvenfélag sósíalista hafi fellt á félagsfundi að leggja fé- lagið niður í samræmi við þá ákvörðun að leggja niður starf- semi Sósíalistaflokksins. Kvenfé lag sósíalista er önnur eining Sósialistaflokksins, sem neitað hefur að leggja niður starfsemi. Hin fyrri var Sósíalistafélag Reykjavíkur, sem nú hefur ver- ið gert að landsamtökum. Jafn- framt er ljóst, að Æskulýðsfylk- ingin, sem alla tíð hefur ver- ið æskulýðsarmur Sósialista- flokksins mun starfa áfram. Af þessu verður ekki annað séð en að sú ákvörðun að leggja nið ur starfsemi Sósialistaflokksins hafi mistekizt með öllu. Yfir- stjómin hefur að vísu verið þurrkuð út af spjöldum sögunn- ar, en þau félög, sem voru meg- instofninn í Sósíalistaflokknum, hafa haldið áfram starfsemi sinni Þessar staðreyndir sýna glögg- lega, að samtök kommúnista á íslandi eru gjörsamlega klofin. Sú fylking, sem gekk samein- uð til kosninga frá 1956 og fram til 1967, er nú a.m.k. þriklofin Sagt er, að á Húsavík sé þessi hópur a.m.k. fjórklofinn, og verð ur einkar fróðlegt að fylgjast með þvi, hvort sú baktería er smitandi. Það virðast nefnilega engin takmörk fyrir því, hvað þetta lið getur klofnað niður í smáar einingar. Lánamálin Framsóknarmenn hafa sí og æ klifað á því að ekki væri nægi- lega vel séð fyrir lánamálum at- vinnufyrirtækja og á sunnudag inn fjallaði forustugrein Fram- sóknarblaðsins um lánamál iðn- aðarins. öllum er ljóst, að at- vinnufyrirtækin eiga við mik- inn skort á rekstrarfé að búa, en það er athyglisvert fyrir at- vinnurekendur að íhuga framlag Framsóknarmanna til þessara mála. Ar eftir ár hefur það ver- ið eitt helzta árásarefni Fram- sóknarmanna á ríkisstj-’rnina, að útlánsvextir væru of háir og þá bæri að lækka. Væntanlega er öllum ljóst, að lækkun útláns- vaxta mundi hafa í för með sér lækkun innlánsvaxta. Ennfrem- ur blandast sennilega engum hug ur um það, að hagur sparifjár- eigenda hefur ekki verið sem bezt ur á undanförnum árum. Það er því óhætt að slá því föstu, að vaxtalækkun mundi draga veru- Iega úr innlánsaukningu i bönk um og öðrum lána'tofnunum. Geta lánastofnrna til útlána byggist hins vegar nær eingöngu á innlánsaukningunni. Þess vegna er bersýnilegt, að ef farið yrði að kröfum Framsóknarmanna um vaxtalækkun mundi afleiðingin verða sú, að lánastofnanir ættu í enn meiri erfiðleikum með að sinna rekstrarf járþörfum atvinnu veganna en nú er. í þessum efn- um sem öðrum tala Framsóknar- menn því tveim tungum. ; Efíiitektarverður áhugi Kommúnistar sýna eftirtektar- verðan áhuga á því að halda úti ; málgagni sínu. A stofnfundi lit- gáfufélags um kommúnistablaðið : voru mættir 36 menn að með- töldum fundarstj 'ra og ræðu- mönnum, ef marka má myndir, sem blaðið birti af fundinum. A.m.k. voru jafnmargir stólar auðir. En kannski er þetta eins og kommúnistar vilja hafa það. Þeir hafa aldrei verið gefnir : fyrir fjöldaaðild að eignum sín- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.