Morgunblaðið - 11.03.1969, Side 12

Morgunblaðið - 11.03.1969, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1969. Á Með Loftleiðum í fótspor Leifs LOFTLEIÐIR áttu 25 ára afmœli í gœr Áður en rætt verður um stofnun Loftleiða má á það minna, að 16 árum eftir að Wil- bur Wright flaug í 3'/2 sek- úndu fyrsta flugtækinu, sem þyngra var en andrúmsloftið, stofnuðu fslendingar fyrsta flugfélag sitt. Er það mjög merkflegur vitnisbnrður um framsýni þeirra, sem þar komu við sögu. Hins er einnig skylt að minnast, að skammlífi fyrstu tveggja íslenzku flugfélaganna, og byrjunarörðugleikar hinna tveggja, sem síðar komu til sögu, áttu fyrst og fremst ræt- ur að rekja til vantrúar alls þorra manna og forráðamanna þjóðarinnar á því, að flugvélin mydni nokkurn tíma hafa hag- nýta þýðingu í samgöngumál- um íslendinga. Með komu hnatt flugmannanna bandarísku árið 1924 og þeirra langferðamanna í lofti, sem síðar áttu viðkomu á íslandi, varð mörgum ljóst, að hin aldagamla einangrun ís lands væri rofin, að landið væri orðið nauðsynlegur ófanga staður flugvéla í förum milli íslands og Ameríku. Með hernámi Breta árið 1940, og síðar hersetu Bandaríkja- manna, varð staða íslands í hinni nýju veröld flugsam- gangnanna enn augljósari en fyrr. Enda þótt hersetan dræpi flugviðleitni íslendinga í nokk urn dróma, þá varð hún þó til þess, að flugvélin gerðist jafn náttúrulegt fyrirbæri og bif reiðin, og flugvallagerð hins er lenda herliðs jók á þá fullvissu, að hið nýja samgöngutæki myndi fljótlega verða snar þátt ur í lífi þjóðarinnar. Ungir menn tóku að hugleiða hvaða ráðum þeir gætu beitt til að komast inn á þá braut, sem ver ið var að marka, og fyrir þvi leituðu állmargir til útlanda á síðari árum styrjaldarinnar og hófu þar flugnám. í þeim hópi ungra íslend- inga, sem stunduðu nám í flug- skóla í Winnipeg voru þrír Reykvíkingar, A'lfreð Elías- son, Kristinn Olsen og Sigurð- ur Ólafsson. Að flugprófum loknum gengu þeir í þjónustu kanadíska flughersins og önn- uðust þar kennsluæfingar. Þeir ákváðu árið 1943 að sniúa heim til íslands, og til tryggingar því að þeir fengju þar flug- störf keyptu þeir þriggja sæta sjóflugvél af Stinson gerð, og höfðu hana með sér út til ís- lands. Þegar heim kom varð aug- ljóst, að Flugfélag íslands hafði ekki bolmagn ti‘l að ráða þá þremenninga til viðbótar því starfsliði, sem fyrir var. Þá skaut upp þeirri hugmynd, hvort ekki væri unnt að stofna nýtt flugfélag og tryggja með því í fyrsfcu lotu vinnu flug- mönnunum þrem og siðar fleir um, ef heppnin yrði með. Var nú leitað til vina og venzla- manna og er loforð voru feng- in um fjárframlög var boðað til fundar í skrifstofu Sigurð- ar Ólasonar hæstaréttarlög- manns, föstudaginn 10. marz 1944, félagið stofnað og því val ið nafnið Loftleiðir. Á framháldsaðalfundi var fyrsta stjórnin kosin, en hana skipuðu Alfred Elíasson, Krist inn Olsen, Kristján Jóhann Kristjánsson, ólafur Bjarna- son og Sigurður Ólafsson. Krist ján Jóhann var kjörinn stjórn- arformaður og gegndi hann því starfi til 15. október 1953, en þá tók við sú stjórn, sem nú stýrir félaginu. Formaður hennar er Kristjén Guðlaugs- son, en auk hans eru í stjórn- inni Alfreð Elíasson, Einar Árnason, Kristinn Olsen og Sig urður Helgason. Fyrsta flugið var farið með Stinsonvélinni til ísafjarðar 7. apríl frá Vatnagörðum, þar sem fyrsta bækistöð félagsins var. Eftir það var haldið uppi far- þega- og póstflugi og síðar fékk félagið vinnu við síldarleit, og kom sér þá upp skýli við Miklavatn í Fljótum. Byrjunin spáði svo góðu, að ákveðið var að kaupa aðra flugvél, og í árs- lok 1944 átti félagið eina Stin son-flugvél og aðra af Grumma gerð, en samanlagður sæta- fjöldi þeirra var 10. Hér fer á eftir skrá um sæta fjölda flugvéla Loftleiða, mið- að við lok þeirra ára, sem greind eru: 1944 10 sæti 1948 169 — 1952 84 — 1956 216 — 1960 272 — 1964 753 — 1968 1196 — Nú eru í eigu félagsins fjór- ar flugvélar af gerðinni Doug- 'las DC 6B og fimm Rolls Royce flugvélar. Fyrsta árið voru fluttir 484 farþegar, en árið sem leið voru þeir 183, 375. Á fyrstu árum innanlands flugsins jókst farþegatalan allt til ársins 1949, en þá varð hún 14,079. Keyptar voru flugvélar af Anson, Grumman, Catalina, og Douglas gerðum, og flugi var haldið uppi til ýmissa staða. Samkeppnin um innanlandsflug 'leiðir harðnaði, og er ákveðið var að skipta flugleiðunum filli félaganna töldu forráða- menn Loftleiða að hlutur þeirra væri ekki lífvænlegur, og ákváðu því að selja þann flugkost sinn, sem notaður hafði verið til innan'landsflugs- ins. Var síðasta innanlandsflug ferðin farin 3. janúar 1952, og lauk með því, að þessu sinni, þætti Loftleiða í innanlands- flugi á íslandi. Höfðu þá alls verið fluttir innanlands 77,662 farþegar frá því er fyrsta flug ið var hafið frá Vatnagörðum árið 1944. Árið 1946 var afráðið að kaupa flugvél til millilanda- flugs og festi félagið þá kaup á Skymasterflugvél í Banda- ríkjunum. Hingað kom flugvél- in í júnímánuði 1947 og 17. júní var fyrsta millilandaflug Loft- leiða hafið frá íslandi og var haldið til Kaupmannahafnar. Næstu árin skiptust á skin og skúrir í millilandaflugsögu Loftleiða. Félagið hélt uppi ó- reglubundnum flugferðum, fór í leiguflug flutti stundum far- þega aðra leið en vörur hina, reyndi með misjöfnum árangri að hasla sér völl í hinni hörðu sámkeppni um flugleiðirnar á Norður-Atlantshafinu. Geta ber frá þessu tímabili um ferð, sem farin var til Bandaríkj- anna 25. ágúst 1948, en hún var farin í tilefni þess, að fé- lagið hafði fengið heimild flug málastjórnar Bandaríkjanna og íslands til að ha'lda uppi áætl- unarflugferðum til og frá Bandaríkjunum. Á tímabilinu frá 8. apríl til 6. maí 1951 gerðist sá eftir- minnilegi atburður, að 12 manna Stjórn Loftleiða. Frá v. Sigurð ur Helgason, Alfreð Elíasson, framkvæmdastjóri, Einar Árnason, Kristján Guðlaugsson, stjórnarformaður og Kristinn Olsen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.