Morgunblaðið - 04.03.1969, Side 13
MORGU'NBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1969.
13
SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM:
KVIKMYNDIR
Hafnarbíó
Of margir þjófar
(too many thieves)
Amerísk kvikmynd
Leikstjóri: Abner Biberman
Meðal leikenda:
Peter Falk
Britt Ekland
Þessi sakamálamynd er að því
leyti af gamla skólanum, að lík-
amleg og andleg ofurmenni vaða
þar ekki eins uppi og til dæmis
í James Bond eða Lemmy kvik-
myradum. Ekki er víst, að aðal-
söguhetjan sé nema svona ríf-
ega eins manns maki að burðum,
og hann er ekki miklum mun
færari með hníf og byssu en bóf
ar þeir, sem hann á í höggi við.
— Þetta ásamt fleiru gerir sitt
til að auka á hryllingsandrúms-
loftmyndarinnar og gefa
heoni meiri spennu, því vitan-
lega verkar það að nokkru sem
hemill á spennu í kvikmyndum,
ef ódrepandi menn „á la Bond“
standa þar sífellt í erjum við
bráðfeiga menn og erkiklaufa.
— Vonlaust dauðastríð vekur
ekki spenning: átök einstaklinga
sem báðir eiga sér nokkra lífs-
von, og eru því sem næst jafn-
færir, eru líklegri til slíks.
Svo er það annað, sem eykur
á spennu þessarar myndar. Hér
er ekki um samstilltan glæpa-
manraahópa að ræða, þar sem all-
ir þjóna undir einn herra, svipt-
ir að verulegu leyti einkaáhuga
málum og skýrum persónuein-
kennum. — Nei, þetta er allósam
stæður hópur gangstera, sem eiga
í sífelldum hagsmunaárekstrum
sín á milli og sitja á svikráð-
um hver við annan. Hvatirnar
að baki afbrotunum eru oftast
ljósar — Manni finnst gjarnan,
að maður hefði farið alveg eins
að, hefði maður aft tvinnu af
morðum og þjófnaði — Sem af-
Umboðsmaður eða innflytjandi
Við óskum eftir umboðsmanni eða aðalinnflytjanda
fyrir ísland, til að veita forstöðu sölu á söluhæfustu
framleiðslu Evrópu á nýtízku gólf- og teppadreglum.
Hægt er að reikna með miklum tekjumöguleikum. Ef
þér eruð kunnugir slíkum vörusölum t. d. húsgagna-
og teppasölum, málningar- og timburvöruverzlunum
væntum við að þér sendið okkur línu sem fyrst.
Merkið bréfið
8970 Weber & Sörensen Reklamebureau, I/S,
Clemenstorv 8, 8Ó00 Aarhus C.
TÍMINN ER PENINGAR
Vikukaup 10 menn 20 menn 30 menn 40 menn
Kr. 2.400,- 13.000,- 26.000,- 39.000,- 52.000,-
Kr. 2.880,- 15.600,- 31.200,- 46.800,- 62.400,-
Kr. 3.360,- 18.200,- 36.400,- 54.600,- 72.800,-
Taflan sýnir tjón fyrirtækis i eitt ár
ef FIMM MÍNÚTUR tapast daglega
af tima hvers starfsmanns —
STIMPILKLUKKA
á vinnustað er nauðsynleg BÆÐI starfsmanni og
vinnuveitenda, þar eð stimpilklukka er hlutlaus aðili.
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
4?
%
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
+ fx *** ^ HVERFISGÖTU 33
SÍMI 20560 * pÓSTHÖLF 377
brotamenn eru skúrkarnir nefni
lega ,,mannlegir“ þó ekki ofur-
mannlegir.
Lýðveldið Makedónía sem
kemur við sögu í þessari kvik-
mynd, mun hina vegar vera held
ur fyrirferðarlítið á landakort-
um enn þá, þótt samnefnd lands
svæði hafi löngum verið mikið
þrætuepli með Balkaraþjóðum og
íbúar þess kunni að ala með sér
drauma um sjálfstæði í framtíð-
inni. Það er einnig mannlegt.
Kvikmynd þessi er hvergi
nærri sneydd húmor, til dæmis
eru skipti lögfræðingsins (Pet
er Falk) við fyrrverandi eigin-
konu sína oft næsta kátleg. En
skemmtilegum orðaskiptum er
víða spillt með fljótfærnislegri
og óvandaðri þýðinigu íslenzka
textans. Ég held, að það sé hæp-
inn gróði fyrir kvikmyndahúsin
að spara sér vandaða þýðendur,
og í öllu falli ættu þau að
standa móralskt betur að vígi í
baráttu sinni gegn óhóflegum
skattaálögum, ef þau reyraa að
vanda sem bezt það málfarj sem
þau hafa fyrir íslenzkum ung-
mennum. Þau eru víst nógu oft
sökuð um annars konar spilling-
aráhrif, þótt þau misstu þann
glæp að misbjóða málsmekk fólks
með óvönduðum þýðingum, eins
og þau gera sig stundum sek um.
Viðurkenna ber, að kvikmynda
húsin hafa sýnt framfarir
að þessu leyti nú allra síðustu
árin, en misjafnlega miklar, og
betur má, ef duga skal.
S. K.
ALLT GENGUR
(hvar sem er og hvenær sem er
- við leik og störf - úti og inni
BETUR MEÐ COCA-COLA
drykkurinn sem hressir bezt, léttir skapið
og gerir lífið ánægjulegra.
FHAMUEITT AF VERKSMIOJUNNI VÍFILFELL. í UMSa-OI THE COCA-CDLA EXPPRT CDRPORATION
TÍZKUSKÓLI ANDREU
MIÐSTRÆT17 SÍMI 1 9395
U ngbarnaútiföt
úr dralon, verð kr. 465.
Urval af prjónagarni. — Sængurgjafir í úrvali.
Allur ungbarnafatnaður.
PÓSTSENDUM.
LL.A
Barónsstíg 29 - sími 12668