Morgunblaðið - 11.03.1969, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1969.
S jávarútvegur
á fímamótum
verður umrœðuefnið á fyrsta úthreiðslu-
fundi Fél. áhugamanna um sjávarútv.mál
FÉLAG áhugamanna um sjáv-
arútvegsmái heldur fyrsta út-
breiðslufund sinn í Sigtuni á
morgun, miðvikudag kl. 20.30.
Már Elísson, fiskimálastjóri flyt
ur þar framsöguerindi, sem nefn
ist „Sjávarútvegur á tímamót-
um“, en að því búnu verða frjáls
ar umræður.
Félag áhugamanna um sjáv-
arútvegsmál var stofnað 15. febr
úar sl., en tilgangur þess er að
vinna að hvers konar framför-
um á sviði sjávarútvegs, sem
stuðlað geti að hagstæðri þróun
hans og kynna þýðmgu hans
fyrir þjóðinni. Er félaginu ætl-
að að vera eingöngu fræðslu-
og útbreiðslufélag, og mun því
ekki standa fyrir atvinnurekstri
í neinni mynd.
Kennslutækni-
fnndnr n morgun
KENNSLUTÆKNl efnir til ann-
ars fundar um skólamál annað
kvöld kl. 20.30 í Hagaskóla.
Fyrsti fundurinn, sem haldinn
var fyrri helgi fjallaði um skóla-
göngu 6 ára bama og var hann
fjölsóttur. Fundurinn annað
kvöld fjallar um tungumála-
kennslu á barnaskóium, og eru
framsögumenn Ragnar Georgs-
son, skólafulltrúi og Haukur
Ágústsson, kennari.
Útbreiðslufundurinn anna'ð
kvöld er sá fyrsti af mörgum,
sem félagið hyggst halda og er
gert ráð fyrir að þeir verði a.m.k.
mánaðarlega. Meðal þeirra mála
sem stjórn félagsins hyggst taka
til umræðu á fundunum eru: fjár
festingamál og fjármagnsþörf
sjávarútvegsins, nýting og
vinnsla sjávarafurða og vöru-
vöndun — endurnýjun og efling
togaraflotans — markaðsskömmt
un og markaðsöflun — hafrann-
sóknir og fiskileit — veiðitækni
og vinnslutækni — félagsleg upp
bygging sjávarútvegsins — skóla-
kerfið og atvinnuvegirnir. Mun
félagið fá framámenn á hverju
sviði til að flytja framsöguer-
indi, en að þeim loknum verða
almennar umræður.
Á fundi, sem stjórn félagsins
hélt með blaðamönnum í gær
kom fram að í framtíðinni er
gert ráð fyrir að fundimir geri
ályktanir um þau mál, sem þar
eru tekin fyrir. Félagsmenn eru
nú á annað hundrað og lagði
stjórnin áherzlu á það að starfs-
svæ’ði félagsins væri allt land-
ið og það væri opið öllum ein-
staklingum, sem áhuga hefðu á
sjávarútvegsmálum, þótt störf
þeirra væru ekki tengd þeim.
Stjórn félagsins skipa þessir
menn: Gunnar Friðriksson, for-
maður, Eyjólfur ísfeld Eyjólfs-
son, varaformaður, Ingimar Ein
arsson, ritari, Jóhann J. E. Kúld,
gjaldkeri og aðrir í stjórn eru
Loftur Júlíusson, Jón I>. Árna-
son og Guðlaugur Tryggvi Karls
son.
Dræm sala hefur verið í bílum og allmargir óseldir bílar eru nú í ýmsum vörugeymlum.
Leyfisgjald af bifreiðum
úr 90% í 60%
Bifreiðainnflytjendur telja lœkkunina
of litla til að valda söluaukningu
MORGUNBLAÐINU barst í gær
fréttatilkynning frá fjármálaráðu
neytinu þar sem segir, að gefin
hafi verið út reglugerð, og iækki
leyfisgjald af bifreiðum með
henni úr 90% í 60%. Vegna þess
arar nýju reglugerðar leitaði
Morgunblaðið til fjögurra bif-
reiðainnflytjenda, og spurði þá,
hvaða áhrif þessi lækkun hefði
á verð einstakra bifreiða og á
söluna almennt. Þeim ber sam-
an um, að lækkunin væri of
lítil til að hafa veruleg áhrif
á söluna á bifreiðum. Töldu tveir
að raunhæfast hefði verið að
felia leyfisgjaldið niður með
öliu.
Fréttatilkynning fjármálaráðu
neytisins fer hér á eftir:
«
NATO, loftferða- og iöndunarsamningur, og
önnur mál til umræðu við ráðamenn í Kanada
Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra,
segir frá ferð sinni til V-íslendinga
JÓHANN Hafstein, dóms-
málaráðherra, kom um
helgina heim úr heimsókn
til Þjóðræknisfélags ís-
lendinga í Vesturheimi, en
þangað var honum og konu
hans boðið vegna 30 ára
afmælis Þjóðræknisfélags-
ins.
Ráðherrann hitti fjölda
Vestur-íslendinga að máli,
auk þess sem hann ræddi
við nokkra ráðherra í kana
dísku stjórninni, og har þá
m.a. á góma aðild Kanada
að Atlantshafsbandalaginu
loftferðasamningurinn
milli landanna, Iöndunar-
samningur, iðnþróun og
fleira.
Morgunblaðið hefur áður
skýrt frá ýmsu í sambandi
við ferðina vestur um haf, en
spurði Jóhann Hafstein í gær
frekari frétta.
Sagðist honum svo frá:
„Eftir heimkomuna er mér
efst í huga þakklæti í garð
Vestur Islendinga fyrir af-
bragðs móttökur, og var það
okkur hjónum mikil ánægja
að eiga þess kost, að hitta svo
margt fólk af íslenzku bergi
brotið og finna hlýju þess til
gamla heimalandsins. Sér-
staklega verð ég að láta í
ljós þakklæti til Grettis L.
Jóhannssonar a'ðalræðismanns
fslendinga í Winnipeg og
konu hans, en þau hjón báru
okkur á höndum sér. Sama
má segja um forseta Þjóð-
Jóhann Hafstein.
ræknisfélagsins Sr. Philip M.
Pétursson og konu hans, og
reyndar væri ástæða til að
nefna ýmsa aðra, því alls stað
ar mætti okkur sama hlýjan
og góðvildin.
ÞJÓÐRÆKNISÞINGID
Hámark ferðarinnar var
Þjóðræknisþingið, sem stóð
í þrjá daga, og samtímis kvöld
samkomur, sem deildir Þjóð-
ræknisfélagsins í Winnipeg,
Frón og Icelandic Canadian,
stóðu fyrir. Þessar samkomur
voru haldnar í Lúthersku
kirkjunni og þar gafst tæki-
færi til að hitta fjölmargt fólk
og ræða við þa'ð, og ánægju-
legt að verða var við ein-
lægan áhuga þess á íslandi
og velferð lands og þjóðar.
Þá fórum við að Gimli, skoð
uðum þar gamalmennaheim-
ilið, sem íslendingar reistu og
hafa rekið af eigin rammleik,
enda er þar allt rammíslenzkt.
Annað gamalmennahæli
heimsóttum við í Selkirk, rétt
vi'ð Winnipeg. Það er einnig
rekið af íslenzkum Kanda-
mönnum.
Þá vil ég minnast á ís-
lenzka kennarastólinn við
Manitoba háskóla, en Vestur
íslendingar söfnuðu á sínum
tíma fé til að koma honum á
fót og standa straum af rekstri
hans. Prófessor þar í íslenzk-
um fræðum er nú Haraldur
Bessason, og leyndi sér ekki
að mikill fengur hefur verið
að honum fyrir Vestur íslend
inga, enda hefur hann unnið
ómetanlegt starf í þjóðræknis
málum samhliða kennslu í
háskólanum.
KANADA OG NATO
Á heimleið höfðum við
nokkurra daga viðdvöl í höf-
úðborginni, Ottawa. Þar var
Pétur Thorsteinsson, sendi-
herra og kona hans. Við sendi
herrann áttum þar viðræður
við ráðherra og áhrifamenn,
suma af íslenzku bergi brotna
eins og Thorson, dómara,
fyrrum ráðherra, og senator-
ana Thorvaldson og Bene-
diktson.
Við áttum viðræður við
Mitchell Sharp, utanríkisráð-
herra, Turner dómsmálaráð-
herra og Pepin, iðnaðarmála-
ráðherra. í þessum vi'ðtölum
bar á góma ýmis málefni,
sem snerta löndin sameigin-
lega, bæði loftferðasamning-
ur við Kanada og hugsanleg
löndunarréttindi vegna síld-
veiða við austurströnd Kan-
ada, og ræddi ég ýmis
iðnþróunarmál við iðnaðar-
málaráðherrann, svo sem fram
leiðslu á þungu vatni, ál-
bræðslur og stálskipasmíðar,
en Kanadamenn eiga í þeim
efnum vi'ð engu minni erfið-
leika að etja en við, svo að í
bili eru ekki fyrir hendi mögu
leikar á því að selja þeim
fiskiskip.
Nckkuð hefur verið á huldu
um afstöðu stjórnar Trudeaus
til Atlantshafsbandalagsins og
lék mér því hugur á að kynn-
ast viðhorfum utanríkisráð-
herrans. Skoðanir hans voru
mjög eindregnar, þ.e. að Kan-
ada eigi ekki annarra kosta
völ en byggja varnarkerfi sitt
upp innan Atlantshafsbanda-
lagsins. Annars mun Kanada
stjórn gera nánari grein fyrir
afstöðu sinni til varnarmála
á næstunni í sambandi við 20
ára afmæli NATO’s 4. apríl
n.k., sagði Jóhann Hafstein að
lokum.
Gefin hefur verið út reglu-
gerð þar sem leyfisgjald af bif-
reiðum er lækkað úr 90% í 60%.
Gjöld af jeppabifreiðum eru
lækkuð úr 30% í 15% og gjöld
af leigubifreiðum og kennslubif
reiðum, sem áður var 30% ér
lækkað í 15%, en þeir bifreiða-
stjórar, sem hafa leiguakstur og
ökukennslu að aukastarfi skulu
greiða 45% gjald við tollaf-
greiðslu í stað 60%.
Þá hefur ennfremur verið
ákveðið að láta lækkun þessa ná
til allra bifreiða, sem tollaf-
greiddar hafa verið eftir geng-
isbreytingu með hinu hærra leyf
isgjaldi og geta innflytjfndur snú
ið sér til tollstjórans í Reykja-
vík með endurgreiðslubeiðni.
Þá ræddi Morgunblaðið við
forstö'ðumenn fyrirtækjanna
Sveinn Egilsson og co, Vökuls
h.f. Heildverzlunarinnar Heklu
og véladeildar SÍS.
Þórir Jónsson hjá Sveini Eg-
ilssyni og Co sagði, að þessi
lækkun þýddi um 7—8% lækk-
un á heildarverði fólksbifreiða
og um 6—7% lækkun á jepp-
um. Kvað hann t.a.m. Ford Cor-
tínu lækka úr 315 þús. krónum
í 288 þúsund, en það væn of
lítið til að hafa nein úrslita-
áhrif á söluna.
Sigurður Markússon hjá Véla-
deild SÍS sagði, að við þessa
reglugerð lækkaði Vauxhall
Viva úr 267 þús. krónum í 242
þús.krón ur, eða um 9%, Chev-
elle til leiguaksturs lækka'ði úr
556 þúsund krónum í 525 þús-
und krónur, eða um 6%, Impala
til eínkanota lækkaði úr 829 þús
und krónum í 753 þúsund eða
um 9%. Taldi hann, að þessi
6—9% lækkun væri of lítil mið
að við þá miklu hækkun sem
varð á þeim við lækkun geng-
isins.
Ingimundur Sigfússon hjá
Heklu tjáði Mbl. að Volkswag-
en 1200 mundi nú lækka úr 230
þúsundum í 205, VW-1300 lækk-
aði úr 255 þúsundum í 230 þús-
und krónur, Landrover (bensín
vél) úr 332 þúsundum í 308 þús-
und og dieseljeppinn úr 370 í 343
þúsund krónur.
Jón H. Magnússon hjá Vökul
tjáði okkur, að þar lækkaði fólks
bíll af ger'ðinni Plymouth úr 787
þúsund kr. í 537 þúsund krónur,
og sagði hann, að lækkunin
hefði þurft að verða talsvert
meiri til að hún hefði raunhæf
áhrif.
Spilokvöld
í Hafnnrfirði
SPILAKVÖLD Sjálfstæðisfélai
anna í Hafnarfirði verður
Sjálfstæðishúsinu næstkoman
fimmtudagskvölð kl. 8,30. Spi
uð verður félagsvist og góð kvöl
verðlaun veitt. — Kaffi verði
framreitt.